Morgunblaðið - 14.12.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.12.1996, Qupperneq 1
96 SÍÐUR B/C 287. TBL. 84. ÁRG. LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Leiðtogar ESB ná tímamótasamkomulagi um EMU Strangar takmark- anír á fjárlagahalla Dublin. Reuter. LEIÐTOGAR ríkja Evrópusam- bandsins náðu í gær tímamótasam- komulagi um ákvæði „stöðugleika- sáttmálans" svokallaða og tóku þar með stórt skref í átt að upptöku sameiginlegs gjaldmiðils árið 1999. Samþykkt var málamiðlun eftir deilur milli Frakka og Þjóðveija og ákveðið að setja strangar takmarkanir á leyfilegan ijárlagahalla ríkja sem ganga í Efnahags- og mynt- bandalag Evrópu, EMU. Hins vegar verður það háð pólitísku mati hvort ríki verða sektuð fyrir of mikinn ijárlagahalla. „Þetta er sigur fyrir Evr- ópu, sigur fyrir evróið," sagði Yves-Thibault de Silguy, sem fer með pen- ingamál innan fram- kvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins, eftir að sam- komulagið var í höfn á fundi leiðtoganna í Dublin. Waigel kveðst sáttur Theo Waigel, fjármálaráðherra Þýskalands, sem beitti sér fyrir mjög ströngum skilyrðum varðandi ijár- lagahalla ríkjanna, kvaðst vera sátt- ur við niðurstöðuna þótt þýsku stjórninni hefði ekki tekist að knýja fram bindandi ákvæði um sjálfkrafa sektargreiðslur ríkja sem uppfylltu ekki skilyrðin. Sektargreiðslur verða háðar pólitísku mati „Stöðugleikasáttmálinn er trú- verðugt merki um að evróið verði sterkur gjaldmiðill," sagði Waigel. Aðspurður hvort evróið yrði eins öflugt og þýska markið svaraði hann: „Já, svo sannarlega!" Ruairi Quinn, fjármálaráðherra írlands, sagði að á fundi íjármála- ráðherra ESB um sáttmálann hefði átt sér stað „heimspekileg og hug- myndafræðileg rökræða um eðli full- veldisins" og bætti við glettnislega að ráðherrunum væri ekki tamt að taka þátt { slíkum umræðum. Leiðtogarnir staðfestu að þýski seðlabankastjórinn Wim Duisenberg yrði yfirmaður Peninga- málastofnunar Evrópu (EMI) og tæki við af Belg- anum Alexandre Lamfa- lussy. Jacques Chirac, for- seti Frakklands, sagði þó að Duisenberg yrði ekki sjálfkrafa yfirmaður Evr- ópska seðlabankans, sem ráðgert er að stofna eftir tvö ár. Samkomulag leiðtoganna felur í sér að verði íjárlaga- halli ríkjanna meiri en 3% af vergri landsframleiðslu yrðu þau undanþegin refs- ingum ef landsframleiðsla þeirra drægist saman um 2% á ári eða meira. Sektar- greiðslur yrðu hins vegar háðar pólitísku mati ef efna- hagssamdrátturinn yrði meiri en 0,75% af vergri landsfram- leiðslu. Leiðtogarnir náðu ennfremur samkomulagi um lagalega stöðu evrósins og með hvaða hætti það yrði tengt gjaldmiðlum ríkja, sem gerast ekki aðilar að EMU. Mark- miðið var að koma í veg fyrir að ríkin gætu ákveðið gengislækkanir og bætt þannig samkeppnisstöðu sína gagnvart aðildarríkjum EMU. Reuter HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, og Jacqu- es Chirac, forseti Frakklands, að spjalli í hléi á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Dublin. Evró-seðlar kynntir EMI, Peningamálastofnun Evr- ópu, fyrirrennari Evrópska seðlabankans, kynnti í gær evró- seðlana, sem verða teknir í notk- un ekki síðar en 1. janúar 2002 innan aðildarríkja Efnahags- og myntbandalags Evrópu, EMU. Listamenn á vegum seðla- banka Austurríkis hönnuðu seðl- ana, sem eru sjö, og verðgildi þeirra er frá fimm evróum til 500. Á annarri hlið seðlanna er stílfært kort af Evrópu og á hinni myndir sem tengjast byggingar- list, svo sem brýr, gluggar og bogar. Á seðlunum eru engin tákn sem vísa til einstakra þjóða. Að sögn talsmanns seðlabank- ans eiga seðlarnir að tákna „til- komu nýrrar og sameinaðrar Evrópu". Efnt