Morgunblaðið - 13.02.1997, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 B 7
VIÐSKIPTI
Váskeytt er far fíásu
Tölvur
Tekist er á um það hvort Java eða ActiveX
verði ráðandi sem íforrit á vefsíðum.
Árni Matthíasson kynnti sér afrek tölvu-
þijóta sem undirstrika að ActiveX er flagð
undir fögru skinni.
MICROSOFT er enn að
bíta úr nálinni með
hvað fyrirtækið var
seint að átta sig á al-
netinu; þrátt fyrir merkilegustu
umskipti sögunnar í rekstri risafyr-
irtækis er langt í land með að stjóra
Microsoft, William F. Gates, hafi
tekist ætlun sín, að gera alnetið
að Microsoft-neti. Hann hefur þó
náð lengra en nokkur þorði að spá
fyrir ári eða svo, meðal annars með
því að dreifa ókeypis hugbúnaði,
endurskipuleggja alla framleiðslu
og taka eindregna stefnu inn á al-
netið með allan hugbúnað. Ýmis-
legt ógnar þó veldi Microsoft, þar
á meðal vinsældir Java forritunar-
málsins, sem sumir vilja meina að
eigi eftir að skáka Windows-veld-
inu þegar fram líður.
Svar Microsoft við Java er Acti-
veX. Það er reyndar ekki glæný
tækni, kallaðist áður OLE og marg-
ir þekkja, en ActiveX er ekki held-
ur fyllilega sambærilegt við Java
eða Java Beans-íforrit. ActiveX er
í raun forrit eða forritsbútur sem
keyrður er í rápforriti og gerir kleift
ýmsar kúnstir í sambandi við ráp
um vefstöðvar, myndvinnslu og
fleira. Ólíkt Java er ActiveX nánast
ekkert ómögulegt; Java keyrir í
einskonar sérglugga eða „sand-
kassa“ og getur fátt gert utan
hans alvarlegt. Þó getur það hrellt
meðal annars með því að „frysta"
tölvuna, safnað upplýsingum og
janvel njósnað um notandann ef
hann gætir ekki að sér; því Java-
forrit getur verið í gangi eftir að
notandi er farinn út af síðunni þar
sem hann sótti það og sent upplýs-
ingar um hvert hann fer eftir það.
Þetta er allt frekar meinlaust og
auðvelt að komast hjá því, ekki
síst með nýjustu gerð rápforrita,
en ActiveX er öllu öflugra. Þannig
er hægt að láta ActiveX forritsbút
forsníða harðan disk tölvunnar sem
keyrir það, spilla gögnum, slökkva
á tölvunni og þar fram eftir götun-
um. Ekki eru þó mörg dæmi um
slíkan hrottaskap, en Microsoft
hefur reynt að bregðast við þessu
með því að rápforritið krefur Acti-
veX-bútinn sem það er að fara að
sækja um einskonar skilríki, þ.e.
höfundurinn verður að fella inn í
forritið staðfestingu um uppruna
og notandinn síðan að treysta á
gott innræti höfundarins. Þetta
byggir á þriðja aðila, VeriSign, sem
skráir staðfestingarnúmer hjá sér
en sá galli er á gjöf Njarðar að
enginn fylgist í raun með viðkom-
andi númeri; hver sem er getur
fengið sér númer undir fölsku nafni
og þar með er fjandinn laus.
Hreinsað út af bankareikningi
Microsoft hefur eðlilega ekki vilj-
að gera of mikið úr þeirri hættu
sem fylgt getur því að nota Acti-
veX, en reynt að beija í brestina
smám saman. Það var því ill uppá-
koma þegar þýskir tölvuþrjótar,
sem kalla sig Óreiðuklúbbinn,
sýndu í þýsku sjónvarpi í upphafi
mánaðarins þegar þeir nýttu Acti-
veX til að hreinsa út af bankareikn-
ingi. Fjárreiðuforritið Quicken er
gríðarlega vinsælt til að halda utan
um fjárhag heimilisins, reikna út
skatta og álíka og tölvuþijótarnir
notuðu tölvu sem var með það upp-
sett. Þegar ActiveX forritið fór í
gang í rápforritinu leitaði það uppi
Quicken og breytti ræsiskrám
þannig að næst þegar notandinn
keyrði það upp tengdist það banka-
reikningi hans og færði fé af honum
yfir á annan reikning án þess að
hann yrði þess var.
