Morgunblaðið - 01.02.1997, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMINGAR
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997 37
RAGNAR ÁGÚST
BJÖRNSSON
-4- Ragnar Björns-
■ son var fæddur
á Isafirði 1. ágúst
1909. Hann andað-
ist á Sjúkrahúsi
Suðurnesja 24. jan-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Björn Hall-
grímsson; skip-
stjóri á Isafirði, f.
21. febrúar 1876,
d. 27. september
1953, og Stefanía
Magnúsdóttir, f. 7.
september 1878, d.
2. janúar 1916.
Björn kvæntist síðar Kristínu
Guðmundsdóttur. Systkini
Ragnars voru Hallgrímur
Björnsson, Magnús Björns-
son, Björn Björnsson, Stefán
Björnsson og Liya Björns-
dóttir.
Hinn 1. desember 1935
kvæntist Ragnar Jensínu
Jónsdóttur, f. 17. janúar 1915,
d. 12. febrúar 1987. Dætur
þeirra eru: 1) Stefanía, maki
Gunnar Albertsson, þau búa
í Garðabæ, börn: Ragnar, Lísa
Kristín og Þór-
unn. 2) Kolbrún,
maki Jón Sigurðs-
son, þau búa í
Tókýó, börn:
Berglind og
Ragna Björk.
Barnabarnabörn-
in eru þrettán og
Ragnar átti eitt
barnabarna-
barnabarn.
Ragnar lauk
hinu meira fiski-
mannaprófi frá
Stýrimannaskó-
lanum við Öldu-
götu árið 1942. Hann var skip-
stjóri frá 1934 til ársins 1949,
hafnarstjóri í Landshöfn
Keflavíkur og Njarðvíkur frá
1950 til ársins 1979 þegar
hann lét af störfum sökum
aldurs. Ragnar var ávallt
virkur félagi í Rotaryklúbbi
Keflavíkur, forseti hans eitt
tímabil og heiðursfélagi undir
lokin.
Útför Ragnars fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Við afi vorum alltaf mjög nán-
ir og nú þegar hann er látinn riij-
ast upp margar minningar og
söknuðurinn er mikill.
Eg var vanur að fara í ferðalög
með afa og ömmu Dídí sálugu.
Þá var ýmist farið í hjólhýsið
þeirra á Laugarvatni eða í sumar-
bústað í Munaðarnesi. Við afi fór-
um í sund hvern morgun og stund-
uðum göngutúra þar sem hann
miðlaði af viskubrunni sínum og
sagði mér ótalmargar skemmti-
legar sögur. Afi virtist kunna sög-
ur af hverjum hól og oftar en
ekki bjuggu þar álfar og huldu-
fólk. A kvöldin var hann síðan
vanur að lesa fyrir mig sögur úr
Islenskum þjóðsögum og voru það
helst konunga- og draugasögur
sem heilluðu barnshjartað. Á
ferðum okkar um landið var afi
vanur að telja upp öll helstu ör-
nefni og staðarnöfn sem á okkar
vegi urðu og þegar haldið var
heim á leið þurfti ég helst að
muna öll nöfn sem hann hafði
áður upp talið.
Það eru ótalmargar góðar
minningar sem ég á um hann afa
og væri það of langt mál að telja
þær allar upp hér, en það sem
eftir stendur er minningin um
góðhjartaðan, þolinmóðan og
kærleiksríkan mann sem alltaf
var til staðar þegar ég þurfti á
honum að halda.
Mér þykir leitt að dóttir mín
skyldi ekki fá að njóta lengri
kynna við langalangafa sinn, en
HÓLMFRÍÐ UR
ENIKA
MAGNÚSDÓTTIR
+ Hólmfríður Enika Magnús-
dóttir fæddist í Bolungarvík
6. mars 1915. Hún lést í Fjórð-
ungssjúkrahúsi ísafjarðar 19.
janúar síðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Isafjarðar-
kirkju 25. janúar.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
(S.Kr. Pétursson.)
Elsku amma. Okkur systkinin
langar að kveðja þig með fáeinum
minningarbrotum. Það er af
mörgu taka, stundir sem við átt-
um saman, ýmist hjá ykkur afa
í Þvergötunni á ísafirði eða í
Reykjavík hjá mömmu og pabba.
