Morgunblaðið - 21.12.1996, Síða 18

Morgunblaðið - 21.12.1996, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Hæstiréttur úrskurðar vegna álagningar jöfnunargjalds á innfluttar kartöflur Samrýmist ekki kvöðum um gnum skattheimtu HÆSTIRETTUR hefur úrskurðað að þrotabú fyrirtækisins S. Óskars- son & Co. hf. þurfi ekki að hlíta úrskurði ríkistollanefndar vegna endurákvörðunar á aðflutningsgjöld- um á 144 vörusendingum af frönsk- um kartöflum sem tollafgreiddar voru á árabilinu 1988 til 1992. Inn- flutningurinn var háður álagningu sérstaks jöfnunargjalds samkvæmt ákvörðun landbúnaðarráðherra og telur rétturinn að álagning gjaldsins samrýmist ekki kvöðum um mál- efnalegan grundvöll skattheimtu og stjórnsýslu. Málið varðar innflutning á for- steiktum kartöflum frá Hollandi sem tollafgreiddar voru frá 17. febrúar 1988 til 27. febrúar 1992. Innflutn- ingurinn var háður álagningu sérs- taks jöfnunargjalds samkvæmt lög- um um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Innflutningurinn var einnig háður álagningu verðtolls sem var 30% í upphafi en lækkaði í þrepum uns hann féll niður í árbytj- un 1992. Ríkistollstjóri tók innflutning á frönskum kartöflum til sérstakrar rannsóknar síðla árs 1991 vegna grunns um að uppgefið innflutnings- verð væri lægra en raunverulegt viðskiptaverð. Leiddi rannsóknin í ljós að veruleg brögð voru að því að influtningsverð væri óeðlilega lágt af hálfu innflytjenda í því skyni að ná fram lægri innflutningsgjöld- um. í kjölfarið var leiðrétt innflutn- ingsverð á 186 vörusendingum af frönskum kartöflum og voru van- greidd aðflutningsgjöld talin nema rúmum 34 milljónum króna. Sá úr- skurður var kærður til ríkistolla- nefndar sem taldi endurákvörðun gjalda af innflutningi fyrir 1. nóvem- ber 1989 fyrnda. Hins vegar var staðfest álagning vegna 144 vöru- sendinga og voru vangreidd gjöld vegna þeirra rúmar 19,3 milljónir króna. Ekki óheft heimild í dómi Hæstaréttar segir að heimild landbúnaðarráðherra til þess að leggja á jöfnunargjaldið teljist skattur í skilningi stjórnar- skrárinnar og sé heimildin bundin við skilgreindan tilgang laganna, það er að jafna aðstöðumun inn- lendra framleiðenda gagnvart nið- urgreiddum innflutningi. Einnig fel- ist mikilvæg takmörkun í þeim skýringum sem fram komi í athuga- semdum við frumvarpið og í umræð- um sem fram fóru á Alþingi áður en það varð að lögum. Þannig hafi svigrúm ráðherra til þess að leggja á gjaldið innan lögfestra marka ekki verið óheft. Nokkrar reglugerðir voru settar um álagningu jöfnunargjaldsins. Var það á tímabili 40% á kartöflur og vörur unnar úr þeim. Með reglugerð sem sett var 26. febrúar 1988 var gjaldið hækkað af níu vöruflokkum í 50%, af tveimur vöruflokkum í 100%, og af tollflokki sem tók til hinnar umdeildu vöru hækkaði gjald- ið í 190%, en áður hafði það gerst að fjármálaráðuneytið hafðði til- kynnt að frosnar, franskar kartöflur flokkuðust sem iðnaðarvara og þyrfti því ekki að leita eftir leyfi landbúnaðarráðuneytisins til inn- flutningsins. Jöfnunargjaldið á þess- um vöruflokki lækkaði síðan árið eftir í 120% og hélst þannig út það tímabil sem umdeilt er. Hæstiréttur segir að við það verði að miða að við