Morgunblaðið - 21.12.1996, Page 1
112 SIÐUR B/C/D
0 trjtutiltliifr
STOFNAÐ 1913
293. TBL. 84. ARG.
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fáni
gæsluliðs
að húni
HERMAÐUR úr SFOR, ný-
skipulögðu liði Atlantshafs-
bandalagsins í Bosníu er tekur
við af IFOR, býr sig undir að
draga fána nýja gæsluliðsins
að hún í Sarajevo í gær. Rúm-
lega 30.000 menn verða í liðinu
sem mun sjá um að ákvæðum
Dayton-friðarsamkomulagsins
verði framfylgt næstu 18 mán-
uðina.
■ Helmingi færri/20
Nasista-
gullí
Svíþjóð?
Stokkhólmi. Reuter.
SVÍAR kváðust í gær ætla að
hefja formlega rannsókn á full-
yrðingum Heimsráðs gyðinga
um að nasistagull úr heims-
stytjöldinni síðari væri geymt
í sænskum bankahólfum.
í yfírlýsingu sænska seðla-
bankans sagði: „Niðurstaða
okkar er að rétt sé að yfirfara
skjöl bankans til að komast að
því hvort varpa megi ljósi á
hvernig Ríkisbankinn hefði afl-
að svokallaðs stolins gulls."
Að sögn seðlabankans hefur
Heimsráð gyðinga krafist þess
að upplýsingar um það hve
mikið slíkt gull væri í hlutlaus-
um ríkjum á borð við Sviss og
Svíþjóð yrðu gerðar opinberar.
Skipaðir verða þrír menn,
sem engin tengsl hafa við bank-
ann, til að stjórna rannsókn-
inni. Seðlabankinn hefur þegar
skilað rúmum 13 tonnum af
gulli til Belga og Hollendinga.
Reuter
Skæruliðar
taka gísla í
Tadsíkístan
Dushanbe. Reuter.
SKÆRULIÐAHÓPUR í Tadsíkíst-
an tók 23 gísla í gær, þar á meðal
sjö erlenda eftirlitsmenn á vegum
Sameinuðu þjóðanna. Hóta skæru-
liðarnir að skjóta þá verði ekki orð-
ið við kröfum þeirra.
í hópnum, sem ráðist var á, voru
tadsískir embættismenn, eftirlits-
mennirnir frá SÞ og fulltrúar
íslamskra uppreisnarmanna í land-
inu. Skæruliðahópurinn krefst þess,
að þeir síðastnefndu leysi úr haldi
einn sinna manna. Kváðust þeir
mundu drepa gíslana og sprengja
30 sprengjur, sem komið hefði ver-
ið fyrir í höfuðborginni, Dushanbe,
ef ekki yrði orðið við kröfum þeirra
fyrir klukkan tvö á sunnudag.
SÞ-mennirnir eru frá Búlgaríu,
Danmörku, Jórdaníu, Úkraínu,
Uruguay og líklega frá Austurríki.
Skæruliðar sleppa 38 gíslum úr japanska sendiherrabústaðnum í Lima
Heita að láta fleirí
lausa með skilyrðum
Lima. Reuter.
SKÆRULIÐAR, sem tóku tæplega
400 manns í gíslingu í japanska
sendiherrabústaðnum í Lima í Perú
á þriðjudagskvöld, slepptu í nótt 38
manns. Þeir hétu því að sleppa mun
fleiri gíslum ef þeir fengju að tala
við fangelsaða leiðtoga sína í síma.
Stjórn Perú neitaði fyrr í gær
að verða við kröfum skæruliðanna
en kvaðst vona að hægt yrði að
leysa málið með friðsamlegum
hætti.
Örvænting virtist vera að grípa
um sig í sendiherrabústaðnum þar
sem gíslarnir eru í haldi. Þeir báru
spjöld með áletrunum á ensku, jap-
önsku, spænsku og þýsku upp að
glugga á annarri hæð og báðu um
vatn og mat, að rafmagn yrði sett
á og sími tengdur.
Þröng, hiti og veikindi
„Ástandið inni í húsinu er mjög
slæmt,“ sagði Sergio Natarajan,
Mastroianni
syrgður
STÚLKA í Róm leggur blómsveig að spjaldi
með mynd af leikaranum Marcello Mastro-
ianni, sem lést í fyrradag, 72 ára að aldri.
