Morgunblaðið - 21.12.1996, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR21. DESEMBER 1996 51
I
!
I
I
4
4
i
\
í
i
i
i
<
<
i
j
i
i
i
i
i
i
j
FRÉTTIR
Stjórnvöld hvött til að
auka aðgerðir gegn
losun kolefnis
í SÍÐASTA mánuði gekkst Líffræði-
félag íslands fyrir þverfaglegri ráð-
stefnu um kolefnisbúskap Islands.
Þar voru gróðuhúsaáhrif ti! umræðu,
en um allan heim hefur fólk áhyggj-
ur af vaxandi gróðurhúsaáhrifum.
Þau eiga að miklu leyti rætur að
rekja til verulegrar og stöðugrar
aukningar á koltvíoxíði í andrúms-
lofti jarðar, þó ýmis önnur efni hafí
einnig áhrif. ísland er bundið alþjóð-
legum samningum um að takmarka
útstreymi koltvíoxíðs sem og ann-
arra gróðurhúsalofttegunda hér á
landi.
A ráðstefnunni kynntu vísinda-
menn, úr hinum ýmsu greinum raun-
vísinda, rannsóknir íslendinga í sjó
og á landi. Fjallað var um náttúru-
lega hringrás kolefnis, bindingu, upp-
töku og losun sem verður fyrir til-
stuðlan lífrænna og ólífrænna ferla
í umhverfinu. Áhrif mannsins á þetta
ferli og alþjóðlegar skuldbindingar
Islendinga voru kynntar af embættis-
mönnum stjómsýslunnar.
Á fundinum var eftirfarandi
ályktun samþykkt: „Fundurinn hvet-
ur stjórnvöld til að auka beinar að-
gerðir til takmörkunar á losun kol-
efnis, sem og annarra gróðurhúsa-
lofttegunda.
Síaukið útstreymi og fjölgun á
uppsprettum gróðurhúsalofttegunda
hefur verið raunin hérlendis þrátt
fyrir að ísland hafi skrifað undir
alþjóðlega skuldbindingu um að tak-
marka losun þeirra.
Breytt landnýting, skógrækt,
landgræðsla og verndun eru mikil-
vægir þættir sem geta minnkað
koltvíoxíð í andrúmslofti til lengri
eða skemmri tíma. Þetta eru hins-
vegar óbeinar og leiðréttandi að-
gerðir, lífsmáti samfélagsins verður
að breytast. Betur má því ef duga
skal. Mikilvægt er að stjórnvöld og
almenningur vinni markvisst og á
raunhæfan hátt að takmörkun á los-
un gróðurhúsalofttegunda út í and-
rúmsloftið. Stórauka þarf rannsókn-
ir á leiðum til að bregðast við vanda-
málunum á sem skynsamlegastan
hátt.“
Minningarsjóður Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar
Styrkir
veittirtil 10
námsmanna
MINNINGARSJÓÐUR Helgu Jóns-
dóttur og Sigurliða Kristjánssonar
hefur ákveðið að veita í ár alls 3
milljónir króna í námsstyrki til 10
einstaklinga sem stunda nám í verk-
fræði og raunvísindum en alls bár-
ust sjóðnum 28 umsóknir um styrki.
