Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Ég mat Smugudeiluna rangt
- segir HaRdór Asgrimsson ( | j j i 11
samtali við norska Qðlrrtðla.
Jón BaWvin: No comment
Dóri er aö læra.
WiíM
A gMuaJo-
ÉG hélt að ég væri utanríkisráðherra, Jón minn
Sendiherrann í Osló
áréttar þjóðerni Snorra
„MÉR fínnst sjálfsagt að nota hvert
einasta tækifæri sem gefst til að
minna Norðmenn á að Snorri Stur-
luson var ekki norskur heldur ís-
lenskur,“ segir Eiður Guðnason,
sendiherra íslands í Noregi, en hann
hefur sent framkvæmdastjóra
norsku bókaútgáfunnar J.M. Sten-
ersen Forlag bréf þess efnis að rétt
sé farið með þjóðerni Snorra í aug-
lýsingu fyrirtækisins.
Umrædd auglýsing birtist í
norska dagblaðinu Aftenposten í
síðustu viku en þar var verið að
auglýsa til sölu kvæðabálkinn
„Nordlands Trompet" eða Norður-
lands trómet, sem norski presturinn
Petter Dass kvað á síðasta fjórð-
ungi sautjándu aldar. í auglýsing-
unni segir að Petter Dass sé elsti
norski rithöfundurinn, fyrir utan
Snorra, sem eigi verk er enn séu
þekkt.
Sama dag og auglýsingin birtist
sendi Eiður bréfið til framkvæmda-
stjóra bókaútgáfunnar þar sem
hann áréttaði m.a. að enginn vafi
léki á því hverrar þjóðar Snorri
Sturluson væri. Hann hefði fæðst
á íslandi um þrjú hundruð árum
eftir að ísland byggðist.
Eiður segir reyndar að þetta sé
ekki í fyrsta sinn sem hann hafi
þurft að árétta þjóðerni Snorra en
Norðmenn séu gjarnir á að eigna
sér hann.
Lyftari í lausu lofti
GÁMALYFTARI sporðreistist
á athafnavæði Samskips ný-
lega- þegar hann var að flytja
um 30 tonna þungan gám.
Lyftarinn lenti ofan i holu
þannig að jafnvægi hans rask-
aðist með fyrrgreindum afleið-
ingum, auk þess sem hálka og
snjór áttu þátt í óhappinu.
Gámurinn, sem var hlaðinn
loðnu, skemmdist lítilsháttar
en ekki varð tjón á lyftaranum
eða meiðsli á ökumanni hans.
Samkvæmt upplýsingum frá
Samskipi hefur sambærilegt
atvik orðið einu sinni áður og
ekki hafi verið hætta á ferðum.
Lyftarinn komst á réttan kjöl
með aðstoð krana.
Hannes
Hlífar vann
atskákmót
TAFLFÉLAGIÐ Hellir stóð fyrir
helgaratskákmóti þann 21. og 22.
febrúar s.l. Mótið var vel skipað og
meðal keppanda var stórmeistarinn
Hannes Hlífar Stefánsson. Hannes
vann reyndar öruggan sigur, vann
allar sínar skákir 7 að tölu. í 2.-3.
sæti urðu svo bræðumir Bragi og
Björn Þorfinnssynir með 5 vinninga.
-----» ♦------
Hellisheiði
Veglýsing kost-
ar 200 milljónir
KOSTNAÐUR við að lýsa upp Suður-
landsveg frá Reykjavík að Hvera-
gerði, um 35 kílómetra kafla, er
áætlaður um 200 milljónir króna.
Viðhaldskostnaður er talinn nema
um 6-7 milljónum króna á ári.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra telur veglýsingu á Hellisheiði
ekki forgangsverkefni í vegagerð.
Þetta kom fram á Alþingi í svari
ráðherra við fyrirspurn frá þing-
mönnunum Guðna Ágústssyni og
Guðmundi Hallvarðssyni.
Morgunblaðið/Kristinn
Samtök hjálparstofnana kirkna í Evrópu
Hagsmuna-
vörður fátækra
í Brussel
Martin Bax
ARTIN Bax, fram-
kvæmdastjóri
APRODEV, sam-
taka hjálparstofnana mót-
mælendakirkna í Evrópu,
var staddur hér á landi í síð-
ustu viku og ræddi við for-
ráðamenn Hjálparstofnunar
kirkjunnar, sem á aðild að
APRODEV.
Hvað er APRODEV og
hvert er hlutverk samtak-
anna?
„Aðilar að APRODEV eru
hjálparstofnanir mótmæl-
endakirkna í Evrópu. Við
erum tengd Heimskirkjuráð-
inu og Lútherska heimssam-
bandinu. Samtökin voru
stofnuð vegna þess að menn
vildu bregðast við því að
ákvarðanir, sem hafa áhrif
á fátækt fólk í þriðja heimin-
um, voru í auknum mæli teknar á
vettvangi samevrópskra stofnana.
Það var orðið erfiðara fyrir ein-
stakar stofnanir að hafa áhrif í
sínum höfuðborgum, vegna þess
að ákvarðanatakan hafði færzt til
stofnana í Brussel. Hjálparstofn-
animar óttuðust líka að innri
markaður Evrópusambandsins
myndi hafa áhrif á fjáröflunar-
möguleika þeirra, en það varð að
vísu ekki raunin, þegar til kom.
