Morgunblaðið - 21.12.1996, Síða 55

Morgunblaðið - 21.12.1996, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ I DAG BRIDS llm.sjón Guðmundur I’áll Arnarson SPIL dagsins kom upp í úr- slitaleik bikarkeppni Norðurlands vestra, en þar áttust við sveitir Jóns Sigur- björnssonar og Björns Frið- rikssonar. Leikurinn var jafn fyrstu þrjá loturnar, en sveit Jóns átti góðan sprett í lokin og vann með 35 IMPa mun. Austur gefur; NS á hættu. Norður ♦ K2 V ÁG ♦ ÁDG98754 ♦ 7 Austur ... ♦ Á108 ♦ 653 ♦ K6 ♦ Á10942 Suður + G54 ♦ KD8742 ♦2 + KD6 Spiiuð voru fjögur hjörtu í suður á báðum borðum. Oðrum megin passaði austur í byijun og Björk Jónssdóttir opnaði á einu hjarta. AV höfðu hægt um sig og Jón Sigurbjörnsson í norður gaf loks tígulinn eftir og féllst á hjartað. Útspilið var tígultía, sem Björk drap með ás og spilaði laufi. Austur stakk upp ás og trompaði út. Björk gat nú unnið spilið með því að trompa tígul, henda K2 í spaða niður í laufhjón og trompa spaða. Úr blindum má svo spila frítígli og henda spaða. Þessi spilamennska krefst þess að trompið liggi 3-2 og tígulinn 2-2. Björk taldi vænlegra að spila upp á spaðaás réttan, ekki síst í ljósi þess að austur hafði passað í byijun, en þó sýnt tígulkóng og laufás. Hún tók því einfaldlega trompin og spilaði spaða á kónginn. Einn niður. A hinu borðinu voru Krist- ján Blöndal og Ólafur Jóns- son í AV, gegn Birni Frið- rikssyni og Unnari Guð- mundssyni: Vestur Norður Austur Suður Ólafur Bjöm Kristján Unnar 1 tígull 1 grand Pass 2 grönd Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Einkennilegar sagnir. Opnun Kristjáns er Precisi- on, þ.e. 11-15 punktar án fimm-spila hálitar, en inná- koma Únnars á grandi var hindrun í einhveijum lit. Tvö grönd sýndu sterk spil og spurðu um litinn, og Unnar ákvað að stökkva í íjögur hjörtu með svo góða „hindr- un“. Útspilið var tígultía, eins og á hinu borðinu. Unnar drap og spilaði laufí. Kristján gaf og kóngur suðurs átti slaginn. Unnar stakk þá lauf, trompaði tígul heim og aftur lauf í borði. Spilaði síðan frítígli. Kristján trompaði með fimmu og Unnar henti spaða, en vestur laufi. Nú spilaði Kristján laufás. Aftur kastaði Unnar spaða. Kristján tók þá á spaðaás, spilaði síðsta lauf- inu og uppfærði þar með fjórða slag varnarinnar á tromp. Vestur ♦ D9763 V 109 ♦ 103 ♦ G853 Arnað heilla 7/^ÁRA afmæli. í dag, I Vrlaugardaginn 21. desember, er sjötugur Gísli J. Eyland, stöðvarstjóri Pósts og síma, Akureyri. Eiginkona hans er Dórot- hea J. Eyland. Þau hjónin taka á móti gestum í Odd- fellowhúsinu við Sjafnarstíg 2, milli kl. 17 og 19 í dag, afmælisdaginn. /\í dag, laugardaginn Dv/21. desember, er fimmtug Ásgerður Hin- rikka Annasdóttir. Hún og eiginmaður hennar Omar Ellertsson munu halda upp á afmælið með ættingjum og vinum í sal Frímúrara í kvöld kl. 20. GULLBRÚÐKAUP. í dag, laugardaginn 21. desember, eiga fimmtíu ára hjúskaparafmæli hjónin Emma Kristín Guðnadóttir og Ágúst Eiríksson, Löngumýri, Skeiðum. Þau voru gefín saman af sr. Jóni Thorarensen. Þau eiga átta börn, 23 barnabörn og fimmtán barnabamabörn. HÖGNIHREKKVÍSI ,/ þetbex. byrjcái aUt me& tíainum beinunt og eínu parC ctfirxniskóm." LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 55 STJÖRNUSPÁ BOGMAÐUR Afmælisbam dagsins: Þú ert barnavinur og lætur þér annt um fjöiskylduna. Hrútur (21. mars - 19. apríl) Óvæntan gest ber að garði, sem hefur góðar fréttir að færa. Fjölskyldan nýtur frí- stundanna saman heima í kvöld. Naut (20. apríl - 20. maí) Þótt hugmyndir þínar séu góðar, sakar ekki að hlusta á það sem vinur hefur við þær að bæta. Slakaðu á heima í kvöld. