Morgunblaðið - 31.12.1996, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 31.12.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1996 C 25 FYRIR ÁRIÐ 1997 KRABBI (21. júní-22. júlí) KRABBANUM líður vel í vatni. Ekki láta það koma á óvart ef krabbinn stingur upp á því ár eftir ár að fara í sumarleyfi til staða sem standa við strönd, á siglingu um karabíska hafið eða í veiðitúr. Krabbinn er næmur, viðkvæmur og hlédrægur en er varkár. Hann fmnur til með öðrum og gefur ríkulega af sér. Krabbinn ætti að vara sig á að safna ekki upp kergju innra með sér. Krabbinn er heimakær með afbrigðum og vill oft dveljast í föðurhúsum langt fram að þrítugu og er mikill fjölskyldumaður. Krabbakarl hefur ríkan hæfileika til að skilja vandamál annarra og kann að láta fólki líða vel í kringum sig. Ef krabbi finnur að hann hefur ekki fengið næga tilfinningalega næringu i sinum uppvexti ætti hann að reyna að bæta úr því áður en hann fer að hjálpa öðrum. Þrátt fyrir að krabbakarlinn sé oft mjög karlmannlegur útlits þá kemur hann fram af blíðlyndi og mýkt við konur. Með því nær hann oft mun meiri árangri en með því að spenna vöðvana framan í kvenpeninginn. Krabbakonan er rómantísk kona sem kjörið er að fara með út í tungls- ljósið og hvísla að ástarorðum. Hún hefur ríka móðurtilfinningu og konur í stjórnarstöðum yfirfæra þær tilfinningar oft á undirmenn sína. 1997 verður annasamt og ánægjulegt ár hjá krabbanum. Hann mun verða mikið úti .á lífinu. Bogmaður og tvíburi gætu sett mark sitt á líf þitt og margir munu bera hag þinn fyrir brjósti. Þú gætir tekið upp á þvi að stokka upp fataskápinn hjá þér og tímabært er að skipta um hárgreiðslu. Ekki þýðir að láta íhaldssemina hlaupa með sig í gönur. Þú munt ferðast meira á þessu ári en mörg undanfarin ár auk þess sem heilsan og matar- æðið fær aukna athygli af þinni hálfu. Strax í janúar er ýmislegt farið að gerast, lögfræðingar koma við sögu, og sporðdreki kemur skríðandi inn í lif þitt. í febrúar eru nokkrar líkur á að þú fáir arf upp í hendurnar. Hafðu ætíð blað og blýant meðferðis því hugur þinn verður óvenju fijór. í mars kemur daður þér i koll og reyndu að vera meira heima en áður. Hjónabandið þarf athygli, flutningar eru fyrirséðir. í apríl er ráðlegt að leggja töluna 7 á minnið. í maí eru peningar og vinir á hveiju strái og samingar verða undirritaðir í júní. Ný ást sést við sjón- deildarhring en þó gæti samband sem þú ert þegar í fengið tímabæra upplyftingu. í ágúst þarft þú að búa þig undir að skilja tímabundið við ástvin. í nóvember mun sterkt ástarsamband koma við sögu og hafa áhrif á allt líf þitt eftir það. í desember eru jólin og þá er líka gott fyrir krabba að gifta sig. Frægt fólk í Krabbanum er meðal annars: Sylvester Stallone, Díana prinsessa, Mike Tyson, Tom Cruise, Robin Williams, Bjarni Arason, Bryn- dís Schram og Stefán Hilmarsson. STEINGEIT (21. desember - 20. janúar) HAGSÝNI, skipulagning, alvörugefni, íhaldssemi og skynsemi eru mann- kostir sem mörgum þykja jákvæðir en þó myndu flestir hugsa: skelfilega er hún leiðinleg þessi. Þetta eru einmitt nokkrar lýsingar á steingeitinni sem oft þykir frekar þung, stíf og köld og tilfinningalega lokuð auk þess sem hún á það til að vera