Það var alltaf jafn gaman að
koma til ykkar og fá ykkur í heim-
sókn. Við minnumst þess hve Ijúf
og góð þú varst okkur. Þú varst
svo iðin við alls kyns föndur og
hannyrðir, það voru ófáir sokk-
arnir og vettlingarnir sem komu
frá þér. Koddaverin sem þú keppt-
ist við að klára í haust, handa
litla fólkinu þínu í jólapakkana,
munum við varðveita vel. Þú gafst
þér ávallt tíma til að hlusta á
okkur er við vorum lítil og ekki
síður er við uxum úr grasi. Þú
varst vakin og sofin yfir velferð
okkar, maka og barnanna. Þú
fylgdist vel með okkur, varst sí-
fellt með hugann hjá okkur og
fylgdist vel með hvernig okkur
vegnaði. Við minnumst þess þeg-
ar við heimsóttum þig í vinnuna
í Kaupfélaginu, þar sem við feng-
um að hjálpa þér að pakka ávöxt-
um. Við minnumst ferða með
ykkur afa í berjamó og tjaldúti-
legu. Það eru dýrmætar minning-
ar sem við munum varðveita.
Ferðir hér fyrir sunnan. Dvöl í
sumarhúsi á Flúðum. Heimsóknir
til ykkar afa, er þið voruð að
slappa af á Heilsuhælinu í Hvera-
gerði. í sumarhúsinu hennar Úllu
í Borgarfirðinum og þannig gæt-
um við haldið lengi áfram. Þið
afi höfðuð gaman af ferðalögum,
bæði hér heima og erlendis. Þú
varst svo ótrúlega dugleg að ferð-
ast, þó þú ættir við erfiðan sjúk-
dóm að stríða.
í byrjun desember veiktist þú
alvarlega og 19. janúar síðastlið-
inn kvaddir þú. Okkur þykir það
sárt, að hafa ekki getað fylgt þér
síðasta spölinn, en veðurguðirnir
sáu til þess að ekki var fært til
ísafjarðar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku afi, guð gefi þér styrk.
Ragnar og Anna Kristín.
hún var mjög hrifin af honum.
Við lát afa míns missti ég einn
af mínum bestu vinum.
Rúnar Marinó.
Elsku afi, nú hefurðu kvatt
þennan heim og haldið til þess
næsta. Hvort sem þar búa æsir
sem beijast og drekka sér til
skemmtunar, eða himnaríki með
eilífri sælu muntu allavega hitta
gamla vini og eiga góðar stundir.
Sem barn vandi ég ferðir mínar
til ykkar ömmu og ávallt var mér
vel tekið. Iðulega sátum við bræð-
urnir í fanginu á þér og hlustuðum
á þjóðsögurnar. Með lestrinum
vaktirðu hjá mér forvitni og
áhuga á bókum og bókmenntum
sem ég hef enn og kann ég þér
mikla þökk fyrir.
Þau tíu ár sem við bjuggum
saman í kjallaranum á Skólavegi
2 var mér ómetanlegur tími. Þú
varst alltaf til staðar þegar ég
vildi spjalla, eða einfaldlega sitja
og hugsa í kyrrðinni í stofunni
við óminn í Útvarp Reykjavík.
Vinir mínir sem eru rúmum sex-
tíu árum yngri en þú voru ávallt
velkomnir og fannst þeim gaman
að geta spjallað við þig um ætt-
fræðina og „hvurra manna“ þeir
væru nú.
í sálfræðinni er talað um geð-
tengsl milli barns annars vegar
og foreldra hins vegar, en ég
held ég geti fullyrt að geðtengsl
hafi myndast milli okkar, því við
fráhvarf þitt vantar ákveðinn
hluta í tilveru mína sem ekki er
svo auðveldlega fylltur, nema þá
kannski af börnum mínum í fram-
tíðinni.
Líði þér sem allra best á nýja
staðnum og skilaðu kveðju minni
til hins æðsta góða hver sem það
er.
Fylgd
Þetta er aðeins
örstutt leið,
ekki svipstund
milli dauðans og
lífsins,
en gjama hefði ég
viljað fylgjast með þér
þann spöl.
(Þorgeir Sveinbj.)
Róbert Ragnarsson.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í texta-
meðferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað. Þá er enn fremur
unnt að senda greinarnar í
símbréfi (5691115) og í tölvu-
pósti (MBL@CENTRUM.IS).
Auðveldust er móttaka svo-
kallaðra ASCII skráa sem í
daglegu tali eru nefndar
DOS-textaskrár. Þá eru rit-
vinnslukerfin Word og Word-
Perfect einnig nokkuð auð-
veld úi’vinnslu.
Um hvern látinn einstakl-
ing birtist ein uppistöðugrein
af hæfilegri lengd, en aðrar
greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og
hæfilega línulengd, - eða
2200 slög (um 25 dálksenti-
metra í blaðinu). Tilvitnanir í
sálma eða ljóð takmarkast við
eitt til þrjú erindi. Greinarhöf-
undar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
ÓSKAR GUIDO
BERNHÖFT
-I- Óskar Guido
' Bernhöft var
fæddur í Kirkju-
hvoli við Kirkju-
torg 16. júlí 1901.
