Morgunblaðið - 10.12.1996, Page 2

Morgunblaðið - 10.12.1996, Page 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Átta liða úrslit Evrópu- mótanna í knattspyrnu Skipting liðanna á lönd Evrópu- Meistara- keppni UEFA- Land deildin bikarhafa keppnin SPÁNN Atletico Madrid Barcelona vaíencia ENGLAND Manchester Utd. Liverpool Newcastle FRAKKLAND Auxerre Paris SG Monaco ÍTALÍA Juventus Fiorentina Inter ÞÝSKALAND Dortmund Schalke N0REGUR Rosenborg Brann P0RTÚGAL Porto Benfica H0LLAND Ajax GRIKKLAND AEK SVÍÞJÓÐ AIK BELGÍA Anderlecht DANMÖRK Bröndby ■ LÁRUS Orri Sigurðsson var besti leikmaður vallarins er Stoke vann Tranmere 2:0 á heimavelli á laugardaginn, að mati dagblaðsins Sun. ■ BJARKI Gunnhiugsson var besti leikmaður Mannheim sem sigraði Liibeck 3:1 í þýsku 2. deildinni á sunnudaginn. Bjarki skoraði annað mark liðsins og kom Mannheim þá í 2:1. ■ JACK Charlton var útnefndur heiðursborgari Irlands á laugardag og fékk ma. írskt vegabréf því til staðfestingar. ■ CHARLTON, sem er Englend- ingur, fékk þessa viðurkenningu vegna frábærrar frammistöðu írska landsliðsins í knattspymu undir hans stjóm 1986 til 1995. Tímabilið hófst á íslandi, en alls lék liðið 93 leiki með Charlton í brúnni og tapaði aðeins 17 leikjum. ■ ALLY McCoist setti markamet í skosku úrvalsdeildinni þegar hann gerði tvö mörk í 4:3 sigri Rangers á Hibernian. Þar með hefur hann gert samtals 265 mörk, 243 fyrir Rangers og 22 fyrir St. Johnstone, en Gor- íném FOLK don Wallace var með 264 mörk á sínum tíma. ■ JOHN Scales, miðvörður hjá Liv- erpool, var seldur til Tottenham á sunnudag fyrir 2,6 millj. punda. Nokkrum stundum áður hafði Leeds staðfest að leikmaðurinn væri á leið- inni þangað en hann byijaði hjá Le- eds. ■ SCALES gerði samning við Spurs til þriggja og hálfs árs. ■ DRAGOSLAV Stepanovic, þjálf- ari Eintracht Frankfurt, var rekinn frá félaginu á sunnudag. Liðið er í 14. sæti 2. deildar eftir að hafa tapað á móti Oldenburg sem er í neðsta sæti. Frankfurt, sem féll úr 1. deild í fyrra, hefur aðeins unnið fimm af 17 leikjum á tímabilinu. Rudi Bommer tekur við af Stepanovic. ■ DANMajerle hitti úr þriggja stiga skoti þegar 1,9 sek. var til leiksloka hjá Chicago og Miami í NBA-deild- inni í körfuknattleik um helgina og tryggði gestunum 83:80 sigur. ■ ÞETTA var fyrsta tap meistara Chicago á heimavelli á tímabilinu og annað tapið í vetur en áður hafði lið- ið tapað í Utah. „Við getum ekki afsakað þetta,“ sagði Michael Jord- an, sem var með 37 stig. „Sigurviljinn var meiri hjá þeirn." ■ WAYNE Gretzky, besti íshokkí- leikmaður sögunnar að flestra mati, gerði 850. mark sitt í NHL-deildinni í íshokkí þegar NEW York Rangers vann Toronto 4:0 á laugardag. ■ MIKA Myllyla sigraði í 10 km göngu karla á heimsbikarmótinu í Davos í Sviss á laugardaginn. Þetta var fyrsti sigur Finnans í heimsbik- amum._ ■ BJÖRN Dæhlie frá Noregi, sem vann 30. heimsbikarsigur sinn fyrir tveimur vikum og jafnaði þá met Gundes Svans, náði aðeins 18. sæti í Davos. Hann missti af sér annað skíðið í upphafi göngunnar og það tafði hann töluvert. HEKXJR Kaup enskra knattspyrnuliða á erlendum leikmönnum hafa víða vakið athygli. Svimandi háar upphæðir hafa verið greiddar fyrir þekkta kappa og ungir leikmenn, sem hafa staðið sig