Styrkþegar þessir eru: Anna Ing-
varsdóttir, Ph.D.-nám í sjávarlíf-
fræði, Bjarni Richter, cand. scient,-
nám í jarðfræði, Bryndís Guðrún
Róbertsdóttir, M.S.-nám í jarð-
fræði, Gísli Hólmar Jóhannesson,
Ph.D.-nám í eðlisefnafræði, Jón
Tryggvi Njarðarson, Ph.D.-nám í
lífrænni efnafræði,, Kristín Frið-
geirsdóttir, M.S.-nám í iðnaðar-
verkfræði, Krsitján Lilliendahl,
Ph.D.-nám í dýrafræði, Ragnhildur
Geirsdóttir, M.S.-nám í iðnaðar-
verkfræði, Yngvi Björnsson, Ph.D.-
nám í tölvunarfræði og Þorsteinn
Koma má í veg fyrir mörg
slys með aukinni aðgæslu
í DESEMBER á ári hverju verða
mörg börn fyrir því óláni að brenna
sig og fá slæm brunasár. Slysin
verða m.a. af völdum eldfæra, log-
andi kerta og kertaskreytinga,
heitra bakaraofna, hitaveituvatns
og flugelda. Þessi slys er hægt að
koma í veg fyrir með aukinni að-
gæslu. Framkvæmdastjórn átaks-
ins Öryggi barna - okkar ábyrgð
vill af þessu tilefni koma á fram-
færi til foreldra og allra þeirra sem
umgangast börn eftirfarandi ábend-
ingum:
„Gætið ávallt fyllstu varúðar
nálægt kertum og kertaskreyting-
um. Hafið kertin ekki á lágum borð-
um þar sem börnin ná ekki til. Eld-
spýtur og kveikjarar bjóða hættunni
heim, geymið slíkt þar sem börnin
geta ekki náð til. Aldrei ætti að
skilja börnin ein eftir í herbergi þar
sem kerti logar. Munið að jóla-
skrautið er mjög eldfimt og eldurinn
breiðist fljótt út.
Ef börnin taka þátt í jólabakstr-
inum verður að segja þeim frá
hættum, m.a. að heitir ofnar og
bökunarplötur eru varhugaverð,
gætið því vel að börnum við jóla-
baksturinn. Sérstakrar aðgæslu er
þörf þegar verið er að nota heita
feiti til að steikja með. Gætið að
því að feitin ofhitni ekki. Ef eldur
kviknar í henni, setjið lokið á pott-
inn og slökkvið undir pottinum.
Ekki reyna að færa pottinn til.
Sjóðandi heitt vatn til hreingern-
ingar er mjög hættulegt. Lítið barn
á skriðaldri getur t.d. náð til skúr-
ingafötunnar sem stendur á gólfinu
og velt henni um koll án þess að
hinn fullorðni, sem er á kafi í hrein-
gemingum, taki eftir. Besta vörnin
er að hafa vatnið einungis volgt og
hafa börnin á öruggum stað meðan
verið er að þrífa.
Passið smábörnin nærri jólaser-
íum. Skrautlegar perurnar freista
og hugsanlegt er að þau bíti í þær.
Gamlar og úr sér gengnar jólaseríur
geta verið hættulegar og því ráð-
legt að taka þær úr umferð.
Forðast skal að hafa börnin í
eldfimum fatnaði sem getur fuðrað
upp. Föt úr gerviefni eru eidfim og
brenna auðveldlega. Bómullar- og
ullarföt brenna ekki eins hratt.
Þegar áramótin nálgast þarf að
gæta mikillar varúðar í tengslum
við flugelda. Kynnið ykkur vel allar
leiðbeiningar sem fylgja flugeldun-
um og notið hlífðarbúnað sem
mælt er með, s.s. hlífðargleraugu
og hanska. Fræðið börnin tíman-
lega um hættuna sem fylgir óvar-
legri meðferð flugelda og blysa.
Hafið eftirlilt með börnunum þegar
verið er að skjóta upp flugeldum.
Gott er að hafa flösku með vatni
við hendina, til kælingar, þar sem
verið er að skjóta upp fiugeldum.
Reykskynjari og handslökkvitæki
ættu að vera til á hveiju heimili.
Skyndihjálp vegna bruna
Komdu í veg fyrir frekari bruna-
áverka t.d. með því að fjarlægja
strax föt sem glóð er í. Ef eldur
kemst í föt, leggið þá viðkomandi
á jörðina og veltið honum rólega
þar til eldurinn kafnar.
Kældu brennda svæðið með
vatni, 15-20 gráða heitu í u.þ.b.
hálfa klukkustund, eða þar til sviði
er horfinn.
Búðu um sárið með hreinum
umbúðum.
Leitaðu læknishjálpar við alvar-
legum brunasárum."
