Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 1
fiArmAl | Æ TÖLVUR EES
Hagvöxtur í heimi Váskeytt er L- T J i * J sex þúsund störf %^jl
hér og ísland/4 A B C D E F G far flásu/5 í boöi /8
JMtvguttWftbifc
NYHERJI hf.
^^ Úr reikningum 1996
Rekstrarreikningur Mnijónir króna. 1996 1995 Breyt.
Rekstrartekjur 1.696 1.489 +13,9%
Rekstrarqjöld 1.773 1.438 +23,3%
Rekstrarhagnaður (tap) (80) 51 -
Fjármagnsgjöld 9 12 -25,0%
Hagnaður fyrir skatta (111) 39 -
Hagnaður ársins (tap) (105) 34 -
Efnahagsreikningur 31. des.: 1996 1995 Breyt.
I Eianir: I Milljónir króna
Veltufjármunir 606 698 -13,2%
Fastafjármunir 237 266 -10,9%
Eignir samtals 843 964 -12,6%
I Skuldir oa eiaiO fé: I Milljónir króna
Skammtímaskuldir 321 459 -30,1%
Langtímaskuldir 267 129 107,0%
Eigið fé 254 376 -32,4%
Skuldir og eigið fé samtals 843 964 -12,6%
Kennitölur 1996 1995
Eiginfjárhlutfall Milljónir króna 30% 39%
Veltufjárhlutfall 1,90 1,52
Arðsemi eigin fjár 11,6%
Veltufé frá rekstri (43,6) 84,1
10% hækkun hluta-
bréfa frá áramótum
Erfítt ár að baki hjá Nýherja hf.
Tapið nam
105 milljónum
Sameining
SKRIFAÐ hefur verið undir sam-
komuiag um sameiningu alnets-
fyrirtælqanna Miðheima ehf. og
Skimu ehf. Eigendur hins nýja
félags eru Miðheimar hf., Skima
hf., Opin kerfi hf., sem nýverið
keyptu 75% i Miðheimum, Frjáls
fjölmiðlun hf., sem nýlega festi
kaup á 50% í Skímu, og Þróunar-
félag íslands. /2
Kögun
VELTA hugbúnaðarfyrirtaekj-
anna Kögunar hf. og dótturfé-
lags þess Kögurness hf. nam 216
milljónum á síðastliðnu ári, sam-
anborið við 168 miHjónir árið
áður. Aukningin, sem nemur
tæpum 30%, er mestöll vegna
nýrra verkefna er fyrirtækið
hefur aflað sér erlendis í krafti
sérþekkingar sinnar á þröngu
sviði hugbúnaðar./2
Teymi
TEYMI hf., umboðsaðili Oracle-
hugbúnaðar á íslandi, skilaði alls
um 8,4 milljóna króna hagnaði
eftir skatta á árinu 1996, sem
var fyrsta heila starfsár fyrir-
tækisins./2
SÖLUGENGI DOLLARS
MJÖG mikil viðskipti voru með
hlutabréf í mörgum fyrirtækjum
á Verðbréfaþingi og Opna tilboðs-
markaðnum í gær og seldust bréf
fyrir tæpar 165 milljónir króna,
sem er með þvi mesta sem selst
hefur á þinginu á einum degi frá
upphafi. Hlutabréfavísitalan
hækkaði einnig verulega eða um
1,82% og hefur þá hækkað um
10,49% frá áramótum.
Mest voru viðskipti með bréf í
Haraldi Böðvarssyni 26,2 milljónir
króna í SR-mjöli 19,1 milljón og
í Skeljungi 17,4 milljónir króna.
Gengi hlutabréfa í mörgum félög-
um hækkaði talsvert. Þannig
hækkaði gengi hlutabréfa í Eim-
skip um 3,53%, í Granda um
3,90%, í Olíufélaginu um 4,12%
og í Þróunarfélaginu um 10% svo
dæmi séu tekin af handahófí.
NÝHERJI hf. tapaði 105 milljónum
króna á síðastliðnu ári, samanborið
við 34 milljóna króna hagnað árið
1995. Tapreksturinn má rekja til
óreglulegra gjaldaliða að upphæð
70 millj. króna, taps vegna sölu-
brests á fyrri hluta árs og úreltra
birgða, samtals um 52 milljónir
króna, og að rekstrarkostnaður fór
20 milljónir fram úr áætlun að
sögn forráðamanna fyrirtækisins.