Fjær sést Trevi-gosbrunnurinn sem kemur
n\jög við sögu í einni þekktustu mynd Federic-
os Fellinis, Hið ljúfa líf, frá árinu 1960 er
sænska leikkonan Anita Ekberg og Mastro-
ianni vaða út í hann að næturlagi. Páfagarður
fordæmdi myndina, sagði hana verk myrkra-
höfðingjans. ftalskir fjölmiðlar hylltu ákaft
minningu Ieikarans. „Vertu sæll, Marcello, þú
gerðir líf okkar Ijúfara," sagði La Corríere
della Sera í fyrirsögn. Mastroianni lést í íbúð
sinni í París. Hans var minnst í gamalli kirkju
í París í gær og komust færri að en vildu.
Þótti áberandi hvað margar konur komu til
að kveðja hann. Við athöfnina var leikarinn
Catherine Deneuve, dóttir hennar og Mastro-
iannis , Chiara, og Anna-Maria Tato, sem var
sambýliskona hans í 22 ár. Lík hans verður
flutt til Rómar í dag og mun Iiggja á viðhafnar-
börum í ráðhúsinu þar til hann verður jarðsett-
ur á morgun.
Reuter
starfsmaður Rauða krossins, eftir
að hann hafði farið þar inn. „Það
er of margt fólk og mikill hiti.
Ýmsir eru veikir, með sykursýki,
magasár, veikir fyrir hjarta og með
niðurgang.“
Fyrir utan þurftu verðir að hefta
för áhyggjufullra ættingja, sem
vildu færa gíslunum mat, lyf og
fatnað. Aðfaranótt gærdagsins lágu
ættingjar á bæn og héldu á kertum.
Hótanir í útvarpi
Maður nokkur hringdi í gær í
útvarpsstöð í Lima og sagðist vera
félagi skæruliðasamtakanna Tupac
Amaru, sem hafa gíslana í haldi.
Hann varaði við því að reyna að
frelsa gíslana með valdi og sagði
að Alberto Fujimori, forseti Perús,
væri „gunga“.
„Við viljum hvorki árás, né
áhlaup,“ sagði maðurinn í símanum.
„Við vitum að við erum hvort sem
er dauðans matur og það eina, sem
bíður okkar allra er að deyja sam-
an.“
Perúskar sérsveitir hafa verið að
undirbúa áhlaup, en haft var eftir
yfirmanni úr hernum að þær yrðu
aðeins notaðar ef í nauðirnar ræki.
Ef til þess kæmi mundi áhlaupið
ekki standa lengur en fimm mínút-
ur. Haft var eftir heimildarmanni
innan lögreglunnar að embættis-
menn óttuðust að skæruliðarnir,
sem talið er að séu að minnsta
kosti 15, en gætu verið fleiri, væru
það vel vopnum búnir að þeir gætu
hrundið áhlaupi.
Ekki orð frá Fujimori
Fujimori hefur ekkert látið í sér
heyra opinberlega frá því að skæru-
liðarnir réðust inn í sendiherrabú-
staðinn á þriðjudagskvöld. Hann
hefur látið fyrir berast með herfor-
ingjum sínum í herbúðum og svarað
kröfum gíslatakanna engu.
„Alberto Pandolfi, forsætisráð-
herra Perú, sagði hins vegar í gær
að alþjóðleg fordæming á athæfi
skæruliðanna og stuðningur við
stjórn Perú gæfi sér „frið og hugar-
styrk til að treysta því að friðsæl
lausn myndi finnast.“
Stjórnin neitaði hins vegar hreint
út að verða við þeirri kröfu skæru-
liðanna að láta félaga þeirra, þar á
meðal Victor Polay, leiðtoga sam-
takanna, lausa úr fangelsi.
Leyniþjónustumenn gengu meira
að segja á fund Polays og annarra
leiðtoga Tupac Amaru, sem sitja í
fangelsi, og reyndu að telja þá á
að fordæma gíslatökuna opinber-
lega, en höfðu ekki erindi sem erfiði.
Japanar óánægðir
Japanar létu í gær að því liggja
að þeir væru ekki ánægðir með
harðlínustefnu Fujimoris í málinu.
Tugir Japana eru meðal gíslanna
og hefur japanska stjórnin áhyggjur
af velferð þeirra. Sagði hún að
„mikið bæri á milli hugmynda“ Jap-
ana og stjórnar Perú um það hvern-
ig ætti að leysa vandann.
Yukihiko Ikeda, utanríkisráð-
herra Japans, er kominn til Lima
og virtist hann hlynntur því að far-
ið yrði varlega í sakirnar þegar átt
væri við skæruliðana.
Hann ræddi við Fujimori, sendi-
herra Bandaríkjanna og Kanada og
fulltrúa Rauða krossins. Lagði hann
megináherslu á að komið yrði í veg
fyrir blóðsúthellingar og þess í stað
reynt að komast að samkomulagi
við skæruliða Tupac Amaru.