Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALL R A LANDSMANNA
fHflírgiwroMafoifo
D
1996
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER
BLAD
Sean Dundee
orðinn þýskur
ríkisborgari
SEAN Dundee, sem fæddur er í Suður-Afríku og
leikur með Karlsruhe í þýsku deildinni í knatt-
spyrnu, fékk í gær þýskan ríkisborgararétt.
Dundee hefur verið iðinn að skora í vetur og er
markahæstur í deildinni með 13 mörk. Mál hans
fékk hraða afgreiðslu í innanríkisráðuneytinu því
venjulega þurfa menn að hafa búið í Þýskalandi
í áratug til að fá ríkisborgararétt en hann hefur
aðeins búið þar í fjögur ár. Stjórnvöld í Suður-Afr-
íku voru óánægð með að hann væri að sækja um
þessi réttindi og sögðu hann snúa baki við föður-
landi sínu. Berti Vogts, landsliðsþjálfari Þýska-
lands, lagði áherslu á að málinu yrði hraðað og
var það gert. Það voru fleiri sem höfðu áhuga á
hinum 23 ára gamla sóknarmanni því Mick Mc-
Carthy, þjálfari íra, komst að því að amma og afi
Dundees voru írsk.
SKIÐI / HEIMSBIKARINN
Kristinn Biörnsson var með betri millitíma en AlbertoTomba
Ánægður,
en einnig
vonsvikinn
Kristinn Bjömsson keppti í svigi
heimsbikarsins í Madonna di
Campiglio á Ítalíu í gær. Hann hafði
rásnúmer 63 af 67 keppendum. „Eg
keyrði mjög vel og millitími minn var
aðeins 0,18 sekúndum lakari en Sieg-
fried Vogelreiters, sem var með besta
tímann eftir fyrri umferð. Og milli-
tími minn var betri en hjá sjálfum
Alberto Tomba. En þegar ég átti
þijú hlið eftir og sá markið fyrir
framan mig missti ég aðeins einbeit-
inguna og fór út úr brautinni. Ég
var líka orðinn mjög þreyttur. Þjálf-
arinn minn fullyrti að ég hefði náð
einum af tíu bestu tímunum hefði
ég náð að komast þessi þijú hlið.
Ég er mjög ánægður, en um leið
vonsvikinn yfír að ná ekki að kom-
ast í mark,“ sagði Kristinn í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Hann sagði að þessi árangur gæfi
sér enn meira sjálfstraust og sýndi
að hann er kominn í fremstu röð.
„Á góðum degi á ég að geta staðið
í þessum stóru nöfnum. Ég keyri
alltaf á fullu og það hlýtur að koma
að því að allt smelli saman hjá mér.
Það hefur gengið mjög vel hjá mér
það sem af er, mun betur en ég átti
von á. Ég bjóst við að ég kæmi ekki
upp fyrr en eftir áramót, sérstaklega
eftir að hafa átt í meiðslum. Þetta
lofar mjög góðu,“ sagði hann.
Kristinn sagðist ánægður með þá
aðstöðu sem hann og Amór Gunnars-
son byggju við. Þeir hafa í vetur æft
með fínnska landsliðinu sem er með
tvo þjálfara. „Við eram fimm í hópn-
um og mér líst vel á þjálfarana. Við
höfum eingöngu æft svig og við ætl-
um að einbeita okkur að því í vetur.“
Kristinn og Amór koma heim í
dag, en fara aftur utan 2. janúar.
Kristinn keppir í svigi heimsbikarsins
í Kranjska Gora í Slóveníu 5. janúar.
Reuter
Skídakóngurinn er mættur til leiks
SKÍÐAKÓNGURINN Alberto Tomba hóf keppnistímabilið í gær og þá fylltust brekkurnar af
áhorfendum. Hann náði áttunda besta tímanum í fyrri umferð svigslns sem fram fór í Ma-
donna de Camplglio á Ítalíu, en náði síðan besta tímanum í síðari umferð og endaði í öðru sæti.
■ Sykora bestur / D2
KORFUKNATTLEIKUR
Hrannar rekinn frá Njarð-
vík - Ástþór tekur við
Stjórn körfuknattleiksdeildar
Njarðvíkur ákvað í gær að
leysa Hrannar Hóim, þjálfara
meistaraflokks karla, frá störfum
og í framhaldi að því var Ástþór
Ingason, einn leikmanna liðsins,
ráðinn í hans stað.
Ástæðan fyrir uppsögninni er „að
árangur liðsins hefur ekki verið
samkvæmt þeim væntingum sem
stjórnin gerði í upphafi tímabils-
ins,“ eins og segir í fréttatilkynn-
ingu frá UMFN í gær.
Gunnar Þorvarðarson, formaður
körfuknattleiksdeildarinnar, sagði
það alltaf leiðinlegt að standa í
svona löguðu. „Við vorum ekki
ánægðir með gengi liðsins og því
varð það úr að skipta um þjálfara.
Ástþór hefur verið aðstoðarþjálfari
Hrannars í vetur og við þekkjum
hann vel. Hann hefur verið viðloð-
andi liðið meira og minna í tíu ár.
Við treystum honum fullkomlega
í þetta verkefni. Samningur hans
er fram til vorsins," sagði Gunnar.
„Það er greinilegt að stjórnin
er búin að fínna ástæðu þess að
við unnum ekki alla leikina,“ sagði
Hrannar þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann í gær. „Ég er
auðvitað svekktur að hafa verið
rekinn. Ég taldi okkur ekki í nein-
um sérstökum vandræðum. Við
erum á svipuðum stað í stigatöfl-
unni og gert var ráð fyrir í upp-
hafi móts. Ég hefði að sjálfsögðu
viljað sigra í fleiri leikjum og tek
vissulega ákveðna ábyrgð á því að
við gerðum það ekki. Svekktastur
er ég yfir því að tapa fyrir KR í
bikarnum, en það var eins stigs tap
á útivelli í leik þar sem sigurinn
hefði getað fallið hvorum megin
sem var. í næsta leik á eftir, gegn
ÍA, voru menn enn í sárum.“
„Stjórnin vill að við sigrum í
öllum leikjum og margir halda að
það sé nóg að heita Njarðvík til
að vinna allt. Þetta er dálítið furðu-
legt þar sem Njarðvíkingar misstu
bæði Teit og Rondey fyrir tímabil-
ið og þar áður Val Ingimundarson
og Isak Tómasson. Ég verð að
segja að það hefur verið erfitt að
vera Keflvíkingur að þjálfa Njarð-
Ástþór Hrannar
vík og ég sé mest eftir því að hafa
látið það hafa áhrif á mig,“ sagði
Hrannar. „Ég vona bara liðsins
vegna að þetta hafi verið það sem
þurfti til að liðinu gangi betur og
ég óska því alls hins besta,“ sagði
Hrannar.
Hann sagðist nú ætla að taka
það rólega fram yfir áramót og
hvað tæki þá við vissi hann ekki.
Hann benti þó á að það hefðu
bæði betri og frægari þjálfarar en
hann verið reknir og hann væri því
kominn í hóp góðra manna.
j
KNATTSPYRNA: LIVERPOOL Á TOPPINN í ENGLANDI / D4