Morgunblaðið - 15.12.1996, Page 4
• 4 D SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BÍLAR
HYUNDAI Coupé er snaggaralegur sportbíll.
Morgunblaðið/Golli
Knár og liðug-
ur Hyundai
Coupé
sportbíll
HYUNDAI Coupé FX er
skemmtilega knár og liðugur
sportbíll frá hinum kóreska
framleiðanda sem Hyundai-
umboðið, Bifreiðar og land-
búnaðarvélar, hafa nú fengið
en Coupé er nýr hið ytra
sem innra. Verðið er tæpar
1,8 milljónir en bíllinn er bú-
inn tveggja lítra og 138 hest-
J afla vél og margháttuðum
þægindum. Hann er fram-
I drifinn og skráður iyrir
t fjóra. Þegar eru þrír bílar af
þessari gerð komnir á göt-
una og vonast og vænta má þess að
fleiri slíkir seljist á næstunni en
hér á eftir verður litið nánar á
þennan áhugaverða bíl.
Hyundai Coupé er rúmlega fjög-
urra metra langur og því nokkum
veginn meðalstór. Hann hefur
mjög skemmtilega lögun, næstum
því eins og skip með perustefni eða
fleygmyndaður að framan, því
framendinn virkar ávalur og breið-
astur við hjólaskálamar en mjókk-
ar svo bæði framan og aftan við
þær. Afturendinn er einnig boga-
dreginn og allar luktir em spor-
öskulagaðar. A hliðunum em ein-
nig skemmtilegar bylgjur. Stuðar-
ar era samlitir og yfirbyggingin er
hallandi bæði fram- og afturrúðan.
Naum lofthæð
Innan dyra er sama skemmti-
lega línan á ferðinni í mælaborði
og rofum. Sætin em góð, sérstak-
lega framstólarnir þvi ökumaður
og farþegi við hlið hans sitja vel
skorðaðir með mjög góðan stuðn-
ing af sætisbökum. Hægt er að
hækka og lækka sæti ökumanns
og veitir ekki af því lofthæðin er
naum. Bíllinn sem var prófaður er
reyndar með sóllúgu og því heldur
lægra til lofts fyrir vikið. En sé
sætið í neðstu stöðu sleppur þetta
nokkum veginn.
Bíllinn er skráður fyrir fjóra og
því geta tveir setið í aftursæti. Þeir
geta þó ekki beint teygt mikið úr
sér enda hafa þeir ektó mitóð oln-
bogarými, einn farþegi gæti sætt
sig þokkalega við að hafa allt pláss-
ið fyrir sig. Aftast er síðan dálítið
farangursrými sem reynist furðu
drjúgt. Afturhurðin opnast vel og
afturrúðan með og því er auðvelt
að umgangast farangursrýmið.
Umgangur er hins vegar ektó eins
auðveldur fyrir farþegana því bæði
vegna þess hve setið er lágt og
þess hversu lágur bíllinn er verða
menn að sýna ákveðna lipurð til að
komast inn og út. Það atriði er hins
vegar mjög stóljanlegt þegar
sportbíll er annars vegar, þar gera
menn kröfur á öðram sviðum og
vita að ektó er allt fengið.
Undrafljótur
Eins og fyrr er getið er Hyundai
Coupé búinn tveggja lítra, 16 vent-
la og 138 hestafla vél með tvöföld-
um yfirliggjandi kambás. Þá er
hann búinn fimm gíra handstópt-
ingu. Þessi vél á ektó í neinum
vandræðum með að knýja 1.230 kg
þungan bílinn rösklega úr sporan-
um. Segja má þó að bfllinn sýni
ekki ofurviðbragð með rykkjum,
þ.e. höfuðið eða búkurinn þrykkj-
ast ektó sérstaklega ofan í sætið
þótt vel sé gefið í. En bíllinn er
undrafljótur að ná ferðahraða og
kemst að hraðamörkum áður en
ökumaður nær að telja margar
sekúndur og verður því hreinlega
að vara sig. Tekur 8,4 sekúndur að
ná 100 km. hraða úr kyrrstöðu.
Aksturinn er með öðram orðum
það sem Hyundai Coupé státar af
enda verður hann ekki annað en
skemmtilegur í svona bíl. Sjálf-
stæð MacPherson gormafjöðrun á
öllum hjólum og góð þyngdardreif-
ing gera það að verkum að bfllinn
liggur feikn vel. Þetta er ektó hinn
LINUR em skemmtilegar hið innra.
Hyundai
Coupé FX í
hnotskurn
Vél: 2,0 lítrar, 4 strokkar, 16
ventlar, tvöfaldur yfirliggj-
andi kambás, 138 hestöfl.
Framdrifinn - fjögurra
manna.
Aflstýri - veltistýri.
Rafknúnal• rúðuvindur.
Rafstilltir hliðai-speglar.
Fjarstýrð samlæsing.
Utvai-p, segulbandstæki, 6
hátalarar.
Snúningshraðamælir.
Styrktai-bitar í hurðum.
Lengd: 4,34 m.
Breidd: 1,73 m.
Hæð: 1,31 m.
Hjólhaf: 2,47 m.
Þyngd: 1.230 kg.
Hjólbarðastærð: :205/50 VR
15.
Staðgreiðsluverð kr.:
1.778.000.
Umboð: Bifreiðar og land-
búnaðai-vélar, Reykjavík.
Rásfastur
Hljóðlátur
Snöggur
Nau
lofthæð
FURÐU drjúgmiklu af dóti er hægt að raða í farangursrýmið sem
hægt er að opna upp á gátt.
hefðbundni ferðabfll en eigi að síð-
ur fer hann ágætlega yfir á malar-
vegum og tekur mjútóega á móti
holum og ójöfnum. Hann nýtur sín
þó betur á malbitónu og má eigin-
lega segja að Hyundai Coupé sé,
rétt eins og aðrir sportbílai', hann-
aðir til hraðaksturs á þar til gerð-
um vegum og myndi jafnvel hækk-
aður leyfilegur hraði á íslenskum
þjóðvegum ekki duga til að gaman
væri að láta gamminn geysa. Enda
verður trúlega ektó af því.
Nákvæmt stýri
Gírskiptingin er liðug og hljóð-
lát og fer mjög mjúklega á milli.
Eiga bæði lipur skiptingin og ná-
kvæmt stýri og hæfilega létt sinn
þátt í því að ökumaður er fljótur
að ná góðum og öruggum tökum á
Coupé. Þá er vélin mjög hljóðlát
og eyðslan er nokkuð þokkaleg.
Hyundai Coupé er allvel búinn,
með sjálfsögðum þægindum eins
og samlæsingum, rafdrifnum rúð-
um og rafknúnum hliðarspeglum,
sætum fyrir drykkjarmál og hægt
er að fá hemlalæsivöm sem auka-
búnað.
Verðið á þessum grip er kr.
1.778.000. Það er nokkuð eðlilegt
fyrir þetta vel búinn bíl og
skemmtilegan og ber þar hæst
snaggaraleg vél, skemmtilegir
aksturseiginleikar og gott öku-
mannssæti. Bílar sem þessi eru
hins vegar allt að því leikfang
fremur en hagnýtur fjölskyldubíll
og sem slíkur er hann áhugaverð-
ur og veldur hvergi vonbrigðum.
Fyrir þá sem vilja skemmtilegan
bíl til að fá ökugleðinni útrás ætti
Hyundai Coupé að vera góður val-
kostur.
Jóhannes Tómasson