Morgunblaðið - 01.12.1996, Síða 15

Morgunblaðið - 01.12.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR L DESEMBER 1996 15 Svo eru fyrirmyndir í fjölmiðlum og kvikmyndum orðnar miklu stærri þáttur í heimsmynd ungl- inga en áður var. Það eru svo rosa- lega mörg áreiti á unglinga í dag að foreldrar hljóta að verða í minnihluta, hvað áhrif varðar. Við getum bara litið á myndir eins og Pulp Fiction og Train Spotting, þar sem heróínneysla er gerð töff. Ég hitti þrettán ára dreng sem langar til Ameríku og búa í Harlem í New York. Það er allt í einu orðin til einhver glansmynd af því að vera svartur, dópaður og skít- ugur í vímu. Við kunnum að spyija hvernig íslenskur unglingur, sem hefur allt til alls geti fengið svona flugu í kollinn; unglingur sem á ekki við nein vandamál að stríða. En það sem aðrir hlæja að, er raunveru- legt vandamál hjá unglingi, til dæmis að vera með of stórt nef. Það eru svo stórfenglegar öfgar á þessum aldri, 13-18 ára. Þau eru böm einn daginn og rígroskin þann næsta. Þetta er yndislegur aldur, ef unglingurinn sleppur framhjá þessum erfiðu skeijum, en hann getur líka verið hreinn hryllingur. Ungmennin í hringborðsum- ræðunni sjá það núna, þremur til fjórum árum síðar, að það hafi verið algerlega út í hött að vera á fylleríi þegar þau voru 13-14 ára. Það er svo mikill munur á þroska þrettán og sextán ára, eða fjórtán og sautján ára. Ef krakkar sleppa við að neyta áfengis fram til 17-18 ára aldurs, eru þau orð- in betur fær um að taka ákvörðun um enga neyslu. Þau verða þá líka færari um að stjórna neyslunni. Þegar þeim líður illa eftir neyslu, hafa þau frekar þroska til að meta orsakir og afleiðingar og taka af- stöðu út frá þeim. Þegar þau eru yngri gera þau þetta, þrátt fyrir hörmulega líðan.“ Neyslan breyttist með tilkomu E-töflunnar Svo virðist vera að stöðugt komi ný efni og form á fíkniefna- markaðinn. Ragnhildur fjallar mjög ítarlega um þau í bók sinni. Þar er rakin tilurð efnanna, sam- setning, upphaflegur tilgangur, áhrif þeirra, einkenni og afleiðing- ar. Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki heyrt helminginn af þeim nefndan og líklega er flestum foreldrum hér þannig farið. Þegar ég var unglingur, var hassið að koma inn í myndina og þá man ég að einhveijum þótti það snið- ugt; töldu það, í fyrsta lagi, skað- laust, sem reyndist ekki rétt - og í öðru lagi komust þeir í vímu, án þess að lykta af áfengi, þannig að foreldrarnir „föttuðu“ ekkert. Það fór margur flatt á því að halda að „fattleysi“ foreldranna væri aðalatriðið í neyslunni. Ekki þar fyrir, hassið hefur mjög sérstæða lykt, sem fer ekkert á milli mála. En nú er það E-taflan, lyktar- lausa fíkniefnið sem gengur undir nafninu alsæla - en eins og menn geta ímyndað sér, hlýtur heimur- inn að verða logandi svartur eftir að alsælustig er gengið yfir. Sjálfsmorð íslenskra unglinga hafa verið rakin til töflunnar og á það til dæmis við um Orra Stein Helgason. E-taflan getur eyðilagt lifrina og stórskemmt hjartað og heilann. „Neyslan breyttist mikið með tilkomu E-töflunnar,“ segir Ragn- hildur. „Markaðssetningin á henni var svo öflug að unglingar sem aldrei myndu nota amfetamín, LSD, eða önnur efni, reykja ekki einu sinni, fá sér E-töflu og ímynda sér að þeir séu ekkert í dópinu, þeir séu bara að fá sér eina danspillu.