Morgunblaðið - 14.12.1996, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.12.1996, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ 50 ára frábær reynsla. Einar Farestveit&Co.hf Borgartúnl 2« tt 5*2 2901 og 5*2 2900 frábærar gjafir í skóinn fyrir 2—9 ára börn. Aöeins kr. TIL BJARGAR MANNSLÍFUM (ca 150 kr. pr gjöf) Selt til styrktar Flugbjörgunarsveitinni. „Gott í skóinn“ fæst á sölustöðum um land allt. Innihald m. a. leikföng, smádót, íslensk jólasveinaspil og sælgæti. ESTEE LAUDER gjafakassi JólaverðKr.3.490^-| (raunverð Kr. 4.405.-) 22 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1996 KitchenAid DRAUMAVÉL HEIMILANNA! KM90: Verð frá kr. 29.830 stgr. m/hakkavél. Margir litir. Fæst um land allt. ERLENT Hveijir frömdu tilræðið við son Saddams? Uday Hussein hefur aflað sér margra óvina innan stjórnarinnar og utan ESTEE LAUDER förðunarkassi Jólaverð Kr. 4.975.- TOMMY rakspíri 100 ml. ásarnt ÍOMMY T bol R I Jólaverð Kr. 2.950.-1 CLINIQUE herrasnyrtitaska ásamt snyrtivörum Jólaverð Kr. 2.775.- (raunverð Kr. 5.500.-) Amman. Reuter. MIKLAR vangaveltur um ástandið í írak hafa vaknað eftir að íraska sjónvarpið greindi frá því að Uday Hussein, eldra syni Saddams Husseins, forseta íraks, hefði verið sýnt banatilræði á götu í Bagdað á fimmtudagskvöld. íraskir ríkisfjölmiðlar höfðu eftir talsmanni íraska forsetaembættisins að skotið hefði verið á Uday og hann særst. Hann hefði verið fluttur á sjúkrahús, en ekki væri_ „ástæða til að hafa áhyggjur" af líðan hans. Árásinni var ekki lýst nánar. Grímuklæddir árásarmenn? Haroun Mohammad, íraskur stjórnarandstæð- ingur í Jórdaníu, sagði að þrír til fjórir menn hefðu ráðist að bílalest Udays. Frásögnum af árásinni bæri ekki saman, en vitni hefðu sagt að Uday hefði verið í fjögurra bíla lest þegar grímuklæddir árásarmenn létu til skarar skríða. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu og hann sagði ekki hverjir hefðu staðið að baki því, en það er sú spurning, sem nú brennur á margra vörum. Tilræðið gæti hafa verið framið af einhveijum þeirra mörgu óvina, sem Uday hefur eignast gegnum tíðina, bæði innan stjórnarinnar og meðal stjórnarandstæðinga. Þótt tilræðið hafi mistekist og Uday, sem margir telja að verði arftaki föður síns, hafi sloppið lífs, þykir hafa komið í ljós að öryggisgæsla helstu ráðamanna íraks er ekki jafn traust og talið var. Um leið segja fréttaskýrendur að tilræðið sýni að skáka megi veldi Saddams. Ástæðan persónuleg eða pólitísk „Hvort sem ástæðan var persónuleg eða póli- tísk, er árásin viðvörun til stjórnarinnar," sagði ónefndur íraskur stjómarandstæðingur. Aðrir leggja vara við því að gera of mikið úr tilræðinu. „Sú staðreynd að þeir tilkynna þetta í sjón- varpi gefur til kynna að þeir hafí fulla stjórn á rnálinu," sagði stjórnarerindreki, sem fylgist með ástandinu í Irak. „Ef hann væri í hættu eða fleiri atvik hefðu gerst yrði ekki greint svona opin- skátt frá þessu.“ Erindrekinn bætti þó við: „En þetta er andstæðingum Saddams hvatning, sem þeir fá ekki oft.“ íraskir fjölmiðlar sögðu að Uday hefði verið lagður inn á Ibn Sina-sjúkrahúsið í Bagdað eft- ir árásina. Engar myndir hafa verið birtar af honum og hefur það ýtt undir vangaveltur um að sár hans séu alvarlegri, en að væri látið liggja. Orðrómur hefur meira að segja komist á kreik um að hann hafi látið lífið. Uday rekur sitt eigið dagblað og sjónvarps- stöð. Hann ber titlana formaður Ólympíunefndar CUNIQUE dömusnyrtitaska ásamt förðunarvörum Jólaverð Kr. 2.840,- þ Reuter UDAY Hussein (fyrir miðju), sem hér sést í faðmi fjölskyldunnar, var sýnt banatilræði á fimmtudagskvöld. íraks og formaður íraska knatt- spyrnusambandsins, en völd hans eru meiri en embættin gefa til kynna. Hann er með gráðu í verk- fræði og herfræðum. Hann var einnig formaður íraska blaða- mannafélagsins um skeið. Skemmtanafíkinn spjátrungur Uday er sagður hafa gaman af að stunda hið ljúfa líf, ganga um í klæðskerasaumuðum fötum með sólgleraugu á nefí og þriggja daga skegg á meðan almenningur lepur dauðann úr skel eftir sex ára refsi- aðgerðir, sem gripið var til fyrir milligöngu Sameinuðu þjóðanna eft- ir innrás íraka í Kúveit árið 1990. Qusay, yngri bróðir Udays, er yfirmaður hinna sérstöku öryggissveita íraks. Þeir bræður hafa báðir brotist til valda og aflað sér óvina jafnt í stjórninni sem utan. Að sögn stjórnarerindreka leiddi ágreiningur Udays við Saddam Hussein Kamel, sem var potturinn og pannan bak við leynilega vopna- áætlun íraka, til þess að sá síðarnefndi gerðist landflótta í ágúst í fyrra. Segja þeir að það hafi skotið Kamel skelk í bringu þegar Uday skaut og særði hálfbróður Saddams, Watban Ibrahim al-Hassan. Uday tók á móti hinum iðr- andi Kamel þegar hann sneri aftur til íraks frá Jórdaníu eftir sjö mánaða útlegð. Þremur dög- um síðar var Kamel skotinn til bana. Það er mál stjórnarandstæðinga að Uday hafi stigið fram á sjónar- sviðið sem næsti leiðtogi íraks, hinn óformlegi krónprins, eftir flótta Kamels. Stjórnarerindrekar í írak segja hins vegar að Saddam hafi notað uppnámið í stjórninni vegna flóttans til að treysta völd sín. Í sumar fóru fram fjöldahandtökur í Bagdað og var þá haft á orði að gerð hefði verið tilraun til valdaráns. Ekkert benti hins vegar til að tök Saddams á valdataumunum hefðu linast. Stjórnarerindrekar segja að sýnu auðveldara sé að koma höggi á Uday en Saddam. Sonurinn sé áberandi í Bagdað á fimmtudögnm, en þá hefst helgin hjá múslimum. Hann sjáist oft einn í bifreið sinni eða á veitingastöðum. Saddam hefur ekki komið fram opinberlega nema örsjaldan á þessu ári. Uday er óútreiknanlegur. Hann féll í ónáð um stund eftir að hann barði einn af uppáhalds- þjónum föður sins til ólífis í nóvember 1988. Síðar kvæntist hann barnungri dóttur Barzans Ibrahims al-Tikritis, eins af hálfbræðrum Sadd- ams, en hafnaði henni og sendi hana aftur til föðurhúsanna. Tengdafaðir Udays fyrrverandi líkti honum á síðasta ári við Kamel og sagði hann „gráðugan og óhæfan til að fara með völd“. Uday Hussein
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.