Morgunblaðið - 20.02.1997, Qupperneq 42
42 FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
SIGRÍÐUR
KRISTJÁNSDÓTTIR
arnir biðjum Guð að styrkja ykkur
í sorg ykkar.
Blessuð sé minning vinkonu okkar
Sigríðar Kristínar Kristjánsdóttur.
Fyrir hönd æskuvinanna,
Ujördís Kröyer.
Fyrir 36 árum var okkur hjónun-
um boðið til brúðkaupsveislu upp á
Akranes, þar sem gefin voru saman
í hjónaband Sigríður Kristín Krist-
jánsdóttir og Jón Otti Sigurðsson
frændi minn og vinur okkar hjón-
anna. Þetta hjónaband var upphaf
mikillar gæfu þeirra og okkar sem
áttum Nonna og Siddý að vinum.
Við ótímabært fráfall Siddýjar
leita á hugann minningar liðinna
ára. Það ríkti mikil gleði þegar þeim
fæddist einkasonurinn Sigurður Jón
árið 1961, alnafni föðurafa. Það var
af dugnaði og fyrirhyggju sem þau
reistu sér hús í Safamýri 19, ásamt
Helga og Erlu, þar sem þau bjuggu
til 1993, er þau fluttu í Birkihæð 2
í Garðabæ. Heimili þeirra hefur aila
tíð verið rómað fyrir einstaka smek-
kvísi og hlýju til þeirra sem þangað
hafa komið.
Unaðsreit áttu þau sér við Langá
á Mýrum í landi Anabrekku, en þar
reistu þau sér sumarhús á rúmgóðu
landi, en bústaðinn nefndu þau Sig-
ríðarstaði, þar fengu þau útrás fyrir
sína grænu fingur og ekki spillti að
á góðum degi blasti við þeim Snæ-
fellsjökull en hann skipaði hjá þeim
heiðurssess af öllum íjöllum. Við
hjónin eigum margar ljúfar minning-
ar frá árlegum heimsóknum okkar
að Sigríðarstöðum, þaðan sem við
skoðuðum nágrennið með gönguferð-
um milli fjalls og fjöru og ekki spillti
sólin á Grímsstaðamúla fyrir, en þar
skín hún oftar en annars staðar.
Glæsileiki og fegurð voru einkenni
Siddýjar alla tíð og ekki var innri
fegurðin síðri þeirri sýnilegu, það
þekkja allir sem_ voru svo lánsamir
að þekkja hana. Á kveðjustund þökk-
um við hjónin ásamt börnum okkar
Siddý fyrir árin sem við áttum með
henni, nú hefur hún gengið til feðra
sinna og skilið eftir hjá okkur ljós-
geislann sem alltaf fylgdi henni. .
Góður guð blessi minningu Sigríð-
ar Kristínar Kristjánsdóttur og veiti
Jóni Otta og afkomendunum þeirra
huggun í þeirra miklu sorg.
Þórunn og Sverrir.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
(Tómas Guðm.)
Okkur langar hér að minnast vin-
konu og starfssystur okkar Sigríðar
Kristjánsdóttur er lést sl. laugardag
langt um aldur fram. Sigríður
greindist með krabbamein fyrir ári,
en sl. áratug hafði hún notað starfs-
RAOAUGÍ YSINGAR
Sölufólk
Óskum eftir að ráða sölufólk til starfa.
Upplýsingar í síma 581-4472 eftir kl. 15.00.
Bakari
Óskum að ráða bakara á brauðvakt.
Upplýsingar gefur Guðmundur
í síma 557 3655.
Breiðholtsbakarí,
Völvufelli 13.
A
KÓPAVOGSBÆR
Forfallakennarar
óskast að Snælandsskóla
Vegna forfalla vantar kennara frá 1. mars til
loka skólaársins. Um er að ræða almenna
kennslu á miðstigi, tölvukennslu og bók-
færslu. Sömuleiðis vantar kennara vegna til-
fallandi forfallakennslu.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 554 4911.
Starfsmannastjóri.
Sjúkrahús Akraness
Röntgentæknir
óskast til starfa frá og með 1. apríl nk.
Gæti hafið störf fyrr.
Framtíðarstarf, 100% staða, 50% vaktir.
Upplýsingar gefa yfirröntgentæknir eða skrif-
stofustjóri í síma 431 2311.
Hjallasókn
Aðalsafnaðarfundur
Boðað er til aðalsafnaðarfundar í Hjallasókn
í Kópavogi sunnudaginn 23. febrúar nk.
Fundurinn verður haldinn í Hjallakirkju að
aflokinni guðsþjónustu, sem hefst kl. 11.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál löglega upp borin.
Ársreikningur liggur frammi á skrifstofutíma
kirkjunnar kl. 10.00-17.00.
Sóknarnefnd.
KYNNINGARMIÐSTÖÐ m
EVRÓPURANNSÓKNA RANNIS
Mun ný samskiptatækni
breyta viðskiptaháttum í
sjávarútvegi?
Fundur á vegum Kynningarmiðstöðvar
Evrópurannsókna og Rannsóknarráðs ís-
lands, föstudaginn 21. febrúar
kl. 16.00 f Borgartúni 6.