Hjálparstofnanirnar ákváðu því
að setja á fót stofnun, sem gætti
hagsmuna þeirra sameiginlega í
Brussel og það er meginverkefni
mitt; að vera fulltrúi fátækustu
íbúa heimsins við stofnanir Evr-
ópusambandsins í Brussel. Fram-
kvæmdastjórn ESB er mikilvæg,
Evrópuþingið er líka mikilvægt og
auðveldara að eiga við, ráðherra-
ráðið er kannski mikilvægast, en
afar erfitt að öðlast aðgang að því.
Á hinum evrópska vettvangi er
einnig að finna ýmiss konar bjarg-
ir, sem stofnanir án þátttöku
stjórnvalda hafa aðgang að. Hluti
af starfi mínu er að hjálpa aðildar-
stofnunum að fá aðgang að þess-
um björgum, til dæmis peningum
og matvælaaðstoð, sem oft er út-
deilt í gegnum sjálfstæðar hjálpar-
stofnanir."
í þriðja lagi reyni ég að aðstoða
aðildarstofnanimar við að finna
betri samstarfsaðferðir, hjálpa
hver annarri og reyna að forðast
tvíverknað."
Getur þú nefnt dæmi um að
APRODEV hafi tekizt vel upp sem
þrýstihópi?
„Okkur hefur til dæmis tekizt
að fá mjög góðan aðgang að Evr-
ópuþinginu. Við erum vel þekkt í
þinginu og okkur tekst alloft að
koma upplýsingum á
framfæri við Evrópu-
þingmenn og inn í um-
ræðumar. Ástæðan er
sú að við höfum betri
uppsprettur upplýsinga
en þeir. Það er oft erfitt
að fá góðar upplýsingar
um ástand mála í þriðja heiminum,
en við erum í beinu sambandi við
fólk, sem er á vettvangi og hlustar
á grasrótina. Þetta á sérstaklega
við þegar neyðarástand kemur
upp; meðan á borgarastríðinu í
Rúanda stóð, vorum við mun betur
upplýst en stjómmála- og embætt-
ismenn.
Við getum því komið upplýsing-
um okkar til þeirra og stundum
þrýst á þá að grípa til aðgerða.
Þetta snýst allt um að þeir geti
treyst okkur og ég held að eftir
sjö ár njóti APRODEV virðingar
fyrir nákvæmar upplýsingar, sem
menn hafa getað sannreynt."
Hver er tilgangurinn með heim-
sókn þinni til íslands?
► Martin Bax er fæddur í Bret-
landi en hefur lengst af búið
utan heimalandsins. Hann starf-
aði m.a. hjá einkafyrirtækjum í
Suður-Afríku og í Ródesíu um
fimmtán ára skeið, en um leið
tók hann þátt í kirkjulegu hjálp-
arstarfi í sjálfboðavinnu. Um
fimmtán ára skeið starfaði hann
hjá Christian Aid, hjálparstofn-
un mótmælendakirkna á Bret-
landi, en hefur undanfarin ár
verið framkvæmdasljóri
APRODEV, samtaka hjálpar-
stofnana mótmælendakirkna í
Evrópu, með aðsetur í Brussel.
„Ég reyni að heimsækja aðild-
arstofnanimar reglulega. Það er
einkum tvennt, sem ég hef rætt
við Hjálparstofnun kirkjunnar hér
á íslandi. Annars vegar hefur það
færzt í vöxt á undanfömum árum
að ríkisstjómir feli sjálfstæðum
hjálparstofnunum að koma þróun-
araðstoð sinni til skila. Þetta er til
dæmis tilfellið í hinum norrænu
ríkjunum og Evrópusambandið hef-
ur einnig á að skipa fjármunum,
sem varið er með þessum hætti.
Það hefur verið sýnt fram á að
með þessu móti verður aðstoðin
ódýrari, hún kemst frekar til
þeirra, sem þurfa á henni að halda
og borgarar í ríkjunum eru já-
kvæðari í garð slíkrar aðstoðar.
Ég geri ráð fyrir að reyna að hjálpa
Jónasi Þórissyni framkvæmda-
stjóra og starfsliði hans að knýja
á um að íslenzka ríkið feli Hjálpar-
stofnun kirkjunnar í auknum mæli
að koma þróunaraðstoð íslands til
skila. ísland veitir að vísu minni
þróunaraðstoð til þriðja heimsins
en flest nágrannaríkin, en þeirri
aðstoð, sem um er að ræða, mætti
koma til skila með ódýr-
ari og skilvirkari hætti.
Hins vegar hyggj-
umst við skoða í samein-
ingu hvort Hjálpar-
stofnun kirkjunnar geti
til lengri tíma litið feng-
ið aðgang að sjóðum
Evrópusambandsins til að takast
á hendur neyðaraðstoð við þriðja-
heimsríki. Það er ekki mjög líklegt
að það takist, en við ætlum að
reyna.
Loks höfum við rætt um að
auka samstarf um miðlun íslend-
inga á alnetinu. Mér skilst að flest-
ir íslenzkir skólar hafi aðgang að
netinu og hafí byrjað að nota það
við kennslu. Við getum aðstoðað
Hjálparstofnun kirkjunnar að leita
uppi góðar upplýsingar um þróun-
arhjálp og hjálparstarf og miðla
til kennara og skólabarna á alnet-
inu. Þannig myndu böm læra strax
á unga aldri að skilja aðstæður
fólks, sem býr hinum megin á
hnettinum.“
Hjálparstofn
unin fái að-
gang að sjóð
um ESB