Hann lést í Reykja-
vík 23. janúar síð-
astliðinn og fór út-
för hans fram frá
Dómkirkjunni í
Reykjavík 30. jan-
úar.
Elsku afi minn,
Guido.
Það er svo erfitt
núna, jafnvel erfiðara
en þegar ég og Ragnar frændi
vorum hjá þér þegar þú skildir
við. Söknuðurinn er svo sársauka-
fullur, eins og steinn í hjartanu.
Ég trúði því nú samt þegar ég
hallaði aftur augunum þínum að
nú liði þér vel í faðmi ömmu og
annarra ástvina sem tekið hafa á
móti þér opnum örmum.
Þú varst svo sterkur, afi minn,
þegar þú lærbrotnaðir í nóvember
sl., lést aldrei bugast, alltaf hélst
þú reisn þinni og á þinn virðulega
hátt sagðir þú alltaf að þér liði
svo „Ijómandi vel“. Við sem
þekktum þig, vissum að þú leiðst
oft sárar kvalir.
í mínum augum ert þú einstak-
ur maður. Jákvætt skaplyndi þitt
smitaði af sér hvar sem þú fórst,
að eiga afa sem ávallt gladdi er
gullsins vert.
Sú virðing í þinn garð sem við
fjölskyldan berum til þín er mik-
ií, snyrtimennskan og aðdáun fyr-
ir því sem fallegt er, verður okkur
sem leiðarljós í gegnum lífið.
Ég naut þess að dúlla við þig,
afi minn, þegar þú baðst mig um
það og er ég orðin snillingur í
rakstri eftir að þú lást á spítalan-
um. Við mamma nutum þess að
hafa þig fínan, þannig leið þér
best.
Mamma og Ragnar hafa stutt
við þig eins og klettar beggja
vegna og veit ég að þú leiðir öll
spor þeirra í lífinu framundan,
þeim er ég ómetanlega þakklát.
Ég kynntist þér sennilega best,
afi minn, á aðfangadagskvöld árið
1995. Þú vildir alltaf vera kominn
á Hamarsgötuna fyrir messu
klukkan sex, en þetta kvöld vor-
um við eitthvað sein fyrir og þú
komst út í bíl til mín og við biðum
eftir Ragnari. Við horfðum á ný-
fallinn snjóinn sem var eins og
gullregn í kyrrðinni. Stóíska róin
yfir þér færði mér
þann frið sem allir
þrá, en fæstir upp-
lifa. Jólin fyrir mér,
var þessi stund með
þér, afi minn. Ég
vissi að þegar kirkju-
klukkurnar byrjuðu
að hringja inn jólin
og við sátum þarna í
bílnum var hugur
þinn hjá ömmu.
Næstu jólum eyðið
þið saman í örmum
Guðs. Við töluðum
oft um þessa nota-
legu stund sem við
áttum saman og hefur hún kennt
mér að hvert augnablik í lifinu
er lífið sjálft.
16. júlí 1996 var skemmtilegur
dagur, 95 ára afmælisdagurinn
þinn, þú alltaf jafn „grand“ og
lést þig ekki muna um að taka á
móti hundrað gestum. Það var
yndislegt að hafa þig hjá okkur
yfir jólin og ótrúlegt að þú skyld-
ir halda jólaræðuna við matar-
borðið, það var meira en við héld-
um að þú treystir þér til.
Sunnudeginum 19. janúar
gleymum við seint, en þá komst
þú heim til mömmu og pabba og
áttum við fjölskyldan yndislegan
dag með þér. Ég veit að mamma
er þessa dags ævinlega þakklát.
Áfi minn, svo fékkst þú flensu
sem varð þínu heita hjarta ofraun.
Birnir, Þórður Orri, Kristín
Hlín og ég kveðjum þig með mikl-
um söknuði, þú ert okkar leiðar-
ljós í lífinu og við vitum að þú
og amma vakið yfir okkur.
Elsku mamma, pabbi, Ragnar
og Óli frændi, ykkar vinsemd og
hlýja í garð afa lýsti langar leiðir
og mun sú birta fylgja ykkur
ævilangt. Að bera höfuðið hátt
við allar aðstæður hjálpar við að
sigrast á erfiðleikum lífsins, að
láta aldrei bugast við mótlæti.
í sátt við alla menn kveður þú
þennan heim, elsku afi, þínu hlut-
verki er lokið. Hafðu þökk fyrir
allt og allt, hvíl í friði, elsku afi
Guido.
Nú legg ég augun aftur
6, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Þín dótturdóttir,
María Fjóla Pétursdóttir.
MEG frá ABET
UTANÁHÚS
FYRIRLIGGJANDI
Þ. ÞORGIIÍMSSON & CO
ARMULA 29 • PÓSTHOLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
S1MI 553 8640 568 6100
JÖL Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD,
FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333.