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þú leggur lokahönd á jóla- undirbúninginn og frágang jólagjafanna í dag, og nýtur til þess aðstoðar allrar fjöl- skyldunnar. Krabbi (21. júní — 22. júlí) Þú átt von á gestum í dag, og þarft að sýna börnum þolinmæði, því spennan er mikil fyrir jólin. I kvöld gefst tími til hvíldar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Einhver nákominn er hálf- gerður gleðispillir í dag, en með lagni tekst að koma hon- um í jólaskapið og fagna með fjölskyldunni. Meyja (23. ágúst - 22. september) a* Þú þarft að ljúka ákveðnu verkefni í dag áður en þú getur slakað á og notið frí- stundanna með vinum og ættingjum. Vog (23. sept. - 22. október) Eitthvað getur farið úrskeið- is, sem þú þarft að lagfæra. Svo gefst tími til að sinna yngstu kynslóðinni, sem þarfnast umhyggju. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) ^jj0 Það kemur sér vel að geta slakað örlítið á fyrri hluta dags, en síðdegis bíður þín mannfagnaður með vinum og fjölskyldu. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) m Þú gerir starfsfélaga mikinn greiða í dag, sem hann kann vel að meta. Þegar kvöldar fara ástvinir út saman í vina- hópi. Steingeit (22. des. - 19.janúar) Með góðri aðstoð fjölskyld- unnar ganga heimiíisstörfin vel, og þér gefst tími til að Ijúka jólainnkaupunum snemma. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Þú nýtur þess að geta bland- að geði við ættingja og vini í dag, og skemmtir þér kon- unglega. Sýndu ástvini nær- gætni. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) 4ll< Samband ástvina er sérlega gott, og þeir vinna saman að því að ljúka jólaundirbún- ingnum heima. Kvöldið verð- ur rólegt. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Fjórir þættir ráða verði og gæðum demantsins: Litur, hreinleiki, slípun og þyngd. 41 Þyngd demanta er mæld í karötum. 1 karat er jafnt og 0,2 grömm. 1 karat jafngildir 100 punktum. 0,10 karata demantur er 10 punkta. Sigga & Timo gullsmíði Gullsmiðjan Strandgötu 19 Guðrún Bjarnadóttir Hafnarfirði Lækjargötu 34c S: 565 4854 Hafnarfirði S: 565 4453 Guðmundur Andrésson Gullsmíðaverslun Gullhöllin Laugavegi 50a Laugavegi 49 S: 551 3769 S: 561 7740 Gullsmiðjan Pyrit-G15 Demantahúsið ehf. Skólavöröustíg 15 Kringlunni 4-12 S: 551 1505 S: 588 9944 Gullsmiðja Óla Jóhannes Leifsson Hamraborg 5 Gullsmiður Kópavogi Laugavegi 30 S: 564 3248 S: 551 9209 Lára gullsmiður Gullkúnst , Skólavörðustíg 10 Gullsmiðja Helgu S: 561 1300 Laugavegi 40 S: 561 6660 Jens Kringlunni Gull og Silfur og Skóiavörðustfg 20 Sigurður G. Steinþórsson S: 568 6730 Laugavegi 35 S: 552 0620 Tímadjásn Grímsbæ v/Bústaðaveg S: 553 9260 Félagar í Demantaklúbbi FIG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.