Morgunblaðið - 01.12.1996, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
„Enginn látinn alveg í friði“
Leiklistardeild ung-
mennafélagsins
Dagrenningar í Lundar-
reykjadal frumsýnir í
kvöld Sjálfstætt fólk
eftir Halldór Laxness í
félagsheimilinu Braut-
artungu. Orri Páll
Ormarsson blaðamað-
ur og Arni Sæberg ljós-
myndari litu inn á æf-
ingu í vikunni, þar sem
hálf sveitin var
samankomin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞORRI hópsins sem kemur að sýningunni á Sjálfstæðu fólki í Lundarreykjadal.
ÞÓTT Lundarreykjadalur sé ein-
ungis um 25 kílómetrar að lengd
virkar hann langur á þessu kol-
svarta vetrarkvöldi enda eru ferða-
langar með seinni skipunum, auk
þess sem þeir eru ekki allsendis
vissir um að þeir séu á réttri leið.
Varla er ljósglætu að sjá í dalnum
og að þeim læðist sá grunur að
annað hvort sé hann kominn í
eyði eða fólk upp til hópa að heim-
an. Mitt í þeim þönkum birtist
hins vegar hús baðað ljósum.
Brautartunga segir skiltið og
ferðalangar varpa öndinni léttar -
þeir eru komnir.
A móti þeim tekur flokkur fólks
GESTIR í Sumarhúsum. Sá sem stendur er Gísli Einarsson for-
maður leiklistardeildar Dagrenningar.
FJOLSKYLDAN á Gull-
berastöðum.
r H látí ðal 10U 1!
Samspil | lista, menningar og ferðaþjónu stu j
Tengist starf þitt ferðamálum, sveitastjórnarmálum, byggðamálum, menningarmálum, listum,
hátíðum, markaðsmálum eða ráðstefnum?
Þá er hér námstefna fyrir þig. Þaulreyndir fyrirlesarar miðla af reynslu sinni af skipulagningu,
fjármögnun, dagskrárgerð, markaðsöflun, kynningu, kostun og stjórnun og upplýsa hvernig þessir
þættir tengjast feröamálum með auknum straum gesta og þjónustu við þá.
Skýrt verður m.a. frá skipulagningu Listahátíðinnar í Edinborg, sem er stærsta listahátíð í heimi
og aflar skosku efnahagslífi ío milljarða ísl. króna á ári, Stockholm Water Festival, sem laðar
að sér árlega eina milljón gesta og einnig því frumkvöðulstarfi sem aukið hefur á hróður og
aðdráttarafl bæjarfélaga á Islandi vegna þeirra hátíða og viðburða sem þar eru haidnir.
Námstefna
Scandic Hótel Loftleiðum föstudag 6. des. 1996 kl. 9.30 - 17.15
Dagskrá: . Setning.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri.
• Ávarp.
Þórunn Sigurðardóttir, formaður framkvæmdastjórnar Listahátíðar í Reykjavík.
• Ráðstefnuskrifstofa íslands. Hlutverk og tilgangur?
jóhanna Tómasdóttir, framkvæmdastjöri Ráðstefnuskrifstofu fslands.
• Sambúð ferðamála og lista. (The Marriage of Tourism and the Arts.)
Nick Dodds, framkvæmdastjóri Listahátíðarinnar í Edinborg
Listahátíð í Reykjavík og fyrrverandi stjórnarformaður IFEA, Europe.
• Evrópusamvinna.
Þorgeir ólafsson, deildarsérfræðingur, menntamálaráðuneyti.
(I)
Ráðstefnuskrifsto f a
ÍSLANDS
International Festivals &
Events Association Europe
Fyrir gesti utan af landi:
Scandic Hótel Loftleiðir
og Hótel Saga
bjóða sérkjör
á gistingu í tengslum viö
ráöstefnuna.
Flugleiðir-innanlands
bjóða 40% afslátt á flugi
• Framtíð í fortíð. Víkingahátíðin í Hafnarfirði.
Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Víkingahátíðar.
• lazzhátíðin á Egilsstöðum.
Árni ísleifsson, tónlistarkennari.
• Menningarborgin árið 2000.
