Morgunblaðið - 29.12.1996, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B/C/D
297. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR 29. DESEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Skammdegisrökkur á Akureyri
Lögregla í S-Kóreu notar
táragas á verkfallsmenn
Seoul. Reuter,
Stj ór narandstaðan
í Belgrað
Mótmælum
aflýst vegna
útfarar
LEIÐTOGAR stjórnarandstöðunnar í
Serbíu aflýstu í gær mótmælunum,
sem staðið hafa daglega frá því að
Slobodan Milosevic forseti ógilti úrslit
bæjarstjórnarkosninganna 17. nóvem-
ber, og skoruðu á stuðningsmenn að
vera þess í stað við útför Predrags
Starcevic, sem lét lífið í mótmælum á
þriðjudag.
Búist var við því að mörg þúsund
manns mundu fylgja Starcevic til
grafar. Mótmælin hafa verið friðsam-
leg, en kveðið hefur við nýjan tón
eftir átök milli stuðningsmanna
stjórnarinnar og andstæðinga hennar
og óeirðalögreglu á aðfangadag.
Stjórnarandstæðingar segja að
Starcevic hafi troðist undir þegar
mótmælendur hugðust forða sér und-
an áhlaupi lögreglu.
Helsta dagblað sósíalistaflokks
Milosevic birti í gær úrskurð eftirlits-
nefndar Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu um að Zajedno,
samtök stjórnarandstöðunnar, hefðu
sigrað í kosningunum í Belgrað og
14 öðrum bæjum. Ekkert benti hins
vegar til þess að stjórn Milosevic
hygðist lúta niðurstöðu nefndarinnar.
Mannræningj-
ar í Jemen
fella hermenn
Sanaa, Jemen. Reuter.
ÞRÍR hermenn úr her Jemens létu
lífið og fimm særðust þegar menn úr
A1 al-Masni ættbálknum, sem hafa
haft fjóra hollenska ferðamenn í gísl-
ingu frá því á fimmtudag, skutu
sprengjum að sveitum er höfðu um-
kringt þá.
Embættismenn sögðu að öflugur
herflokkur hefði verið sendur til að
tryggja lausn gislanna, sem er haldið
um 65 km austur af Sanaa, höfuðborg
landsins. Sagt var að viðræðum við
gíslatakana yrði haldið áfram með
aðstoð annarra ættbálka.
Ættbálkar í Jemen hafa oft og tíð-
um gripið til þess ráðs að taka ýmist
ferðamenn eða aðra útlendinga í gísl-
ingu þegar þeir hafa átt í deilum við
yfirvöld. Slíkar deilur hafa yfirleitt
ekki verið pólitísks eðlis, heldur snú-
ist um land eða vatn.
TIL ÁTAKA kom í gær milli lögreglu og
verkfallsmanna í Suður-Kóreu. Þetta eru
fyrstu átökin frá því að verkföll hófust á
fimmtudaginn. „Valdi verður svarað með
valdi,“ sagði Kim Young-dae, varaforseti
samtaka kóreskra stéttarfélaga, í gær og
þóttu orð hans vera ávísun á frekara ofbeldi.
Lögregla sprautaði táragasi á um sex
þúsund verkamenn, sem gengu eftir um-
ferðargötu í átt að dómkirkju í miðborg
Seoul til að mótmæla nýrri vinnulöggjöf.
Þátttakendur í göngunni brugðust við með
því að rífa upp götusteina og fleygja að lög-
reglunni. Sögðu vitni að lögreglan hefði
handtekið að minnsta kosti sex menn.
Mótmælendur kveiktu í kröfuspjöldum og
borðum til að draga úr áhrifum táragassins
og halda lögreglunni í skefjum. Víða loguðu
eldar. Að sögn vitna höfðu róttækir náms-
menn laumað sér í raðir verkfallsmanna og
báru þeir að hluta til ábyrgð á gijótkastinu.
Verkamenn óttast að löggjöfin kippti
grundvellinum undan atvinnuöryggi þeirra,
en það hefur verið einn af homsteinum at-
vinnulífs í Suður-Kóreu. Stjómin heldur því
fram að löggjöfin muni tryggja atvinnu þeg-
ar fram í sækir. Hins vegar sé nauðsynlegt
að auka sveigjanleika á vinnumarkaði.
Ottast nýja vinnulöggjöf
Afstaða almennings til laganna er mis-
jöfn, en margir íbúar Suður-Kóreu em lítt
hrifnir af því hvernig þeim var laumað fram
hjá þingmönnum stjórnarandstöðunnar. Þau
voru samþykkt á leynilegum þingfundi á
fimmtudag. Þykir þessi framkoma minna á
stjórnarfar fyrri tíma.
„Nýju lögin munu breyta okkur í þræla,
ekki verkamenn," sagði Chun Jong-il, starfs-
maður bifreiðaverksmiðja Kia. „Ég er hér
til að koma í veg fyrir að það gerist.“
Frekari verkfallsaðgerðir eru ráðgerðar
og sagði Young-dae að mótmælafundir yrðu
haldnir þrátt fyrir framgöngu lögreglunnar.
Ríkisstjórnin hefur fordæmt vinnustöðvun-
ina og lýst hana ólöglega. Hún hefur hótað
ótilgreindri „refsingu“.
Sljórnvöld óttast
mikið tap
Verkföllin, sem eru að breiðast út, hafa
komið sér illa fyrir iðnað í landinu. Segir
ríkisstjórnin að bifreiðaframleiðsla og skipa-
smíðar hafi nánast stöðvast og framleiðsl-
utapið muni verða rúmlega einn milljarður
dollara (66 milljarðar íslenskra króna) í
árslok.
Bankastarfsmenn hafa lýst yfír vinnu-
stöðvun á laugardag. Starfsmenn hafa
gengið út af 17 læknamiðstöðvum og þar
er nú aðeins boðið upp á neyðarþjónustu.
Þetta er mesta vinnudeila í Suður-Kóreu frá
lokum síðasta áratugar.
AUÐLIND SEM
EKKIGENGUR Á
Úr hellu-
lögnum
í vísinda-
störfin
TÓKSTAÐ VINNA
BUGÁ VANTRÚ
Að standa
uppi i hárinu á
náttúruöflunum