Morgunblaðið - 07.12.1996, Side 1
112 SIÐUR B/C/D
281. TBL. 84.ÁRG.
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Yfirvöld á Ítalíu leggja til atlögu við Di Pietro
300 lögreglumenn
ráðast inn í 50 hús
Róm. Reuter.
ÍTALSKA lögreglan réðst í gær-
morgun til inngöngu í húsakynni
Antonios Di Pietros, fyrrverandi
rannsóknardómara, sem varð þjóð-
hetja á Ítalíu vegna framgöngu
sinnar við rannsókn spillingarmála
sem tröllriðu ítölskum stjórnmálum
á árunum 1992-94. Saksóknarar í
bænum Brescia í norðurhluta
landsins fyrirskipuðu aðgerðirnar
vegna ásakana um að Di Pietro
hefði gerst sekur um lögbrot þegar
hann stjórnaði rannsóknunum.
ítalskir fjölmiðlar sögðu að 300
lögreglumenn hefðu tekið þátt í
aðgerðunum og ráðist til inngöngu
í 50 hús, þar af ein tíu í Róm.
Lögreglan fór á heimili Di Pietros
og skrifstofur, auk þess sem að-
gerðirnar beindust að nánum sam-
starfsmönnum hans og lögfræðing-
um. Di Pietro var ekki á heimili
sínu þegar lögreglumennirnir létu
til skarar skríða, en þeir vöktu eig-
inkonu hans og tvö ung börn þeirra.
Líkt við aðgerðir
gegn mafíunni
Stuðningsmenn Di Pietros sögðu
aðgerðir lögreglunnar líkjast atlögu
að mafíuforingja. „Ljóst er að slík-
um aðferðum er aðeins beitt þegar
lögregla fæst við hættulega glæpa-
menn en ekki dómara sem gæti
verið viðriðinn vafasöm mál,“ sagði
þingmaðurinn Nando Della Chiesa.
Elio Veltri, þingmaður og vinur
Di Pietros, sakaði yfirvöld um að
ofsækja hann. „Ég get aðeins sagt
að Di Pietro hefur sagt mér að
ásakanirnar séu fáránlegar og að
hann hafi engar áhyggjur."
Rannsóknin í Brescia hófst í síð-
asta mánuði og hún varð til þess
að Di Pietro sagði af sér ráðherra-
embætti sem hann hafði gegnt frá
því í maí. í afsagnarbréfi sínu gaf
hann til kynna að rannsóknin væri
runnin undan rifjum stjórnmála-
manna og fjármálamanna, sem
hann átti þátt í að lögsækja.
Samkvæmt viðhorfskönnunum
er Di Pietro enn vinsælasti maður
Ítalíu vegna baráttu sinnar gegn
spiilingunni. Hann sagði af sér sem
rannsóknardómari í desember
1994, skömmu eftir að hann og
samstarfsmenn hans ákváðu að
rannsaka meinta spillingu Silvios
Berlusconis, þáverandi forsætisráð-
herra. Orðrómur var á kreiki um
að Di Pietro hefði verið knúinn til
afsagnar.
Dýrasta
jólatré heims
ÍBÚAR Genfar í Sviss vonast til
að það fari ekki fram hjá ritstjór-
um heimsmetabókar Guinness að
þar í borg stendur nú dýrasta
jólatré heims. Tréð er skreytt
þúsund karata demöntum og
skartgripum með eðalsteinum,
sem eru að andvirði rúmar átta
milljónir dollara (um 530 milljón-
iríslenskra króna). Trésins gæta
öryggisvörður og lögregluþjónn.
Löng leið
heim
HUNDRUÐ þúsunda flótta-
manna frá Rúanda eru nú á leið
til síns heima frá Zaire og Tansa-
níu. Flóttafólkið, sem fer fót-
gangandi mörg hundruð kíló-
metra leið, er mjög misjafnlega
á sig komið og hefur kóleru orð-
ið vart í fólki á leið frá Zaire.
Hafa yfir 30 manns látist á síð-
ustu vikum og yfir 1.200 veikst.
í bænum Kibungu í austur-
hluta Rúanda eru að rísa gríðar-
stórar flóttamannabúðir fyrir
Rúandamenn sem eru á leið heim
frá Tansaníu. Búist er við að allt
að 600.000 manns muni koma
yfir landamærin frá Tansaníu á
næstu vikum og mánuðum. Þor-
kell Þorkelsson ljósmyndari kom
í búðirnar í Kibungu fyrir
skömmu.
■ Dagleiðin langa/26
Reuter
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Bretland
Major án
meiri-
hluta
London. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, varð fyrir enn einu
áfallinu í gær þegar Ihalds-
flokkurinn missti meirihluta
sinn á þinginu þar sem einn
af þingmönnum íhaldsmanna,
Sir John Gorst, sagði sig úr
þingflokknum.