Guðrún Ágústsdðttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur.
• Fyrirspurnir og umræður.
• Frábærar hugmyndir frá hátíðum og uppákomum iFEA:
Nýjar hugmyndir um hagnað, fjölmiðlun, markaðsöflun,
dagskrárgerð og framkvæmdastjórnun.
Charlotte De Witt, forseti IFEA Europe.
• Óiíkar aðferðir við skipulagningu og fjármögnun tistahátíða.
Signý Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar í ReykjaVík.
• Atvinnulíf og menningarstarfsemi.
Þorsteinn M. Jónsson, framkvæmdastjðri Vífiifells ehf.
• Listasumar á Akureyri.
Ragnheiður Ólafsdóttir, ritari Gilfélagsins.
• Frá núlli upp í fjórar milljónir gesta á fimm árum:
Saga Stockholm Water Festival.
Eva Whitmore, dagskrárstjóri Stockholm Water Festival
og stjórnarformaður IFEAE.
• Fyrirspurnir og umræður.
• Móttaka í boði borgarstjóra.
til og frá höfuðborginni.
Fundarstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
|Námstefnugjald:
Skránlng: Ráðstefnuskrifstofa fslands, Lækjargötu 3,101 Reykjavík. Sími: 5626070. Fax: 5626073.
3.500 kr
4.000 kr. ef greitt
er eftir 2.12.96 |
0fr °!výringin á ljósleysinu í dalnum
liggur skyndilega í augum uppi -
hálf sveitin er þarna samankomin.
En hvað er atarna, hvers vegna
eru allir í klæðum sem minna
meira á síðustu aldamót en þau
sem eru í aðsigi? Kann nú einhver
að álykta sem svo, að Lundar-
reykjadalur hafi augljóslega ein-
angrast. Ferðalangar vita hins
vegar betur - þeir eru staddir í
herbúðum leiklistardeildar ung-
mennafélagsins Dagrenningar og
yfir stendur æfing á Sjálfstæðu
fólki eftir Halldór Laxness.
Leiklist hefur löngum verið í
hávegum höfð í Lundarreykjadal
en eftir að leiklistardeild Dagrenn-
ingar var sett á laggirnar fyrir
tveimur árum hefur hún verið tek-
in fastari tökum en áður, að sögn
Gísla Einarssonar formanns deild-
arinnar. Segir hann Dagrenningu
að mestu hafa einbeitt sér að
„frumsömdu léttmeti“ til þessa og
því hafi verið tímabært að spreyta
sig á klassíkinni.
En hvers vegna varð Sjálfstætt
fólk fyrir valinu? Því svarar leik-
stjórinn, Þórunn Magnea. „Ætli
ástæðan sé ekki sú að Halldór
Laxness á ansi mikið í okkur ís-
lendingum. Sjálfstætt fólk er til
að mynda beint út úr íslensku
hjarta og verkið höfðar kannski
sérstaklega til þeirra sem búa í
sveit, þar sem baráttan við landið
er í algleymingi. Annars er sama
hvar við búum - öll erum við að
reyna að vera sjálfstæð."
