Morgunblaðið - 13.02.1997, Page 2
2 B FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Velta hugbúnaðarfyrirtækjanna Kögunar hf. og Kögurness ehf. jókst um 30% á síðasta ári
Erlend verkefni vega
upp samdrátt innan lands
VELTA hugbúnaðarfyrirtækjanna Kögunar hf.
og dótturfélags þess Kögumess hf. nam 216
milljónum á síðastliðnu ári, samanborið við 168
milljónum árið áður. Aukningin, sem nemur
tæpum 30%, er mestöll vegna nýrra verkefna
er fyrirtækið hefur aflað sér erlendis í krafti
sérþekkingar sinnar á þröngu sviði hugbúnaðar.
Kögun hf. var stofnað árið 1988 í því skyni
að sinna hugbúnaðargerð vegna loftvamakerfis
Atlantshafsbandalagsins. Frá stofnun hefur fyr-
irtækið haft meginhluta tekna sinna af þátttöku
í smíði hugbúnaðar fyrir íslenska loftvamakerf-
ið. Vinnu við uppsetningu hugbúnaðarins er nú
að ljúka en Kögun sinnir viðhaldi hans sam-
kvæmt sérstökum samningi. Vegna þessara
verkefna hefur orðið til sértæk þekking á þröngu
sviði hátækni innan Kögunar, aðallega á sviði
hugbúnaðar fyrir flókin loftvamakerfí. Þessa
þekkingu hefur Kögun hf. notfært sér til að
afla sér nýrra verkefna erlendis og m.a. stofnað
sérstakt fyrirtæki, Kögumes ehf., í því skyni.
Gunnlaugur Sigmundsson, framkvæmda-
stjóri Kögunar, segir að ákveðið hafi verið að
setja kraft í að afla nýrra verkefna erlendis
þegar sýnt þótti að tekjur fyrirtækisins vegna
ratsjárstöðvanna yrðu væntanlega einungis
vegna hefðbundins viðhalds og færu því lækk-
andi. Ekki sé hægt að segja annað en sú við-
leitni hafi borið góðan árangur hingað til.
Velta Kögunar hf. og Kögumess ehf. jókst
um tæp 30% milli áranna 1995 og 1996 eða
úr 168 milljónum í 216. Velta ársins 1995 var
nær öll vegna verkefna fyrir ratsjárstöðvarnar
og veltuaukningin milli ára skýrist einvörðungu
af nýjum verkefnum erlendis. Af 216 milljóna
króna veltu í fyrra voru 140 milljónir vegna
loftvarnakerfisins en um 76 milljónir vegna
nýrra verkefna erlendis að sögn Gunnlaugs.
„Hefðbundin verkefni vegna loftvarnakerfísins
hafa dregist saman á síðastliðnum árum og eru
að komast í jafnvægi en tekjumar vegna þeirra
verða þó áfram bakhjarl fyrirtækisins. Okkur
gekk vel að afla verkefna á síðasta ári og öll
viðbótin er vegna þeirra. Fyrirtækjasamsteypan
Kögun/Kögurnes stefnir auðvitað að því að
halda hlut sínum í verkefnum erlendis og helst
að auka hann en engu er þó að treysta í þeim
efnum. Þetta er harður bransi þar sem allt
snýst um útboð þannig að verkefnastaðan get-
ur sveiflast upp og niður.“
60% fjölgun starfsmanna
Vegna aukinna verkefna erlendis fjölgaði
starfsmönnum Kögunar og Kögurness um 60%
á síðasta ári, úr 23 í 37. Gunnlaugur segir að
þetta sé mikill vöxtur fyrir ekki stærra fyrir-
tæki en helsta vandamálið hafi verið að fá
hæfa forritara til starfa.
Hagnaður fyrirtækjasamsteypunnar á síð-
asta ári verður ekki gefinn upp fyrr en á aðal-
fundi, sem haldinn verður í mars. Gunnlaugur
segir þó að hagnaðurinn aukist verulega á
milli ára en árið 1995 nam hagnaður af rekstri
fyrirtækjanna 21 milljón króna eftir skatta.