“ Hvernig má það vera? „Það er svo einfalt að taka inn töflur. Margir krakkar hafa alist upp við að taka vítamíntöflu með morgunkorninu. Þeim er sagt að það fríski og hressi. E-taflan er tekin með músíkinni. Þeim er sagt að þau verði voða hress og dansi mikið. Og svo gera þau það. Hver tafla kostar 3.000-4.000 krónur og það er til í því að krakk- ar, sem eru að skemmta sér heila helgi, taki inn þijár töflur. Þetta er óhemju peningur og óhemju magn af eitri, sem þau eru að inn- byrða. Enda hefur það sýnt sig að þunglyndið sem grípur þau á eftir verður þeim um megn. Margir unglingar í dag hafa mjög rúm fjárráð. Þeir fá peninga fyrir fötum, hádegismat, áhuga- málum, bíóferðum, öllu mögulegu - en nota peningana í annað en á að nota þá. Það er dýrara að vera unglingur í dag en var fyrir einni kynslóð. Það er svo miklu meira í boði.“ Frumábyrgðin er hjá foreldrunum Við foreldrar erum nokkuð gjörn á að ætlast til að skólakerf- ið sjái um allt sem skiptir máli í lífi barnanna okkar. Það er svo stórt, yfirgripsmikið og ópersónu- legt að það er næstum áreynslu- laust að benda á það. Við lesum ekki fýrir börnin okkar og kennum svo skólakerfinu um slælega ís- lenskukunnáttu þeirra. Við meg- um ekki vera að því að hjálpa þeim við heimanámið og kvörtum yfir því að kennarar séu svo léleg- ir nú til dags. Við tölum ekki við börnin og fínnst menntakerfinu ábótavant, þegar við áttum okkur á því að börnin eiga erfitt með að tjá sig. Við kynnum okkur ekki áfengis- og fíkniefnavandann, fyrr en hann lemur okkur í hausinn, en heimtum forvarnarstarf í skól- um. Og víst þyrfti að vera þar forvarnarstarf. En frumábyrgðin er hjá foreldr- unum. Hvað getum við sjálf gert? „Ég held að það sé ekkert fjarri lagi að segja að foreldrar þurfi að fylgja börnunum sínum hvert fótmál," segir Ragnhildur. „Ég held líka að fólk sé að vakna til vitundar um að það er ekkert hægt að sleppa hendinni af þrett- án ára krökkum, eða þaðan af yngri. Fólk er að átta sig á því að það er ekkert unnið með því að barn geti séð um sig sjálft á meðan foreldrarnir vinna langa daga. Börn þurfa aga og vilja hann.“ En eins og þú bentir á, hefur þetta allt gerst svo hratt. Heldur ástandið ekki bara áfram að versna, fyrst hjólin eru farin að snúast? „Það er ekkert lögmál. Ég held að það sé hægt að snúa þessu við. Við erum með hóp af unglingum sem er í vanda og það er skelfí- legt að hugsa til þess að Tindum hafí verið lokað. Það kemur fram í máli viðmælenda minna í bók- inni, jafnt barna sem foreldra, að Tindar hafi einmitt verið staðurinn sem bjargaði þeim. Ef allir ungl- ingarnir, sem eiga í vanda vegna vímuefnaneyslu, væru í hrakning- um á Vatnajökli væri ekkert til sparað að koma þeim til hjálpar, sagði maður nokkur, sem þekkir vandann af eigin raun. Hann sagð- ist sjá í anda sjálfboðaliðana streyma út úr hveiju húsi og allar fjárhirslur opnast. En unglingar í vímuefnavanda eru ekki svona sýnilegir og því er auðvelt að loka augunum, spara og sleppa því að senda út björgunarlið. Þetta er lítið þjóðfélag, þar sem allir þekkja alla. Okkur hættir til að horfa á ókosti þess, en ættum að snúa okkur að því að nýta kosti þess. Við getum svo vel tekið höndum saman um að leyfa börn- unum ekkert að fullorðnast fyrr en þau hafa þroska til þess.“ Hef flutt skrifstofu mína að Skipholti 50d, 5. hæð, 105 Reykjavík. Endurskoðun Hjalta Magnússonar ehf., Skipholti 50d, 105 Reykjavík, sími 511 2288 - fax 511 2289. og afslöppuð í /'fi a/nsi'tc/i ( oa Uó ,s Líkamsrækt 2.990 kr. 10 tíma morgunkort í Ijós 1.990 kr. lOtímakortíljós 2.500 kr. Líkamsrækt og Ijós 4.990 kr. (öll kort gilda í mánuð) Hlboðin standa til 10. desember Ræktin er sælureitur Vel búinn tækjasalur Tveir þolfimisalir Tveir körfubolta- og veggtennissalir Heilsa ísland (sérhæfð læknastofa) Gufuböð og heitir pottar Sólbaðsstofa með fullkomnum bekkjum KTIN TÆK)ASALUR • ÞOLFIMI • LJÓSABEKKIR SUÐURSTRÖND 4 Seltjarnarnesi • Við hlibina á Bónus Símar: 551-2815 & 55T-2355 ú t1 i t i ð e r g o t t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.