Morgunblaðið - 21.12.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 29
NEYTENDUR
Skata
Ilmurinn úr
eldhúsinu. . .
ÞORLÁKSMESSA er á næsta leiti og fisksaiar hafa í nógu að snúast.
Viðskiptavinir þurfa oft að skeggræða soðninguna við fisksaiann og
fá aðstoð við að veija skötuna eftir því hvort hún á að vera vel kæst,
lítið, þurrkæst og svo framvegis.
Við höfðum samband við nokkrar fiskbúðir til að forvitnast um verð
á skötunni og svo virðist sem kæst skata sé á bilinu 650-700 krónur
kílóið en hún er síðan dýrari ef hún er þurrkæst. Tindabikkjan er
ódýrari og kostar frá tvö hundruð og fimmtíu krónum kílóið og upp í
um fimm hundruð krónur. Með skötunni borða þeir allra hörðustu
hnoðmör að vestfirskum hætti en ýmsir láta sér nægja hamsatólg.
Otal ráð eru til að losna við skötulykt, sumir sjóða til dæmis skötuna
í hangikjötssoðinu, aðrir sjóða hangikjöt strax á eftir skötuveislunni
og siðan er það rauðkálssoðningin sem sumir segja að sé óbrigðult ráð.
Nýtt —
Frosin ís-
lensk paprika
ÍSLENSKT meðlæti hf. hefur sett
á markað blandaða frosna papriku
í 300 gramma neytendapakkning-
um. Um er að ræða paprikustrimla
í þremur litum, gulum, rauðum og
grænum. Paprikan er snöggsoðin
og síðan fryst sem á að tryggja
ferskleika hennar.
Skötuveisla
Skatan soð-
in úti á palli
HÚN Elín Guðmundsdóttir heldur
sína skötuveislu viku fyrir jól. „Ég
er að vestan og er að sjálfsögðu
alin upp við skötuna. í mörg ár hef
ég síðan boðið mínum móður-, og
föðursystkinum í skötu um það bil
viku fyrir jól og börnin mín og eigin-
maður borða auðvitað líka þennan
herramannsmat."
Elín segist alltaf elda skötuna
úti á palli. Þannig forðar hún heimil-
isfólkinu frá þessum einstaka ilmi
sem fylgir skötunni. „Við borðum
vel kæsta skötu með bræddum
hnoðmör og kartöflum og gæðum
okkur síðan á ábrystum, kaffi og
smákökum."
EINI D)UPSTEIKINGARPOTTURINN
MEÐ HALLANDI SNÚNINGSKÖRFU:
* Olíunotkun aðeins 1,2 Itr. í
stað 2,5 Itr. í venjul. pottum.
* Styttri steikingartími, jafnari
steiking og 50% orkusparnaður.
* Einangrað ytrabyrði og
sjálfhreinsihúðað innrabyrði.
* Gluggi á loki og 20 mín.
tímarofi með hringingu.
Morgunblaðið/Ásdís
ELÍN Guðmundsdóttir ásamt móður sinni Guðrúnu Helgadótt-
ur, Bjarna Bent Ásgeirssyni og Bjarna B. Ásgeirssyni
- Hvað gerir þú svo við leifarnar
af skötunni? „Ef eitthvað er eftir
af skötunni er hún hreinsuð af
bijóski og sett með hnoðmör í form.
Mér finnst alltaf best að borða slíka
kæfu heita en margir skera hana
niður kalda og borða á brauð fram
undir áramót.
FALLEGUR FYRIRFERÐARLITILL FLIOTUR.
Verð aðeins frá kr. 7.690,-
til kr. 16.990,- (sjá mynd).
/FOmx
HÁTÚNI6A REYKJAVfK SÍMI 552 4420
LauraStar
Gufustraujárn með
gufuþrýstingi.
Tækni atvinnumannsins
fyrir heimUi
HELMINGI STYTTRI
STRAUTÍMI
MEÐ
LauraStar
Kynningar um
helgina í
Glæsibæ
4
°g
Mjódd
Alþjóða
Verslunarfélagið ehf
Skipholt 5,105 Reykjavík -
S: 511-4100
Blab allra landsmanna!
-kjarni málsins!
3 tonn af SKOTCJ
Verða
seldó
Fyrstir koma. fyrstir fq
- STÓR FRLLEGUR JÓLfihUMfiR - FEITfiR OG MIKLRR ÚTHfiFSRftKJUR
(1jí» - SKÖTUSELUR- STÓRLÚÐfi- SKELFISKUR
Hnoðmör - hamsatólg - harðfiskur
TÖKUM VISA - EURO - DEBET
FISKBÚÐIN HÖFÐABAKKA 1 FISKBÚÐIN HRINGBRAUT 119
GULLINBRÚ JL HÚSINU
SÍMI 587 5070 SÍMI 552 5070
^ $(r Tindabikkja, kæstogroðlaus ^