Morgunblaðið - 06.12.1996, Qupperneq 4
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Oriando gerði aðeins 57
stig á móti Cleveland
Cleveland Cavaliers lék frábæra
vöm á móti Orlando Magic og
fékk aðeins á sig 57 stig, en skoraði
84. Aðeins tvisvar sinnum áður hefur
það gerst í NBA-deildinni að lið hafí
fengið svo fá stig á sig. Það var fyrst
1955 er Boston vann Milwaukee og
síðan jafnaði Miami Heat það á móti
Philadelphiu í fyrravetur. Varnar-
. leikur Clevelands hefur verið góður
og til marks um það hefur liðið feng-
ið á sig færri en 75 stig í 16 leikjum
á tímabilinu.
Terrell Brandon var bestur í liði
Cievelands og gerði 22 stig, átti 8
stoðsendingar og stal boltanum af
andstæðingum fímm sinnum. Penny
Hardaway, Nick Anderson og Denn-
is Scott léku ekki með Orlando og
munar um minna. Skotnýting Orl-
ando var aðeins 34% í leiknum á
meðan leikmenn Clevelands voru
með 45% nýtingu.
Charles Barkley tók 27 fráköst
og gerði 19 stig er Houston sigraði
Boston Celtics, 94:89, á heimavelli.
Hakeem Olajuwon kom nú aftur inn
í liðið eftir veikindi og gerði 16 stig,
tók 7 fráköst og varði fimm skot þær
40 mínútur sem hann lék með.
Karl Malone setti niður 26 stig
fyrir Utah Jazz sem sigraði LA Lak-
ers með 26 stiga mun, 101:75. John
Stockton var með 18 stig, en Shaqu-
ille O’Neal var stigahæstur í liði
Lakers með 21 stig.
Detroit Pistons vann Atlanta
Hawks, 100:90, á heimavelli og gerði
Terry Mills 14 af 25 stigum sínum
í fjórða leikhluta. Grant Hill var með
22 stig, tók 11 fráköst og átti 8 stoð-
sendingar og Joe Dumars gerði 22
stig. „Þetta var besti leikur sem ég
hef séð í vetur. Bæði liðin léku mjög
vel,“ sagði Doug Collins, þjálfari
Detroit.
Tim Hardaway náði persónulegu
stigameti á tímabilinu er hann setti
niður 33 stig fyrir Miami Heat sem
vann Dallas, 101:79. New York
Knicks fór til New Jersey og sigraði
109:102 þar sem Patrick Ewing gerði
30 stig og þar af 11 stig í síðasta
leikhluta. Robert Pack og Kendall
Gill gerðu 20 stig hvor fyrir Nets.
Phoenix Suns náði að vinna Gold-
en State 118:87 og var þetta annar
heimasigur liðsins í röð. A.C. Green
var með 21 stig og tók 12 fráköst
fyrir Suns. Michael Finley var einnig
^með 21 stig og Danny Manning 20
stig.
Avery Johnson gerði 24 stig og
átti 11 stoðsendingar fyrir San Ant-
onio sem vann Philadelphia 113:103.
Þetta var fyrsti sigur liðsins í átta
síðustu leikjum. Dominique Wilkins
var einnig með 24 stig og tók auk
þess 10 fráköst. Táningurinn Allen
Iverson var stigahæstur í liði Philad-
elphia með 26 stig.
Reggie Miller náði sér vel á strik
þegar Indiana Pacers burstaði
Vancouver með 47 stiga mun,
_jí 127:80, á útivelli. Hann skoraði 31
í fyrri hálfleik og samtals 36 stig í
leiknum. Vancouver, sem lék án Greg
Anthony, Blue Edwards og Bryant
Reeves sem allir eru meiddir, hefur
aldrei áður tapað svona stórt í NBA-
deildinni.
Persónulegt met
TIM Hardaway (t.h.) náði persónulegu stigametl á tímabilinu í NBA-deildinni í körfuknattleik
þegar hann setti niður 33 stig fyrir Miami Heat sem vann Dallas, 101:79. Jason Kidd, leikmað-
ur Dallas, berst hér um boltann við Hardaway í leik liðanna í fyrrinótt.
Snjóbrettakeppni
á ÓL í Nagano
KEPPNI á snjóbrettum verður meðal íþróttagreina á vetrarólymp-
íuleikunum í Nagano 1998. Keppt verður í stórsvigi og hálfröri
(halfpipe). Snjóbrettakeppni hefur hingað til ekki verið ólympíu-
grein. Alþjóðasnjóbrettasambandið (ISF) og Alþjóðaskíðasam-
bandið (FIS) deildu um hvort þeirra á að senda keppendur til Japan.
Fyrsta snjóbrettakeppni ársins á
vegum ISF var haldin í Laax
í Sviss sl. helgi. Reto Gurtner, for-
manni sambandsins,
Anna fínnst þátttaka í
Bjamadóttir Ólympíuleikunum
skritar frekar byrði en við-
frá Sviss urkenning. Það
leggur kvaðir á íþrótt sem var í
upphafi ímynd frelsis og skeyting-
arleysis. En fyrst hún er orðin
ólympíugrein verður sambandið að
vera með.
FIS hélt annað mótið í heimsbik-
arnum á snjóbrettum í Tignes í
Frakklandi samtímis og keppni ISF
var haldin í Laax. FIS áttaði sig
ekki fyrr en seint og um síðir að
skíðabretti eru meira en stundarfyr-
irbrigði og hugsanleg keppnisgrein.
