Morgunblaðið - 19.12.1996, Page 1
SENPIRÁÐ
Aukin verkefni
fyrir fyrirtæki /3
FLUTNINGAR
Samskip sækja á
erlendis /4
_______FJÁRIVIÁL
Hvar verður ávöxt-
un best 1997? /6
JltwgpttiiUbifeifr
Opin kerfi
OPIN kerfi hafa keypt 64,5%
hlutafjár í alnetsfyrirtækinu
Miðheimum hf. og 30% í hugbún-
aðarfyrirtækinu Þróun ehf.
Gagnaflutningar, dótturfyrirtæki
Opinna kerfa, verða hugsanlega
sameinaðir Miðheimum í kjölfar
kaupanna. Kaupverðið hefur ekki
verið gefið upp. /2
SÍF
HAGNAÐUR SÍF hf. og dótturfé-
laga þess nam alls um 70 milljón-
um fyrstu níu mánuði ársins, en
var á sama timabili í fyrra alls
um 114 milljónir. Horfur eru hins
vegar góðar um afkomu síðustu
þriggja mánaða ársins, þannig að
búist er við að afkoman á árinu
í heild verði svipuð og í fyrra. /2
Flugleidir
FLUGLEIÐIR og bandaríska
flugfélagið Southwest Airlines
hafa gert með sér samkomulag
um markaðssamstarf til reynslu
í ferðum milli Cleveland og
áfangastaða Flugleiða í Evrópu
um Baltimore-flugvöll. Southwest
Airlines er fimmta stærsta flug-
félag Bandaríkjanna og nær
áætlunarkerfi félagsins til 49
borga innanlands þar i landi. /2
SÖLUGENGIDOLLARS
OSSUR
Ur rekstri
ÖSSURAR hf.
árin 1992-1996
1992 1993 1994 1995 1996
ian.-okt.
Hagnaður
jan.-okt.
Eigið fé
oktúber
Eiginf járhlutfall
október
Veltufé frá rekstri
Milljónir króna
jan.-okt.
Össur hf. með skuldabréfaútboð
Veltan þre-
faldaðist á
fjóruni árum
STOÐTÆKJAFYRIRTÆKIÐ Össur
hf. hefur efnt til skuldabréfaútboðs
í fyrsta sinn í sögu fyrirtækisins.
Tilgangur þess er að fjármagna stór-
aukin umsvif fyrirtækisins vegna
mikillar eftirspurnar eftir fram-
leiðsluvörum þess á síðustu misser-
um og þróunarstarf. Heildarfjárhæð
útboðsins er 75 milljónir króna.
Um er að ræða vaxtagreiðslubréf
með föstum 7,10% vöxtum. Þau eru
verðtryggð með visitölu neysluverðs
og eru vaxtagjalddagar tvisvar á
ári. Höfuðstóll verður greiddur í einu
lagi 1. desember árið 2001.
Hagnaður nam 31 milljón
fyrstu tíu mánuðina
Össur hannar og framleiðir hjálp-
argögn, íhluti og stoðtæki fyrir
hreyfihamlaða. Frá árinu 1984 hefur
það verið lokað einkafyrirtæki en
þá komst það í meirihlutaeign Össur-
ar Kristjánssonar. Vegna skulda-
bréfaútboðsins hefur það nú í fyrsta
sinn birt ýtarlegar upplýsingar um
rekstur og efnahag og kemur þar
m.a. í ljós að veltan hefur rúmlega
þrefaldast frá árinu 1992 eða úr 179
milljónum króna í 547 milljónir í ár
og er þá aðeins miðað við veltu fyrstu
tíu mánaðanna.
Hagnaður Össurar hf. nam 31
milljón króna fyrstu tíu mánuði
þessa árs en allt árið í fyrra nam
hann 39 milljónum. Hagnaður sem
hlutfall af tekjum virðist þó hafa
dregist saman á þessu ári, var 6%
fyrstu tíu mánuðina en var 9% á
árunum 1993-95. Að sögn Jóns Sig-
urðssonar, framkvæmdastjóra
Össurar hf., má rekja skýringuna til
mikils kostnaðar vegna þróunar en
allur kostnaður vegna hennar er
gjaldfærður en ekki eignfærður.
Góð salaálCEXí
Bandaríkjunum
Jón segir að tilgangurinn með
skuldabréfaútboðinu sé sá að fjár-
magna hina miklu uppbyggingu,
sem fyrirtækið hafi ráðist í á síðast-
liðnum misserum. „Mikil spurn er
eftir framleiðsluvörum fyrirtækisins
og við höfum þurft að fjárfesta í
búnaði og tækjum til að mæta henni.
ICEX búnaður okkar var settur á
markað í Bandaríkjunum í síðasta
mánuði og viðtökur voru betri en
bjartsýnustu menn þorðu að vona. A
þessum mánuði höfum við selt ICEX
búnað í Bandaríkjunum fyrir um sjö
milljónir króna. Með ICEX er hægt
að búa til harða hulsu á gervifót á
innan við klukkustund og höfum við
sótt um alheimseinkaleyfi fyrir vör-
una. Þá erum við einnig með mörg
þróunarverkefni í gangi, sem eru dýr
og tímafrek, og er tilgangurinn með
útboðinu einnig sá að fjármagna þau
að hluta,“ segir Jón.
Össur hf. hefur margsinnis verið
tilnefnt til verðlauna og hlotið þau
vegna framleiðslu sinnar. Nú síðast
hefur fyrirtækið verið tilnefnt til
hönnunarverðlauna Evrópusam-
bandsins árið 1996 fyrir ICEX huls-
una.
ÍSLENSKI FJARSJOÐURINN
• •
LANGHÆSTA AVOXTUN
HLUTABRÉFAS JÓÐA
107% ávöxtun síðastliðna tólf mánuði
§
, LANDSBREF HF.
Erum við símann til kl. 19:00 í dag og á morgun.
Tryggðu þér skattaafslátt og góða ávöxtun með einu símtali
til Landsbréfa eða umboðsmanna Landsbréfa í útibúum Landsbankans.
Þú getur einnig hringt í Símabankann, sími 560 6060.
ÁBENDING FRÁ LANDSBRÉFUM: Ávöxmn í fortíð þarf ekki að gefa vísbendingu um ávöxtun í framtíð
SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 535 2000, BRÉFASÍMI 535 2001, GRÆNT NÚMER 800 4050