Morgunblaðið - 04.12.1996, Page 1

Morgunblaðið - 04.12.1996, Page 1
Sigur hjá Teiti TEITUR Örlygsson og félagar lyá gríska liðinu Larissa unnu mikilvægan sigur um helgina er þeir fengu PAPAGOU í heimsókn. „Sigurinn var ðruggur allan tímann,“ sagði Teitur. „Við komumst mest 27 stigum yfir en i lokin slökuð- um við aðeins á og unnum 79:63.“ Hann lék í 20 mínútur, gerði 11 stig og varð þriðji stiga- hæstur leikmanna Larissa. „PAPAGOU var búið að vinna í þremur af síðustu fjórum leily- um og voru á svipuðum slóðum og við í deild- inni. Það var því mjög gott að sigra og nú erum við komnir í 10. sæti,“ sagði Teitur. KNATTSPYRNA: BRÖNDBY VANN KARLSRUHE 5:0 OG KOMST ÁFRAM / C4 <*• 1996 SKYLMINGAR MIÐVIKUDAGUR4. DESEMBER BLAD Herbert stigahæst- ur með 25 stig Helga fékk gullverð- laun í Kaupmannahöfn Íslenskir skylmingamenn unnu ein gullverðlaun og ein silfurverð- laun í N-Evrópubikarkeppninni í skylmingum með höggsverði sem fram fór í Kaupmannahöfn um sl. helgi. Helga Magnúsdóttir sigraði í kvennaflokki og Ragnar Sigurðs- son hlaut siifurverðlaun í karla- flokki. Þá varð íslenska karlasveitin í 4. sæti af 16 í sveitakeppni. Að loknum þremur mótum af átta um N-Evrópubikarinn eru Helga og Ragnar efst að stigum. Alls kepptu tíu íslenskir skylm- ingamenn á mótinu og að sögn Nikolays Mateevs, landsliðsþjálf- ara, undirstrikar þessi árangur stór- stigar framfarir hér heima og að íslenskir keppendur eru reiðubúnir að takast á við stórmót eins og Evrópu- og heimsmeistaramót. Helga lenti í hörkukeppni í kvennaflokki, þar sem keppendur voru níu. Hún mætti danskri stúlku, Tönju Möller, í úrslitum. „Ég fann mig mjög vel strax í byrjun og var því ekkert að hika,“ sagði Helga sem vann 5:3. Helga hefur æft skylmingar í eitt ár og segir árang- urinn ýta enn á sig við æfingar. „Þessi árangur er ákveðin sárabót fyrir ísiandsmeistaratitilinn sem mér tókst ekki að vinna.“ í karlaflokki þar sem Ragnar keppti voru 64 keppendur og komst hann í úrslit þar sem hann mætti Hollendingnum Ros Tijmen. „Ég var orðinn rosalega þreyttur þegar að viðureigninni kom, enda búinn að vera að keppa í tæpa níu klukku- tíma,“ sagði Ragnar. „Mér tókst ágætlega til í upphafi en síðan fór að halla undan fæti og hann sigr- aði 15:7. Ég verð að jafna metin við hann næst er við mætumst.“ „Það hefur mikla þýðingu að komast á svona sterk mót og sjá að við stöndum jafnfætis öðrum þjóðum. Skylmingar eru að komast á blað hér heima,“ sagði Helga. Næsta umferð í mótaröðinni verður í Stokkhólmi í janúar, en alls eru mótin átta. Þeir sem verða stiga- hæstir í karla- og kvennaflokki þeg- ar upp verður staðið í vor fá veg- lega bikara að launum. „Við stefn- um að minnsta kosti að því að Helga og Ragnar verði þar á meðal keppenda, því þau eiga góða mögu- leika í stigakeppninni," sagði Mate- ev þjálfari. Morgunblaðið/Júlíus HELGA Magnúsdóttir og Ragnar Sigurðsson eru efst að stigum í N-Evrópubikarkeppninni. HERBERT Arnarson varð stigahæstur í liði Donar í hollensku 1. deildinni er liðið vann góðan sigur á útivelli á BS Weert, 95:86. „Ég