Rekstrartekjur Nýheija jukust um
14% frá fyrra ári og námu 1.700
milljónum króna. Heildartekjur,
eða tekjur að meðtaldri umboðs-
sölu fyrir IBM, námu hins vegar
2.039 milljónum.
Samkvæmt áætlunum var gert
ráð fyrir að Nýheiji hf. myndi skila
44 milljóna króna hagnaði á síð-
asta ári. Frosti Siguijónsson, for-'
stjóri fyrirtækisins, segir að um
mitt ár hafi tapið reyndar numið
108 milljónum, en margvíslegar
aðgerðir, sem þá var ráðist í, hafi
gert fyrirtækinu kleift að halda sjó
á síðari hluta ársins. Samkvæmt
áætlunum sé gert ráð fyrir 55
milljóna króna hagnaði af rekstrin-
um á þessu ári.
Frosti segir að í óreglulegum
gjaldaliðum vegi þyngst töpuð
hlutafjáreign og viðskiptakröfur
Nýheija hjá íslenska sjónvarpinu
hf., samtals um 30 milljónir króna,
sem afskrifuð voru að fullu á ár-
inu. „Kostnaður við starfsloka-
samninga, sem gerðir voru við frá-
farandi stjórnendur, nam 14 mill-
jónum króna og stofnkostnaður við
nýja verslun, Tölvukjör, nam um
10 milljónum. Þá voru varahluta-
birgðir afskrifaðar að upphæð 15,5
milljónir króna vegna úreldingar.
Aætlanir um sölu framan af ári
brugðust og því var mikið til af
búnaði á lager sem nauðsynlegt
reyndist að selja undir kostnaðar-
verði.“
Hlutverk endurskilgreint
Frosti segir að þær aðgerðir,
sem ráðist var í um mitt ár til að
rétta af rekstur fyrirtækisins, hafi
nú þegar skilað góðum árangri.
„Fyrirtækið leggur nú áherslu á
að einbeita sér markvisst að höf-
uðhlutverki sínu og þegar hefur
verið seldur rekstur sem ekki fell-
ur undir það. Dregið hefur verið
úr yfirbyggingu fyrirtækisins,
innkaup og birgðastjórnun tekin
föstum tökum og dregið úr rekstr-
arkostnaði með sparnaðarátaki.
Markaðsmál hafa verið samræmd
með ráðningu markaðsstjóra og
fréttabréf og vörulisti koma nú
reglulega út. Áhersla á sölu IBM
tölvubúnaðar hefur verið aukin
með góðum árangri og jafnframt
aukið mjög við þekkingu tækni-
deildar á Microsoft hugbúnaði og
netkerfum. Þá hefur mikill árang-
ur náðst í þróun og sölu á hóp-
vinnukerfum í Lotus Notes,“ segir
Frosti.
Það vakti nokkra athygli í tölvu-
heiminum í mars á síðasta ári er
Gunnar M. Hansson, þáverandi
forstjóri Nýheija, ákvað að segja
starfi sínu lausu. Frosti tók síðan
við forstjórastöðunni 15. maí.
Peningabréf
- jöfn og örugg ávöxtun
Peningabréf eru kjörin leið fyrir þá sem vilja festa fé til skamms tíma, s.s. fyrirtæki, sjóði,
sveitarfélög, tryggingarfélög og einstaklinga.
Peningabréf eru laus til útborgunar án kostnaðar þegar 3 dagar eru liðnir frá kaupum.
Yfir einn og hálfur milljarður í öruggum höndum. Láttu lausaféð vinna fyrir þig.
íf
Nafnávöxtun sl. 5 daga 6,91%
Nafnávöxtun sl. 10 daga 6,92%
Nafnávöxtun sl. 30 daga 6,81%
Aðeins eitt símtal.
nýttu þér ráðgjafaþjónustu okkar og umboðsmanna okkar
í öllum útibúum Landsbanka íslands.
y LANDSBREF HF.
- 'it fh
Löggilt veröbréfafyrirtœki.
Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
SUÐURLANDSBRAUT 2
108 REYKJAVIK. SIMI 535 2000, BREIASIMI 5 3 5 2 0 0 1