Morgunblaðið - 15.12.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1996 B 7
MANN LÍFSSTRAU MAR
LÆKNISFRÆÐS// lýsiflestra meina bótf
L ÝSIOG FJÖLÓMETT-
AÐAR FITUSÝRUR
SNEMMA á öldinni gerðu danskir
vísindamenn rannsóknir á eskimó-
um í Grænlandi sem sýndu að
þeir lifðu nær eingöngu á fiski og
kjöti. Nokkru síðar kom í ljós að
þetta sama fólk hefur einhveija
lægstu tíðni hjarta- og æðasjúk-
dóma sem þekkist. Þessar stað-
reyndir þóttu lengi vel hin mesta
ráðgáta og mönnum gekk illa að
skilja hvernig fólk sem lifði á
þannig mataræði gat að mestu
verið laust við sjúkdóma sem slíkt
fæði var talið stuðla að í öðrum
löndum. Rannsóknir sem fylgdu í
kjölfarið gáfu til kynna að neysla
sjávarafurða, jafnvel í litlu magni,
gæti veitt vernd fyrir æðakölkun,
blóðtappa, kransæðastíflu, sykur-
sýki, gigt og e.t.v. ýmsum fleiri
sjúkdómum. Þessar rannsóknir og
umræðan sem þeim fylgir hefur
staðið áratugum saman enda hef-
ur vafist fyrir mönnum að skýra
á hvern hátt þessi verndandi áhrif
verða.
*
Iljós kom að fiskur og ýmsar
aðrar sjávarafurðir innihalda
fjölómettaðar fitusýrur sem eru
ólíkar þeim fjölómettuðu fitusýr-
um sem er að
finna í grænmeti
og ávöxtum. Til
að tákna þennan
mun eru fjöl-
ómettaðar fítu-
sýrur i sjávar-
fangi kallaðar n-3
(eldri nafngift
sem nú er að mestu hætt að nota
er ómega-3) en þær sem er að fínna
í jurtaríkinu eru kallaðar n-6 fitu-
sýrur. Allt bendir nú til þess að
það sem skipti hér mestu máli séu
þessar fjölómettuðu fítusýrur og
hvort þær séu af gerðinni n-3 eða
n-6. Fitusýrur af gerðinni n-3 eru
einkum framleiddar af minnstu líf-
verum hafsins og berast síðan eftir
fæðukeðjunni til fiska og annarra
stórra dýra. Jurtir sem vaxa á landi
mynda hins vegar n-6 fítusýrur
sem er þess vegna að finna í jurta-
olíum. Mannafrumur geta hvorki
myndað n-3 né n-6 fitusýrur og
erum við því háð því að fá þessi
efni með fæðunni.
Það sem kom í ljós við rann-
sóknir á eskimóum var að þeir
höfðu mun minna magn af blóð-
fitu (kólesteróli og fleiri efnum)
en búast mátti við, blóðflögurnar
innihéldu verulegt magn af n-3
fitusýrum, þær höfðu Iitla tilhneig-
ingu til að kekkjast og blæðingar-
tími var lengdur. Blóðflögur eru
örsmáar frumur í blóðinu sem
hafa m.a. þá þýðingu að stöðva
blæðingu en þá íoða þær við æða-
veggi, mynda kekki, blóðsega
(storknað blóð) og stuðla þannig
að lokun æðarinnar og stöðvun
blæðingar. Þegar æðakölkun eða
aðrar skemmdir á æðaveggjum
eru til staðar geta blóðflögurnar
stuðlað að myndun blóðsega með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum, t.d.
ef þetta gerist í kransæðum hjart-
ans. í æðakerfinu myndast ýmis
efni (prostaglandín og skyld efni)
sem hafa m.a. áhrif á eiginleika
blóðflagnanna og mörg þessara
efna myndast úr fitusýrum og þá
skiptir máli hvaða fitusýrur eru í
fæðunni. Ef við neytum n-3 fjöló-
mettaðra fitusýra myndast minna
en áður af efni í blóðflögunum sem
stuðlar að kekkjun þeirra og meira
myndast af öðru efni í æðaveggj-
unum sem vinnur gegn kekkjun
blóðflaga og blóðsegamyndun. En
skyldu það vera þessi áhrif sem
skipta mestu máli fyrir hollustu
sjávarafurða? Um það hefur verið
rökrætt og deilt í hartnær 20 ár.
