Morgunblaðið - 01.12.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 B 13
DÆGURTÓNLIST
að stæla einhverja bandaríska
rappara og „væla um að löggan
sé alltaf að bögga mann, vegna
þess að hún er ekkert að því“,
segir hann og bætir við að þeim
hafi tekist að þróa eigin stíl í hljóð-
verinu. „Það er frá nógu að segja
í íslenskum veruleika og við erum
ekkert að gera að gamni okkar þó
við séum léttir í lund,“ segir Sölvi,
„okkur er full alvara með tónlist-
inni og ég fullyrði að platan okkar
er bara upphafið að mikilli bylgju
af íslensku rappi.“
A disknum eru fimm lög, enda
er hann hugsaður sem smáskífa
til að kynna sveitina, breiðskífa
komi út í vor. „Við erum að gera
fullt og semja fullt,“ segir Sölvi.
„Sem stendur erum við að bæta
lögum á tónleikadagskrána og tök-
um því rólega þó við séum ekkert
að halda okkur til hlés,“ en þó
þeir félagar hafi troðið upp tvíveg-
is á undanförnum dögum hyggjast
þeir ekki koma fram aftur fyrr en
á útgáfutónleikum um miðjan
mánuðinn og þá með hæfilega
langa dagskrá.
Eins og rakið er er þorri texta
þeirra Quarashi-manna á ensku,
en íslenska er notuð í einu lagi.
„Við stefnum að því að rappa
meira á íslensku á næstu plötu,“
segir Steinar, og bætir við að hann
hafi samið nokkuð af íslensku
rappi, en það sé svo erfitt því
málið sé svo „kantað". „Það verða
einhver íslensk lög á stóru plöt-
unni, því við viljum gjarna rappa
á íslensku, en það þarf að leggja
meiri vinnu í það.“
MFYKIR skemmstu kom út sóló-
skífa Stefáns Hilmarssonar, Eins -
og er... þar sem kveður nokkuð við
annan tón. Annað kvöld heldur Stef-
án útgáfutónleika í Borgarleikhús-
inu. A dagskránni verður efni af
Eins og er... í bland við eldri lög sem
Stefán hefur sungið á undanförnum
árum í nokkuð breyttum útsetning-
um. Stefáni til fulltingis verða þeir
Friðrik Sturluson bassaleikari, sem
jafnframt er hljómsveitarstjóri, Ást-
valdur Traustason píanóleikari,
Máni Svavarsson hljómborðsleikari,
Jóel Pálsson saxófónleikari, Eyjólf-
ur Kristjánsson kassagítarleikari
og Jóhann Hjörleifsson trymbill
og slagverksleikari. Þetta verða einu
tónleikar Stefáns að þessu sinni.
Sérstakir gestir kvöldsins verða sig-
urvegarar úr „Skrekk“, hæfíleika-
keppni grunnskólanna, sem fram fór
á dögunum.
■ VALGEIR Sveinsson kvaddi sér
hljóð með sinni fyrstu breiðskífu
fyrr í haust og hefur undirbúið út-
gáfutónleika af kappi síðan. Tónleik-
amir verða í Þjóðleikhúskjallaran-
um 11. desember næstkomandi.
Ymsir koma Valgeiri til aðstoðar og
þá sömu og aðstoðuðu hann við
gerð disksins; Ásgeir Óskarsson,
Haraldur Þorsteinsson, Björgvin
Gíslason og Arnar Guðjónsson.
Einnig troða upp Þorsteinn Langer
o g Þórður Gunnarsson.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Gaman Birgir Örn „Bibbi Barti“ Thoroddsen í brimsveiflu.
Alvaran yfirstigin
BRIMTÓNLIST er mörgum hugleik-
in, ekki síst á síðustu misserum þeg-
ar menn hafa óspart leitað fanga
aftur í timann, þegar hljómar og
hljóð héldust í hendur við vagg og
veltu, til brimtónlistar sjöunda ára-
tugarins. Hljómsveitin Brim hefur
látið á sér kræla undanfarna mánuði
og sendi frá sér breiðskífuna Haf-
meyjar og hanastél í liðinni viku.
Birgir Örn Thoroddsen hug-
myndafræðingur Brims segir að
upphafið megi rekja til kenn-
araverkfallsins í febrúar á síðasta
ári. Foreldrar hans hafi verið erlend-
ís og hann ekki gert annað en hlusta
á brimrokk og éta hamborgara. „Ég
hringdi síðan í strákana og spurði
hvort þeir væru ekki til í að vera í
hljómsveitinni Brim, við fengum
okkur hamborgara og kýldum á
æfínu og þá varð Brim til.“ Birgir
segir að Brim sé einskonar hliðar-
spor hjá honum og félögunum einn-
ig, hans aðalhljómsveit sé Curver,
og tveir séu í hljómsveitinni Maus.