lögleiðingu heimild- arinnar til að leggja á gjaldið hafi það verið mat löggjafans að raunhæf þörf væri á gjaldinu í þeim tilgangi að jafna aðstöðumun innlendra framleiðenda. Ekki hafi verið gerðar athugasemdir við álagningu gjalds- Á FUNDI fulltrúaráðs Kaup- mannasamtaka íslands 12. des- ember sl. voru þrír kaupmenn heiðraðir fyrir langt og giftu- drjúgt starf í þágu samtakanna og sæmdir gullmerki þeirra. Þessir kaupmenn, sem starfa REKSTRARTAP Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. án fjármundatekna og -gjalda nam 124 milljónum króna á síðastliðnu reikningsári sem er það sama og kvótaárið. Að teknu tilliti til fjármagnsgjalda og óreglulegra liða er rekstratapið á árinu 186 millj- ónir króna. Fiskiðjusamlag Húsavíkur og út- gerðarfélagið Höfði voru sameinuð 1. maí í vor í eitt fyrirtæki undir nafni FH. Rekstraruppgjör vegna síðasta árs er fyrir tólf mánuði í fisk- vinnslunni en fyrir útgerðina frá sameiningu 1. maí eða í fjóra mán- uði. Heildarveltan á þessu tímabili var 1.584 milljónir króna og er velt- an að meirihluta fólgin í vinnslu rækjuafurða. Fram kemur að meg- inhluta skýringarinnar á tapinu megi ins á árunum 1986 og 1987, en öðru máli gegni árið eftir þegar gjöld á vöruna hafi nær fimmfaldast með setningu nýrrar reglugerðar. Rök til þeirrar breytingar hafi ekki verið skýrð, þó augljóst sé að þar með hafi orðið straumhvörf í ferli gjalds- ins. Síðan segir: „Þegar það er virt, sem hér hefur verið rakið, verður stefndi ekki talinn hafa sýnt fram á, að álagning hins sérstaka jöfnun- argjalds, sem hér um ræðir, fái samrýmst þeim takmörkunum, sem heimild ráðherra voru settar, og þeim kvöðum um málefnalegan grundvöll skattheimtu og stjórn- sýslu sem gæta varð. Álagning gjaldsins á þær vörusendingar, sem úrskurðir ríkistollstjóra og ríkis- tollanefndar náðu til, var þannig ólögmæt." Krafa ríkistollanefndar er því óg- ilt og ríkið dæmt til að greiða þrota- búi S. Óskarssonar 350 þúsund krónur í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Haraldur Henrysson, Guðrún Erlendsdóttir, Hjörtur Torfason, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf- stein. allir í Reykjavík, eru f.v.: Gunn- ar Guðmundsson, Rafbúð, Bílds- höfða 16, Reykjavík, Hörður Pétursson, HP Húsgögn, Ár- múla 44, Reykjavík, Ingólfur Árnason, Vald Poulsen ehf., Reykjavík. rekja lækkunar á verði rækjuafurða, en á síðustu tólf mánuðum hefur verð á pillaðri rækju lækkað um 30-40%. Einnig kemur fram að skip félags- ins hafi verið á veiðum á Flæmingja- grunni í sumar og tap hafí verið á þeim veiðum, en félagið hafí skapað sér veiðirétt á móti. Þá hafi bolfisk- vinnsia fyrirtækisins einnig verið rekin með tapi, eins og almennt sé í þeim rekstri. Hlutafé eftir sameiningu fyrir- tækjanna er 519 milljónir króna. Stærstu hluthafaranir eru Bæjar- sjóður Húsavíkur með 42,6% eign- arhlut, Kaupfélag Þingeyinga með 15,5%, Hlutabréfasjóðurinn íshaf 8,3%, Trygging hf 7,7%, og Olíufé- lagið hf. 7,5%. Stjóm FIS Stjórnvöld láti af yfirgangi Stjórn FÍS skorar á íslensk stjórn- völd að láta nú þegar af yfirgangi sínum gagnvart innlendri verslun og taka upp samstarf um lausn þeirra deilumála, sem enn eru í gangi, seg- ir í ályktun