Morgunblaðið - 18.12.1996, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
GREINAR
MIÐVIKUDAGUR18. DESEMBER1996 C 7
U mhver fis verndar stefna
fyrir sj ávarútveginn
í MARS 1995 varaði
Landbúnaðar- og mat-
vælastofnun Samein-
uðu þjóðanna (FAO)
við því að níu af sautj-
án helstu fiskimiðum
heims væru uppurin
vegna ofveiði og að
fjögur fiskimið til við-
bótar væru í verulegri
hættu. Vistkerfum
hafsins er ógnað og
það er einnig framtíð
tugmilljóna manna
sem eiga afkomu sína
undir fiskveiðum.1
Á tímabilinu 1950-
1989 fimmfaldaðist
heimsafli úr sjó og er nú rúm 80
milljón tonn á ári, sem að mati
margra er hámark þess sem vænta
má að hægt sé að veiða úr heims-
höfunum. FAO og fleiri telja að
veiða megi liðlega 100 milljón tonn
úr heimshöfunum að því tilskildu
að stjórnun veiða batni til muna.2
Æ fleiri, stærri og betur búin
fiskiskip eltast við æ færri fiska.
Það er mat FAO að veiðigeta heims-
flotans sé tvöfalt (100%) meiri en
afrakstursgeta fiskistofnanna.3
í haust voru sýndir í ríkissjón-
varpinu þrír mjög eftirtektarverðir
heimildarþættir um fiskveiðar í
heiminum. Viðmælendur í þessum
bresk-norsku þáttum voru ekki
„öfgasinnaðir" umhverfisverndar-
sinnar, eins og hagsmunaaðilar í
sjávarútvegi segja, heldur málsmet-
andi aðilar á borð við Serge Garcia,
einn yfirmanna FAO, prófessor Ulf
Lie, yfirmann norsku Hafrannsókn-
arstofnunarinnar í Bergen og Brian
Tobin, fyrrverandi sjávarútvegsráð-
herra Kanada.
„Hvort sem fólk býr í Noregi, í
Ósíó, Tórontó, London, París eða
Berlín,“ sagði Brian Tobin, „vill
almenningur að eitthvað sé gert og
krefst þess að málið sé tekið föstum
tökum.“
Hver er stefna íslands?
Frá því að íslenskir útgerðar-
menn fyrst stefndu togurum sínum
til veiða í Smugunni sumarið 1993,
hefur stefna íslands í hafréttarmál-
um verið óljós. Hefðbundinni haf-
réttarstefnu íslands
var kastað fyrir róða
án ítarlegrar umræðu.
Krafan um 200
mílna fiskveiðilögsögu
var á sínum tíma rök-
studd með að strand-
ríkin ein væru þess
megnug að stjóma
veiðum og tryggja
vemd _ fiskstofna.
Framlag íslands til
þróunar hafréttarins
byggði að talsverðu
leyti á umhverfisvernd-
arsjónarmiðum.
„Grundvallarafstaða
okkar hlýtur að vera
sú, að hvarvetna beri að vernda
fiskstofna og koma í veg fyrir að
gengið sé á þá um of,“ segir í
Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins
þann 19. mars 1995. Síðar í bréfinu
segir:
„Við íslendingar getum ekki
bæði haldið og sleppt. Afstaða okk-
ar verður að vera sú sama, hvort
sem um er að ræða veiðar á heim-
amiðum eða fjarlægum miðum.“
Orð að sönnu, í dag fara kraftar
utanríkisþjónustunnar í að afla fisk-
veiðiréttinda utan 200 mílna lög-
sögunnar. Forsendur þeirra vinnu
em hins vegar ekki ljósar.
Ráðvilla íslenskra stjórnvalda
kom glögglega í ljós á Ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um úthafs-
veiðar. Skyndilega voru Norðmenn
mun atkvæðameiri talsmenn rétt-
inda strandþjóða, en fulltrúar ís-
lands héldu sig meira til hlés.
íslenskir útgerðarmenn segjast
vera að afla þjóðinni réttinda í út-
hafinu. Þegar rætt er um, að hluta
af gífurlegum samdrætti í þorsk-
veiði í íslenskri landhelgi megi rekja
til ofveiði þeirra sjálfra, hafa þeir
sig lítt í frammi. Hvað knúði þá til
úthafsveiða?
Málstaður þessara úthafsveiði-
manna nýtur ekki mikillar samúðar
á alþjóðavettvangi. Ástæðan er
annars vegar sú að íslensk stjórn-
völd yfirgáfu hefðbundna hafréttar-
stefnu sína fyrir skammtímagróða
með stjórnlausum veiðum í Smug-
unni; stjórnleysi sem fulltrúar ís-
lenskra stjórnvalda höfðu skömmu
áður beitt sér gegn á Úthafsveiði-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Hin
ástæðan er sú að fyrir 20 árum
kröfðust íslendingar fullra yfírráða
yfir 200 mílna auðlindalögsögu með
þeim rökum að réttindi og ábyrgð
strandríkja fælist í stjórnun þeirra
á eigin auðlindum.