Ekki vill Birgir gefa upp nöfn ann-
arra hljómsveitarmeðlima, segir að
þeir félagar komi yfíleitt fram undir
dulnefnum; Danni Beat lemur
trommur, Kapteinn Skeggi leikur á
bassa og Óli Raki leikur á hljómborð,
hristur og hryngítar, en sjálfur heitir
hann Bibbi Barti innan sveitarinnar.
„Þeir eru ekki eins heillaðir af brim-
tónlist en ég,“ segir Birgir, „en allir
höfum við gaman af því að vera að
fást við eitthvað nýtt og öðruvísi.
Upphaflega átti þetta reyndar bara
að vera tómstundagaman, en þegar
það kviknaði sú hugmynd að taka
upp plötu kom meiri alvara í þetta
og það tók okkur smá tíma að yfir-
stíga þá alvöru.“
Birgir segir að á Haftneyjum og
hanastéli sé að finna ýmisleg lög sem
hann samdi í bland við erlend uppá-
haldslög. „Ég valdi sjö lög úr 24
brimlögum sem ég samdi áður en
sveitin varð til og eftir að við byijuð-
um æfíngar, en trommuleikari sveit-
arinnar, Danni Beat, á líka eitt lag.“
Birgir segir að þessu til viðbótar séu
átta lög eftir hinar og þessar brim-
sveitir, en ekki er nema eitt lag sung-
ið „og það á íslensku, vegir Liggja
til allra átta sem Heiða syngur.
Reyndar lánaði Hallbjörn Hjartarson
rödd í einu lagi, en gítarinn í því lagi
var einmitt tekinn upp í Kántríbæ á
Skagaströnd," segir Birgir.
BARNA MYNDATÖKUR
FYRIR JÓLIN
BARNA ^FJÖLSKYLDU
LJÓSMYNDIR
sími 588 7644
Ármúla 38
^íemantaMÚMð
Handsmíðaðir silfurskartgripir
Kringlunni 4-12, sími 588 9944
- kjarni málsins!
Losnaöu víð fituna
úr fæðunni!
Fat Binder er 100% náttúrulest
fæðubótarefni sem binst við fitu
í meltinsarvesinum os hindrar að
líkaminn nýti sér hana. Fitan sem
þannis er bundin skilst út úr
líkamanum en meltist ekki os
þú srennist.
ÚTSÖLUSTAÐiR:
Apótekið Skeifon, Reykjovík.
Apótek Norðurbæjar, Hafnorfirði.
Austurbæjor Apótek, Reykjovík.
Árbæjor Apótek,Reykjavík.
Borgor Apótek, Reykjovík.
Borgomes Apótek, Borgor nesi.
Breiðholts Apótek, Reykjavlk.
Deiglan, Reykjavík.
Egilsstoðo Apótek, Egilsstöðum.
Gorðobæjor Apótek, Gorðobæ.
Gorðs Apótek, Reykjovík.
Groforvogs Apótek, Reykjavfk.
Hafnar Apótek, Hðfn Homafirði.
Hofnorfjorðor Apótek, Hofnorfirði.
Hogkaup Lyfjobúð, Reykjovík.
Hraunbergs Apótek, Reykjovtk.
Heifsuhomið, Akureyri.
Heilsuvol, Reykjovík.
Húsovfkur Apótek, Húsovík.
Ingólfs Apótek, Reykjovik.
Kópovogs Apótek, Kópovogi.
Lougones Apótek, Reykjovík.
Lougovegs Apótek, Reykjovík.
Lyfja hf., Reykjovík.
Mosfells Apótek, MosfelJsbæ.
Nes Apótek, Reykjavík.
Patíeks Apótek, Patreksfirði.
Reykjavlkur Apótek, Reykjovík.
Skiphohs Apótek, Reykjovlk.
Siglufjarðar Apótek, Siglufirði.
Stjömu Apótek, Akureyri.
Styrkur, Selfossi.
Stykkishólms Apótek, Stykkish.
Tóp og Fjðr, Egðsstöðum.
Vesturbæjor Apótek, Reykjavík.
Worfd Closs, Reykjavlk.
Æfingostudeo, Njorðvlk.
ölfus Apótek, Hverogerði.
£) PHARMANUTRIENTS"
ÞREKRAUN EHF.
FELLSMÚIA 24, SÍMI: 553 0000
Klassísk íegurð og notagildi
sameinast í þessum
einstöku skriffærum
FYRST6FREMST