Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.12.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1996 B 9 VIÐSKIPTI Stilling með AJ- vörulistann STILLING ehf. hefur fengið um- boð fyrir sænska fyrirtækið AJ- vörur, en í frétt frá Stillingu kem- ur fram að AJ-vörur er ein stærsta póstverslun á Norðurlöndum sem einbeiti sér að því að bjóða fjöl- breytt úrval af stoðvörum fyrir fyrirtæki. Móðurfyrirtækið í Sví- þjóð kaupir vörur frá ýmsum aðil- um í Evrópu í miklu magni og geymir vörurnar í 20.000 fermetra húsnæði. Fram kemur að vegna mikilla magnkaupa fáist varan á hag- stæðu verði og skili það sér beint til viðskiptavina. Bæklingurinn innihaldi margar áhugaverðar vör- ur sem auki starfsánægju og minnka álag. Viðskiptavinir panta vörur úr bæklingnum í gegnum síma eða senda símbréf og kemur varan eftir u.þ.b. 2 vikur. Bæklingurinn er í dreifingu út um allt land en þeir sem ekki hafa fengið hann sendan geta snúið sér til Stillingar. Rússnesk bílaborg áfram með ítalskt nafn Moskvu. Reuter. HÖFUÐBORG bílaframleiðslu Rússa heldur ítölsku nafni sínu eftir atkvæðagreiðslu, sem innan við helmingur kjósenda tók þátt í. Embættismenn í borginni Togl- iatti við Volgu segja að atkvæða- greiðslan sé ógild vegna lítillar kjörsóknar. Borgin er kennd við látinn leiðtoga ítalskra kommún- ista og þar eru framleiddir hinir frægu Lada og Zhiguli bílar. Kosið var um nöfnin Stavropol- við-Volgu, sem borgin héttil 1964, Avtograd, sem merkir bílaborg, Zhiguli og Zhigulevsk. í borginni er bílaverksmiðjan VAZ og hefur bærinn verið tengd- ur Ítalíu síðan 1970 þegar verk- smiðja, sem smíðaði bíla byggða á ítölskum Fiat-bílum, tók til starfa. Skrapp starfsmaður þinn Láttu okkur um fyrirhöfnina 'P ‘östs^ FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA PÓSTSINS Þjónusta............alla leið PÓSTUR OG SÍMI Fyrirtækjaþjónusta Póstsins er ný þjónusta sem veitir fyrirtækjum aðgang að öruggu og hraðvirku dreifikerfi Póstsins og fjölbreyttri þjónustu hans. Sérstakur póstsölumaður, sem fyrirtæki fá til þjónustu við sig, sér um að koma pósti til og frá fyrirtækinu, annast pökkun, frimerkingar og annað sem viðkemur póstþjónustu, allt eftir þörfum og óskum hvers og eins. Póstölumaðurinn getur einnig útfyllt tollskýrslur, boðsent skjöl, gögn, giróseðla o.fl. Póstsölumaðurinn heimsækir fyrirtækin einu sinni eða tvisvar á dag, allt eftir þörfum þeirra, og alltaf er hægt að ná sambandi við hann. Póstsölumaðurinn er á ferðinni alla virka daga milli kl. 08.00 og 17.00. I dag stendur Fyrirtækjaþjónusta Póstsins öllum fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Akureyri, Sauðárkróki og í Reykjanesbæ til boða. Allar nánari upplýsingar fást á póst- og símstöðvum á ofangreindum stöðum. Einnig eru veittar upplýsingar um Fyrirtækjaþjónustuna í símum: 550 6072, 550 6073 eða 550 7006. T?Sn Öll fjölskyldan á einn disk heimilanna i IKV0LD! „Fræðsla & fjör í Tölvukjör“ er spennandi uppákoma þar sem bryddað er uppá nýjungum og fræðsluefni fyrir áhugasama tölvunotendur. í kvöld kynnum við mikið úrval af skönnum á frábæru verði og af því tilefni bjóðum við þér að koma með mynd af fjölskyldunni sem við skönnum inn og setjum á diskling þér að kostnaðarlausu - góð leið til að útbúa öðruvísi jólakort! Komdu með mynd af fjölskyIdunni - við skönnum hana inn og setjum á disk Kynning á nýja PageOffice litaskannanum frá Umax Handskanni kr. 12.900 Tilboð á öflugum litaborðskanna: aðeins kr. 39.900 öll fimmtudagskvold Fræðsla & fjör í Tölvulijör frá klukkan sjö til tíu fk TðtmuM 108 Reykjavík Sími 533 2323 Fax 533 2329 tolvukjor@itn.is NÝHERJI/GEPE fimmtudaga 12:00-22:00 og laugardaga 10:00-16:00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.