Morgunblaðið - 25.02.1997, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
sj ónvarpsmarkaði
íslenska útvarpsfélagið hf.
*
hefur nú keypt öll hlutabréfin í Islenskri
margmiðlun hf. sem rekur Stöð 3. í staðinn
hafa hluthafar Stöðvar 3 fengið liðlega 9%
hlut í útvarpsfélaginu. Kristinn Briem rek-
ur hér aðdragandann að þessum viðskiptum
og óvæntum endalokum Stöðvar 3.
ÞAU óvæntu tíðindi bárust af fjöl-
miðlamarkaðnum á laugardag að
samningar hefðu tekist um kaup
íslenska útvarpsfélagsins hf. á öll-
um hlutabréfum Islenskrar marg-
miðlunar hf. sem rekur Stöð 3. í
skiptum fyrir bréf sín fá hluthafar
íslenskrar margmiðlunar hf. lið-
lega9% hlut í íslenska útvarpsfélag-
inu og kauprétt á viðbótarhlutafé.
Fram til þessa hefur ekki annað
verið vitað en Stöð 3 væri að und-
irbúa sig af fullum krafti fyrir
væntanlega samkeppni við Stöð 2
með öfluga fjárfesta að baki. Þá
var ekki annað vitað en útvarpsfé-
lagið hygðist hvergi gefa eftir og
teldi sig hafa í fullu tré í væntan-
legri samkeppni við hinn nýja
keppinaut sem hafði lengst af verið
á brauðfótum.
Skammt er síðan íslensk marg-
miðlun hf. yfírtók rekstur Stöðvar
3 í lok október á síðasta ári eftir
að nauðasamningar tókust við ís-
lenska sjónvarpið hf. Lagt var fram
nýtt hlutafé að ljárhæð 160 milljón-
ir króna og voru helstu hluthafar
Burðarás hf., Festing hf., Árvakur
hf., sem er útgáfufélag Morgun-
blaðsins, Sambíóin, G. Jóhannsson
ehf., Eignarhaldsfélagið Alþýðu-
bankinn hf., Þróunarfélag íslands
hf., Vátryggingafélag íslands hf.,
íslensk endurtrygging hf., Skelj-
ungur hf., Vífilfell hf. og Japis hf.
Hlutafé félagsins var aukið í 300
milljónir í lok desember og áform
voru uppi um að auka það um
150-200 milljónir til viðbótar á
fyrri hluta þessa árs.
Nýjar áætlanir settu
strik í reikninginn
Þessir aðilar virtust staðráðnir í
að setja á laggirnar öfluga einka-
rekna sjónvarpsstöð eins og ráðn-
ing fimm lykilmanna af Stöð 2 í
síðasta mánuði undirstrikaði ræki-
lega. Jafnframt hefur undirbúning-
ur verið í fullum gangi við uppsetn-
ingu á áskriftarkerfi og fyrstu tvö
þúsund myndlyklarnir voru þegar
komnir til landsins. En tvær grímur
tóku að renna á stjórnarmenn fé-
lagsins þegar nýjar áætlanir um
kostnaðinn við uppbyggingu stöðv-
arinnar, sem unnar voru af hinum
nýju liðsmönnum félagsins, litu
dagsins ljós nýverið.
I þessum áætlunum kom fram
að fjárþörf félagsins væri meiri en
áður var talið eða allt að 800 millj-
ónir í lánum og hlutafé á næsta
ári. Gert var ráð fyrir því að dag-
skráin yrði boðin á kynningarverði
fyrstu sex mánuðina á 1.790 krón-
ur á mánuði, en hækkaði síðan í
2.790 krónur á mánuði. Innifalið í
þessu yrði dagskrá Stöðvar 3,
þáttasölusjónvarp (pay per view)
og gervihnattarásirnar. Þetta mið-
aðist við að ná 20 þúsund áskrif-
endum í desember á þessu ári. Var
gert ráð fyrir að á seinni hluta
næsta árs yrði fyrirtækið byijað
að skila hagnaði.
Eftir endurskoðun þessara áætl-
ana og einhvern niðurskurð lá engu
að síður ljóst fyrir að þörf væri
fyrir 200-300 milljóna hlutafé í
fyrirtækið umfram það sem áður
hafði verið reiknað með, samkvæmt
upplýsingum Morgun-
blaðsins.
