Morgunblaðið - 12.12.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSM A N N A
D
1996
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER
BLAD
Kristín Rós er 23 ára gömul og
vann til þriggja gullverðlauna og
einna bronsverðlauna á Ólympíu-
móti fatlaðra í Atlanta í ágúst sl.
Þá varð hún í fimmta sæti í einni
grein. Samhliða þessu setti hún
þrjú ólympíu- og heimsmet. Hún
hefur æft sund síðan 1982 og hefur
á þeim tíma tekið þátt í þremur
Ólympíumótum auk Norðurlanda-
og Evrópumóts fatlaðra.
Sveinn Aki Lúðvíksson, formaður
íþróttasambands fatlaðra sagði
m.a. í ávarpi sem hann flutti við
afhendinguna. „Kristín Rós er góð-
ur vitnisburður um að fatlaðir
íþróttamenn geta með elju og þraut-
seigju náð árangri á við ófatlaða
íþróttamenn. Hún hefur auk þess
hvarvetna vakið athygli fyrir prúða
og íþróttamannslega framkomu og
er að því leyti fyrirmynd annarra."
Kristín lamaðist vinstra megin
er hún var 18 mánaða gömul og
Kristín Rós Hákonardóttir íþróttamaðurársins 1996
Morgunblaðið/Golli
Birkir Kristinsson í markinu
gegn Fowler og félögum hjá
Liverpool
Ronaldo hjá
Barcelona
til 2006
„ALLAR umræður um
kaup á Ronaldo eru
úti,“ sagði Joan Gas-
part, varaforseti Barc-
elona, er hann tilkynnti
í gær að Brasilíumað-
urinn Ronaldo hafi
skrifað undir samning
við liðið til ársins 2006
og árslaun hans hafi
tvðfaldast, verði nú um
258 millj. ísl. kr. á ári.
Barcelona keypti hann
sl. sumar frá PSV Eind-
hoven á 1,3 milljarða
ísl. kr., hann er nú
metinn á 8,6 milijarð
króna.
Gleðií
Bergen
ÍSLENSKU landsliðsmennirnir Birkir
Kristinsson og Ágúst Gylfason leika með
Brann sem mætir Liverpool í 8-liða úr-
slitum Evrópukeppni bikarhafa í knatt-
spyrnu 6. og 20. mars. Birkir sagðist
mjög ánægður með að hafa fengið
Liverpool sem mótherja. „Þetta verður
spennandi verkefni fyrir okkur - algjör
happadráttur. Það braust út mikil gleði
hér í Bergen þegar Ijóst var að Liverpo-
ol yrði mótherji okkar. Við vorum að
koma af æfingu þegar fréttirnar bárust
af drættinum og voru allir leikmenn fé-
lagsins ánægðir. Síminn á vellinum
stoppaði ekki því fólk var að tryggja sér
miða, enda á Liverpool stóran hóp aðdá-
enda hér í Bergen. Ég reikna með að
það verði orðið uppselt strax á morgun
[í dag],“ sagði Birkir.
Ronaldo
eða She-
arer bestur
1996?
ALÞJÓÐA knatt-
spyrnusambandið,
FIFA, tilkynnti í gær
að þrír leikmenn hefðu
fengið flest atkvæði í
kjöri besta Knatt-
spyrnumanns heimsins
1996. Yfir 100 lands-
liðsþjálfararar tóku
þátt i kjörinu. Leik-
mennirnir eru Ronaldo,
Alan Shearer, New-
castle og George Weah,
AC Milan. Möguleikar
Weah á að verða út-
nefndur annað árið í
röð eru Iitlir, eftir að
hann nefbaut mótheija
á dögunum.
hefur síðan verið spastísk.
„Þessi viðurkenning er tvímæla-
laust hvatning til mín og annarra
fatlaðratil að stunda íþróttir,“ sagði
Kristín. Hún segist hafa slakað á
við æfingar eftir Ólympíumótið en
fyrir það æfði hún að jafnaði 8 til
9 sinnum í viku. „Ég ætla að bytja
á fullu við æfingar eftir áramót en
það eru meðal annars Norðurianda-
mót og stórt mót á Spáni sem ég
ætla að taka þátt í.“
Birkir sagði að völlurinn í Bergen tæki ekki
nema 12 þúsund áhorfendur á Evrópuleik
og því ljóst að færri komast að en vilja. Hann
hafði nokkrar áhyggjur af því að völlurinn yrði
ekki í leikhæfu ástandi í byijun mars. „Fyrsti
leikurinn í 1. umferðinni í norsku deildinni á
síðustu leiktíð átti að vera hér í apríl, en honum
varð að fresta vegna þess að völlurinn var ekki
tilbúinn undan vetri. I samráði við sérfræðinga
hefur nú verið ákveðið að setja upphitað tjald
yfír völlinn í vetur þannig að hann nái ekki að
fijósa. Það komu upp hugmyndir um að spila
heimaleikinn í Ósló
eða í Þrándheimi,
en við getum ekki
gert stuðnings-
mönnum okkar það.
Við leggjum því
áherslu á að spila í
Bergen,“ sagði
Birkir. Hann sagði að Liverpool
hefði verið að spila mjög skemmti-
lega knattspymu og því yrðu leik-
irnir erfíðir, en bætti við að ýmis-
legt væri hægt í knattspymunni.
„Það áttu fáir von á því að við
næðum að slá PSV Eindhoven út,
en við gerðum það samt. Við
mætum því alls óhræddir til leiks
á móti Liverpool."
Gulldrottning frá Atlanta
■ DRATTUR/C4
Arangurinn á þessu ári fór fram
úr mínum björtustu vonum
og þar stendur frammistaðan á
Ólympíumótinu upp úr,“ sagði
Kristín Rós Hákonardóttir sund-
kona en hún var í gær útnefnd
íþróttamaður ársins 1996 úr röðum
fatlaðra. Er þetta annað árið í röð
sem hún hlýtur þessa viðurkenn-
ingu. „Þessi útnefning kemur mér
ekki eins mikið á óvart og í fyrra
er hún kom mér í opna skjöldu."
IÞROTTIR FATLAÐRA
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA: KLINSMANN NÆSTILANDSLIÐSÞJÁLFARIÞÝSKALANDS? / D4