frek. Steingeitur, samkvæmt þessu sækjast víst fæstir eftir félagsskap ykkar. Já, ykkur finnst ábyrgð heimsins hvíla á herðum ykkar . Þið eru eftirsóttar í stjórnunarstöður og verðið að hafa það hugfast að endrum og sinnum er nauðsynlegt að sækja heit böð til að slaka á. Helst þyrfti að senda ykkur á námskeið til að kenna ykkur að vera í fríi. Karlmaður í steingeitarmerkinu er yfirleitt talinn mesta karlmennið í dýrahringnum. Hann er vinnusamur og metnaðargjarn og kann best við sig þar sem karlar eru samankomnir og engir kvenmenn eru nálægt. Einka- lífið er yfirleitt í öðru sæti hjá geitarkarlinum en vinnan er númer eitt. Þetta getur svo breyst þegar geitin eldist og fer að hugsa betur um for- gangsröð hlutanna í lifinu. Þú hefur gamaldags viðhorf til kvenna og kona sem myndi hjálpa þér að ná árangri i þínu starfi væri kona að þínu skapi. Steingeitarmaður eldist vel og fríkkar með aldrinum. Steingeitarkonan getur virst viðkvæm eins og blóm, en hún er það sjaldnast heldur hið gagnstæða og þeir sem sjá þig taka þig strax sem dæmi um konu sem tekur lífið ákaflega alvarlega. Steingeitarkonan klæð- ir sig ákaflega fallega og stfllinn er svalur, hreinn og beinn. Þér líður best þegar þér finnst þú vera- að gera eitthvað, og kemur einhveiju áleiðis og gengur vel að nota hæfileika annarra til þess. Arið verður gott fyrr Steingeitina viðskiptalega séð og peningalyktin liggur í loftinu. Fjölmörg tækifæri bjóðast til vænlegra fjárfestinga uppúr miðjum febrúar og þú munt sjá skýrar um sumarið hversu arðbærar þær voru. Þú leyfir ástinni að streyma inn í líf þitt í apríl. Ferðalög innanlands koma til greina í mars. Heilsan og mataræðið skal skoðast vel snemma i júní til að þú verðir vel undirbúin fyrir seinni part mánaðarins en þá þarft þú að ljúka óvenju mörgum kreijandi verkefnum. Ef ástin hefur ekki knúð dyra nógu fast í apríl gefst annað tækifæri í nóvember. Þú lætur þig trú- mál skiipta á árinu. Enn ertu að græða peninga í lok árs og lýkur þar með ári sem var óvenju gott í alla staði. Frægt fólk í Steingeitinni er meðal annars: Anthony Hopkins, Denzel Washington, Nicolas Cage, David Bowie, Davíð Oddsson, Bjarni Felixson, Linda Pétursdóttir, Laddi og Ólafur Skúlason. UÓIM (23. júlí - 22. ágúst) UÓNIÐ er orkumikið, skapheitt og hlýtt en á það einnig til að vera stjórn- samt og eigingjamt. Það er fljótt að hugsa og á það til að vera enn fljótara að tala því orðin eru gjaman komin fram á varirnar áður en hugsunin er fullmótuð. Þetta getur komið ljóninu í vandræði. Ljónið er þó flestum merkjum stórhugaðra og vill flestum vel. Því finnst gott að liggja og hvíla lúin bein og láta aðra stjana við sig. Þar kemur tilætlunarsemin til skjal- anna en hún er einn af ókostum merkisins og getur skapað titring í sam- skiptum þess við annað fólk. Ljónið er þó traust, og gott er að eiga vin í ljónsmerkinu. Ljón em gjarnan góðir stjómendur því þau er bæði skap- andi og hugsjónamikil, þó stundum snúist stjórn þeirra upp í ráðríki. Tal- an fjórir á eftir að koma mikið við sögu á árinu og jafnvel mun annað ljón vera að kuðlast utan i þér stóran hluta ársins. Á nýju ári muntu ná aftur áttum í ástar- og peningarmálum. Umsvif í starfi munu aukast og þú ryður mörgum