Annað gott dæmi um það hve
ActiveX er varasamt má fínna á
slóðinni http://www.halcyon.com-
/mclain, því þar er að finna teng-
ingu inn á ActiveX forritsbút sem
kallast Explode og slekkur á tölv-
Olivetti selur
tölvudeild sína
Mílanó. Reuter.
OLIVETTI, hið kunna ítalska fyr-
irtæki á sviði upplýsingatækni,
hyggst selja bágstatt einkatölvufyr-
irtæki sitt nýstofnuðu fýrirtæki, Pi-
edmont International, og er samn-
ingur um viðskiptin 250-300 millj-
arða líra eða 160-190 milljóna doll-
ara virði.
Roberto Colaninno forstjóri sagði
á blaðamannafundi nýlega að Oli-
vetti mundi eiga 10% hlut í Piedm-
ont með rétti til að selja hann eftir
tvö ár.
Einn þeirra aðila, sem fjárfesta í
Piedmont, er iðnaðar- og eignar-
haldsfyrirtækið Centenary Group og
hefur forstjóri þess, bandaríski lög-
fræðingurinmn Edward Gottesman,
haft forgöngu um að fá hóp fjár-
festa til að koma Piedmont á fót.
Samkomulag er um að Piedmont
fái að nota vörumerkið Olivetti í 20
ár og verður hægt að framlengja
leyfið í önnur 20 ár. Starfrækslu
tölvuverksmiðju Olivettis, Scar-
magno, verður haldið áfram og verð-
ur hún áfram í eigu Olivetti, en Pi-
edmont tekur hana á leigu í fjögur
ár.
Gianmario Rossignolo, stjórnar-
formaður Electrolux deildarinnar
Zanussi, hefur samþykkt að taka við
starfi forstjóra Piedmont, en ekki
hefur verið gengið frá ráðningu
hans.
Olivetti hefur Ieitað kaupanda að
einkatölvudeildinni síðan í haust.
Undir forystu fyrrverandi stjórnar-
formanns, Carlo De Benedetti, gerði
deildin fyrirtækið frægt á síðasta
áratug, en hún hefur verið rekin
með tapi vegna harðrar samkeppni
á þessum áratug.
BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR
fyrir WIND0WS
Einföld lausn á
flóknum málum
S} KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
www.treknet. is/th ro u n
unni tíu sekúndum eftir að hann
fer í gang. Ýmislegan fróðleik
meiri er að finna þar um galla á
ActiveX og fleiri ActiveX-forrit og
-búta sem gert geta usla, meðal
annars með því að keyra upp önnur
forrit óumbeðið. Rétt er að benda
þeim sem áhuga hafa á að lesa
„faq“ slóðarinnar, því þar er meðal
annars að fínna merkilega frásögn
af skiptum höfundarins við lög-
menn Microsoft.
Athugasemdum og ábendingum
um efni má koma til arnim-
@mbl.is.
Sááfiind
sem finnur
—góða aðstöðu!
H(5tEL LOFTLEIÐIR.
C E L A N D A
H O T E L S
Pantaðu sal í tíma og síma 50 50 160
Ráðstefna um markaðs- og einkavæðingu verður haldin miðvikudaginn
19. febrúar næstkomandi í Perlunni. Heiðursgestur ráðstefnunnar
verður Vaclav Klaus, forsætisráðherra Tékklands.
Perlan opnuð kl. 16.00 — Kynningar fyrirtækja
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
Jónas Haralz, fyrrverandi bankastjóri:
Hlutverk ríkisins í atvinnumálum
.
Birgitta Kantola, einn varaforseta Alþjóðabankans:
Privatization from a Global Perspective — The Perceived
and Real Benefits
Jirí Weigl, aðalráðgjafi Vaclav Klaus forsætisráðherra:
Privatization — The Czech Lesson
| Vaclav Klaus forsætisráðherra
Davíð Oddsson forsætisráðherra
Ráðstefnustjóri verður Hreinn Loftsson
Hátíðarkvöldverður með hinu.u erlendu gestum
og íslensku ráðherrunum hefst kl. 20.00
í veitingasal Perlunnar
Skráning og upplýsingar: Menn og málefni,
sími 552 2121 og 511 2400, fax 552 2183,
netfang: m-m@tv.is
Verð á ráðstefnuna er 14.600 kr.
Bókin Einkavœðing á fsUndi og kvöldverðurinn
er hvort tveggja innifalið í ráðstefnugjaldi.
Framkvamdamefnd um eínkavaðingu
Samtiik verðbréfafyrírtakja