Þingmaðurinn kvaðst hafa
sagt skilið við þingflokkinn þar
sem Stephen Dorrell heilbrigð-
isráðherra hefði svikið loforð
um að loka ekki slysadeild
sjúkrahúss í kjördæmi hans.
Tony Blair, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, notaði tæki-
færið til að gera harða hríð
að stjórninni en flokkurinn
hyggst ekki leggja fram van-
trauststillögu þar sem ekki er
víst að hún yrði samþykkt.
„Stjórnin er að sundrast fyrir
augunum á okkur,“ sagði
hann. „Hún skjögrar úr einni
hremmingunni í aðra.“
Þetta er í fyrsta sinn sem
minnihlutastjórn er við völd í
Bretlandi frá því stjórn Verka-
mannaflokksins féll árið 1979.
Major þarf ekki að boða til
kosninga þar sem hann getur
stjórnað með stuðningi flokka
mótmælenda á Norður-írlandi.
Konur samfagna Albright
London. Reuter.
Samið um
olíuleiðslu
Róm. Reuter.
ÍTALSKA olíufélagið Agip lýsti
yfir því í gær að undirritaður hefði
verið samningur í Moskvu um að
leggja olíuleiðslu, sem ráðgert er
að kosti 1,5 milljarða dollara (um
100 milljarða íslenskra króna) milli
Kazakhstans og Rússlands.
Rússland, Kazakhstan, Óman og
átta alþjóðleg olíufyrirtæki standa
að Olíuleiðslufélagi Kaspíahafs.
„Aætlað er að það muni taka tvö
ár að leggja leiðsluna og í upphafi
muni um 28 milljónir tonna af olíu
verða fluttar eftir henni á ári frá
Miðasíulýðyeldunum til vestrænna
markaða," sagði í yfirlýsingu Agip.
BANDAMENN Bandaríkjamanna
í Evrópu og Mið-Austurlöndum
fögnuðu því í gær að Madeleine
Albright hefði verið tilnefnd næsti
utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Mestur var fögnuðurinn þó meðal
leiðtoga kvenna og töldu nokkrir
að tilnefning Albright markaði
söguleg tímamót fyrir bandarískar
konur.
Sagt hafði verið að Frakkar, sem
hafa átt í þrætum við Bandaríkja-
menn, meðal annars vegna and-
stöðu hinna síðarnefndu við að Bo-
utros Boutros-Ghali yrði áfram
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, yrðu lítt hrifnir, en Jacques
Rummelhardt, talsmaður Herves de
Charettes utanríkisráðherra, fagn-
aði_ tilnefningunni í gær.
írakar kölluðu Albright eitt sinn
norn, en viðbrögðum þeirra í gær
var mjög í hóf stillt. Kvaðst sendi-
herra íraka hjá Sameinuðu þjóðun-
um vonast til þess að samskipti ríkj-
anna bötnuðu.
Hamingjuóskir frá Kína
Kínveijar sendu Albright ham-
ingjuóskir og kváðust vona að hún
mundi stuðla að því að bæta sam-
skiptin við Bandaríkin. Spenna hef-
ur verið milli Bandaríkjamanna og
Kínveija vegna viðskiptadeilna og
ágreinings um Taiwan.
Hlýjustu kveðjurnar til Albright
bárust frá Prag. Vaclav Havel, for-
seti Tékklands, sagði að Albright
hefði rutt sér til rúms með framúr-
skarandi frammistöðu og tilnefning
hennar hefði áhrif um allan heim.
Albright fæddist í Tékkóslóvakíu
árið 1937 og flúði þaðan ásamt fjöl-
skyldu sinni þegar kommúnistar
rændu völdum árið 1948.
Jesse Helms, formaður utanríkis-
málanefndar öldungadeildar
Bandaríkjaþings, sagði að Albright
væri „föst fyrir og hugrökk“ og
kvaðst vænta að þingið samþykkti
tilnefningu hennar án málaleng-
inga.
Kvennaleiðtogar lögðu áherslu á
að Albright hefði verðskuldað starf-
ið, þótt þeir viðurkenndu að það
hefði ef til vill hjálpað henni að
vera kona.
Listi lagður fyrir Gore
Bill Clinton Bandaríkjaforseti tók
í sama streng og kvaðst „stoltur
af að hafa átt þess kost að tilnefna
fyrstu konuna utanríkisráðherra
Bandaríkjanna11.
Hópur kvenna gekk á fund Als
Gores varaforseta í liðinni viku og
afhenti honum lista yfir 40 konur,
sem væru í stjórninni og ættu skil-
ið að fá stöðuhækkun. Nafn Al-
bright var efst á þeim lista.
■ Atkvæðameiri/22