hindmnum úr vegi með hugvitsöm- um lausnum, sérstaklega ef þú passar þig á að ofgera ekki kröftum þínum því þér hættir stundum til að halda að bensínið á tanknum sé óþijótandi. Ef þér býðst tækifæri til að gera eitthvað nýtt og spennandi í janúar skalt þú grípa það. Ekki er ólíklegt að sóst verði eftir þér í vinnu og mun þá aðili annað hvort úr steingeitarmerkinu eða meyjunni hugsanlega banka á dyr þínar. Vertu viðbúinn óvæntum ánægjulegum atburðum 3. janúar og þann 30. en vertu á varðbergi þann 12. Þeir sem em í leit að maka ættu að setja sig í stellingar í febrúar en sá mánuður verður orkumikill og þú gætir orðið miðpunktur athyglinnar. í mars gæti þér tæmst arfur. Með hækkandi sól kemur ferðahugur í ljónin. Ef heilsan er í lagi ætti apríl að færa þeim peninga, ást og viðurkenningu og draumar gætu ræst í júní. Persóna úr vatnsberamerkinu gæti orðið ástleitin í mánuðinum. Þetta er giftingarmánuður ljónsins. Sýndu maka þínum hlýju og reyndu að styrkja viðskiptasambönd en hleyptu fólki ekki of nærri einkalífi þínu. Ljónið er sérstaklega áminnt um að hugsa um heilsuna þegar haustar. Fjölskyldan fær meira notið tíma þíns í október. Þegar áramótin nálgast er nauðsynlegt að ljónið sé sátt við gjörðir sínar það sem af er árinu. Einka- lífið gæti orðið öðram að umtalsefni og kynferðisleg útgeislun þín verður í hámarki. Passaðu þig á einum aðalveikleika þínum, að framkvæma áður en þú hugsar. Frægir einstaklingar í ljónsmerkinu em til dæmis Bill Clinton, Ma- donna, Antonio Banderas, Thor Vilhjálmsson, Rósa Ingólfsdóttir og Ámi Sigfússon. VATIMSBERI (20. janúar - 18. febrúar) VATNSBERAR kunna vel við opin svæði og rúmgóðar íbúðir þar sem gefst tækifæri til að innrétta að vild og breyta. Þegar vatnsberar fara út að borða sækja þeir á staði sem bjóða upp á framandi rétti og klæðnaður þeirra vekur alltaf athygli þó deilt sé um hvort hann sé smekklegur. Þeir hrífast af bláum litum og jafnvel skærbláum. Hugsun einkennir vatnsbera og hann á það til að gleyma sér í eigin heimi. Ekki er alltaf auðvelt að nálgast hann því honum líkar frelsið en vill gjarnan vera í Ijölmenni, þó sjálfstæði sitt taki hann fram fyrir hópefl- ið. Hann er víðsýnn og fastur fyrir og þarfnast lifandi umhverfis en á oft erfitt með að tjá tilfinningar sínar. Karlkyns vatnsberar em margir hjartaknúsarar og hafa ríkt aðdráttar- afl og oft ert þú fjöllyndur enda gefur þú fáum færi á að bijótast inn um skel þína og kynnast innri manni þínum. Fyrir karlmenn sem þurfa að hafa fyrir því að kynnast konu og stíga f vænginn við hana er vatnsbera- konan ákjósanlegt viðfangsefni. Hún er opin og villt á yfirborðinu en læt- ur engan ráða yfir sér og sýnir þá sitt rétta eðli. Margar vatnsberakonur em framúrstefnulegar og óútreiknanlegar. Góður starfsvettvangur vatns- bera er til dæmis sálfræði eða hjá félagsmálastofnun. Komandi ár á eftir að lifa í minningu þinni um ókomna tíð. Breytingar hafa átt sér stað i lífi þínu að undanfömu og opnað nýja velmegunarmögu- leika. Bjartsýni mun einkenna árið og þú munt takast á við nýjar upplifan- ir með bros á vör og þú munt jafnvel njóta þín vel í hverskonar félagsstarfi og þá er kirkjan fýsilegur kostur. Mælt er með að þú notir janúar og febr- úar