Með þessar upplýs-
ingar í farteskinu þótti
ljóst að erfitt myndi reyn-
ast ná saman þessu fjár-
magni meðal hluthafanna á sama
tíma og við blasti blóðugt stríð
milli sjónvarpsstöðvanna á mark-
aðnum. Þótti stærstu hluthöfunum
sem mestu réðu um gang mála að
betra væri að hætta þessum rekstri
nú, fremur en eiga það á hættu
að lenda í miklum ógöngum þegar
út í samkeppnina var komið.
Margt er á huldu um hvar hug-
myndin um sameiningu stöðvanna
kviknaði upphaflega. Bent er á að
Jón Ólafsson, stjórnarformaður ís-
lenska útvarpsfélagsins, hafi í lok
nóvember sl. haust þurft að bregða
sér í skyndingu til Kaupmanna-
hafnar. Með honum á Saga Class
farrými sat Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Eimskips. Þeir tóku tal
saman á leiðinni og ákváðu að
ræða saman eftir að þeir kæmu til
landsins, en ekkert fékkst upplýst
um lyktir þess fundar.
Fyrstu þreifingar milli aðila voru
á þann veg að skilaboð bárust frá
Islenska útvarpsfélaginu um að
Sigurjón Sighvatsson, einn stærsti
hluthafi íslenska útvarpsfélagsins,
væri reiðubúinn að selja sinn hlut
og Jón Ólafsson væri einnig til við-
ræðu um slíkt. Hittust menn á
fundum til að ræða þau mál og
möguleika á sameiningu félaganna.
Þær leiddu í ljós að gríðarlegt bil
var á milli hugmynda
þessara aðila um verð-
mæti Islenska útvarpsfé-
lagsins. Voru töldur
nefndar allt frá 2,5 millj-
örðum upp í 6 milljarða,
en þessar þreifingar komust hins
vegar skammt á veg.
Næst dró til tíðinda í byijun síð-
ustu viku, en þá hófust beinar við-
ræður milli Jóns Ólafssonar og
Þorkels Sigurlaugssonar fram-
kvæmdastjóra hjá Eimskip, eins
stærsta hluthafans, um kaup ís-
lenska útvarpsfélagsins á öllum
hlutabréfunum í íslenskri marg-
miðlun, fyrir milligöngu Ragnars
Tómassonar héraðsdómslögmanns.
Ragnar hafði miklar efasemdir um
að skynsamlegt væri fyrir stöðv-
arnar að halda áfram á sömu braut.
Taldi hann lag núna til að sameina
stöðvarnar eða að annar hvor aðil-
inn keypti hinn út. Hafði hann að
eigin j'rumkvæði kannað afstöðu
Jóns Ólafssonar, stjórnarformanns
íslenska útvarpsfélagsins hf., og
Þorkels Sigurlaugssonar til þessara
hugmynda sinna. Ragnar hefur
raunar áður komið við sögu í samn-
ingum af þessu tagi milli fyrir-
tækja og er sagður hafa átt hug-
myndina að kaupum Hofs sf., móð-
urfélags Hagkaups, á 50% hlut í
Bónus á sínum tíma.
Verulegur skriður komst á við-
ræður þeirra Þorkels og Jóns á
fimmtudag í síðustu viku sem fóru
fram í einni af svítum Hótels Sögu.
Unnu þeir að málinu sleitulaust
fram á aðfaranótt föstudagsins allt
fram undir morgun þar til niðurstað-
an náðist loks fram. Þorkell mun
því næst hafa gengið í að vinna
forsvarsmenn Festingar hf., fjár-
festingarfélags í tengslum við
Sjóvá-Almennar, á sitt band, því
næst Gunnar A. Jóhannsson, for-
stjóra Fóðurblöndunnar, áður en
hann lagði málið fyrir aðra hluthafa.
Það er nefnt til marks um þá
leynd sem hvíldi yfir viðræðunum
að sama morgun og þeir tvímenn-
ingar gengu frá samningum mátti
lesa frétt í dagblaðinu Degi-Tíman-
um þar sem greint var frá því að
Stöð 3 undirbyggi dreifingu á allt
að 20 þúsund myndlyklum.
Fundir voru síðan haldnir í öllum
hlutafélögunum á föstudeginum og
endanlega gengið frá samningum
á laugardag. Segja má hins vegar
að aðrir hluthafar íslenskrar marg-
miðlunar hafi þá raunverulega
staðið frammi fyrir gerðum hlut
og ljóst að víða gætir vonbrigða í
þeirra hópi með niðurstöðu málsins.
