Morgunblaðið - 29.11.1996, Síða 1
Pfe'-. þ-,. » :vtU« KTW-.'v: _______________________________________________________.XÍ^teÍ^rftiV p^'
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
HANDKNATTLEIKUR
Kristján úr leik á
HM ísnóker
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik heldur í dag til Ála-
borgar, þar sem leikinn verður
gegn Dðnum seinni leikurinn í
undankeppni IIM á sunnudag-
inn. Liðið verður komið til
Kaupmannahafnar fyrir há-
degi, en heldur þaðan til Ála-
borgar í kvöld. Þorbjöm Jens-
son, landsliðsþjálfarí, hefur
fengið inni fyrir landsliðið I
Bröndby-höllinni í Kaup-
mannahöfn, þar sem liðið mun
æfa í dag.
Mikill áhugi er þjá íslending-
um I Danmörku og er reiknað
með að hátt í 700 Islendingar
verði í höilinni, sem tekur rúm-
lega 2.600 áhorfendur.
Sveinamet
hjá Sigurði í
kúluvarpi
Aðeins fyrir stóra
stráka að gæta Geirs
Danir sannfærðir um að sigra í Álaborg og komast áfram
Sigurgeir
Guðlaugsson
skrilar frá
Danmörku
Danska dagblaðið BT fjallar um
landsleik íslands og Dan-
merkur í handknattleik á einni síðu
í gær undir fyrir-
sögninni „Við förum
á HM“. í upphafi
greinarinnar biðja
þeir Morten Bjerre
og Nikolaj Jacobsen dönsku þjóðina
um að vera rólega því það sé degin-
um ljósara að danska landsliðið
verði meðal keppenda á HM í Japan.
Þeir félagar eru mjög bjartsýnir
fyrir síðari leikinn, einna helst
vegna þess að þá verður Frank
Jörgensen með, en hann var að leika
með Teka á miðvikudaginn, og lík-
lega Claus Jakob Jensen, en hann
var meiddur. Bjerre segir þá félaga
gefa liðinu annað yfirbragð og efla
það í alla staði. Þeir telja að þó svo
einhverrar taugaspennu muni gæta
i Álaborg á sunudaginn þá séu þess-
ir tveir leikmenn sem vantaði sú
vítamínssprauta sem þurfí til að
komast alla leið.
Dönsku leikmennirnir eru mjög
ósáttir við spænsku dómarana og
segja þá hafa rústað dönsku vörn-
inni með því að reka Kasper Niels-
en útaf í þrígang. Hann sé lykilmað-
ur í vörninni og liðið hafi ekki mátt
við að missa hann.
Dönsku blaðamennirnir hrósa
Geir Sveinssyni mikið og segja að
Bjerre hafi ekki verið öfundsverður
af hlutverki sínu í vörninni, að þurfa
að fást við „hinn illa anda danska
landsliðsins" eins og þeir nefna
Geir. „Slíkt hlutverk er aðeins fyrir
stóra stráka!“
Blaðamaður lýkur greininni á bón
til landsliðsþjálfarans Ulfs Schef-
verts: „Kæri Ulf! Gleymdu öllum
vandamálum og þvi sem sagt hefur
verið um þig og landsliðið undan-
farna mánuði og biddu Rene Ham-
ann-Boriths að koma til Álaborgar.
Hann er sá leikmaður sem getur
stýrt liðinu til sigurs þannig að það
komist á HM í Japan.“
Sagt er að Schefvert hafi áður
tekið áhættuna, einmitt í Álaborg.
Þá kallaði hann á annan leikmann
GOG fyrir leik við Rúmeníu. Kim
G. Jacobson kom, sá og sigraði og
hreinlega skaut Rúmena í kaf og
Morgunblaðið/Golli
Gleði
GEIR Sveinsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins i hand-
knattleik, fagnar hér einu af
fjórum mörkum sínum á móti
Dönum í fyrrakvöld, en mikið
mun mœða á honum sem endra
nær í síðari lelknum í Álaborg
á sunnudaginn.
Dani um leið á EM í Portúgal.
Blaðamaðurinn leggur til að þjálfar-
inn kalli aftur nýjan leikmann
óvænt inn í liðið. Schefvert neitaði
þessari bón blaðamannsins í viðtali
við hann strax eftir leik en „fram-
tíð handboltans í Danmörku er í
húfi. Okkur hefur tekist að komast
yfir tvö stórslys, fyrst á HM og svo
EM, og við þolum ekki það þriðja.
Við verðum að komast til Japan,“
segir blaðamaður BT.
Að lokum má geta þess að eng-
inn dönsku leikmannanna lék á
heimsmælikvarða og enginn þarf
að snúa sér að einhvetju öðru.
Morten Bjerre var bestur og settur
í alþjóðlegan flokk leikmanna. Ann-
ars fá menn þokkalega einkunn
nema markverðinum Sören Haagen
er óskað betra gengis næst.
SIGURÐUR Karlsson, 16 ára
kúluvarpari úr UÍ A, setti í
fyrrakvöld íslandsmet í
sveinaflokki er hann kastaði
15,19 m á innanfélagsmóti
Tindastóls. Gamla metið átti
Birgir Óii Sigmundsson,
Tindastóli, 14,50 m. Þess má
geta að Birgir Óli keppti einn-
ig í mótinu og varð annar,
náði sér ekld á strik og varp-
aði 13,84 m. í sveinaflokki er
varpað 5,5 kg kúlu.
„Sigurður æfir tugþraut og
er efnilegur. Hann er einnig
mjög sterkur í spjótkasti,
langstökki og árangur hans í
kúluvarpi er mjög athyglis-
verður, ekki síst vegna þess
að hann leggur áherslu á tug-
þraut,“ sagði Gísli Sigurðsson,
þjálfari hjá Tindastóli.
Borðtenn-
ismenn á
mót ytra
FJÓRIR ísienskir borðtennis-
menn taka þátt í alþjóðlegu
stigamóti í Danmörku um
helgina. Þeireru Guðmundur
Stephensen, íslandsmeistari,
Ingólfur Ingólfsson, Kjartan
Briem og Markús Arnason.
Einnig taka þátt i mótinu flest-
ir bestu borðtennismenn Dana,
Svia og Norðmanna. Guð-
mundur hefur titil að veija frá
því í fyrra á þessu móti, bæði
í einliða- og tvíliðaleik.
1996
FÖSTUDAGUR 29. NOVEMBER
Bröndby-
höllinni
BLAD
KRISTJÁN Helgason úr Billiardfélagi Reylga-
víkur tapaði fyrir Paul Mefsud frá Möltu í 16
manna úrslitum heimsmeistaramótsins í snóker
á Nýja-Sjálandi í gær. Sigur hins gamalreynda
Mefsuds var þó naumur því lyktir leiksins urðu
5:4. Krisjján hefur leikið vel á mótinu en óttað-
ist mest að mæta Mefsud og ótti hans reyndist
á rökum reistur. Mefsud hefur gríðarlega
reynslu, hefur verið með í hátt í 20 HM-mótum
af þeim 23 sem haldin hafa verið. Hann leikur
mjög rólega og er sterkur varnarmaður sem
leyfir mótheijanum aldrei að komast inn í leik-
inn. AIls ekki sú gerð snókerspilara sem Krist-
ján kýs helst að leika á móti. Möltumaðurinn
hefur tvívegis orðið heimsmeistari, árið 1986
og aftur ári síðar.
Landsliðið
æfirí
HANDKNATTLEIKUR: MÖGULEIKAR ÍSLANDS Á SÆTI í JAPAN / C3
S ------------------------------------------------------—