Morgunblaðið - 14.12.1996, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KORFUKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNA
Teiturfer
til Larissa
TEITUR Örlygsson, körfu-
knattleiksmaður með Larissa
í Grikklandi, hefur verið í fríi
hér heima síðstu dagana, en
heldur á ný til Grikklands í
fyrramálið. „Forráðamenn
Larissa borguðu mér allt sem
ég átti inni þjá þeim í vikunni
þannig að ég fer út á sunnu-
daginn,“ sagði Teitur í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Hann sagði þó ekki ljóst hvort,
og þá hvemig hann kæmist
til Larissa. „Bændur hafa lok-
að vegum og járnbrautartein-
um í Grikklandi og Larissa er
í landbúnaðarhéraði þannig
að ég er ekkert viss um að ég
komist þangað upp eftir,“
sagði Teitur, en samkvæmt
mótaskrá á Larissa heimaleik
við Aris í næstu umferð.
Bjami hefur ekki feng-
ið tilboð frá Liverpool
Eg er ekki búinn að fá neitt til-
boð, hvorki frá Liverpool né
Newcastle," sagði Bjarni Guðjóns-
son knattspyrnumaður í samtali við
Morgunblaðið í gær. Bjarni, sem
hefur æft með Liverpool í viku-
tíma, segir að komi eitthvert tilboð
þá verði það til ÍA en Örn Gunnars-
son, stjómarmaður ÍA sagði að
ekkert tilboð væri komið.
„Þetta er búið að vera mjög
gaman og Liverpool hefur boðið
mér að koma aftur eftir áramótin
og vera þá í mánuð að æfa með
félaginu. Ég kem heim á sunnudag-
inn og ætla að hugsa málið um
hátíðirnar," sagði Bjarni í gær.
Hann sagði að það væri ósköp svip-
að að æfa hjá Liverpool og New-
castle, heimilislegt og þægilegt.
En skyldi Bjarni hafa hug á að
komast í atvinnumennsku strax eða
vill hann bíða í eitt ár og klára
samninginn við Skagamenn? „Ég
vona að ég komist í atvinnu-
mennskuna núna og er tilbúinn í
slaginn fái ég gott tilboð," segir
Bjarni.
__ _ æ mm m m m rv*-ULt-1
Handagangur i oskjunm
ÞAÐ var svo sannarlega handagangur i öskjunnl þegar þessl mynd var tekin í leik Milwaukee
Buck og Seattle Supersonics í fyrrakvöld og margar hendur á lofti. Armon Gilllam leikmaður
Bucks hafðl betur nokkrum andartökum síðar og náðl þessu sóknarfrákastl. Að endingu voru
það ieikmenn Mllwaukee sem höfðu betur í jöfnum og tvísýnum lelk, lokatölur 100:97. En það
voru fleirl sem fögnuðu að leikslokum í fyrrakvöld því Houston vann i 19. sklpti á leiktíðinni
og að þessu sinni voru það lelkmenn Detroit sem lágu. Leikirnir / C4
íslandsmet
hjá Eydísi
í Rostock
EYDÍS Konráðsdóttir sund-
kona úr Keflavík setti í gær
fslandsmet í 200 m baksundi
á Evrópumeistaramótinu í 25
m laug sem nú fer fram í
Rostock í Þýskalandi. Eydís
synti á 2.16,79 mín., en gamla
metið var 2.18,58 mín. Eydís
er farin að leggja áherslu á
ný á baksundið eftir að hafa
aðallega einebitt sér að flug-
sundi undanfarin misseri.
Þess má einnig geta að þjálf-
ari hennar um þessar mundir
er Eðvarð Þór Eðvarðsson,
allra fremsti baksundsmaður
þjóðarinnar á sinni tið og
hefur Eydís greinilega ekki
komið að tómum kofanum
hjá honum.
Ríkarður Ríkarðsson sund-
maður úr Ægi náði sínum
besta tima í 100 m skriðsundi
á sama móti er hann kom í
mark á 50,84 sek. og var
aðeins 9/100 úr sekúndu frá
íslandsmeti Magnúsar Más
Ólafssonar. Þá setti Örn Arn-
arson, SH, piltamet i 50 m
baksundi er hann synti á
28,30 sek. en eldra metið var
28,49 sek.
Elín Sigurðardóttir, SH,
synti 50 m flugsund á 29,63
sek. og félagi hennar Hjalti
Guðmundsson synti 50 m
bringusund á 29,72 sek. og
hjó nærri sínum besta tíma.
Ekkert af islenska sundfólk-
inu komst í úrslit, en þeir sem
ná sex bestu tímunum úr
undanriðlum komast í úrslit.
FÉLAGSLÍF: ÞRÓTTARAR FLYTJA í LAUGARDALINN / C4