Morgunblaðið - 21.12.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 C 7
Tónlist, sögur
og kveðjur
JÓLALÖG, jólasögur, jóla-
kveðjur til sjómanna og
aftansöngur í Dómkirkjunni
eru dagskrárliðir sem skapa
hátíðlegan blæ í dagskrá
Rásar 1 ár hvert. En auk
hefðbundinna dagskrárliða á
aðfangadag má minna á þátt
Ernu Arnardóttur klukkan
11.03, þar sem hún kannar
viðhorf þeirra sem geta ekki
haldið jólin heima starfs síns
vegna í þættinum Að vera
skyldum sínum trúr á jólum.
Þá má nefna dagskrárliðinn
Barnajól klukkan 17 á Rás 2
þar sem flutt verður jólatón-
list fyi'ir yngstu hlustend-
urna.
Klukkan 14.00 á Rás 1 sér
Ragnheiður Gyða Jónsdóttur
um þáttinn Líður að helgum
tíðum. Þar segir Sigurður
Gylfí Magnússon sagnfræð-
ingur frá rannsókn sinni á
dagbókum og bréfum bræðr-
anna Níelsar og Halldórs
Jónssona frá Tindi í Kirkju-
bólshreppi á Ströndum. Sig-
urður Gylfi les úr þeim sögu
almennings um aldamótin,
daglega lífið og hvemig það
braust til menntunar og sjálf-
stæðishvatningu A Jólavöku
Útvarpsins klukkan 20.00
ræðir Jórunn Sigurðardóttir
við Vilborgu Dagbjartsdóttur
um jólin og jólasögur og Vil-
borg les söguna Jólarósin eft-
ir Selmu Lagerlöf.
Eftir veðurfregnir klukkan
22.20 verður leikin hljóðritun
frá tónleikum á Hátíð
helgitónlistar í Fribourg. Þar
syngur Micrologus-sveitin
enska, spænska, írska og
ítalska jólasöngva frá miðöld-
um og leikur á fom hljóðfæri.
Milli tónlistaratriðanna les
Sveinbjöm Halldórsson göm-
ul íslensk helgi- og Maríu-
kvæði en í lok dagskrái’ verð-
ur útvarpað frá miðnætur-
messu í Hallgrímskirkju þar
sem séra Karl Sigurbjörns-
son prédikar.
Söngleikir á Rás 2
Það verður söngur og gleði
á Rás 2 yfir allar hátíðarnar.
Söngleikir á íslandi er heiti
þáttaraðar sem verður á dag-
skrá kiukkan 16.00 alla hátíð-
isdagana. Þar fær Lísa Páls
höfunda, leikstjóra, leikara
og söngvara til að rifja upp og
segja frá söngleikjum hér á
landi síðustu þrjátíu til fjöm-
tíu ár. Fyrsti þátturinn er á
dagskrá klukkan 16.00 að-
fangadag og má búast við að
þeir bræður Jónas og Jón
Múli Árnasynir fari á kost-
um.
Dagskrá Rásar 1 á jóladag
er af margvíslegum toga.
Bókmenntaþættfi, ferðaþátt-
ur, íslensk jólalög að fomu og
nýju, Karen Blixen og Jóla-
óratóría Bachs er meðal dag-
skrárefnis. Anton Helgi Jóns-
son sér um dagskrá helgaða
pólsku skáldkonunni Wislövu
Szymborsku, Nóbelsverð-
launahafa í bókmenntum
klukkan 10.15 og strax eftir
hádegi leikur Miklos Dalmay,
sigurvegari Tónvaka-keppn-
innar með Sinfóníuhljómsveit
Islands píanókonsert eftir
Maurice Ravel.
Raddir genginna
dómkirkjupresta
Að tónleikunum loknum
verða rifjaðir upp nokkrir
minnisverðir atburðir í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í tilefni
200 ára afmælis kirkjunnar.
Hlustendur fá að heyra radd-
ir genginna dómkirkjupresta,
séra Bjarna Jónssonar, séra
Friðriks Hallgrímssonar,
séra Jóns Auðuns og séra
Óskars J. Þorlákssonar. Enn-
fremur er fluttur kafli úr
ræðu Sigurbjöms Einarsson-
ar biskups við útfór Her-
manns Jónassonar forsætis-
ráðherra en á jóladag er ein-
mitt liðin öld frá fæðingu
Hermanns.
Af öðram dagskrárliðum
má nefna þætti um íslensk
jólalög að fornu og nýju, frá-
sögn af vel gróinni dalkvos,
Víðidal í Stafafellsfjöllum og
lestur úr bók Karenar Blixen,
v*
- A *
.*•»*;*•
Morpunblaðió'Kristinn
JÓLAKVEÐJUR til sjómanna verða lesnar á Rás 1 á aðfangadag klukkan 15.
BRAGI Ólafsson skáld og tónlistarmaður veltir fyrir sér jólahaldi eftir 30 ár
annan jóladag klukkan 18.05 á Rás 1.
Sorgarakri, klukkan 18.00.
Mörgum finnst jólahald
ekki fullkomnað fyrr en búið .
er að hlusta á Jólaóratóríu
Bachs. Á Tónlistarkvöldi,
klukkan 19.40 að kvöldi jóla-
dags verður flutt hljóðritun
frá tónleikum Mótettukórs
Hallgrímskirkju á þessu fal-
lega verki. Klukkan 22.20
verður endurfluttur þáttur
doktors Kristjáns Eldjárns
um ár séra Matthíasar
Jochumssonar í Odda á
Rangárvöllum en þátturinn
var frumfluttur árið 1959.