vel fyrirvaralaust á brott hikar félagið ekki við að fara fram á að hann verði settur í alþjóða bann, sem þýðir að hann má hvergi leika knattspymu. Leikmaðurinn hefur með félagsliðum eða landsliðum, hafa fengið tilboð, sem þeir hafa ekki getað hafnað. Langtímasamningur við enskt félag tryggir I flestum tilfellum ijár- hagslegt öryggi til framtíðar og því hlýtur að vera freistandi að slá til. Vagga knattspyrnunnar er á Engiandi en lengi vel voru leik- menn þar I landi rétt matvinning- ar. Þetta hefur breyst á skömmum tíma. Félögin njóta vinsælda knattspymunnar í beinum útsend- ingum sjónvarps og fá vel greitt fyrir samninga þar að lútandi auk þess sem auglýsingar á völlum og búningum færa þeim drjúgar tekj- ur að ónefndum fjárfestum sem sjá hagnað í því að leggja í púkk- ið. Fyrir bragðið hafa þau leyft sér að bjóða leikmönnum áður óþekkta samninga. Alþjóðlegur blær er yfir knatt- spyrnunni á Englandi þar sem bestu leikmenn margra þjóða eru samankomnir. Miklar kröfur eru gerðar til þeirra vegna launanna, sem eru í sumum tilfellum hærri en 1,5 millj. kr. á viku, og þeir em undir meira álagi en áður. Sumir standast ekki álagið, sætta sig ekki við að vera settir út úr liði sínu og vilja fara aftur til síns heima, en það er hægara sagt en gert. Leikmaður er eign félags meðan samningur er í gildi og framhaldið er undir því komið nema um annað hafí verið samið. Samningsbundinn leikmaður sem neitar að spila, jafnvel með vara- liði, er sektaður og hverfi hann Bjami Guðjónsson í IA stendur á merkilegum krossgötum ráðið sig í vinnu og vinnuveitand- inn ræður för. Viss ljómi fylgir þvf að vera leikmaður ensks stórliðs en eitt er að vera með samning og annað að standa undir væntingum. Tveir af leikreyndustu knattspymu- mönnum Islands hafa efnislega sagt að betra geti verið að vera stór fískur í lítilli tjörn en lítill fisk- ur í stórri tjörn. Atli Eðvaldsson og Guðni Bergsson þekkja það af eigin raun. Efnilegasti leikmaður íslands á hugsanlega möguleika á að gera samning við Newcastle eða Grass- hopper I Sviss en æfir þessa vik- una með Liverpool. Skagamaður- inn Bjarni Guðjónsson, sem er aðeins 17 ára, stendur frammi fyrir vali, sem margir öfunda hann af, en óharðnaður unglingur á oft erfitt með að fóta sig á vinnu- markaðnum, að ekki sé talað um í hinum miskunnarlausa heimi at- vinnumennskunnar í knattspyrnu. Engu að síður fylgir því mikill heiður að vera nefndur til sögunn- ar hjá fyrrnefndum félögum og vissulega er Bjarni á merkilegum krossgötum. Hins vegar liggur samningur ekki á borðinu en ef og þegar það gerist þarf að mörgu að hyggja áður en skrifað er und- ir. Vandi fylgir vegsemd hverri. Steinþór Guðbjartsson Heldur markvörðurinn BERGSVEINN BERGSVEINSSON að UMFA verði meistarif vor? Tökum hvem leik fyrir sig NÚ þegar keppni í 1. deild karla á íslandsmótinu í handknatt- leik er því sem næst hálfnuð hefur Afturelding úr Mosfellsbæ vænlega stöðu í efsta sæti deildarinnar. Liðið er með 20 stig, hefur sigrað í tíu leikjum og aðeins tapað einni viðureign. Einn þeirra leikmanna liðsins sem leikið hafa ágætlega það sem af er, er Bergsveinn Bergsveinsson markvörður og hefur frammistaða hans tryggt honum á ný sæti í landsliðinu, en það missti hann í fyrra eftir