Sjávarútvegsstefna byggi
á umhverfisvernd
íslensk stjómvöld hafa á undan-
fömum ámm beitt sér mjög fyrir
vemdun sjávar gegn mengun og
hefur barátta umhverfisverndar-
samtaka notið góðs af. Alþjóðlegar
aðgerðir til að koma í veg fyrir lofts-
lagsbreytingar munu í náinni fram-
tíð verða helsta áherslumál þeirra.
Þessu samhliða þurfa stjórnvöld að
móta trúverðuga fiskveiðistefnu
sem tekur mið af kröfum um um-
„Þau vandamál sem við
er að glíma, t.d. brott-
kast afla, of mikla veiði-
getu, meðafla og stjóm-
leysi úthafsveiða,“ segir
Arni Finnsson, „þarf
að leysa með markvissri
vinnu til framtíðar.“
hverfisvernd; framtíðarstefnu sem
tekur mið af þeirri staðreynd að
fiskveiðar og umhverfisvernd era
málaflokkar sem ekki verða að-
skildir.
Greenpeace og WWF heyja nú
baráttu fyrir því að kaupendur fisk-
vöru geri þá kröfu til fískseljenda
að veiðum sé stjómað með vistvæn-
um og ábyrgum hætti, líkt og gerst
hefur með tilliti til nytjaskóga í
norðanverðri Evrópu. Ein helsta
krafa þessara samtaka er að opin-
berir styrkir til fiskveiða verði lagð-
ir af og benda þau til dæmis á, að
fagurgali ríkisstjórna Evrópuríkja
um nauðsyn þess að vernda fisk-
stofna, sé ekki trúverðugur á meðan
þau veija gríðarlegum fjárupphæð-
Árni Finnsson
Mermaid kynnir nýja gerð
aðalvéla fyrir fiskibáta
MERMAID hefur nýlega
MerCruiser einnig KSafetl
með nýjar bátavélar
arnar eru með beinni innspýtingu með 7,5 lítra rúmtaki. Þær era nú fáan-
legar án forþjöppu og eftirkælis 145 b.h.p. við 2.100 sn/mín. og 160
b.h.p. við 2.400 sn/mín. og með forþjöppu 325 b.h.p. Fljótlega mun vélin
verða til afgreiðslu með eftirkæli sem 400 b.h.p. vél. Hámarks snúnings-
vægi 325 ha. vélar er 900 Nm við 2.100 sn.
Forþjöppuvélarnar eru sérlega
hentugar í hraðfiskibáta þar sem
vélin hefur mikið rúmtak og fram-
leiðir sama afl og rúmtakslitlar vél-
ar á mun minni snúningshraða.
Vélar hf., umboðsaðili vélanna,
leggja áherslu á að þeir afgreiða
sjálfir allan þann búnað sem kaup-
andi þarf til niðursetningar á vél-
inni, s.s. skrúfubúnað, gíra og
stjórntæki.
Stærsti framleiðandi hældrifa
MerCruiser er langstærsti fram-
leiðandi á hældrifum í heiminum
en þeir hafa framleitt meira en
2.000.000 hældrifa.
MerCruiser kynnir nú nýja vél,
7,3 lítra 300 ‘ b.h.p. við 3.600
sn/mín. Vélin er fáanleg með Bravo
I hældrifi sem snýr skrúfu allt að
16“ í þvermál, Bravo II sem snýr
skrúfu allt að 20“ í þvermál þrjú
eða fjögur blöð og Bravo III sem
snýr tveimur ryðfríum skrúfum allt
að 16“ í þvermál.
Vélin er afgreidd fyrir vinnubáta
innsigluð sem 240 b.h.p. við 3.200
sn/mín. þannig að komið er í veg
fyrir að hægt sé að yfirkeyra vél-
ina, eins og hefur viljað koma fýrir
með vélar sem fram til þessa hafa
verið í notkun í hraðfiskibátum með
hældrifum en þær eru í öllum tilfell-
um vélar sem ætlaðar hafa verið í
skemmtibátum með notkun í um
200 vinnustundir á ári.
Tölvustýrt eldsneytiskerfi
Vélin er útbúin háþróuðu tölvu-
stýrðu (ECU), vökvaknúnu elds-
neytiskerfi með beinni innspýtingu.
Kerfið er tengt við átta þreifara,
sem stöðugt fylgjast með afköstum
og álagi. Kerfið athugar eldsneytis-
gjöf, kambásstöð, opnunarþrýsting
á eldsneytislokum, forþjöppuþrýst-
ing, smurolíuhita og þrýsting, kæli-
vatnshita, lofthita og þrýsting í
vélarrúmi og bakþrýsting á út-
blæstri.
Tölvan ákveður nákvæmlega rétt
magn af eldsneyti, innsprautunar-
tíma fyrir hvern strokk og opnunar-
þrýsting eldsneytisloka. Þetta
tryggir fullkominn brana, hámarks
nýtingu á afli og eldsneyti og lág-
marks mengun.