var til samkeppni um hönnun seðlanna og nefnd 14 sérfræðinga valdi tillögur hönnuða austurríska seðlabank- ans eftir að 2.000 manns frá öll- um löndum Evrópusambandsins höfðu verið spurð álits á tíu bestu tillögunum. Fagnað Bagdað. Reuter. MIKILL fögnuður braust út í gær á götu í Bagdað þar sem ráðist var á Uday, annan sona Saddams Husseins, forseta íraks, á fimmtudagskvöld. Talsmaður írasks stjórnarandstöðuhóps með aðsetur í Jórdaníu sagði að þrír eða fjórir menn hefðu ráðist á hann, varpað handsprengjum og skotið af hríðskotabyssum. „Hinn illi ásetningur að drepa Bagdað tákn íraskrar æsku hefur farið út um þúfur,“ sagði einn þeirra sem fögnuðu í Bagdað og átti við Uday. „Þegar samsæri mistakast er ástæða til að fagna.“ Fjölda kinda var slátrað og blóði þeirra skvett um götuna. Sú athöfn er táknræn og merkir að illur fyrirboði sé á braut. ■ Hveqir frömdu/22 Reuter Ráðherraefni hnígur niður Árás gerð á Israel Kiryat Shmona. Reuter. NOKKRUM flugskeytum var skot- ið á norðurhluta ísraels í gær en ekki var vitað um mannfall eða eignatjón, að sögn ísraelska hers- ins. Þetta er í fyrsta sinn sem slík árás er gerð á svæðið frá því að vopnahléssamkomulag fyrir milli- göngu Sameinuðu þjóðanna batt enda á 17 daga árásir ísraela á Hizbollah-skæruliða í Líbanon í mars. Hizbollah-hreyfingin kvaðst ekki hafa skotið flugskeytum í gær. LÖGFRÆÐINGURINN William Daley hneig niður við athöfn í Hvíta húsinu í gær þegar Bill Clinton forseti tilnefndi hann við- skiptaráðherra. Forsetinn hjálpar hér aðstoðarmönnum sínum að reisa Daley upp og þeir leiddu hann út úr sainum. Hann sneri aftur skömmu síðar við mikinn fögnuð viðstaddra og kvaðst hafa fallið í yfirlið vegna hita í salnum, auk þess sem hann hefði ekkert borðað um daginn. ■ Clinton tilnefnir/20 Samkomulag næst um eftirmann Boutros-Ghalis Allt öryggisráðið styður Kofi Annan Sameinuðu þjóðunum. Reuter. GHANAMAÐURINN Kofi Annan, aðstoðarframkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, fékk stuðning allra aðildarríkja öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í atkvæða- greiðslu seint í gærkvöldi. Franska stjórnin féll þá frá þeirri hótun sinni að beita neitunarvaldi gegn honum. „Ráðið hefur náð samkomulagi um að leggja til við allsherjarþing- ið að Kofi Annan verði næsti fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna,“ sagði John Weston, sendi- herra Bretlands hjá samtökunum. „Þetta er góð niðurstaða fyrir Afríku og Sameinuðu þjóðirnar,“ bætti Weston við. Tilnefning öryggisráðsins verð- ur borin undir atkvæði á allsherj- arþinginu, sem skipar fram- kvæmdastjórann formlega, á þriðjudag. Kjörtímabilið hefst 1. janúar og nái Annan kjöri verður hann sjö- Reuter KOFI Annan hefur verið að- stoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og stjórnað friðargæslu samtak- anna frá 1993. Hann hefur starfað fyrir samtökin í 30 ár. undi framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna. Niðurstöðunni fagnað Boutros Boutros-Ghali, fráfar- andi framkvæmdastjóri, hafði dregið framboð sitt til baka eftir að Bandaríkjamenn beittu neitun- arvaldi gegn honum. „Fram- kvæmdastjórinn er ánægður með þessa einróma niðurstöðu og fagn- ar því sérstaklega að Afríka skuli halda embættinu í annað firnrn ára kjörtímabil, eins og framkvæmda- stjórinn hefur stefnt að síðustu mánuði," sagði í tilkynningu frá talsmanni Boutros-Ghalis. Madeleine Albright, sendiherra Bandaríkjanna, kvaðst ánægð með þessa niðurstöðu. Hún fór lofsam- legum orðum um Boutros-Ghali, sagði að hann hefði gegnt embætt- inu af dugnaði og „sett mark sitt á söguna“.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.