Ást, náttúruöfl og
predikanir annan 4.
jóladag á Rás 1
Ást og rómantík, náttúru-
öfl, prédikanir og vangavelt-
ur um jólahald að þrjátíu
árum liðnum er meðal efnis
Rásar 1 á annan í jólum.
Séra Sigurður Árni Þórðar-
son fjallar um prédikanir
séra Sigurbjörns Einarsson-
ar á árum síðari heimsstyrj-
aldar klukkan 9.03. Á undan
messu í Seltjarnarneskirkju
verður fluttur athyglisverð-
ur þáttur um þögnina á
Vatnajökli og þau öfl sem
hana rjúfa. Þar er jafnframt
rætt við fólk sem er heillað
af kyrrðinni og hefur búið á
jöklinum í þrjá mánuði.
Þorsteinn Gauti Sigurðs-
son leikur píanókonsert nr. 2
eftir Rakhmaninov klukkan
13.00 en klukkan 14.00 verður
fluttur þátturinn Ást um
aldamót. Það er heimildar-
þáttur í umsjá Jóns Karls
Helgasonar, byggður á bréf-
um tveggja ungra Reykvík-
inga sem vora í tilhugalífinu
árið 1901.
Guðrún frá Lundi var þekkt
fyrir rómantískar sögur sínar
og að loknum fréttum klukkan
16.00 verður flutt dagskrá um
hana í tilefni fimmtíu ára út-
gáfu bókarinnar Dalalífs og
klukkan 18.05 veltir Bragi
Ólafsson því fyrir sér hvernig
jólahald verður eftir þrjátíu ár
og athugar hvemig þau vora
fyrir þrjátíu áram.
Klukkan 19.40 verður flutt
hljóðritun frá jólatónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands
í Háskólabíói, en meðaþverka j
sem þai- hljóma eru Árstíð-
irnar eftir Vivaldi og Flug-
eldasvíta Hándels.
Steinaldar- og
skrýmslajól
DAGSKRÁ Stöðvar 3 fyr-
ir yngstu bömin hefst
klukkan níu að morgni að-
fangadags með talsettu
teiknimyndinni Skrýmslajól
sem gerist á jólakvöld. Jóla-
sveinninn dettur óvart af
sleðanum sínum og lendir í
arninum hjá Tomma. Hann
er dálítið ruglaður eftir bylt-
una og ákveða Tommi og
vinir hans, skrýmslin, að
hjálpa Sveinka við að koma
út öllum jólagjöfunum enda
ekki seinna vænna ef allir
eiga að fá gjafirnar sínar í
tæka tíð.
Að skrýmslajólum loknum
taka Kálgarðsbömin við.
Þegar Kálgarðsbörnin heyra
um jólin ákveða þau að halda
til borgarinnar. Börnin finna
peningaveski og eru ákveðin
í að reyna að koma því til
skila en það gæti orðið dálít-
ið ævintýralegt. Teiknimynd
með íslensku tali.
Þá tekur við talsett ævin-
týri um jólahald hjá mör-
gæsum og þvínæst verður
sýnd talsett teiknimynd um
litla stúlku sem óskar einskis
frekar en hvítra jóla. Þegar
öllu þessu er lokið verður
sýnd teiknimynd með ís-
lensku tali sem nefnist Saga
jólasveinsins.
Kvennabúr og
klaufastemmning
Fimm mínútur yfir ellefu
er Jólagríman á dagskrá og
þvínæst verður sýndur þátt-
ur úr Hundalífi. Fimm mín-
útum fyrir tólf kemur Flint-
stone-fjölskyldan á skjáinn
og heldur sín jól. Jaba-daba-
dúúú!
Fimm mínútum eftir eitt
birtast teiknimyndahetjurn-
ar Scooby-Doo og Shaggy
vinur hans á skjánum. Þeir
hafa verið ráðnir sem
smakkarar við hirð kalífa
nokkurs en þegar þeir taka
upp á því að eta upp allan
kvöldverð hans neyðast þeir
til að fela sig í kvennabúrinu
til að verða ekki teknir af lífi.
Klaufastemmningin er alls-
ráðandi í jólaþætti syrpunn-
ar Heimskur, heimskari,
sem sýndur verður rúmlega
hálfþrjú og að honum lokn-
um kemur söngkonan
Natalie Cole fram ásamt The
New York Gospel Choir og
stóram barnakór og syngur
jólalög. Dagskrárlok verða
síðan ldukkan fjögur.
Á jóladag hefst útsending
á Stöð 3 með teiknimynd um
leikfangasmiðinn Nikulás
sem alltaf gefur meira af
leikfóngum en hann selur.
Talsett teiknimynd um litla
brauðrist verður sýnd korter
yfir tólf. Félagar hennar era
daprir yfir því að vera ekki
lengur taldir nothæfir og því
afræður brauðristin að
reyna að hafa upp á drengn-
um sem átti þá. Ævintýrið
um brauðristina litlu og vini
hennar er fyrir alla fjöl-
skylduna. Dagskrá smá-
fólksins lýkur svo rúmlega
átta að loknum þætti um
geimálfinn Alf og jólahald r
hans.
Annan jóladag hefst út-
sending klukkan níu með
ævintýri um jólin hennar
Onnu litlu. Ríkasti maður
heims er ekki alls kostar
ánægður þegar fram-
kvæmdastjórinn hans kemur
heim með munaðarlausu
stelpuna Önnu. Hann hellir
úr skálum reiði sinnar svo
Anna og hundur hennar
hlaupast á brott. Um nóttina
birtast tveir draugar hinum
ríka og sýna fram á hversu "
björt framtíð Önnu hefði
orðið hefði honum auðnast
að stilla skap sitt.
Þegar ævintýrinu um
Önnu er lokið tekur við
teiknimynd um vingjarnleg-
an risa eftir sögu Roalds
Dahl.