Hagnaðaraukningin sé mest vegna þeirra verk-
efna, sem fyrirtækin hafi aflað sér erlendis.
Miðheimar og
Skíma sameinuð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
AÐ SOGN Arnþórs Jónssonar, framkvæmdasljóra Miðheima og
Dagnýjar Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra Skimu, mun hið
nýja fyrirtæki veita viðskiptavinum sínum sömu þjónustu og áður.
SKRIFAÐ hefur verið undir sam-
komulag um sameiningu Miðheima
ehf. og Skímu ehf. Eigendur hins
nýja félags eru Miðheimar hf.,
Skíma hf., Opin kerfí hf., sem ný-
verið keyptu 75% í Miðheimum,
Frjáls íjölmiðlun hf., sem nýlega
festi kaup á 50% í Skímu, og Þróun-
arfélag Islands.
Að sögn Amþórs Jónssonar,
framkvæmdastjóra Miðheima ehf.,
hafa viðræður milli Miðheima og
Skímu staðið yfir í langan tíma en
fyrirtækin eru bæði með þjónustu
á alnetinu. Miðheimar hafa aðallega
þjónustað einstaklinga meðan
Skíma hefur helst unnið fyrir fyrir-
tæki. Arnþór segir að starfsemi
fyrirtækjanna falli mjög vel saman
og rekstur þeirra verði óbreyttur
hvað þjónustu varðar. „Við bjóðum
áfram einstaklingum og fyrirtækj-
um upp á tengingar við aínetið og
tölvupósttengingar. Eins ætlum við
að fara á fullum krafti í upplýs-
ingamiðlun, s.s. vefsíðugerð og
gagnagrunnmiðlun."
Aðspurður sagði Arnþór að heild-
arvirði fyrirtækisins verði í byijun
um 80 milljónir króna.
Dagný Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Skímu, verður fram-
kvæmdastjóri hins nýja félags og
segir hún að það hafí þegar tekið
til starfa en skrifað var undir samn-
ing um sameiningu fyrirtækjanna
síðastliðinn miðvikudag og lögform-
lega verður gengið frá samrunanum
í næstu vikum. Um dreifða eignar-
aðild að fyrirtækinu er að ræða og
ekki sé frágengið hvert verði nafn
þess. Aætlað er að starfsmönnum
verði fjölgað og þeir verði um
fimmtán talsins.
Þróunarfélagið með um 12%
Hreinn Jakobssonj framkvæmda-
stjóri Þróunarfélags Islands hf., seg-
ir að Þróunarfélagið muni vænt-
anlega eiga um 12% hlut í fyrirtæk-
inu en það komi inn sem fagfjárfest-
ir. „Þróunarfélagið er ijárfestingar-
fyrirtæki og á hlutabréf í mörgum
stórum fyrirtækjunum á sviði upp-
lýsingatækni. Meðal þeirra eru Opin
kerfí, Tæknival og Nýherji. Auk
þess eigum við í ýmsum hugbúnað-
arfyrirtælqum, s.s. Taugagreiningu,
Gagnalind og Tölvusamskiptum.
Þannig að upplýsingatækni hefur í
alllangan tíma verið eitt af okkar
meginfjárfestingarsviðum. Við höf-
um mikla trú á innlendum tölvufyrir-
tækjum þannig að eignaraðild okkar
í þessu nýja fyrirtæki er í samræmi
við okkar fjárfestingarstefnu. Þró-
unarfélagið hefur leitað lengi að
áhugaverðri fjárfestingu á sviði
margmiðlunar og tölvusamskipta.
Ekkert hefur orðið af því fyrr en
núna en við höfum mikla trú á þessu
fyrirtæki, sem virðist hafa alla burði
til að láta verulega að sér kveða á
þessu sviði,“ segir Hreinn Jakobsson.
