Morgunblaðið - 10.12.1996, Page 8
MK
UthiJóUn Má Real Madrid
Real Madrid vann Barcelona,
2:0, í spænsku deildinni á
laugardag og fer í jólafrí ofar á
stigatöflunni en helstu andstæð-
ingarnir en ein umferð er eftir
fyrir jól. „Við erum samt ekki
meistarar," sagði Lorenzo Sanz,
forseti Real.
Króatinn Davor Suker nýtti sér
mistök í vörn gestanna um miðjan
fyrri hálfleik eftir aukaspyrnu.
„Ég hef alltaf skorað á móti Barc-
elona og vona að það verði þannig
áfram,“ sagði miðheijinn. Predrag
Mijatovic frá Svartfjallalandi bætti
öðru marki við eftir góðan undir-
búning frá Clarence Seedorf í byij-
un seinni hálfleiks.
Heimamenn léku mjög vel en
gestimir tóku á honum stóra sín-
um í 20 mínútur og áttu þá m.a.
tvisvar skot í rammann auk þess
sem Ronaldo, sem annars fór sér
hægt, fór illa með gott marktæki-
færi. „Leikaðferðin gekk algjör-
lega upp hjá okkur,“ sagði Fabio
Capello, þjálfari Real.
Leikurinn var opinn í byijun.
Oaul Gonzalez rétt missti marks
fyrir Real og skömmu síðar bjarg-
aði Victor Sanchez á línu heima-
manna eftir skalla frá Miguel
Angel Nadal. Sanchez var aftur á
réttum stað þegar Clarence Seed-
orf var nærri búinn að gera sjálfs-
mark í kjölfar hornspyrnu Barcel-
ona.
Reuter
ÁHANGENDUR Real Madrid höfðu ærna ástæöu tll að fagna á helmavelli um helgina.
KNATTSPYRNA
FIFAvill
knatt-
spyrnu
áfram á
Ólympíu-
leikum
SEPP Blatter, framkvæmda-
stjóri FIFA, sagði um helgina
að FEFA vildi að knattspyma
yrði áfram keppnisgrein á
Ólympíuleikum. Lennart Jo-
hansson, forseti Knattspyrnu-
sambands Evrópu, sagði í lið-
inni viku að svo gæti farið
að knattspyrna yrði tekin af
dagskrá leikanna. Blatter
sagði að FIFA hefði harðlega
gagnrýnt fyrirkomulagið á
Ieikunum í Atlanta og sér-
staklega þá ákvörðun að seija
engan leik á í Atlanta auk
þess sem farið hefði fyrir
brjóstið á mönnum að enginn
leikur hefði verið í beinni
útsendingu sjónvarps í
Bandaríkjunum. „Þetta voru
ekki Ólympíuleikarnir í Atl-
anta heldur Ólympíuleikar
Bandaríkjanna," sagði Blatt-
er. Hann bætti við að FIFA
hefði krafist þess að fyrsti
leikurinn á Ólympíuleikunum
i Sydney árið 2000 yrði á
ólympíuleikvanginum og eins
úrslitaleikurinn. „1,4 milljón-
ir mættu á knattspymuleik-
ina á Ólympiuleikunum i sum-
ar, knattspyman skilaði 100
milijónum dollara i hagnað
og við eigum að fá viðeigandi
virðingu."
Klinsmann rauf
10O marka múrínn
Juventus
sýnir klæmar
Bosnía
má leika
HM-leikina
í Sarajevo
ALÞJÓÐA knattspyrausam-
bandið, FIFA, ákvað um helg-
ina að Bosnia mætti leika
heimaleiki sína, sem eftir em
í forkeppni heimsmeistara-
mótsins, i Sarajevo í Bosniu.
Bosnía varð að leika heima-
leikinn við Króatfu í Bologna
á Ítalíu i liðnum mánuði
vegna stríðsástandsins sem
rikt hefur i landinu. Hins veg-
ar eru hlutirnir að komast í
samt lag undir eftirliti Sam-
einuðu þjóðanna og þvi vildu
heimamenn fá að spila í
Sarajevo. ítalir féllust á að
leggja þeim lið i baráttunni
og vináttuleikur þjóðanna i
Sarajevo fyrri skömmu full-
vissaði FIFA um að ósk
heimamanna ætti rétt á sér.
Júrgen Klinsmann gerði 100.
mark sitt í þýsku deildinni þeg-
ar Bayern Múnchen vann Gladbach
1:0 um helgina. Bayern er á toppn-
um með 36 stig og er þetta í 10.
sinn sem það fer í vetrarfrí í þann-
ig stöðu síðan félagið var fyrst með
í deildinni 1965.