Nokkrar viðamiklar rannsóknir
sem gerðar hafa verið á síðustu
10-15 árum hafa leitt í ljós á ótví-
ræðan hátt að neysla sjávarafurða
dregur verulega úr hættu á dauða
vegna hjartasjúkdóma. Þetta gerist
þó að neyslan sé lítil, t.d. tvær físk-
máltíðir í viku, en á hvern hátt
gæti þetta gerst? Allt bendir til að
hér séu n-3 fítusýrurnar að verki
og minnst þrír möguleikar virðast
koma til greina: 1) Ahrif á blóðflög-
eftir Magnús
Jóhannsson
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR /Hefur jólaundirbúningurinn breyst
of mikibf
Hrángemingar og sætabrauð
KVÖLD eitt fyrir skömmu fór ég
á tónleika, þeir byrjuðu seint og
ég var heldur of snemma á ferð
svo ég ákvað að fá mér kaffi á
Hótel Borg í millitíðinni. Þegar ég
kom þangað voru öll borð setin
og allir sem þarna voru inni voru
að borða af mikilfenglegu jólahlað-
borði. Þjónninn bauð mér að setj-
ast inn á bar og gekk með niér í
gegnum Gyllta salinn svo ég komst
ekki hjá því að sjá í svip allar þær
kræsingar sem þarna voru á boð-
stólum. Ég sá líka út undan mér
allt fólkið sem þarna var statt,
margt af því voru konur á ýmsum
aldri. Ég settist svo inn á barinn
með kaffið mitt og fór að hugsa
um jólaundirbúning.
Þegar ég var krakki hefði engin
kona með sómatilfinningu
látið sér detta í hug að fara út
úr húsi í desember nema brýna
nauðsyn bæri til. Þá þótti það
heilög skylda hverrar konu að
gera allt heimili sitt hreint fyrir
jólin, sauma náttföt og jólaföt á
börnin, baka allt upp í sautján
sortir af smákökum auk fjöl-
n
eftir Guðfúnu
Guðlougsdótfur
margra tegunda
af lagkökum,
búa til sem mest
af jólagjöfunum
og sinna að auki
um þá ættingja
sem orðnir voru
of lasburða til
þess að geta
annast sinn jólaundirbúning að
öllu leyti sjálfir. Desember var þá
eins og sést af þessari upptalningu
svo mikill annamánuður að fáum
konum hefði svo mikið sem flogið
í hug að sitja á vertshúsi með vín
í glasi rétt fyrir jólin. Þá hafði
heimilið skilyrðislausan forgang,
öllu skipti að það væri tand-
urhreint, allir hefðu ný föt til að
fara í og nóg væri að bíta og
brenna.
Nú eru viðhorfin breytt. Í stað
þess að vinna eins og þrælar
myrkranna á milli við stórfengleg-
an jólaundirbúning leyfa konur sér
að fara ítrekað út að borða, fara
í jólaglögg á vinnustaðnum og til
vina og taka margvíslegan þátt
annan í félagslífi. Smám saman
hefur orðið sú breyting að des-
ember er orðinn mánuður mikils
félagslífs. Fólk hefur slegið af
kröfunum um gagngerar hrein-
gerningar og uppsöfnun sæta-
brauðs og skemmtir sér svolítið í
staðinn. Og samt koma jólin og
allir eru hinir ánægðustu að sjá.
Þetta hefði þurft að segja hús-
mæðrum æsku minnar oftar en
þrisvar.
Margt hefur orðið til þess að
koma þessum breytingum á, fyrst
og fremst þó almenn atvinnuþátt-
taka kvenna. Eitthvað varð ein-
faldlega undan að láta og þess
vegna var hreingerningakústurinn
settur inn í skáp með þeim um-
mælum að það væri hvort sem er
vitlegra að gera hreint á vorin.
