Morgunblaðið - 01.12.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 01.12.1996, Síða 1
KRAFTMIKLUM VW PASSAT REYNSLUEKIÐ - OKUSKOLIAUDII A USTURRÍKI—LEIÐSÖGUTÖLVA VOLKSWAGEN — OPEL VECTRA MEÐ 2,5LÍTRA VÉL - FORNBÍLAR íFULLRINOTKUNÁ KÚBU 1996 SUNNUDAGUR1. DESEMBER BLAÐ PEUGEOT 406 ií I TÍMAMÓTABÍLL Komdu og reynsluaktu. Verð frá. # 1.480.000 kr. V PEUGEOT - þekktur fyrír þœglndi Nýbýlavegi 2 Sími 554 2600 EINRÝMISBÍLAR Renault. Lengst til vinstri er Twingo, þá Mégane Scénic og loks fjölnotabíllinn Espace. Ökuherma í grunnskóla HEILDARTJÓN samfélags- ins vegna umferðarslysa var rúmir 12,7 milljarðar króna árið 1994 og rúmir 12,6 milljarðar króna að meðaltali árin 1980 til 1994. Lang- flestir ökumenn sem slasast eða látast í umferðarslysum eru í aldurshópnum 17-24 ára. Þetta kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla íslands um kostað vegna umferðarslysa á Is- landi. Í ljósi þessa m.a. hefur Landlæknisembættið farið þess á leit við tryggingafé- lögin, Umferðarráð og ríkis- valdið að keyptir verði öku- hermar sem nýttir verði til ökukennslu í efstu bekkjum grunnskóla. Landlæknisembættið leggur til að 400-500 ungl- ingum á aldrinum 15-16 ára verði gefinn kostur á að taka kennslu í ökuhermi sem valgrein í tveimur efstu bekkjum grunnskóla í sam- vinnu við tryggingafélög og Umferðarráð. Síðan verði fylgst með slysatíðni þessa hóps næstu 5 árin. Embætt- ið hefur beðið um 10 millj- óna króna fjárveitingu í þessu skyni frá Alþingi. í greinargerð frá Land- læknisembættinu segir m.a. að unglingar á aldrinum 17-21 árs eru í 4-5 sinnum meiri hættu að slasast í umferðarslysum en fólk á aldrinum 25-50 ára. Sam- kvæmt bandarískum rann- sóknum er slysatíðni ungs fólks sem fær 50-60 klukku- stunda æfingatíma fyrir ökupróf næsta svipaður og fullorðinna. Magnús Baldursson hjá Landlæknisembættinu segir að um sé að ræða stóran tölvubúnað með stjórnklefa bíls sem líkir eftir akstri við mismunandi aðstæður. „I ökuhermum er unglingum kennt að aka bíl áður en þeir fara út í umferðina. Þeir kosta á bilinu 7-10 milljónir króna hver sem er lítið brot af þeim kostnaði sem tryggingafélögin bera vegna umferðaróhappa unglinga. Við viljum koma ökuhermunum fyrst upp í grunnskólunum," segir Magnús. ■ Renault Mégane Scénic bíll érsins I Evrópu DÓMNEFND 55 bílablaðamanna frá 21 Evrópulandi hefur valið nýjan einrýmisbíl Renault, Mégane Scénic, bíl ársins í Evrópu 1997. Scénic hlaut yfirburðakosningu, 405 stig, en nýi smábíllinn Ford Ka hlaut 293 stig. Volkswagen samsteypan átti síðan bíla í þriðja til fimmta sæti, þ.e. VW Passat með 248 stig, Skoda Octavia með 230 stig og Audi A3 með 190 stig. Mælikvarðar sem dómnefndarmenn dæmdu út frá var almenn hönnun, þægindi, öryggis- búnaður, hagkvæmni, aksturseigin- leikar og vegstaða bílsins. Sérfræðingar innan evrópsks bíla- iðnaðar segja að einrýmisbíllinn sé svar Evrópumanna við fjölnota- bílnum, sem hefur verið einn söluhæsti fjölskyldubíll- inn í Bandaríkjunum um margra ára skeið. Einrýmisbíllinn er minni og spar- neytnari og hent- ar betur evr- ópsku hugarfari en fjölnotabíll- inn. Renault Még- ane Scenie er byggður á Még- ane fólksbílnum sem kom á markað í fyrra. Hann er fimm sæta en flestir fjöl- notabílar eru sjö sæta. Scenic hefur hins vegar sama rýmið, háa setu- stöðu bílstjóra og þægindi og stærri fjölnotabílar. Menn virðast á einu máli um Scenic gæti verið nýr kost- ur fyrir þá sem annars keyptu fjöl- skyldustallbak. Renault vonast til að selja 100 þúsund Scenic á ári, tvisvar sinnum fleiri en seljast af Espace fjölnota- bílnum. Morgunblaðið/GuGu RENAULT Mégane Scénic er bíll ársins 1997 í Evrópu. Bifreiðar og landbúnaðarvélar, umboðsaðili Renault, fá bílinn í byrjun næsta árs og ráðgera að kynna hann um miðjan janúar. Hann verður í fyrstu eingöngu fáan- legur með 1600 rúmsentimetra vél. Ekki er ljóst á hvaða verði bíllinn verður. ■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.