Uppboðsmarkaðir á vörum (commodity ex-
change) hafa lengi verið hornsteinn viðskipta
með málma og ýmsar nýlenduvörur, eins og
kaffi, kakó og te. Með tilkomu almennrar tölvu-
notkunar og internetsins er þessi viðskipta-
máti að færast inn á ný svið, eins og kjöt og
grænmetisviðskipti, þar sem geymslutími vöru
er skemmri og gæðamat ekki einhlítt. Með
rafeindavæddum vörumörkuðum ná miklu fleiri
kaupendur og seljendur saman, markaðurinn
verður gagnsær, sveiflur á mörkuðum jafnast,
viðskipti verða hraðari og milliliðir færri. Ný
vídd færist inn í viðskiptin, m.a. framvirk sala
á fiskafurðum. Mun þessi viðskiptatækni ryðja
sér til rúms í fiskviðskiptum?
DAGSKRÁ
Setning fundar. Vilhjálmur Lúðvíksson,
framkvst. Rannsóknarráðs íslands.
INFOMAR-ESB-verkefnið um rafræn við-
skipti. Susan Holmes, verkefnisstjóri INFOM-
AR, frá Vega Group Plc í Bretlandi.
Uppbygging alþjóðlegs rafræns viðskipta-
kerfis með fisk. Luc Schelfhout, fram-
kvæmdastjóri SCS í Belgíu, sýnir viðskipta-
kerfi fyrir grænmeti og ræðir almennt um sér-
stöðu fiskafurða. SCS á stærsta hlutdeild í
rafrænum uppboðsmörkuðum fyrir sjávarút-
veg í Evrópu.
Miðlun á fiskikörum (karabankar) og skil-
greining gæða f viðskiptum með ferskan fisk.
Fulltrúar frá íslandsmarkaði, Reiknistofu fisk-
markaðanna og Umboðsmiðlunar.
íslensk þátttaka f INFOMAR. Gylfi Aðal-
steinsson, framkvst. Marstar ehf.
Umræður.
Uppboð
Neðangreind bifreiö verður boðin upp á framhaldsuppboði fyrir utan
Hafnarbraut 14 (Vélsmiöjan Vík), Hólmavík, föstudaginn 28. febrúar
1997 kl. 14.00 að kröfu Húsasmiðjunnar hf.
0-8597, fast nr. AR-267 Mercedes Benz, árg. 1969.
_____________________________£__________________________
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Hólmavík.
Uppboð á lausafjármunum
Eftirtaldir lausafiármunir verða boðnir upp við lögreglustöðina,
Vesturgötu 17, Ólafsfirði, föstudaginn 28. febrúar kl. 14.00:
Al 793.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
Ólafsfirði, 19. febrúar 1997.
Sýslumaðurinn í Ólafsfirði,
Björn Rögnvaldsson.
Opinn fundur um orkumál
í Reykjaneskjördæmi
Morgunverðarfundur Landsmálafélagsins Fram verður í Sjálfstæðis-
húsinu, Hafnarfirði, sunnudaginn 23. febrúar kl. 10.30.
Þingmenn og nokkrir af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórnum í kjördæminu hefur verið sérstaklega boðið til þessa fund-
ar, auk sérfræðinga frá Orkustofnun og Hitaveitu Suðurnesja.
Komið og kynnið ykkur hvar möguleikar okkar í orkumálum liggja!
Landsmálafélagið Fram, Hafnarfirði.
B
Landsvirkjun
Útboð
Dreifispennar
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í
dreifispenna fyrir Kröflustöð í samræmi við
útboðsgögn KRA-05.
Verkið felur m.a. í sér deilihönnun, efnisút-
vegun, framleiðslu, samsetningu og prófun
á tveimur 3.15 MVA dreifispennum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík,
frá og með fimmtudeginum 20. febrúar 1997
gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 1.000
m. vsk. fyrir hvert eintak.
Tekið verður á móti tilboðum á skrifstofu
Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík,
til opnunar 3. mars 1997 kl. 11.00. Fulltrúum
bjóðenda er heimilt að vera viðstaddir opn-
unina.
Landsst. 5997022019 VII
I.O.O.F. 5 = 1782208 = Br.
FERÐAFÉIAG
^ ÍSIANDS
I.O.O.F. 11 =1782208'/2=9.ll.
Góðtemplarahúsið,
Hafnarfirði
MÓRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Helgarferðir 14.-16/2
Tindfjöll á fullu tungli og góuferð
í Þórsmörk. Miðar á skrifstofu.
Ferðafélag Islands.
Félagsvist í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 20. febrúar. Byrjum að
spila kl. 20.30 stundvíslega.
Allir velkomnir.
I kvöld kl. 20.30
Lofgjörðarsamkoma.
Lofgjörðarhópur Fíladelfíu
syngur og vitnar.
Allir hjartanlega velkomnir.
XT—7 /
KFUM
V
Aðaldeild KFUM
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.30. Skírnin.
Umsjón: Sr. Sigurður Pálsson.
Upphafsorð: Henning E. Magn-
ússon.
Allir karlmenn velkomnir.
Dagsferðir 22. febrúar
Kl. 10.30 Skiðagöngunámskeið.
Kennd verða undirstöðuatriði í
skíðagöngu.
Kl. 20.00 Kvöldganga á fullu
tungli.
Dagsferð 23. febrúar
Kl. 10.30 Raðganga Útivistar,
4. áfangi. Ósabotnar-Sandvík.
Helgarferðir 21 .-23. febrúar
Kl. 20.00 Góuferð í Bása.
Spennandi ferð fyrir alla fjöl-
skylduna. Gönguferðir og kvöld-
vaka.
Kl. 20.00 Tindfjallajökull. Ferð
fyrir vant göngufólk um stórbrot-
ið landslag Tindfjalla.
Helgarferð 22.-23. febrúar
Kl. 10.00 Jeppaferð á Fimm-
vörðuháls. Ævintýraferð þar
sem allra veðra er von.
netslóð:
http://www.centrum.is/utivist