Morgunblaðið - 21.12.1996, Page 22

Morgunblaðið - 21.12.1996, Page 22
22 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Iranar á móti alneti HÁTTSETTUR kierkur í íran, Ahmad Jannati, hvatti í gær til þess að aðgangur að alnetinu yrði takmarkaður vegna þess að hægt væri að ala fólk á „eitri“ með aðstoð með netsins. Aðeins vísindamenn ættu að fá óheftan aðgang. Jannati sagði að engin matareitrun gæti verið jafn slæm og hugarfarseitrunin sem mjög langan tíma tæki að uppræta. Klám og vestæn popp- tónlist eru bönnuð í íran. Ráðherrar tilnefndir BILL Clinton Bandaríkjaforseti tilnefndi í gær Federico Pena, sem verið hefur ráðherra sam- göngumála, í embætti orku- málaráðherra. Pena sætti mik- illi gagnrýni vegna afskipta af máli ValuJet-flugfélagsins en hann er úr röðum spænskumæ- landi fólks og mikill meirihluti þess kaus Clinton í forsetakosn- ingunum. Forsetinn valdi enn- fremur Alexis Herman í emb- ætti atvinnumálaráðherra. Uppgerðar- blinda NÁMSMENN í Egyptalandi hafa brugðið á það ráð að gera sér upp blindu til að fá inn- göngu í háskóla þrátt fyrir lé- legar einkunnir og nýta sér þannig forgang sem fatlaðir nemendur hafa. Forseti Ain Shams-háskólans í Kaíró segir að af 90 stúdentum, sem taldir hafí verið blindir, hafí 25 reynst vera alheilbrigðir. Heimí fangelsið NORODOM Sirivudh, útlægur prins frá Kambódíu, segist ætla að hverfa heim frá Frakklandi þótt fangelsisvist bíði hans. Hann segist ekki hafa efni á að búa í Frakklandi og í fang- elsinu fái hann að minnsta kosti að borða. Prinsinn, sem er hálf- bróðir Norodoms Sihanouks konungs, var sakaður um að ráðgera morð á öðrum forsætis- ráðherra landsins, Hun Sen. Heim vegna fjármála- deilna SEXTÁN bandarískir lögfræð- ingar, sem starfa við stríðs- glæpadómstól Sameinuðu þjóð- anna í Haag, verða að halda heimleiðis vegna deilna Banda- ríkjastjómar og samtakanna um fjármál. Bandaríkjamenn hafa lagt áherslu á gagnrýni sína á yfirstjóm samtakanna með því að neita að greiða fram- lög sín. Miðdemó- kratar ERLENT Dönsku fjárlögin úr stjórn ; Kaupmannahöfn. Reuter. \ MINNIHLUTASTJÓRNIN í Dan- mörku kom fjárlagafrumvarpi sínu í gegnum þingið í fyrrakvöld eftir tveggja mánaða baráttu. Það varð þó til þess að Miðdemókratar ákváðu í gærmorgun að ganga úr stjórn- inni. Treysta þeir sér ekki til þess að sitja í stjórn í skjóli tveggja flokka, sem eru lengst til vinstri, Sósíalíska þjóðarflokksins (SF) og Einingarlistans. Mimi Jakobsen, leiðtogi Miðdemó- krataflokksins og viðskiptaráðherra, sagði að brottfor flokksins úr stjóm myndi eiga sér stað „við fyrsta hent- ugleika". Auk hennar hefur Yvonne Herlov Andersen gegnt starfí heil- brigðisráðherra. Jakobsen staðfesti að þingmenn Miðdemókrataflokks- ins, fímm að tölu, myndu áfram styðja stjórnina á þingi. Eftir í stjórninni ásamt Jafnaðar- mannaflokknum situr flokkurinn Radikale Venstre. Poul Nyrup Ras- mussen forsætisráðherra boðaði upp- stokkun í stjóminni í byrjun janúar. Sósíalíski þjóðarflokkurinn hafði lýst andstöðu við fjárlagafrumvarpið og ætlaði að greiða atkvæði gegn því. Þegar stjórnin ákvað að koma til móts við kröfur flokksins um framlög til fullorðinsfræðslu, starfs- náms, félags-, umhverfís- og menn- ingarlegra verkefna og hét því að beita sér fyrir umbótum á vinnustöð- um skipti flokkurinn um skoðun. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var í blaðinu BT í gær, fengi Jafnaðarmannafiokkurinn aðeins 50 þingmenn kjörna færu kosningar fram núna en flokkurinn hefur 62 þingmenn nú. Venstre, flokkur Uffe Ellemann-Jensens, fyrrverandi ut- anríkisráðherra, yrði stærstur, fengi 51 þingsæti í stað 42. ♦ ♦ ♦------- Jeltsín til Kremlar á mánudag Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, mun koma til vinnu í Kreml á mánu- dag, tæpum sjö vikum eftir að hann gekkst undir hjartaaðgerð. Læknar vara hann þó við að vinna of mikið. Jeltsín kom fram í sjónvarpi í gær og sagði að hann hygðist snúa til starfa af fullum krafti. „Þjóðin þarfnast iðjusams og öflugs forseta," sagði Jeltsín í sjón- varpsviðtalinu. „Mér fínnst að bat- anum sé lokið ... Læknarnir hafa unnið sitt starf og nú er röðin kom- in að forsetanum." Jeltsín sagði að sín biði að marg- þættur vandi: ógreidd laun verka- manna, ástandið í Tsjetsjníju og endurskipulag heraflans og hernað- arlegrar hugmyndafræði. í samtali við þýska sjónvarpsstöð í gær fullyrti Alexander Lebed, fyrr- verandi yfírmaður öryggismála í Rússlandi, að Jeltsín væri á ný far- inn að neyta áfengis, þvert á fyrir- mæli lækna sinna. 