Smákökurnar voru skornar niður
við trog með þeim ummælum að
það væri hvort sem er ekki hollt
fyrir fólk að borða allt þetta sæt-
meti og jólafötin keypt með þeim
ummælum að það borgaði sig ekki
lengur að sauma, það væri hægt
að fá ágætar flíkur fyrir sama
verð og efni, það þjónaði því eng-
um tilgangi að sitja með vöðva-
bólgu í öxlum langt fram á nætur
ur og æðaveggi, eins og áður var
lýst, sem minnka hættu á blóð-
tappa, 2) minnkuð æðakölkun
vegna áhrifa á blóðfítu og 3)
minnkuð hætta á skyndilegum
hjartadauða af völdum lífshættu-
legra hjartsláttartruflana. Þó að
físks eða lýsis sé neytt í verulegu
magni sjást aðeins tiltölulega væg
áhrif á blóðflögur og æðaveggi,
miklu kröftugri áhrif fást af litlum
skömmtum af aspiríni (30-80 mg
á dag) og er það stundum notað
hjá sjúklingum með æðakölkun til
að koma í veg fyrir kransæðastíflu
(hjartadrep). Ekki hefur með vissu
tekist að sýna fram á að fískur eða
lýsi komi í veg fyrir æðakölkun en
þær rannsóknir sem gerðar hafa
verið hafa staðið yfír í stuttan tíma
(mest í 2 ár) og enn vantar lang-
tímarannsóknir til að hægt sé að
útiloka slík áhrif. Nýlega hefur
komið í ljós að fiskur og lýsi í litlu
magni virðist minnka verulega
hættuna á lífshættulegum hjart-
sláttartruflunum sem oft fylgja
kransæðastíflu og öðrum hjarta-
sjúkdómum. Þetta getur sennilega
skýrt að miklu leyti þau verndandi
áhrif fískneyslu sem lýst var að
ofan. Nú eru í gangi alls kyns rann-
sóknir til að kanna þetta nánar.
Ýmis önnur hugsanlega gagn-
leg áhrif fiski- og lýsisneyslu hafa
verið könnuð en flest af því þarf
að rannsaka betur en gert hefur
verið. Lýsi lækkar blóðþrýsting,
en lækkunin er mjög lítil og dugir
venjulega ekki ein og sér við háum
blóðþrýstingi. Ahrif lýsis eða
hreinsaðra n-3 fitusýra hafa verið
könnuð á liðagigt, sykursýki,
blæðandi þarmabólgur og tíða-
verki. í öllum þessum tilvikum
sjást einhver bætandi áhrif en oft-
ast eru þau lítil, nema á tíðaverk-
ina sem lýsi virðist draga verulega
úr. Fiskur og lýsi virðist minnka
hættu á krabbameini í ristli og
endaþarmi en minnkar hins vegar
ekki hættu á bijóstakrabbameini.
Allt þetta þarf þó að rannsaka
betur og eins er verið að kanna
hugsanleg bætandi áhrif fjöló-
mettaðra n-3 fitusýra á ýmsa aðra
sjúkdóma. Engin óæskileg áhrif
hóflegrar físk- og lýsisneyslu hafa
sést en hafa ber í huga að lýsi
inniheldur verulegt magn af A-
og D-vítamíni en þau valda bæði
eitrunum ef of mikið er tekið inn.
Það er því óhætt að mæla með
reglulegri fiskneyslu og lýsi í hóf-
legu magni gerir okkur líka gott.
við saumaskap. Jólagjafírnar eru
keyptar tilbúnar í flestum tilvikum
og félagsmálastofnun og líknarfé-
lög sjá um að hlú að þeim sem
ekki geta annast sitt jólahald sjálf-
ir fyrir fátæktar sakir eða heilsu-
leysis. Það hefur því, þrátt fyrir
útivinnu kvenna, skapast tími til
að sitja í veislum í desember -
og samt koma jólin.