til að fara i ferðalag því í mars verður líf þitt óstöðugt. Sjöunda febr- úar stendur þú frammi fyrir erfiðri ákvarðanatöku. Hvert skal halda? hvað á að gera næst? Afstaða sólar í mars mun hafa áhrif á fjármálin á neikvæð- an hátt, en þó aðeins tímabundið. Farðu þér hægt þann mánuð og haltu þig sem mest heima við. í aprfl og maí hækkar þú flugið og þér gengur vel í vinnu. Þú gætir þurft að höndla með ýmis mál eins og eignamiðlun ásamt öðru. Ástin kemur inn t líf þitt eins og þruma úr heiðskíra lofti í júní og þú ferð að eyða auknum tima úti á lífinu. Hugsaðu vel um heilsuna í júlí og láttu ekki sólina blekkja þig, það er stundum kalt úti. Tilfinningalíf itt þarfnast næringar í ágúst og í október ferðu þú í vel heppnað ferðalag. lok árs er við hæfi að eyða tíma með þínum nánustu og það skalt þú gera. Frægt fólk í vatnsberanum er meðal annars: Karólína prinsessa, Axl Rose, John Travolta, Burt Reynolds, Michael Jordan, Elín Pálmadóttir, Stefán Jón Hafstein og Valgeir Guðjónsson. MEYJA (23. ágúst-22. september) ÞAÐ er ekkert nýtt að meyjur séu smámunasamar ogjarðbundnar, nákvæm- ar, yfirmáta gagnrýnar, haldnar fullkomnunaráráttu og hreinlegar en þann- ig eru þær víst, blessaðar. Þær em iðnar og vilja hafa nóg fyrir stafni og þurfa að fást við fjölbreytileg viðfangsefni. Meyjan er skipulögð og hefur viðskiptahæfileika. Ef tfna ætti til neikvæðar hliðar á persónuleika hennar er rétt að minnast á að hún á það til að nöldra og vera of sjálfs- gagnrýnin en þessir eiginleikar geta þó nýst á jákvæðan hátt. Meyjan er þekkt fyrir vönduð vinnubrögð og er iðin og dugleg og helst vilja þær aldrei taka sér frí. Sjálfsgagnrýni hennar getur gengið út í öfgar en hún er oftast að minnnsta kosti helmingi hæfari en hún telur sjálf. Meyjan mun oftar en einu sinni á komandi ári standa á krossgötum i ákvarðanatöku þar sem velja þarf á milli tveggja góðra valkosta. Ef Meyj- an er ekki að sýnast önnur en hún er á árinu og er ekki í of miklum til- vistarhugleiðingum ætti árið að verða árangursríkt og happasælt. Ef þú T ert einhleyp þá er þetta rétta árið til að fara að festa ráð sitt og að öðra leyti er árið sneisafullt af spennu og skemmtilegheitum. Þú munt eiga samband við opinberar skrifstofur í janúar. Lykilorð árs- ins em breytingar og ferðalög. Þú verður að slaka aðeins á til að átta þig á öllu sem mun gerast. í janúar snýst lífið að mestu leyti um lífsstíl þinn og hvar þú býrð. Hitt kynið knýr dyra og peningar koma við sögu. Sam- band verður til en endar skjótt og þú verður að reyna að læra af þeirri reynslu. I febrúar mun samband þitt fá á sig brotsjó en standast hann og líf þitt mun annars að mestu snúast um starfsframa. Fiskar og meyjur verða áhrifavldar í mánuðinum, reyndu að hafa ekki samskipti við fólk sem telur sig eiga þig vísa eins og hvert annað verkfæri. { mars færist fjör í leikinn. Talan 8 mun_ færa þér gæfu og þér standa allir vegir færir til að koma þér á framfæri. I apríl gæti þér tæmst arfur og þú kemst að því að einhver þér nákominnn er verr staddur peningalega en þú hélst. Ekki hætta við ferð til útlanda. í maí er upplagt að byija á ein- hverju nýju og fara nýjar leiðir. Þér mun verða boðið að taka þátt í verk- efnum þar sem blandað