fundar Félags íslenskra stórkaupmanna sem haldinn var í gær í tilefni af því að að undanförnu hafa verið kveðnir upp nokkrir dóm- ar og úrskurðir þar sem aðgerðir íslenska ríkisins gagnvart innlendum verslunarfyrirtækjum hafa verið dæmdar ólögmætar. Síðan segir: „Má þar nefna úr- skurð Eftirlitsstofnunar Efta um vörugjöld og nú nýlega dóm Hæsta- réttar íslands um innflutningsgjöld á franskar kartöflur. Afleiðing að- gerða ríkisins í kartöflumálinu urðu m.a. þær að innflutningsfyrirtæki lentu í gjaldþroti og forsvarsmenn þeirra hlutu dóma, auk þess að stjórnvöld hafa með þessum ólög- mæta hætti lagt gjöld á innfluttar vörur sem nema hundruðum milljóna ef ekki milljörðum króna og þar með haldið uppi háu verðlagi í landinu. Það má ekki henda að íslenskir kaup- sýslumenn þurfí að eyða orku sinni og fjármunum í að veijast ólöglegum yfirgangi stjórnvalda í stað þess að einbeita sér að því að ná árangri í rekstri fyrirtækja sinna. Stjórn Fé- lags íslenskra stórkaupmanna telur það algjörlega óviðunandi og eins- dæmi að stjórnvöld fari með þessum hætti gagnvart þegnum síns eigin lands. Nágrannaþjóðir okkar hafa á sama tíma talið það þjóna hagsmun- um heildarinnar að efla innlenda verslun með öllum tiltækum ráðum.“ Jafnframt lýsir FÍS sig hér eftir sem hingað til reiðubúið til sam- starfs um skipan viðskiptamála í landinu með hagsmuni allra að leið- arljósi. -----» ♦ ♦----- * Ishaf býður 50 milljónir til sölu HLUTABRÉFASJÓÐURINN íshaf hf. hefur ákveðið að bjóða út 50 milljónir króna að nafnverði í nýju hlutafé, en sjóðurinn var áður Ut- vegsfélag samvinnumanna. Sölu- tímabilið er frá 6. desember til 24. maí á næsta ári og í byijun eru bréf- in boðin á genginu 1,50, en gengið mun breytast á sölutímanum í sam- ræmi við markaðsverðmæti eigna sjóðsins. Jafnhliða útboðinu er að því stefnt að skrá hlutabréf í félaginu á Verð- bréfaþingi íslands, enda að því stefnt að hluthafar í félaginu verði orðnir 200 fyrir árslok. í byijun fara við- skipti með hlutabréf í félaginu fram á Öpna tilboðsmarkaðnum og mun hlutabréfasjóðurinn setja fram kaup- og sölutilboð þar til sjóðurinn hefur hlotið skráningu á Verðbréfaþingi. Hlutabréfin eru til sölu hjá flest- um, helstu verðbréfafyrirtækjum landsins, en Landsbréf hafa haft milligöngu um útboðið og skráningu félagsins á Verðbréfaþingi. Um miðjan nóvember síðastliðinn voru hluthafar í Ishafí rúmlega 25 talsins. íslenskar sjávarafurðir áttu mest eða 63,53%, Kaupfélag Árnes- inga 5,98%, Iceland Seefood 4,17%, Fiskiðjan Skagfirðingur 4,01% og Fiskiðjusamlag Húsavíkur 3,64%. Sjóðurinn á í ýmsum sjávarút- vegsfyrirtækjum. Stærstu eignar- hlutirnir eru í Búlandstindi, Meitlin- um, Borgey, Sléttanesi, Fiskiðju- samlagi Húsavíkur og fleiri fyrir- tækjum. Því fé sem aflast í útboðinu verð- ur varið til frekari fjárfestinga í fyr- irtækjum, einkum í sjávarútvegi. Eitt það vinsælasta í dag fyrir ungt fólk á alveg frábæru verði. Kanadísk bretti með bindingum kr 26900 íbróttamarkaði^íJXM.SJ BSÍ. &b\óðavat'a Umferðarmiðstöðinni, sími 893 8325. Þrír kaupmenn heiðraðir Rekstur Fiskiðjusamlags Húsavíkur Tapið 186 millj- ónir á síðasta ári

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.