fann mig ágætlega og skor- aði 25 stig,“ sagði Herbert. Hann setti niður fjögur þriggja stiga skot af átta og á vítalínunni hitti hann úr 9 af 10 skotum. Herbert kann vel við sig í Hollandi en það er dálítið meira leyft þar en hér heima. „Menn mega skamma dómarann og leik- menn án þess að nokkuð sé gert í því. f leiknum var dæmd villa á einn af okkar mönnum, villa sem var alveg út í hött. Þegar svertinginn hjá þeim hafði hitt í fyrra skotinu stóð þjálfari okkar upp og sagði honum að nú væri hann búinn að fá jóla- gjöfina mánuði of snemma. Strákurnn fékk boltann hjá dómaranum til að taka síð- ara skotið, setti hann undir hendina og fór að rífast við þjálfarann okkar. Dómarinn dæmdi þá á hann fimm sek- úndur og við fengum bolt- ann,“ sagði Herbert. Góður leikur Guðmundar GUÐMUNDUR Bragason átti góðan leik þegar lið hans BCJ Hamborg vann Hanno- ver 100:72. Guðmundur gerði 19 stig og tók að auki 15 fráköst. Guðmundur og félagar eru því enn í efsta sæti norðurriðils 2. deildar- innar. HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA jT Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálfari, ánægður með mótherja Islendinga 99 Við tökum því sem að höndum ber“ Eg get ekki annað en verið ánægður með hvaða þjóðum við mætum í riðlakeppni Evrópu- keppni landsiiða. Við tökum því sem að höndum ber,“ sagði Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari í hand- knattleik, eftir að dregið hafði verið í riðlakeppni EM í Vínarborg í gær. ísland leikur í riðli með Júgósiavíu, Litháen og sigurvegaranum í E-riðli í forkeppni, þar sem Sviss, Finnland, Belgía og Georgía ieika. „Ég reikna með að það verði Svisslendingar sem komast áfrarn," sagði Þorbjörn. Ef Syisslendingar komast áfram mæta íslendingar þeim fyrst á ís- landi í september 1997 og þá í Sviss. Leikið verður gegn Litháen í október og Júgóslavíu í nóvem- ber, fyrst á Islandi. Tvö efstu liðin í riðlinum komast í úrslitakeppni EM, sem verður á Ítalíu sumarið 1998. Þorbjörn sagði að þegar hann hefði borið riðilinn saman við hina fjóra riðlana, væri ekki hægt annað en verið ánægður. „Júgóslavar eru með skemmtilegt lið, marga góða leikmenn sem leika með liðum til dæmis á Spáni. Þeir tryggðu sér rétt til að leika í HM í Japan á EM á Spáni þar sem þeir léku vel. Litháar hafa staðið sig vel í und- ankeppni HM og komust til Jap- ans. Þeir leika dæmigerðan rúss- neskan handknattleik. Svisslend- ingar eru alltaf erfiðir og það kom mér verulega á óvart að þeir kom- ust ekki til Japans, létu ítali skjóta sér ref fyrir rass. Með svissneska liðinu leika leikmenn eins og Mart- in Rubin, sem leikur með Dormag- en, og Mark Baumgartner, sem leikur með Lemgo,“ sagði Þorbjörn, sem leggur dæmið þannig upp að Júgóslavar eigi að vera sterkastir en Islendingar komi til með að beij- ast um annað sætið við Svisslend- inga og Litháa. Tvö efstu liðin í riðlunum fimm komast til Ítalíu, þar sem tólf lið taka þátt í EM 1998. ítalir leika þar sem gestgjafar og Rússar sem Evrópumeistarar. Dráttur/C3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.