er saman hugviti og vísindum. Þetta gæti verið upphaf að nýjum'tímum þar sem þú hefur lykilhlutverki að gegna. Tengsl- in við útlön em sterk og peningar koma við sögu. Vertu á varðbergi í nóvember. Fólk mun segja þér eitthvað en dragðu í efa sannleiksgildi frá- sagnanna, fylgdu hjarta þínu. í desember munu öll púsl falla á réttan stað og happatalan er 8. Þetta verður frábært ár. Frægt fólk í meyjunni er meðal annars: Tommy Lee Jones, Michael Jackson, Sean Connery, Claudia Schiffer, Rachel Welch, Atli Heimir Sveins- son, Einar Már Guðmundsson, Ómar Ragnarsson, Steinunn Sigurðardóttir, Edda Björgvinsdóttir. FISKAR (19. febrúar - 20. mars) FISKAR hafa fogur augu. Fiskurinn er næmur og hefur oft ríkt innsæi. Listrænn er hann og með myndræna hugsun og ákaflega skilningsríkur þannig að oft keyrir um þverbak þegar hann vill gera öllum til geðs en gleymir þá um leið að rækta sjálfan sig. Hann vill hverfa inn í eigin heim og dreyma dagdrauma og er stundum áhrifagjam og tvístígandi i ákvarð- anatökum. Kona í fiskamerkinu á auðvelt með að verða ástfangin og er gefm fyrir spennu og dulúð. Listamenn em margir fískar. Karlfiskar era gjaman ævintýragjarnir og raða þeim ofar á forgangslist- ann en öryggi og stöðugleika. Þeir geta látið ósköp hversdaglega hluti og, aðstæður í rómantískan búning. Þegar hann finnur sér vinnu, þar sem hæfileikar hans em metnir að verðleikum, blómstrar hann. Ef þú átt eiginmann sem er fiskur þarftu að vera dugleg að gefa honum jákvæða örvun og trúa á hann í einu og öllu annars verður hann óöraggur. í staðinn gefur hann þér blíðu og verður duglegur við að viðhalda róman- tíkinni í sambandinu. Fiskakonan elskar að vera ástfangin. Hún getur leikið tvær rullur í hjóna- bandinu. Bæði verið eiginkona þín og hjákona en fiskakonan hefur verið kölluð hættulegasta kona af dýrahringnum því hún á auðvelt með að fá karlmenn tl lags við sig og margar þjóna hlutverki hjákonunnar. Það er uppskerutími framundan hjá fiskum, nánar tiltekið í febrúar. Þá mun vinna sem fiskar hafa innt af hendi á árinu á undan skila sér til baka með ávöxtun. Júpiter er að sigla inn í ellefta hús og það mun hafa töluvert miklar afleiðingar. Vertu á varðbergi og hafðu þig lítt í frammi í kringum 9. mars og 16. september. Árið mun bera góðan ávöxt í fjármál- um og þú mætt jafnvel eiga von á að fá óvæntan pening upp í hendum- ar. Þessi velgengni þín mun sjálfsagt ala á öfund hjá einhveijum kunningj- um þínum og tilfinningar þínar gætu særst vegna slúðurs. Ekki kvíða' þessu þvi allt mun fara vel að lokum. í apríl gætu ýmsir möguleikar opn- ast og þú munt taka stórar ákvarðanir. Reyndu að leggja þig allan fram f starfi í maí og í júní, það ber árangur. Ástarlífið mun blómstra í júlí, og fiskar gleyma þá öllu öðm á meðan heitustu blossamir ganga yfir og heilsan gæti batnað í ágúst. Tekjuauki mun enn eiga sér stað í október og undir lok árs verður allt viðmót í þinn garð vinsamlegt. Frægt fólk í fiskamerkinu er meðal annars: Cindy Crawford, Michael Eisner, Fabio, Smokey Robinson, Drew Barrymore, Michael Bolton, Billy Cristal, Kurt Russel, Ámi Johnsen, Hannes Hóimsteinn Gissurarson, Val- gerður Matthíasdóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.