Auðvitað er ekki allur jólaundir-
búingur fyrir bí, hann hefur bara
dregist saman. Fólk velur nú vand-
lega hvað gera skal, samvinna
hjóna og annarra heimilismanna
er meiri við jólaundirbúninginn og
allt það sem ekki er bráðnauðsyn-
legt er látið bíða betri tíma. Mér
fínnst þetta breyting til batnaðar
að flestu leyti. Mér finnst rétt að
láta mikilfenglegar hreingerning-
ar bíða þar til birta fer, kökubakst-
urinn mátti sannarlega að skað-
lausu minnka, það skiptir engu
fyrir sálarheill barna að vera ekki
í heimasaumuðum fötum, en
kannski einhveiju fyrir pyngju for-
eldranna. Það eina sem mér finnst
eftirsjá í er að samhjálpin hefur
kannski eitthvað minnkað. Þó er
það ekki alveg víst, kannski er hún
bara öðruvísi. Kannski er hún
núna í formi umræðna en sjaldnar
aðgerða. Það sem öllu máli skiptir
er að fólk gleðjist á jólunum og
börnin fái þá athygli og umönnun
sem þau þarfnast. Ef sú er raunin
er jólahald eins og það best getur
orðið hvernig sem því er háttað
að öðru leyti.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Landstvímenningurinn
í Reykjavík
FÖSTUDAGINN 6. desember var
Landstvímenningur 1996 í húsnæði
BSÍ. 42 pör spiluðu í tveimur riðl-
um. Spilaðar voru 9 umferðir með
3 spilum á milli para og meðalskor
var 216. Efstu pör voru:
A-riðill NS
Óli Þór Kjartansson - Garðar Garðarsson 274
Jóhann Magnússon - Kristinn Karlsson 254
Sturla Snæbjörnsson - Cecil 'Haraldsson 248
A-riðill AV
Halldór Svanbergss. - Óli Már Guðmundss. 247
Þorlákur Jónsson - Sævar Þorbjömsson 235
Sveinn R. Þorvaldss. - Steinberg Ríkarðss. 234
B-riðill NS
Guðm. Sv. Hermannss. - Helgi Jóhannss. 265
Eyþór Hauksson - Helgi Samúelsson 242
Hermann Friðrikss. - Karl Karlss. 233
B-riðill AV
Stefán Jóhannsson - Júlíus Siguijónsson 259
Magnús _E. Magnússon - Stefán Stefánsson 244
Sverrir Ármannsson - Ásmundur Pálsson 237
Að spilamennsku lokinni var spil-
uð miðnætur-útsláttarsveitakeppni
með þátttöku 14 sveita, sem er
nýtt met í þátttökunni í vetur.
Keppnin var mjög hörð og til úr-
slita spiluðu sveitirnar: Sérsveitin
(Baldur Bjartmarsson, Steindór
Ingimundarson, Eggert Bergsson
og Friðrik Jónsson) og Sævar Þor-
björnsson (Sævar Þorbjörnsson,
Helgi Jóhannsson, Ásmundur Páls-
son og Sverrir Ármannsson). Sér-
sveitin vann úrslitaleikinn 17-14 í
æsifjörugum 6-spila leik. Þess má
til gamans geta að Sérsveitin sló
út 9 stórmeistara í þessari keppni!
Bridsfélag Reykjavíkur
Miðvikudaginn 11. desember
kláraðist 3ja kvölda Monrad sveita-
keppni félagsins. Sveit VÍB sigraði
örugglega eftir að hafa verið með
forystu alla keppnina. í sveit VÍB
spiluðu Örn Arnþórsson, Guðlaugur
R. Jóhannsson, Áðalsteinn Jörgens-
en, Ásmundur Pálsson og Sigurður
Sverrisson. í öðru sæti varð sveit
Júlíusar Siguijónssonar. Með hon-
um spiluðu Ólafur Lárusson, Her-
mann Lárusson, Jakob Kristinsson,
Stefán Jóhannsson og Hrannar Erl-
ingsson. Lokastaða varð annars
þessi:
Sv.VÍB 185
Sv. Júlíus Siguijónsson 176
Sv.ROCHE 168
Sv. Gísli Hafliðason 151
Sv. Málning 145
Sv. Búlki 144
Miðvikudaginn 18. desember
verður spilaður jólatvímenningur
þar sem helstu reglur um sagnir
og spilamennsku verða sveigðar til
í u.þ.b. 3ja hveiju spili.
Bridsdeild Rangæinga og
Breiðholts
Nk. þriðjudag er síðasta spila-
kvöld á þessu ári. Við þökkum öllum
sem hafa spilað hjá okkur í vetur
fyrir samveruna og óskum þeim
gleðilegra jóla og farsældar á nýju
ári.
Röð efstu para í NS sl. þriðjudag:
Hermann Lárusson - Lárus Hermannsson 189
Geir Róbertsson - Róbert Geirsson 180
Friðrik Jónsson - Loftur Pétursson 179
Efstu pör í AV:
Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Axelsson 208
Jón Axelsson - Bragi Bjamason 186
Maria Ásmundsd. - Steindór Ingimundars. 177