Minni hávaði og mengun
Stjórnkerfi (ECU) sendir boð til
þrýstiloka sem heldur uppi þrýstingi
á D Tronic vökvakerfinu, 450-
3.000 bar. Vökvakerfið heldur
þrýstingi á hverjum eldsneytisloka.
Óflugur stimpill í eldsneytislokum
margfaldar þi-ýsting vökvakerfis sjö
sinnum og yfirfærir í opnunarþrýst-
ing fyrir eldsneyti. Opnunarþrýst-
ingur getur orðið allt að 21.000 bar
t.d. í kaldstarti. Án nokkurra vél-
rænna takmarkana er stillingu vél-
arinnar stjómað mjög nákvæmlega
með tilliti til álags. Þetta leiðir til
aukins afls, léttara er að ræsa vél-
ina, hávaði og mengun er minni,
og nýtni er betri.
um til að halda fiskiskipum á floti,
ella mundi vart borga sig að gera
þau út.
FAO áætlar að árlegir styrkir
opinberra aðila til sjávarútvegs
nemi rúmlega 50 milljörðum Banda-
ríkjadala. Nærtækt dæmi er að fyr-
irtæki norska sægreifans, Kjell Inge
Rokke, Resource Group Internat-
ional, hefur fengið sem nemur
þremur milljörðum íslenskra króna
í beina styrki eða tryggingar fyrir
lánum til smíði nýrra skipa. Menn
verða ríkir af minna.
Aðrar helstu kröfur þessara um-
hverfisverndarsamtaka eru að
rannsóknir á fiskstofnum séu full-
nægjandi; meðal annars, að komið
verði í veg fyrir brottkast afla; að
kjörhæfni veiðarfæra verði aukin
og þar með dregið úr óæskilegum
meðafla, og að varúðarreglan liggi
til grundvallar fískveiðistjórnun.
íslenskur sjávarútvegur þarf ekki
að óttast slíkar kröfur.
íslendingar eiga að færa sér í
nyt óskir almennings í Evrópu um
að fiskvörur - líkt og margir aðrir
vöruflokkar - séu auðkenndar sem
vistvænar samkvæmt alþjóðlega
viðurkenndum staðli. Augljóslega
geta íslenskir útgerðarmenn tekið
undir kröfur umhverfisverndar-
sinna um að opinberir styrkir til
sjávarútvegs verði lagðir af. í því
samhengi væri þeim í raun styrkur
af að geta bent á að þeir borgi gjald
fyrir aðgang að auðlindinni, sem
kosti rannsóknir, opinbera stjórn-
sýslu og allt eftirlit með veiðum.
Rannsóknir og stjórnun veiða eru
hér betur á veg komnar en víða
annars staðar, en það gefur Islend-
ingum forskot á aðrar þjóðir.
Þau vandamál sem við er að
glíma, t.d. brottkast afla, of mikil
veiðigeta, meðafli og stjórnleysi
úthafsveiða, þarf að leysa með
markvissri vinnu til framtíðar.
Framtíðarstefnu sem verður að
vinna á forsendum umhverfisvernd-
arsjónarmiða.
1) Sjá grein Observer „The rape of the Oceans"
2. apríl 1995
2) Net Loss: Fish, Jobs and the Marine Environ-
ment, Peter Weber, World Watch Paper nr. 120,
Washington 1994.
3) Fiskveiðideild FAO, Rome 1994. Chris New-
ton.
Höfundur starfar sjálfstætt að
umhverfisvernd.
m sölu
Grásleppuleyfi
Til sölu nýtt grásleppuúthald og 6 tonna grá-
sleppuleyfi.
Upplýsingar í síma 421 1522 eftir kl. 20.00.
KVtilTABANKINN
Kvótabankinn óskar viðskiptavinum sínum
gleðilegra jóla. Þakkar samstarfið á árinu.
Sími 565 6412, fax 565 6372, Jón Karlsson.
BÁTAR-SKIP
Jóhannes ívar ÍS-193
1
• •: i ■ ■ ' , "•• 1 k •
I T ... | 1
% |a
1 ggll
Til sölu er Jóhannes ívar ÍS-193, sem er 26,36
m stálbátur, smíðaður í Noregi 1968, með
715 hestafla Caterpillar aðalvél frá 1988.
Báturinn selst með veiðileyfi og öllum afla-
hlutdeildum. Aflamark fiskveiðiársins ’96/’97
var eftirfarandi: Þorskur 205 tn, ýsa 41 tn,
ufsi 156 tn, karfi 16 tn, steinbítur 68 tn,
skarkoli 1 tn og langlúra 5 tn.
Dröfn SI-167
Til sölu er Dröfn SI-167, sem er 15 m eikar-
bátur, smíðaður á Akureyri 1964 með 184
hestafla Scania Vabis aðalvél, árg. 1984.
Báturinn selst með veiðileyfi en án aflahlut-
deilda.
LM skipamiðlun
fFriðrik J. Arngrímsson hdl.,
löggiltur skipasali,
Skólavörðustíg 12, Reykjavík,
sími 562 1018.