Mikill metnaður
Að sögn Gísla kom hugmyndin
óvænt upp en „hún hertók okkur
eiginlega strax“. Fékk hann fyrst
Hjalta Rögnvaldsson til liðs við sig
og í sameiningu gerðu þeir upp-
kast að nýrri ieikgerð á verkinu
en þegar Hjalti gekk úr skaftinu
var Þórunn fengin til að hlaupa í
skarðið. Lauk hún við leikgerðina,
auk þess sem leikstjórnin kom í
hennar hlut. „Leikfélag Dagrenn-
ingar hefur mikinn metnað og það
hefur verið yndislegt að vinna með
þessu fólki. Það vaknar fyrir allar
aldir til að sinna skepnunum en
lætur sig engu að síður ekki muna
um að vera við æfingar langt fram
yfir miðnætti, ef með þarf. Síðan
vaknar það morguninn eftir klukk-
an sex til að fara í íjós - hér er
ekkert gefið eftir.“
Að sögn Þórunnar er ekki
hlaupið að því að breyta Sjálf-
stæðu fólki í leikrit. „Verkið er svo
langt að útilokað er að leika það
í heild sinni. Maður verður því að
velja og hafna og ég sé eftir mörgu
enda er hver einasti karakter í
Sjálfstæðu fólki og hver einasta
setning, ef út í það er farið, gull-
væg í sjálfu sér.“
22 leikarar taka þátt í sýning-
unni, að meðtaldri tíkinni Sunnu,
sem fylgir húsbændum sínum, Þór
Þorsteinssyni og Guðrúnu Björk
Friðriksdóttur. Aðalhlutverkið er
í höndum Jóns Gíslasonar. Í það
heila koma hins vegar um 40
manns að sýningunni, þar af allir
nema einn úr sveitinni, Eyjólfur
Hjálmsson, tæknimaður og „nátt-
úrutalent“, svo sem Gísli kemst
að orði. Vekur það athygli í ljósi
þess að íbúar í Lundarreykjadal
eru einungis 102 talsins, þar af
85 með fasta búsetu. „Það var
enginn látinn alveg í friði,“ segir
Gísli og bætir við að þetta sé sam-
bærilegt við að 40.000 Reykvík-
ingar myndu standa að einni og
sömu leiksýningunni.
Meðal leikenda í Sjálfstæðu
fólki er fimm manna fjölskylda frá
Gullberastöðum, hjónin Kari Berg
og Sigurður Halldórsson, auk
dætranna Þórdísar, Birtu og Jón-
ínu Sigurðardætra. Hafa móðirin
og tvær eldri dæturnar verið virk-
ar í leiklistarstarfinu í sveitinni en
yngsta dóttirin og faðirinn eru að
stíga sín fyrstu spor á leiksviði.
„Ég hef reyndar leikið svolítið á
konuna, en það telst sennilega
ekki með,“ segir Sigurður og glott-
ir í kampinn. „En það veitti víst
ekki af að virkja alla sem vettlingi
gátu valdið."
Engin vandamál
Fjölskyldan ber lof á Þórunni
leikstjóra og segir samstarfið við
hana hafa verið afar ánægjulegt.
„Þetta hefur verið mjög gaman
og það hafa engin vandamál kom-
ið upp.“ Þykir systrunum mjög
spennandi að fá að leika á móti
foreldrum sínum og óttast ekki
að þær eigi eftir að ruglast í rím-
inu. Enginn úr fjölskyldunni hefur
sett stefnuna á leiklistarnám, þótt
systurnar útiloki ekkert í þeim
efnum.
Gísli dregur enga dul á að Dag-
renning færist mikið í fang að
þessu sinni - mikið sé lagt undir.
Sést það glöggt á leikmyndinni,
sem setur st'erkan svip á Brautart-
ungu þessa dagana. Er hún hönn-
uð af leikhópnum í sameiningu en
yfirsmiður er Árni Ingvarsson.
„Við rennum blint í sjóinn með
þessa sýningu enda eru alltaf
gerðar miklar kröfur til uppsetn-
inga á verkum Laxness. Það var
hins vegar ekkert vandamál að
sannfæra fólkið í leikfélaginu um
að láta slag standa enda nýtur
Nóbelsskáldið mikillar hylli í sveit-
inni, ekki síst Sjálfstætt fólk -
sennilega eimir eftir af Bjarti í
Sumarhúsum hér um slóðir.“
I máli Gísla kemur fram að
leiksýningar í uppsveitum Borg-
arfjarðar séu jafnan vel sóttar og
Dagrenning sé þar engin undan-
tekning. Fjöldi sýninga á Sjálf-
stæðu fólki muni, sem fyrr, ráð-
ast af aðsókn en formaðurinn
vonast þó til að þær verði ekki
færri en tíu. „Sumum þykir þetta
óhófleg bjartsýni en það verður
bara að koma í ljós — það þýðir
ekki að gera svona lagað með
minnimáttarkennd.“
Myrkrið er engu minna þegar
ferðalangar kveðja húsráðendur í
Brautartungu og hverfa inn í
nóttina. Munurinn er hins vegar
sá að nú rata þeir í Lundarreykja-
dal - og gott ef dalurinn er ekki
orðinn styttri líka.