Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 1
TÖLVUR
Ráöstefna um
nýja tíma/4
rjflRMÁL
Lániö lék viö
Landsbankann /6
HLUTHAFAR
Komið i veg
fyrir deilur /8
VIDSKIPn AIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 BLAÐ P
Flug
Samningar hafa tekist um að
flugfélagið Atlanta annist allt
sólarlandaflug fyrir ferðaskrif-
stofuna Úrval-Útsýn á tímabil-
inu 1. júní til 1. nóvember á
næsta ári. Ferðaskrifstofan hef-
ur hingað til nær eingöngu skipt
við Flugleiðir um sitt leiguflug,
en hún er að stærstum hluta í
eigu félagsins. /2
Afsláttur
Meirihluti efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis leggur
til að afsláttur vegna hluta-
bréfakaupa verði lagður niður
í áföngum á næstu þremur
árum, en verði ekki felldur nið-
ur í einu lagi um áramót, eins
og gert var ráð fyrir í frum-
varpi til breytinga á lögum um
tekju- og eignaskatt. /3
Kókflaska
Áldós í laginu eins og Coca-Cola
;f flaska verður markaðsprófuð á
næstunni. Dósin er í hönnun, en
Coca-Cola markaðssetti plast-
flösku í laginu eins og gömlu
kók-glerflöskurnar
1994./3
V ð
á
Verðmæti vöruút- og innflutnings
jan.- okt. 1995 og 1996 (fob virði í milijónum króna) 1995 jan.-okt. 1996 jan.-okt. Breyting á föstu gengi*
Útflutningur alls (fob) 94.388,4 103.369,7 +9,5%
Sjávarafurðir 69.425,1 77.793,0 +12,1%
Ál 9.970,5 10.278,9 +3,1%
Kísiljárn 2.454,4 3.046,0 +24,1%
Skip og flugvélar 2.350,4 1.462,3 -37,8%
Annað 10.188,0 10.789,5 +5,9%
Innflutningur alls (fob) 83.840,9 102.150,1 +21,8%
Sérstakar fjárfestingarvörur 2.135,8 5.055,0
Skip 1.351,6 4.879,3
Flugvélar 736,6 103,8
Landsvirkjun 47,6 71,9 .
Til stóriðju 5.391,9 6.519,0 +20,9%
íslenska álfélagið 4.800,4 5.780,5 +20,4%
íslenska járnblendifélagið 591,5 738,5 +24,9%
Almennur innflutningur 76.313,2 90.576,1 +18,7%
Olía 5.751,4 7.553,2 +31,3%
Alm. innflutningur án olíu 70.561,8 83.022,9 +17,7%
Matvörur og drykkjarvörur 8.586,9 9.446,1 +10,0%
Fólksbílar 3.888,1 5.606,3 +44,2%
Aðrar neysluvörur 17.478,0 19.321,2 +10,5%
Annað 40.608,8 48649,3 +19,8%
Vöruskiptajöfnuður 10.547,5 1.219,6
Án viðskipta íslenska álfélagsins 5.377,4 -3.278,8
Án viðskipta íslenska álfélagsins,
íslenska járnblendifélagsins
og sérstakrar fjárfestingarvöru 3.299,9 -1.993,6
• Miðað er við meðalgengi á vöruviðsklptavog; á þann mælikvarða var meðalverð erlends gjaldeyris
I Januar-októberl 996 óbreytt frá sama tíma árið áður.
HeimiM: HAGSTOFA ÍSLANDS
Innflutningur umtalsvert meiri en spáð var
Stefnir í 14%
aukningu ístað
tæplega 10%
LJÓST er að almennur innflutningur
í ár verður verulega meiri en spáð
var í þjóðhagsáætlun, sem lögð var
fram með fjárlagafrumvarpinu í
október. Stefnir í að hann geti orðið
14% meiri en í fyrra á föstu verð-
lagi, en í þjóðhagsáætlun var spáð
að hann yrði 9,7% meiri í ár en í
fyrra. Hins vegar eru líkur til þess
að sérstakur innflutningur verði
minni en gert var ráð fyrir og vegi
þarna nokkuð á móti.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, sagði að í þjóð-
hagsáætlun hefði verið gert ráð fyr-
ir að innflutningur vöru og þjónustu
í heild ykist um 12,8% milli áranna
1995 og 1996. Talsverður hluti
þeirrar aukningar stafaði af bygg-
ingu álversins og gert hefði verið
ráð fyrir að almenni innflutningur-
inn ykist um 9,7%. Það væri hins
vegar alveg ljóst að innfiutningur
almennrar neysluvöru myndi aukast
meira en það í ár. Samkvæmt tölum
fyrir fyrstu ellefu mánuðina stefndi
í að hann yrði 12-15% meiri og ekki
væri ólíklegt að hann gæti orðið um
14% meiri í ár en í fyrra á föstu
verðlagi. Líkur væru hins vegar til
þess að sérstaki innflutningurinn
yrði minni og það vægi á móti að
nokkru.
Minni afgangur
Þórður sagði að innflutningur á
bifreiðum og ýmsum varanlegum
neysluvörum hefði aukist mjög mikið
í ár. Þannig virtist innflutningur
fólksbíla á föstu verði ætla að auk-
ast um 40% milli ára og innflutning-
ur varanlegrar neysluvöru um
18-20%.
Fyrstu tíu mánuði þessa árs voru
fluttar út vörur fyrir 103,4 milljarða
króna en inn fyrir 102,2 milljarða
króna. Afgangur var því af vöru-
skiptunum við útlönd sem nam 1,2
milljörðum króna en á sama tíma í
fyrra voru þau hagstæð um 10,5
milljarða á föstu gengi. Vöruskipta-
jöfnuðurinn er því 9,3 milljörðum
króna lakari en á sama tíma í fyrra
en um 5,5 milljörðum lakari að frá-
töldum innflutningi og útflutningi á
skipum og flugvélum, samkvæmt
upplýsingum Hagstofunnar yfir inn-
og útflutning fyrstu tíu mánuðina.
Fyrstu tíu mánuði þessa árs var
verðmæti vöruútflutningsins 10%
meira á föstu gengi en á sama tíma
árið áður. Sjávarafurðir voru 75%
alls útflutningsins og var verðmæti
þeirra 12% meira en á sama tíma
árið áður. Þá var verðmæti útflutts
áls um 3% meira og verðmæti kísil-
jáms 24% meira en á sama tíma
árið áður.
Heildarverðmæti vöruinnflutnings-
ins fyrstu tíu mánuði þessa árs var
22% meira á föstu gengi en á sama
tíma árið áður. Að frátöldum innflutn-
ingi sérstakrar fjárfestingarvöru, inn-
flutningi til stóriðju og olíuinnflutn-
ingi sem jafnan er mjög breytilegur,
reyndist annar vöruinnflutningur hafa
orðið 18% meiri á föstu gengi en á
sama tíma árið áður. Þar af jókst
innflutningur á matvöru og drykkjar-
vöru um 10%, fólksbílainnflutningur
jókst um 44% og innflutningur ann-
arrar neysluvöru um 11%.
J3
rri
rn
nr
nr
i6;
/
Abyrg fjárfestingarstefna
Hæsta raunávöxtun séreignarsjóða
verðbréfafyrirtækjanna 1991-1995
Tryggingar á góðum kjörum
Skattalegt hagræði
Taktu á lífeyrismálum þínum í tæka tíð!
Eitt símtal nœgir. landsbréf hf.
SÍMI 588 9200, BRÉFASÍMI 588 8598
ISLENSKI LIFEYRISSJOÐURINN
Fjárfestu í öryggi