ISF aftur á móti hefur stutt við
snjóbrettagreinina í 10 ár og stuðl-
að að því að hún er orðin viður-
kennd fjöldaíþrótt.
Alþjóðaólympíunefndin hefur fal-
ið FIS að gera stigalista sem verður
notaður til að velja þátttakendur á
Ólympíuleikana. Snjóbrettamenn
sem vilja komast á leikana verða
því að taka þátt í keppnum FIS,
hvort sem þeim likar betur eða verr.
ISF hefur veitt sínum mönnum leyfi
til að taka þátt í keppnunum.
Nýjabrumið er farið af snjó-
brettakeppni og þau eru orðin hluti
af vetraríþróttaiðnaðinum. í Ölpun-
um er boðið upp á snjóbretta-
kennslu, langferðir á snjóbrettum
og keppt á snjóbrettum. Færustu
snjóbrettamenn æfa sig ekki lengur
í nýföllnum snjó fyrir utan skíða-
brautir heldur fara á jökla fyrir
ofan dýrustu skíðastaði og æfa þar
með þjálfurum. Þeir bestu eru orðn-
ir atvinnumenn. Skeytingarleysið
er löngu horfið, þeir verða að standa
sig svo peningamennirnir haldi
áfram að borga.
OLYMPIULEIKAR
toftnm
FOLK
■ GUÐNI Bergsson og samheijar
í Bolton leika ekki um helgina en
hlaða rafhlöðumar og baða sig í
sólinni á Algarve í Portúgal þess
í stað.
■ BOLTON hefur náð samkomu-
lagi við Birmingham um að greiða
700.000 pund fyrir miðheijann
Mike Newell.
■ MIDDLESBROUGH hefur ekk-
ert heyrt frá Emerson sem fékk
að fara til Brasilíu en átti að vera
kominn aftur. Félagið áréttaði í gær
að Brasilíumaðurinn væri samn-
ingsbundinn til 2000 og færi ekki
annað á meðan.
■ PACO Roig, forseti Valencia á
Spáni, vill gjarnan að brasilíski
knattspyrnumaðurinn Romario
komi á ný til liðs við félagið nú
þegar nýr þjálfari er tekinn við.
„Við ætlum að láta þjálfarann hafa
það sem hann vill,“ sagði Roig í
vikunni. Sem kunnugt er yfirgaf
Romario Valencia fyrr á tímabil-
inu eftir skamma dvöl. Honum lík-
aði ekki samstarfíð við fyrrum þjálf-
ara, Luis Aragones, en hann var
látinn taka pokann sinn á dögunum.
■ JORGE Costa hefur kært Ge-
orge Weah vegna þess að hinn síð-
arnefndi skallaði Costa í höfuðið
eftir leik Porto og AC Milan í
Meistaradeild Evrópu í síðasta
mánuði með þeim afleiðingum að
Costa nefbrotnaði. Reiknað er með
að Costa fari fram á um 60 milljón-
ir króna í skaðabætur.
■ FAUSTINO Asprílla hefur
dregið sig út úr landsliðshópi Kól-
umbíu sem mætir Venesúela í
næstu viku vegna meiðsla í kálfa
sem hann hlaut í leik með New-
castle gegn Metz í Evrópukeppni
félagsliða í vikunni.
■ KEVIN Keegan knattspyrnu-
stjóri segir að meiðsli Asprilla séu
það slæm að hann verði frá í sex
vikur en læknir Newcastle-liðsins
vonast hins vegar til þess að kapp-
inn verði kominn á kreik fyrir ára-
mót.
■ JIMMY Case, fyrrum leikmaður
Liverpool, var í vikunni rekinn úr
starfi knattspyrnustjóra hjá 3.
deildar liðinu Brighton. Liðið er
nú í neðsta sæti deildarinnar.
■ THOMAS Helmer, leikmaður
Bayern Miinchen, hefur bæst á
sjúkralista þýska landsliðsins en
hann þurfti að láta fjarlægja gall-
blöðruna úr sér í vikunni. Fyrir á
listanum voru Thomas Hássler,
Mehmet Scholl og Oliver Bier-
hoff. Þá er haft eftir Berti Vogts
að ólíklegt sé að Andreas Möller
og Mario Basler verði með í hópn-
um gegn Portúgölum í undankeppni
HM í Portúgal annan laugardag.
■ SEAN Dundee, leikmaður
Karlsruhe, hefur verið kjörinn leik-
maður ársins í þýsku knattspyrn-
unni af leikmönnum í 1. deild.
Dundee er 23 ára gamall S-Afríku-
maður en vonast til þess að verða
þýskur ríkisborgari á næstunni.
Næstir honum í kjörinu voru Gio-
vane Elber hjá Stuttgart og félagi
Dundee hjá Karlsruhe, Thomas
Hassler.
■ SEBASTIAN Rozental, einn
markheppnasti knattspymumaður
Chile, er á leið til Rangers í Skot-
Iandi og á aðeins eftir að ganga frá
örfáum lausum endum áður en
samningur verður undirritaður.
Þetta er fullyrt af föður drengsins
og umboðsmanni, Lazaro Rozental.
■ HERMT er að Rangers verði
að reiða fram 670 milljónir króna
fyrir kappann. Takist samningar
um þau atriði sem eftir eru kemur
hinn 20 ára gamli knattspyrnumað-
ur til Skotlands að loknum leik
Chile og Argentínu i undankeppni
HM sem fram fer 15. desember.