Morgunblaðið - 29.11.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.11.1996, Qupperneq 1
Pfe'-. þ-,. » :vtU« KTW-.'v: _______________________________________________________.XÍ^teÍ^rftiV p^' BLAÐ ALLRA LANDSMANNA HANDKNATTLEIKUR Kristján úr leik á HM ísnóker ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik heldur í dag til Ála- borgar, þar sem leikinn verður gegn Dðnum seinni leikurinn í undankeppni IIM á sunnudag- inn. Liðið verður komið til Kaupmannahafnar fyrir há- degi, en heldur þaðan til Ála- borgar í kvöld. Þorbjöm Jens- son, landsliðsþjálfarí, hefur fengið inni fyrir landsliðið I Bröndby-höllinni í Kaup- mannahöfn, þar sem liðið mun æfa í dag. Mikill áhugi er þjá íslending- um I Danmörku og er reiknað með að hátt í 700 Islendingar verði í höilinni, sem tekur rúm- lega 2.600 áhorfendur. Sveinamet hjá Sigurði í kúluvarpi Aðeins fyrir stóra stráka að gæta Geirs Danir sannfærðir um að sigra í Álaborg og komast áfram Sigurgeir Guðlaugsson skrilar frá Danmörku Danska dagblaðið BT fjallar um landsleik íslands og Dan- merkur í handknattleik á einni síðu í gær undir fyrir- sögninni „Við förum á HM“. í upphafi greinarinnar biðja þeir Morten Bjerre og Nikolaj Jacobsen dönsku þjóðina um að vera rólega því það sé degin- um ljósara að danska landsliðið verði meðal keppenda á HM í Japan. Þeir félagar eru mjög bjartsýnir fyrir síðari leikinn, einna helst vegna þess að þá verður Frank Jörgensen með, en hann var að leika með Teka á miðvikudaginn, og lík- lega Claus Jakob Jensen, en hann var meiddur. Bjerre segir þá félaga gefa liðinu annað yfirbragð og efla það í alla staði. Þeir telja að þó svo einhverrar taugaspennu muni gæta i Álaborg á sunudaginn þá séu þess- ir tveir leikmenn sem vantaði sú vítamínssprauta sem þurfí til að komast alla leið. Dönsku leikmennirnir eru mjög ósáttir við spænsku dómarana og segja þá hafa rústað dönsku vörn- inni með því að reka Kasper Niels- en útaf í þrígang. Hann sé lykilmað- ur í vörninni og liðið hafi ekki mátt við að missa hann. Dönsku blaðamennirnir hrósa Geir Sveinssyni mikið og segja að Bjerre hafi ekki verið öfundsverður af hlutverki sínu í vörninni, að þurfa að fást við „hinn illa anda danska landsliðsins" eins og þeir nefna Geir. „Slíkt hlutverk er aðeins fyrir stóra stráka!“ Blaðamaður lýkur greininni á bón til landsliðsþjálfarans Ulfs Schef- verts: „Kæri Ulf! Gleymdu öllum vandamálum og þvi sem sagt hefur verið um þig og landsliðið undan- farna mánuði og biddu Rene Ham- ann-Boriths að koma til Álaborgar. Hann er sá leikmaður sem getur stýrt liðinu til sigurs þannig að það komist á HM í Japan.“ Sagt er að Schefvert hafi áður tekið áhættuna, einmitt í Álaborg. Þá kallaði hann á annan leikmann GOG fyrir leik við Rúmeníu. Kim G. Jacobson kom, sá og sigraði og hreinlega skaut Rúmena í kaf og Morgunblaðið/Golli Gleði GEIR Sveinsson, fyrirliði ís- lenska landsliðsins i hand- knattleik, fagnar hér einu af fjórum mörkum sínum á móti Dönum í fyrrakvöld, en mikið mun mœða á honum sem endra nær í síðari lelknum í Álaborg á sunnudaginn. Dani um leið á EM í Portúgal. Blaðamaðurinn leggur til að þjálfar- inn kalli aftur nýjan leikmann óvænt inn í liðið. Schefvert neitaði þessari bón blaðamannsins í viðtali við hann strax eftir leik en „fram- tíð handboltans í Danmörku er í húfi. Okkur hefur tekist að komast yfir tvö stórslys, fyrst á HM og svo EM, og við þolum ekki það þriðja. Við verðum að komast til Japan,“ segir blaðamaður BT. Að lokum má geta þess að eng- inn dönsku leikmannanna lék á heimsmælikvarða og enginn þarf að snúa sér að einhvetju öðru. Morten Bjerre var bestur og settur í alþjóðlegan flokk leikmanna. Ann- ars fá menn þokkalega einkunn nema markverðinum Sören Haagen er óskað betra gengis næst. SIGURÐUR Karlsson, 16 ára kúluvarpari úr UÍ A, setti í fyrrakvöld íslandsmet í sveinaflokki er hann kastaði 15,19 m á innanfélagsmóti Tindastóls. Gamla metið átti Birgir Óii Sigmundsson, Tindastóli, 14,50 m. Þess má geta að Birgir Óli keppti einn- ig í mótinu og varð annar, náði sér ekld á strik og varp- aði 13,84 m. í sveinaflokki er varpað 5,5 kg kúlu. „Sigurður æfir tugþraut og er efnilegur. Hann er einnig mjög sterkur í spjótkasti, langstökki og árangur hans í kúluvarpi er mjög athyglis- verður, ekki síst vegna þess að hann leggur áherslu á tug- þraut,“ sagði Gísli Sigurðsson, þjálfari hjá Tindastóli. Borðtenn- ismenn á mót ytra FJÓRIR ísienskir borðtennis- menn taka þátt í alþjóðlegu stigamóti í Danmörku um helgina. Þeireru Guðmundur Stephensen, íslandsmeistari, Ingólfur Ingólfsson, Kjartan Briem og Markús Arnason. Einnig taka þátt i mótinu flest- ir bestu borðtennismenn Dana, Svia og Norðmanna. Guð- mundur hefur titil að veija frá því í fyrra á þessu móti, bæði í einliða- og tvíliðaleik. 1996 FÖSTUDAGUR 29. NOVEMBER Bröndby- höllinni BLAD KRISTJÁN Helgason úr Billiardfélagi Reylga- víkur tapaði fyrir Paul Mefsud frá Möltu í 16 manna úrslitum heimsmeistaramótsins í snóker á Nýja-Sjálandi í gær. Sigur hins gamalreynda Mefsuds var þó naumur því lyktir leiksins urðu 5:4. Krisjján hefur leikið vel á mótinu en óttað- ist mest að mæta Mefsud og ótti hans reyndist á rökum reistur. Mefsud hefur gríðarlega reynslu, hefur verið með í hátt í 20 HM-mótum af þeim 23 sem haldin hafa verið. Hann leikur mjög rólega og er sterkur varnarmaður sem leyfir mótheijanum aldrei að komast inn í leik- inn. AIls ekki sú gerð snókerspilara sem Krist- ján kýs helst að leika á móti. Möltumaðurinn hefur tvívegis orðið heimsmeistari, árið 1986 og aftur ári síðar. Landsliðið æfirí HANDKNATTLEIKUR: MÖGULEIKAR ÍSLANDS Á SÆTI í JAPAN / C3 S ------------------------------------------------------—

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.