Morgunblaðið - 20.12.1996, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
JRtargttnltibifrUk
■ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER
BLAÐ
NÝI ILMURINN FRÁ GIORGIO ARMANI
ACQU\ DI
GIO
GIORGIOARMAM
romwmm
Blrgir Leifur
Blrklr
Gelr
Guftrún
ión Amar
Kristlnn
Krlstln
Ólafur
Teltur
Vata
Samtök íþróttafréttamanna útnefna íþróttamann ársins í 41. sinn
Þvjár konur meðal tíu
stigahæstu í kjörinu
NÖFN þeirra tíu stigahæstu í kjöri
Samtaka íþróttafréttamanna á
íþróttamanni ársins voru tilkynnt
í gær.
Kjörinu veröur lýst í hófi á Hót-
el Loftleiðum í Reykjavík fimmtu-
daginn 2. janúar næstkomandi og
verður það f 41. skipti sem Samtök
íþróttafréttamanna standa að kjör-
inu, en þau voru stofnuð 1956.
Eftirtaldir íþróttamenn urðu í
tíu efstu sætunum í kjörinu að
þessu sinni, og eru nöfn þeirra
birt í stafrófsröð:
•Birgir Leifur Hafþórsson, kylf-
ingur úr Leyni á Akranesi.
•Birkir Kristinsson, knattspyrnu-
maður hjá Brann í Noregi.
•Geir Sveinsson, handknattleiks-
maður þjá Montpellier í Prakkiandi.
•Guðrún Amardóttir, fijáls-
íþróttamaður úr Ármanni í
Reykjavík.
•Jón Amar Magnússon, fijáls-
íþróttamaður úr UMSS í Skaga-
firði.
•Kristinn Bjömsson, skíðamaður
úr Leiftri á Ólafsfirði.
•Kristín Rós Hákonardóttir,
sundmaður úr íþróttafélagi fatl-
aðra í Reyiqavík.
•Ólafur Þórðarson, knattspymu-
maður með ÍA á Akranesi.
•Teitur Örlygsson, körfuknatt-
leiksmaður með Larissa í Grikk-
landi.
•Vala Flosadóttir, ftjálsíþrótta-
maður úr ÍR í Reykjavík.
Fimm þeirrara íþróttamanna
voru einnig á lista yfir tíu stiga-
hæstu f fyrra; Birkir Kristinsson,
Geir Sveinsson, Jón Amar Magn-
ússon - sem þá var kjörinn
íþróttamaður ársins fyrir árið
1995 — Kristinn Bjömsson og
Teitur Örlygsson.
„Félagar í Samtökum íþrótta-
fréttamanna eru nú 22; frá Morg-
unbiaðinu, DV, Ríkisútvarpi og
-sjónvarpi, Stöð 2 og Bylgjunni,
Degi-Tfmanum, Stöð 3 og íþrótta-
blaðinu. Hver félagsmaður til-
nefndi 10 íþróttamenn sem hlutu
stig skv. regiugerð um kjörið,"
segir í frétt frá samtökunum. Þar
segir ennfremur: „í hófinu 2. jan-
úar verða allir tfu verðlaunaðir
með glæsilegri bókargjöf frá Máli
og menningu, eins og síðustu ár,
og þrír efstu hljóta verðlaunagripi
til eignar. íþróttamaður ársins fær
einnig til varðveislu styttuna
glæsiiega sem fylgt hefur nafnbót-
inni frá upphafi.
Helstu styrktaraðilar Samtaka
íþróttafréttamanna vegna kjörsins
að þessu sinni eru sem fyrr Mál
og menning, Hótel Loftleiðir og
Fiugleiðir.
Vert er að geta þess að öllum
fyrrverandi íþróttamönnum ársins
er boðið í hófið á Hótel Loftleiðum
2. janúar eins og venjulega. Sýnt
verður beint frá útnefningunni í
ríkissjónvarpinu."
Vilhjáimur Einarsson, fijáls-
ftjróttamaður, var fyrstur útnefndur
Iþróttamaður ársins, eftir að hann
vann til silfurverðlauna f þrístökki
á óiympíuieikunum í Melboume
1956. Hann hefur hiotið titilinn oft-
ast alira, fimm sinnum, en sonur
hans, Einar spjótkastari og Hreinn
Halldórsson, kúluvarpari, hafa báðir
þrívegis orðið fyrir valinu.
KNATTSPYRNA
Þjálfaramál ÍA
Rættvið
Preben B.
Lundbye
Ðaninn Preben Bonnevie
Lundbye er væntanlegur til
landsins í dag vegna þjálfarastöðu
Islands- og bikarmeistara ÍA en
Knattspymufélag Akraness bauð
honum til viðræðna eftir ábendingu
frá Bo Johansson, fyrrum landsliðs-
þjálfara íslands og nú landsliðsþjálf-
ara Danmerkur.
Lundbye hefur haft umsjón með
knattspymuskóla Silkeborg frá 1.
júní 1994 en var áður aðstoðarþjálf-
ari Bo hjá félaginu sem varð m.a.
Danmerkurmeistari undir þeirra
stjórn 1994. Skagamenn höfðu sam-
band við Bo vegna þjálfarastarfsins
og mælti hann með Lundbye en félag-
amir verða á Akranesi um helgina.
SKIÐI
Rcuter
Erfall
fararheill?
HEIMS- og fyrrum Ólympíu-
meistari í bruni, Patrick Ortl-
ieb frá Austurríki, gæti í dag
jafnað met Ianda síns, Franz
Klammers, sem er eini skíða-
maðurinn sem hefur unnið
heimsbikarmót í bruni i Val
Gardena á Ítalíu þrisvar í röð.
Ortlieb, sem er 29 ára vann í
brunbrautinni árið 1993 og
1995, en Klammer vann alls
fjórum sinnum brunið í Val
Gardena. Klammer fagnaði 25
sinnum sigri í bruni heimsbik-
arsins og hefur enginn annar
náð að leika það eftir.
f gær var æft í brunbrautinni
í Val Gardena ogþá datt
Ortlieb, eins og sést á myndinni
hér til hliðar, en hann meiddist
ekki. Það er því spurning hvort
fall sé fararheill hjá honum
þegar keppnin fer fram í dag?
HAIMDKIMATTLEIKUR: SJÁLFSTRAUST OG SIGURVISSA / C4