Morgunblaðið - 21.12.1996, Page 25

Morgunblaðið - 21.12.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ l/IKU LM LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 25 LÚSÍUKRANS liðinna lofgjörða. arra í óhóflega dýru jóla- skarti en ekki þyrfti að spyrja að leikslokum hver sigra myndi í kapphlaupi hé- gómans ef hugarflug hag- kvæmninnar birtist í líki fagurrar konu í fögrum ávöxtum árstíðarinnar eða ónýttu jólaskrauti geymsl- unnar. Meðfylgjandi myndir sýna svo ekki verður um villst að fallegustu jólafötin eru búin til heima í eldhúsi og að hóf- semin er allra dyggða falleg- ust og eftirsóknarverðust í samfélagi jarðarbúa. KÖNGLAR Krists. HVER á jólin, má vel spyrja og mörg svör eru rétt. Börnin, amma og afi, Jesú- barnið, kaupmaðurinn. Þeir yngstu og þeir elstu, andinn og trúin, ver- aldleg gæði. Engin jól eru góð án þess að ró færist yfir sálina, það er víst, en ástæða er líka til að gera vel við sig og sína. Mestu skiptir líklega að inn- kaup og matseld, skrúbb og tiltekt, reyni ekki svo á úthaldið að ekkert sé eftir þegar kemur að hátíðinni. Því þá er gott að geta dregið djúpt andann. Hugsað, með lungun full af lofti, hvers vegna allt umstangið sé. Aður en aftur er hlaupið, til að hræra í sósu, passa rauðkál, brúna kartöfl- ur, finna ekki fyrr en aft- ast í skáp eina möndlu í graut. Þetta var íslensk út- gáfa og erlendis breytist lítið nema síðasta setn- ingin. I Frakklandi þarf að opna ostrur, skera gæsalifrarkæfu, rúlla upp ál. Taka lax eða kalkún úr ofni, grænmeti af gufu. Undirbúa sæta eggjafroðu, íífa appel- sínubörk, leggja loka- hönd á súkkulaðirönd. Algengasti hátíðar- matur franskra er hvers kyns skelfiskur, fylltur kalkúnn og dýrindis eft- irréttir sem fá meðal- kokk til að kikna. Margir Fisksali í grennd við heimili Þórunnar Þórs- dóttur í París, segist alltaf selja langmest af skelfisk fyrir jólin en annars kaupi fólk reyktan lax í forrétt og stundum annan reykt- an fisk með, eða nýjan lax, sem er girnilegur í smjördeigi, í aðalrétt. kaupa fíngerðar súkkulaðitertur eða fallegar ávaxtakökur í betri bakarí- um og fela í ísskápnum uns stundin kemur. Sumir fá líka fiskkaupmanninn til að opna ostrurnar og útbúa jafnvel skelfiskdisk á tveimur til þremur hæðum, með ýmsum gerðum hrárra skelja á ísflögum, soðnum kuðung- um, stórum rækjum í skel og humri sem hefur verið tilreiddur og klofinn þannig að auðvelt sé að snæða hann. Þessum mikilfenglega veislumat þurfa að fylgja sítrónubátar og mæjónes, nýtilreitt í skál. Fisksali í grennd við heimili blaðamanns í París, seg- ist alltaf selja langmest af skelfisk fyrir jólin en annars kaupi fólk reykt- an lax í forrétt og stund- um annan reyktan fisk með, eða nýjan lax, sem er gimilegur í smjör- deigi, í aðalrétt. Hörpudiskur og lítill humar, langoustines, líkt og fæst á Islandi, eru að sögn kaupmanns- ins afar vinsælir sjávar- réttir um hátíðirnar. Aðferðir til elda- mennsku virðast ótelj- andi þegar frönskum blöðum er flett, því þar er farið að fjalla af kappi um jólamatinn. „Bon appétit", eins og Frakk- ar segja. Gleðilega skeljatíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.