Eyðsla ferðamanna í
Bretlandi 1996
íslendingar á toppnum
100
pund
80
60
40
20
0
ÍSLENSKIR ferðamenn tróna á
toppi listans yfir eyðslu ferða-
manna í Bretlandi á síðasta ári
sem birtist í Wall Street Journal í
síðustu viku. Næstir í röðinni eru
ferðamenn frá Austurlöndum nær
og bandarískir ferðamenn í því þriðja.
'•5 S
g s
1 s
C
5 Q)
CQ 4"
c
s
c 5
to jd
Engin ríkis-
bréf seldust
ígær
ENGIN ríkisbréf seldust í útboði
ríkissjóðs í gær, en bréfin voru til
fimm ára.
Með útboðinu skuldbatt ríkis-
sjóður sig til að taka tilboðum á
bilinu 100-500 milljónir króna.
Sex tilboð bárust að fjárhæð 380
milljónir króna og var engu tilboði
tekið. Meðalávöxtun í síðasta út-
boði 8. janúar var 9,35% og seld-
ust þá ríkisbréf fyrir 240 milljónir
króna.
------» ---------
RSK velur
Opin kerfi
OPIN kerfi hf. og ríkisskattstjóri
gengu nýverið frá samningum um
kaup þess síðarnefnda á mynd-
skönnum, í tengslum við vélræna
skráningu á skattframtölum lands-
manna. Alls er um að ræða 8
öfluga skanna af Fujitsu gerð sem
eru sérstaklega hannaðir með þarf-
ir kröfuharðra notenda að leiðar-
ljósi, segir í frétt.
Um er að ræða hágæða skanna
sem eru þekktir fyrir hraðvirka
skönnun. Þeir geta lesið inn báðar
hliðar blaðsins í einu og allt að 50
blaðsíður á mínútu í A3 stærð.
Einn helsti kostur þessara skanna
er sá að þeir geta lesið bæði vél-
og handskrift og með sérstökum
hugbúnaði eru upplýsingarnar
skráðar beint í gagnagrunn RSK.
Berovafn 1
upp á
fundum. I
Teymi hf. í örum vexti
Hagnaður um 8
milljónir í fyrra
TEYMI hf., umboðsaðili Oracle-
hugbúnaðar á Islandi, skilaði alls
um 8,4 milljóna króna hagnaði eft-
ir skatta á árinu 1996, sem var
fyrsta heila starfsár fyrirtækisins.
Or vöxtur hefur verið í rekstrinum
og nam velta ársins um 122 milljón-
um en var 38 milljónir árið á und-
an. í því sambandi ber þó að taka
fram að fyrirtækið hóf starfsemi í
aprílmánuði árið 1995.
Á aðalfundi Teymis sem haldinn
var sl. föstudag var skýrt frá því
að reiknað er með talsverðri aukn-
ingu í umsvifum á árinu 1997.
Áætlað er að veltan verði um 178
milljónir og hagnaður um 17,5 millj-
ónir. Þá er gert ráð fyrir að starfs-
mönnum fjölgi úr 12 í 17 á árinu.
Uppsöfnuð þörf fyrir hendi
Elvar Steinn segir að hraðan
vöxt fyrirtækisins megi að mestu
leyti rekja til þess að uppsöfnuð
þörf hafi verið á markaðnum fyrir
þjónustu á þessu sviði. Þá hafí fyrir-
tækið fengið nýja viðskiptavini á
síðasta ári á borð við Vegagerðina
og Landsbréf í framhaldi af kaupum
Oracle í Bandaríkjunum á RDB-
gagnagrunnsdeild. Digital.
Á síðasta ári gerði fyrirtækið tvo
samstarfssamninga við Skýrr hf.
og Þróun hf. og unnið er að öðrum
samningum um þessar mundir.
Elvar segir að nú sé verið að stíga
skref í samstarfi við Tæknival,
Intranet, Kugg, Þor og fleiri fyrir-
tæki á hugbúnaðarmarkaðnum.
Samkvæmt efnahagsreikningi
Teymis nam eigið fé 13,8 milljónum
í árslok 1996 og eiginfjárhlutfall
var 18%. Arðsemi eiginfjár var 14%
á árinu miðað við fast verðlag.