Klinsmann skoraði á 51. mínútu
eftir sendingu frá Mario Basler og
fögnuðu 63.000 áhorfendur inni-
lega á ólympíuleikvanginum í
Múnchen. „Ekki er nóg að vera
haustmeistari," sagði Giovanni
Trapattoni, þjálfari Bayern. „Úrslit-
in liggja fyrri í maí og þó ég sé
ánægður þarf liðið að bæta sig. Við
erum efstir þó við höfum verið án
margra manna í haust vegna
meiðsla en við getum gert betur.“
Klinsmann hefur aðeins gert
fimm mörk á tímabilinu, hefur ver-
ið harðlega gagnrýndur og er
óánægður með áhersluna sem lögð
er á varnarleik hjá Bayern. „Ef
þetta heldur áfram svona fer ég,“
sagði hann eftir leikinn. „Ég hef
þurft að taka margt á mig og er
tilbúinn að gera enn meira í þeirri
von að Bayern verði meistari en
þegar mér er kennt um allt sem
misferst verð ég að spyija sjálfan
mig hvort ég eigi heima hérna.“
Hann er samningsbundinn til 30.
júní 1998 en má fara í lok yfirstand-
andi tímabils. „Ég hef verið í Múnc-
hen í eitt og hálft ár og alltaf hald-
ið að hlutirnir löguðust en ekkert í
þá veru hefur gerst."
Gladbach hefur ekki skorað í síð-
ustu sex leikjum og ekki í síðustu
níu útileikjum. Liðið er í næstneðsta
sæti og var þjálfarinn Bernd Krauss
látinn fara eftir leikinn en hann var
samningsbundinn til 1998.
Meistarar Dortmund unnu Köln
3:1 eftir að hafa verið 1:0 undir í
hálfleik. Heiko Herrlich jafnaði á
69. mínútu og fýrirliðinn Michael
Zorc bætti öðru marki við þremur
mínútum síðar en Herrlich átti síð-
asta orðið fjórum mínútum fyrir
leikslok. „Það voru engin marktæki-
færi í fyrri hálfleik en markið ýtti
við okkur,“ sagði Ottmar Hitzfeld,
þjálfari Dortmund. „Allir leikmenn-
irnir bættu sig 100% í seinni hálf-
leik og það gerði gæfumuninn."
Stuttgart tapaði 2:0 fyrir Armin-
ia Bielefeld og er í fjórða sæti.
„Við eyðilögðum fyrir okkur með
þessum leik,“ sagði varnarmaður-
inn Thorsten Legat.
Þórður Guðjónsson og samheijar
í Bochum gerðu 2:2 jafntefli við
Bayer Leverkusen sl. föstudag og
hefur Bochum ekki tapað heima
síðan í desember í fyrra.
Heimsmeistarar félgasliða, Ju-
ventus, eru komnir upp að
hlið Vicenza á toppi ítölsku deildar-
innar eftir góðan
Einar Logi sigur á Sampdoria á
Vignisson útivelli þar sem
skrifar frá varnaijaxlinn Ciro
l,allu Ferrara skoraði eina
mark leiksins. Juve á einn leik til
góða, gegn Udinese annað kvöld
og gæti náð þriggja stiga forystu
með sigri. Fari svo spá margir því
að liðið haldi henni út veturinn.
Ferrara tileinkaði vini sínum Diego
Maradona markið og vildi senda
honum baráttukveðjur og vonaði
að hann næði að sigrast á eitur-
lyfjafíkninni.
„Ég er mjög ánægður, Samp lék
vel og það er mikilvægt að missa
ekki svona leiki í jafntefli," sagði
Marcello Lippi, þjálfari Juve, eftir
leikinn. „Vörnin var mjög sannfær-
andi og Zidane hélt boltanum vel
á miðjunni, hann er einfaldlega
stórkostlegur leikmaður."
Zidane sagðist ánægður með
sína frammistöðu en hann yfirspil-
aði landa sinn Christian Karembeu
algjörlega. „Ég skil vandræði Ka-
rembeu, honum líður greinilega
ekki vel,“ sagði Zidane en Ka-
rembeu hefur aðeins verið skugg-
inn af sjálfum sér í haust og vill
fara frá Sampdoria, hefur verið í
endalausum samningaviðræðum
við Real Madrid og Barcelona sem
ekki hafa skilað neinni niðurstöðu.
AC Milan rétti aðeins úr kútnum
eftir niðurlæginguna gegn Rosen-
borg í vikunni og sigraði Udinese
2:1 með mörkum frá Savicevic og
Eranio en fyrrum Milan leikmaður-
inn Stroppa gerði mark Udinese
með þrumuskoti beint úr auka-
spyrnu.
Sacchi hristi upp í liðinu og tók
Albertini og Rossi út en það hefur
ekki gerst í 4 ár að þeir byiji ekki
inná ef þeir eru heilir. Tveir ungir
menn glöddu Sacchi mest, Angelo
Pagotto sem kom í markið og stóð
sig vel og Svíinn Jesper Blomqvist
sem lék sinn fyrsta leik fyrir Milan,
kom inná fyrir Edgar Davids.
Berlusconi eigandi Milan var
mjög ánægður með „lo svedesino",
Sviann litla, og sagði greinilega
mikið búa í honum: „Hann er fljót-
ur og leikinn og sýndi mikla aðlög-
unarhæfni, mjög góð frumraun."
Fimm leikjum í deildinni lyktaði
með jafntefli og áttu íslenskir sjón-
varpsáhorfendur kost á að sjá tvo
þeirra, steindautt markalaust jafn-
tefli í borgarslag Rómarliðanna
Lazio og AS Roma og 1:1 jafntefli
í viðureign Vicenza og Inter þar
sem Youri Djorkaeff jafnaði fyrir
Inter úr víti eftir að Maini hafði
náð forustinni fyrir Vicenza.
ITALIA: X 2X 1 X X 11X X222
ENGLAND: 2 X2 X22 X X 1 1X22