brokkgenga framgöngu á leikvell- inum. Bergsveinn hefur leikið 117 landsleiki og tók m.a. þátt í sigurleikjunum gegn á Dönum á dögunum en þeir tryggðu íslenska landsliðinu sæti á HM ííJapan. Bergsveinn er 28 ára gamall, lærður offsetprentari en hef- ur síðustu ár verið verkstjóri hjá Hafnarijarðarbæ, fæddur og uppal- inn þar í bæ og lék Benedikisson með FH allt þar til fynr rumum tveimur árum að hann ákvað að hleypa heimdraganum og flytja sig til Aftureldingar. Bergsveinn er í sambúð með Gígju Hrönn Eiðsdóttur hárgreiðslukonu og eiga þau eina dótttur, Katrínu Erlu 3 ára. Eins og fyrr segir er staða UMFA góð í deildinni, en hefur Bergsveinn, sem hampað hefur Íslandsmeistaratitli með FH, trú á því að hann og félagar haldi út þá löngu leið sem eftir er ap efsta þrepi.? „Áður en mótið hófst var það stefna okkar í liðinu að vinna deildina fyrst og að því loknu hugsa um úrslitakeppnina. Við höfum tekið einn leik fyrir í einu og ekkert leitt hugann að því hvað aðrir eru að gera. Því er hinsvegar ekki að neita að staða okkar er góð núna en það er mik- ið eftir.“ Ertu sáttur við leik liðsins? „Ég er sáttur og síðustu tveir leikir hafa verið í lagi af okkar hálfu. Okkur hefur hætt til þess gegn lakari liðunum í deildinni að slaka fullmikið á og lenda jafn- vel í basli. Þegar við höfum mætt sterkari iiðum deildarinnar hafa menn lagt sig vel fram.“ Nú fóru margir góðir leikmenn út fyrir landsteinana í sumar til að leika handknattleik. Hvernig frnnst þér handknattleikurinn hafa verið í vetur? „Auðvitað er missir að þessum leikmönnum í deildinni en það eru að koma ungir leikmenn inn í stað- Morgunblaðið/ívar BERGSVEINN Bergsveinsson markvörður UMFA ásamt dóttur slnni Katrínu Erlu 3 ára eftlr sigurinn á Val. inn sem eiga eftir að verða góðir. Þar vil ég nefna sem dæmi lið Selfoss og einnig ÍR. Þar eru ung- ir menn sem eru að taka hröðum framförum, það sama er að eiga sér stað hjá FH. Ég held að þróun- in sé jákvæð og við eignumst fleiri handboltamenn fyrir vikið. Þá má ekki gleyma því að landsliðið verð- ur sterkara þegar margir úr því leika í sterkri deildarkeppni erlend- is. Ég held að íþróttin í heild hagn- ist á þessu.“ Ertu sáttari við eigin frammi- stöðu það sem af er árinu en í fyrra er þú misstir landsliðssætið? „Tvímælalaust er ég ánægðari með eigin frammistöðu og það var spark í rassinn að missa landsliðs- sætið. Ég held að menn sem eru á fullri ferð í íþróttum hafi metnað til að vera í landsliðinu og auðvitað var ég ekkert ánægður með að missa sætið á sínum tíma, en lagði ekki árar í bát.“ Leikmenn UMFA koma hver úr sinni áttinni, heldurðu að það verði hægt að láta menn verða samstíga heild og ljúka mótinu á viðeigandi hátt, með sigri? „Einar Þorvarðarson, þjálfari, er ekki í þægilegri stöðu. Hann hefur fengið góða leikmenn og krafa er gerð til hans að vinna íslandsmeistaratitilinn. Þar að auki höfum við verið stimplaðir besta lið deildarinn áður en mótið hófst. Hann er að gera góða hluti. “ Er mikill þrýstingur á leikmenn að standa á efsta þrepi í vor? „Nei, það er ekki. En ég held að það séu það reyndir og skyn- samir leikmenn í liðinu að ekki verði flanað að neinu. Við tökum einn leik fyrir í einu.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.