Morgunblaðið - 21.12.1996, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Kjarvalsstaðir
Bækur, kort, plaggöt, gjafavörur.
Opið daglega frá kl. 10-18.
Samstarf 5 sveitarfélaga í Eyjafirði
Hafnasamlag Norð-
urlands stofnað
SVEITARSTJÓRNIR fimm sveitar-
félaga í Eyjafirði, Akureyrar, Sval-
barðsstrandar-, Grýtubakka-,
Glæsibæjar- og Amarneshrepps,
hafa samþykkt þátttöku í stofnun
Hafnasamlags Norðurlands. Samn-
ingur þar að lútandi verður undirrit-
aður laugardaginn 28. desember
nk. og tekur gildi frá og með næstu
áramótum.
Markmiðið með stofnun Hafna-
samlags Norðurlands er að auka
samvinnu þessara aðila og
hagvæmni í rekstri og uppbyggingu
hafnamannvirkja á svæðinu. Á
Grenivík er lítil fiskihöfn og smá-
bátahafnir á Svalbarðseyri og Hjalt-
eyri. Akureyrarhöfn er lang stærsti
aðilinn að hafnasamlaginu, með
tekjur upp á rúmar 90 milljónir
króna á ári. Tekjur hinna hafnanna
samanlagt eru hins vegar aðeins
um ein milljón króna á ári.
Stöðugildi óbreytt
Stjórn Hafnasamlags Norður-
lands verður skipuð sjö mönnum,
fimm eru kosnir af bæjarstjórn
Akureyrar, einn af hreppsnefndum
Grýtubakka- og Svalbarðsstrandar-
hrepps og einn af hreppsnefndum
Glæsibæjar- og Arnarneshrepps.
Fram að næstu sveitarstjórnarkosn-
ingum vorið 1998, verður skipuð
bráðabirgðastjórn og verður hún
skipuð núverandi hafnarstjórn á
Akureyri. Auk þess mun einn full-
trúi frá hveijum hreppi hafa setu-
rétt á fundi stjórnarinnar, með
málfrelsi og tillögurétt.
Ekki er gert ráð fyrir breytingum
á stöðugildum við stofnun hafna-
samlagsins en aðeins á Akureyri
eru fastir starfsmenn við höfnina.
Á Grenivík hefur starfsmaður
hreppsins að hluta sinnt hafnarmál-
um.
Morgunblaðið/Kristján
BÖRNIN á Leikskólanum Stekk létu sér fátt um finnast þótt bæjarsljórn hafi samþykkt að segja
upp samningi við FSA um þátttöku í rekstri leikskólans. Þau voru að leika sér í stórfiskaleik á lóðinni
í gær en gáfu sér þó tíma fyrir myndatöku.
Bærinn segir upp samningi við
FSA um þátttöku í rekstri Leikskólans Stekks
Utlit fyrir að rekstr
inum verði hætt
Dregið í getraun
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti við afgreiðslu ijárhagsáætl-
unar fyrir árið 1997, að segja upp
samningi bæjarins við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri, um þátttöku
í rekstri Leikskólans Stekks frá 1.
júlí á næsta ári. Með þessu hyggst
bærinn spara 3 milljónir króna. Á
leikskólanum eru um 30 börn og
stöðugildi 8.
Halldór Jónsson, framkvæmda-
stjóri FSA, segir að ekki hafí verið
fjallað um afgreiðslu bæjarstjórnar
innan sjúkrahússins. „Hins vegar er
Ijóst að við getum ekki rekið einir
og sér svona leikskóla. Reyndar hefur
stefnan verið sú að sjúkrahúsin ættu
að hafa sig út úr þeim rekstri og
ijárveitingar verið minnkaðar í þeim
tilgangi."
Halldór segir að með stuðningi
bæjarins hafí verið hægt að halda
rekstrinum áfram og ef ekkert annað
kemur inn í myndina í framhaldinu
sé ljóst að rekstrinum verði hætt.
Hann segir að sífellt fleiri starfsmenn
sjúkrahússins hafí fengið inni fyrir
sín böm í leikskólakerfí bæjarins og
það sé í sjálfu sér hin eðlilega leið.
Bærinn með flest plássin
„Á sínum tíma var mun meiri
þörf fyrir þennan rekstur og fólk sem
hingað kom í vinnu átti ekki mögu-
leika á að koma börnum sínum inn
á leikskóla bæjarins," segir Halldór.
Bærinn er nú með meirihluta leik-
skólaplássa á Stekk en reksturinn
hefur verið á hendi FSA.
Halldór segir nauðsynlegt að ræða
við bæjaryfírvöld um lausn fyrir þau
böm sem eru á Stekk svo og starfs-
fólkið. „Ég á a.m.k. ekki von á því
að fólk lendi á götunni. Þarna er
líka starfsfólk sem kann til verka
og vonandi opnast möguleikar á því
að bæjaryfírvöld geti notið þeirra
krafta, ef báðir aðilar vilja.“
DREGIÐ hefur verið í getraun
Einingarblaðsins, en aldrei hafa
fleiri tekið þátt í getrauninni en
nú og er ritstjórn þakklát frábær-
um móttökum.
Fyrsta vinning, viku að eigin
vali í orlofshúsi félagsins sumar-
ið 1997, hlaut Sigurgeir Sigur-
geirsson, Brekkutröð 6 í Eyja-
fjarðarsveit. Matarúttekt hjá
KEA-Nettó að verðmæti 8 þús-
und krónur hlaut Brynja Dögg
Hermannsdóttir, Furulundi 11E,
Akureyri og matarúttekt á sama
stað að verðmæti 4 þúsund krón-
ur hlaut Jóna Jóhannsdóttir Mið-
braut 8, Hrísey.