170 stórkostlegar víðmyndir teknar um allt' land. Myndirnar ná yfir það helsta á f]Ölförnustu leiðutn landsins. Ömefni eru merkt inn á állar myndjrnar vSjónarhom mynda lx>karinnar eru frá 100° og ailt upp í ,215 Jarðfræöi iandsins er útskýrð á einfaidan og auð&kiijaniegan hatt Staðariýsingar s.s. gönguleíðir. útsýnissiaðir, vegslóðar og fl. • iSLANDSji^^ 6r hægt að fá hjá umix»ðsmönnum um land áilt. . -t HVAMMSHEIÐI ■ EYSTRAHORH ■ mjM ÞÚFUHRAUHSTIHDUR TÆKNIMYNDíR Póshólf 43S • 202 KÓPAVOGUR Sími: S54 3313 • FftX: 564 3003 KROSSANESFJAIL Takmarkaðar birgðir Reuter ÖRYGGISVERÐIR í verslun í London gæta stafla af pökkum með vinsælli brúðu, eftirmynd Buzz Lightye sem er vélmenni og aðalhetjan í kvikmynd Disney-félagsins, Toy Story. Brúðan er uppseld víð- ast hvar i Evrópu og vara kaupmenn við því að nýjar birgðir muni ekki berast fyrr en 28. desember. Israelar fagna yfirlýsingu Bandaríkjastjórnar Hyggst þrýsta á um sammnga um Hebron Jerúsalem, Kairó. Reuter. STJÓRNVÖLD í ísrael fögnuðu í gær yfírlýsingu Bandaríkjastjórnar um að hún hygðist þrýsta á Palest- ínumenn til að greiða fyrir samning- um um Hebron. Yasser Arafat, leið- togi Palestinumanna, segist hins vegar ekki hafa neina von um, að það mál leysist á næstunni. Danny Naveh, talsmaður ísraels- stjómar, sagði hana ánægða með þau ummæli Warrens Christophers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að nú stæði upp á Arafat að ganga frá samningunum um Hebron en sérlegur sendimaður Bandaríkja- stjómar, Dennis Ross, er væntan- legur til ísraels um helgina. Naveh sagði, að Bandaríkjastjóm vissi vel, að ísraelar stæðu ekki í vegi fyrir samningum um Hebron en Arafat, leiðtogi Palestínumanna, sagði í Kairó, að engar horfur væm á samkomulagi á næstunni. Kenndi hann ísraelsstjóm um það. Handtökur vegna morða á fulltrúum Moskvu. Reuter. YFIRMAÐUR leyniþjónustu stjóm- ar aðskilnaðarsinna í Tsjetsjníju sagði að nokkrir menn hefðu verið handteknir vegna morðanna á sex sendifulltrúum Alþjóðaráðs Rauða krossins í þorpinu Novíje Atagi að- faranótt þriðjudags. Hann vildi hins vegar hvorki gefa upp nöfn eða þjóð- emi hinna handteknu. Jfar-Tass-fréttastofan hafði eftir yfírmanninum, Abu Movsajev, að starfsmenn leyniþjónustunnar teldu sig hafa fulla ástæðu til að ætla að pólitískar ástæður lægju að baki morðunum. „Því miður er íjöldi manns og öflugra samtaka í Tsjetsjníju og utan svæðisins sem vilja að heimurinn líti á lýðveldi okkar sem land villimanna og glæpamanna," sagði Movsajev. Hefur stjóm aðskilnaðarsinna heitið hveijum þeim sem veitt getur upplýsingar um morðin 100.000 dala verðlaunum, um 6,7 milljónum kr. _ Á fimmtudag lýsti talsmaður skæmliða, Movladi Udugov, því yfír að hann teldi að vinstrisinnaðir fé- lagar í rússnesku leyniþjónustunni hefðu framið morðin en að rússnesk yfirvöld hefðu ekki haft vitneskju um það. ísraelar krefjast þess að geta tryggt öryggi 400 gyðinga, sem búa í Hebron innan um 100.000 araba, en Palestínumenn krefjast yfírlýs- ingar israela um að ekki verði látið staðar numið við framkvæmd Ósló- arsamninganna með samningum um Hebron. Hebron er síðasta borgin af sjö, sem ísraelar eiga að láta af hendi við Palestínumenn, en auk þess eiga þeir að skila aftur töluverðu land- svæði. Palestínumenn óttast hins vegar, að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra ísraels, ætli sér ekki að standa við það. David Bar-Iilan, samgönguráð- herra ísraels, sagði í gær, að ísra- elsstjórn stæði á sama hvað Palest- ínumenn kölluðu sitt land, ríki eða eitthvað annað, svo jengi sem þeir fengju ekki fullveldi. í kosningunum í vor lýsti þó Netanyahu yfír, að palestínskt ríki yrði aldrei til. Mótmæli I A-Jerúsalem Hundruð manna, Palestínu- manna og ísraela, komu saman í einu arabahverfanna í Austur-Jerú- salem í gær til að mótmæla fyrir- ætlunum um að byggja þar 132 íbúðir fyrir gyðinga. Sögðu ræðu- menn, að næði þessi áætlun fram að ganga myndi aldrei verða friður með Israelum og Palestínumönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.