Fulltrúi Chase Manhattan Bank,
Bo Nilsen, tók einnig þátt í viðræð-
um félaganna, en hann lagði lykkju
á leið sína frá Bandaríkjunum til
Evrópu á föstudag til að staðfesta
að bankinn væri fylgjandi kaupun-
um.
Mlkill hagnaður
fólginn í samvinnu
„Það eru nokkrar vikur síðan
Ragnar Tómasson hafði samband
við mig og spurði hvort það væri
mér á móti skapi að hann myndi
reyna að sjá hvort menn gætu tal-
að saman um þessa möguleika,"
segir Jón Ólafsson, stjórnarformað-
ur íslenska útvarpsfélagsins, í sam-
tali við Morgunblaðið. „Ég sagði
honum að það væri meinalaust af
minni hálfu enda þekkti ég Þorkel
[Sigurlaugsson] ágætlega og vissi
að hann væri mjög traustur og
góður maður. Við Þorkell ákváðum
að hittast fyrir rúmri viku og fund-
um þá út að við gætum byggt upp
trúnað á milli okkar og unnið sam-
an. Einnig vorum við fljótir að átta
okkur á því að það væri mikill
hagnaður fólginn í því að
vinna saman í framtíð-
inni. Það varð úr að við
lukum við samninga sam-
eiginlega áður en við
kynntum þá fyrir nokkr-
um öðrum í báðum hópunum.“
Aðspurður hvort rætt hefði verið
um að hann seldi sinn hlut í Is-
lenska útvarpsfélaginu sagði Jón
að það hefði aldrei verið nein laun-
ung af sinni hálfu að hann væri
tilbúinn að selja sinn hlut í félaginu
fyrir rétt verð.
Jón Ólafsson segir ljóst að sam-
keppnin hefði orðið kostnaðarsöm
fyrir báða aðila, en misjafnlega
mikið þó. Auðveldara hefði verið
fyrir fyrirtæki með tvo milljarða í
veltu að takast á við samkeppnina
heldur en fyrirtæki með engar tekj-
ur. „Það er ljóst að það er miklu
meiri hagnaður fyrir báða aðila að
starfa saman, heldur en halda
áfram þeirri vitleysu sem var í
gangi.“ Hann segir ljóst að kostn-
aðarauki hjá íslenska útvarpsfélag-
inu vegna tilkomu Stöðvar 3 skipti
einhveijum tugum milljóna vegna
aukinnar samkeppni um innkaup á
erlendu efni.
„Ég held að menn verði að líta
jákvæðum augum á samninginn.
Það er sigur fyrir íslenskt sjónvarp
þegar eigendur beggja stöðva hafa
áttað sig á því að það er miklu
meiri hagnaður fólginn í því fyrir
áskrifendur að snúa bökum saman
og takast á við framtíðina. Það
þýðir meiri innlenda dagskrárgerð
og betra sjónvarp, þannig að við
verðum betur í stakk búnir til að
keppa við það sem koma skal í
framtíðinni," segir Jón Ólafsson.
Þorkell Sigurlaugsson hefur hins
vegar ekkert viljað láta hafa eftir
sér um þessa samninga eða aðdrag-
anda þeirra.
Kaupréttur
að bréfum Chase
Eins og fram hefur komið kveð-
ur sá samningur sem nú liggur
fyrir á um kaup íslenskra útvarps-
félagsins á öllum hlutabréfum í
Islenskri margmiðlun og að hlut-
hafar þess félags fái í
staðinn liðlega 9% hlut í
íslenska útvarpsfélag-
inu. Ef félögunum verður
rennt saman eykst hlutur
þeirra í um 10%, en arð-
greiðsla og réttindi hluthafanna
miðast hins vegar við 10% frá upp-
hafi. Þessar tölur miðast við
ákveðnar forsendur um fjárhags-
stöðu íslenskrar margmiðlunar, en
reynist hún lakari skerðist hlutur
þessara aðila sem því nemur.
Jafnframt er í samningnum
kveðið á um kauprétt síðar að 20%
Sátu
saman á
Saga Class
Samkeppni
hefði kostað
mikið
SVIPTIIMGAR Á SJÓNVARPSMARKAÐI
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
HREGGVIÐUR Jónsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs íslenska útvarpsfélagsins, og Jón Ólafsson, stjórnarformaður félagsins,
mættu til fyrsta fundar í nýrri stjórn Islenskrar margmiðlunar á hádegi í gær.
Sverðin slíðruð á