í framkvæmdastjórn átaksins
Öryggi barna - okkar ábyrgð sitja
fulltrúar Foreldrasamtakanna,
Landlæknisembættisins, Neytenda-
samtakanna, Rauða kross Islands
og Umferðarráðs.
full búð af ?læ* ile?um íófasettum o? hormófum
einni? mikið úrval af ftökum lófum.
Hjá okkur eru
Örn Guðmundsson, M.S.-nám í
byggingarverkfræði.
Hafa náð mjög
góðum árangri
I umsögn stjórnar sjóðsins segir
m.a.: „Styrkþegarnir eru ýmist
mjög góðir námsmenn eða hafa náð
mjög góðum árangri í starfi, nema
hvort tveggja sé. Þrír doktorsnem-
anna hafa náð þeim árangri að
vera í fremstu röð meðal nemenda
við sína háskóla. Aðrir styrkþegar
hafa unnið til verðlauna og viður-
kenninga fyrir námsárangur. Sín á
milli hafa styrkþegarnir þegar birt
20 fræðigreinar auk fjölda skýrslna
um viðfangsefni sín. Þá hafa marg-
ir þeirra flutt erindi á fræðilegum
ráðstefnum og jafnvel verið beðnir
um að stýra umræðum á sínum
fræðasviðum.
Stjórn Minningarsjóðsins er það
mikil ánægja að geta veitt íslensk-
um afreksmönnum á sviði verk-
fræði og raunvísinda stuðning,
ýmist við að komast yfir Ijárhags-
lega erfiðan hjalla í námi sínu eða
við að ljúka síðari hluta langs fram-
haldsnámsferils. Jafnframt vonast
stjórnin til þess að styrkveitingar
sjóðsins megi virka sem hvatning
til frekari dáða.“
■ OPNUÐ hefur verið ný verslun
og vinnustofa að Skólavörðustíg
17a. Verslunin heitir Kvika og verð-
ur þar eingöngu til sölu íslenskt
handverk. Að versluninni standa þau
Örn Ingólfsson, G. Erla og Erla
Þórarinsdóttir. Örn hannar og
smíðar ýmsa hluti úr leðri og öðrum
efnum. G. Erl'a er með drengjabún-
inga úr íslensku hráefni, búningar
þessir unnu til verðlauna á vegum
Handverks sl. vetur og Erla er með
sérhannaða hatta og peysur.
Jólakort
til styrktar
einhverfum
EINS og undanfarin ár gefur Um-
sjónarfélag einhverfra út jólakort
til styrktar starfsemi félagsins.
Jólakortin eru hönnuð af einhverfri
stúlku, Lindu Rós Lúðvíksdóttur.
Kortunum er pakkað 5 eða 10 ,
stk. saman. Tíu kort í pakka kosta
700 kr. en 5 kort kosta 400 kr. í
einnig er veittur magnafsláttur.
Fyrirtækjum er gefinn kostur á að
láta prenta merki (lógó) fyrirtækis-
ins inn í kortin.
Allar nánari upplýsingar gefa
Halla Þ.Stephensen og Sævar ;
Magnússon.
T FTflPWTT
Stefán J. Þórður
Arngrimsson Kristleifsson
MYNDAVÍXL
í BRÉFI til blaðsins, rituðu af
Þórði Kristleifssyni og Stefáni J.
Arngrímssyni, sem birtist sl.
fimmtudag, víxluðust myndir af
höfundum. Eru þeir og aðrir hlutað-
eigendir beðnir velvirðingar á mis-
tökunum.
Jólaglaðningur
á frábæru verúi frá
^Rpadstar
Ferðatæki með
geisiaspiiara.
Verð frá
kr. 16.055 stgr.
Eldhúsútvörp.
Verð kr. 2.128 stgr.
Útvarpsklukka.
Verð kr. 2.081 stgr.
Glæsileg náttborðs
klukka og útvarp.
Verð kr. 3.216 stgr.
///-'
Einar
Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 n 562 2901 og 562 2900
Ferðageislaspilari.
Verð frá
kr. 13.01 5 stgr.
Ferðatæki í
fallegum litum.
Verð kr. 5.216.