Morgunblaðið - 25.02.1997, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
SVIPTINGAR Á SJÓNVARPSMARKAÐI
Mikill hallarekstur á Stöð 3 frá upphafi
Fimmtán lykla-
lausir mánuðir
Morgunblaðið/Kristinn
AUGLÝSINGASKILTI sem undafarið hefur blasað við vegfar-
endum á horni Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar.
FRETTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GUNNAR Már Hauksson, frá Búnaðarbankanum, Moritz W.
Sigurðsson, aðstoðarbankastjóri, Sigríður Jóhannsdóttir, frá
stjórn Skógræktarfélags íslands og Jón Geir Pétursson skóg-
fræðingur og starfsmaður félagsins, kynna samstarfsverkefni
Búnaðarbankans og Skógræktarfélags Islands um fræðslu- og
leiðbeiningarstarf skógræktarfélagsins árið 1997.
Skógræktarfélag íslands og
Búnaðarbanki ísiands
Samningur um
fræðslu- og leið- ,
beiningarstarf 1
Sögu Stöðvar 3 lauk um
helgina, þegar sjón-
varpsstöðin var samein-
uð Stöð 2 og Sýn. Stöð
3 hafði þá sent út efni
í fimmtán mánuði, en
myndlyklar stöðvarinn-
ar komust aldrei í notk-
un og fyrirtækið var því
rekið með miklum halla.
ÚTSENDINGAR Stöðvar 3 hófust
24. nóvember 1995. Að baki sjón-
varpsstöðinni var hlutafélagið ís-
lenska sjónvarpið hf. og var hluta-
féð 250 milljónir króna. Eigendur
voru nokkur öflug fyrirtæki, s.s.
Nýherji, Sambíóin, Japis, Árvakur
sem er útgáfufélag Morgunblaðs-
ins, og Texti, en alls voru hluthafar
um fimmtán og átti enginn einn
meira en 10% í hlutafélaginu. Úlfar
Steindórsson var ráðinn sjónvarps-
stjóri.
Áður en útsendingamar hófust
hafði íslenska sjónvarpið hf. til-
kynnt, að það myndi senda út á
fímm rásum og áskrifendur fengju
aðgang að þeim öllum með einni
áskrift. í boði yrði íslensk rás með
samsettri dagskrá, þar sem yrði
afþreyingarefni á borð við kvik-
myndir, gaman- og spennuþætti,
auk talsetts bamaefnis. Þá yrðu í
boði fjórar gervihnattarrásir fyrst
um sinn og fengju áskrifendur fjöl-
rása myndlykil sem gerði heimilis-
fólki kleift að horfa á allar rásir
samhliða. Alls átti nýi myndlykillinn
að geta opnað 32 sjónvarpsrásir
samtímis. Loftnet og myndlykil áttu
áskrifendur að fá sér að kostnaðar-
lausu.
Stöð 3 dreifði örbylgjuloftnetum
til áskrifenda, en fæstir þeirra
greiddu nokkum tímann áskriftar-
gjald, enda engir myndlyklamir.
Þar stóð hnífurinn í kúnni strax
í upphafi. íslenska sjónvarpið hafði
samið við bandarískan framleið-
anda myndlykla, Veltech, en mán-
uðir liðu og ekkert bólaði á tækjun-
um. Þessum fjölrása myndlyklum
var augljóslega teflt gegn mynd-
lyklum Stöðvar 2, sem þá hafði
nýlokið við að skipta út öllum slík-
um tækjum og gat nýr myndlykill
stöðvarinnar einungis sent út eina
rás. Það þýddi, að þrátt fyrir að
sjónvarpstæki á heimili væru fleiri
en eitt, þá var aðeins hægt að horfa
á eina rás í einu. Forsvarsmenn
Stöðvar 2 vísuðu því á bug að þeir
hefðu áhyggjur af þessum mun á
myndlyklunum og bentu á, að
væntanlegur myndlykill Stöðvar 3
væri sá fyrsti sinnar tegundar í
heiminum og ekki víst að hann
væri tæknilega fullkominn. Aðeins
einnar rásar myndlyklar væru þjóf-
heldir.
Misstu rásir og fengu
Stöð 3 hafði sent út efni í sex
mánuði þegar útvarpsréttarnefnd
tók fjórar sjónvarpsrásir til endur-
úthlutunar. Nefndin tók tvær ör-
bylgjurásir af Islenska sjónvarpinu
hf. og tvær af Islenska útvarpsfé-
laginu, sem rekur Stöð 2. Rásirnar
voru afhentar Sýn hf., sem er að
mestu í eigu sömu aðila og Stöð 2.
Eigendur Islenska sjónvarpsins,
sem töldu að bráðabirgðaúthlutun
nefndarinnar á rásum til þeirra
gilti þar til í ágúst 1996, brugðust
við með því að stofna Bíórásina
hf. Útvarpsréttarnefnd veitti Bíó-
rásinni vilyrði fyrir þremur rásum
til þriggja ára og afturkallaði um
leið leyfi af hverri hinna stöðv-
anna, Stöð 3, Stöð 2 og Sýn. Þann-
ig komu eigendur Stöðvar 3 málum
aftur í viðunandi horf að sinni, en
augljóst var að úthlutun sjónvarps-
rása var í undarlegum farvegi, þar
sem nefndin varð sífellt að taka
tillit til nýrra lögaðila, sem sóttu
um rásir, þótt eigendur væru nán-
ast hinir sömu og að fyrri sjón-
varpsstöðvum.
Samið um nýja lykla
Myndlyklasagan hélt áfram.
Meðgangan var erfið og í ágúst
1996, níu mánuðum eftir að útsend-
ingar hófust, rifti Stöð 3 samning-
um við bandaríska myndlyklafram-
leiðandann og tilkynnti að ætlunin
væri að höfða mál gegn fyrirtækinu
vegna vanefnda. Að sögn Stöðvar
3 hafði Veltech ekki tekist að leysa
tæknileg vandamál, sem fylgdu
aðlögun myndlyklakerfis fyrirtæk-
isins að evrópsku sjónvarpi.
Um leið og tilkynnt var um riftun
samninga við Veltech var skýrt frá
því að samið hefði verið við evrópsk-
an framleiðanda myndlykla. Nú brá
svo við að væntanlegur myndlykill
var einnar rásar, en ekki fjölrása-
lykill. Stjómarformaður Islenska
sjónvarpsins hf. sagði evrópska fyr-
irtækið reiðubúið til að skrifa undir
bindandi samning um að hægt yrði
að heíja ruglun á dagskrá Stöðvar
3 í byijun nóvember, tæpu ári eftir
að útsendingar hófust og stefnt
væri að því að hefja útsendingar
þáttasölusjónvarps „pay-per-view“
í desember. Stjórnarformaðurinn
sagði líka, að tafirnar hefðu valdið
Stöð 3 töluverðu Ijárhagstjóni og
ætti að auka hlutafé fyrirtækisins
um 300 milljónir króna. Hluthafar
myndu auka hlut sinn, en einnig
væri unnið að því að fá nýja hlut-
hafa inn í fyrirtækið.
Heimir Karlsson var ráðinn sjón-
varpsstjóri Stöðvar 3 í ágúst. Hann
sagði markaðsrannsóknir hafa
sýnt, að áhorfendur litu fyrst og
fremst til þáttasölusjónvarps, en
ekki íjölrásaafruglunar.
íslensk margmiðlun tekur við
í október á síðasta ári dró enn
til tíðinda, þegar stjórn Islenska
sjónvarpsins óskaði eftir heimild
til að leita nauðasamninga. Fram
kom, að nokkrir nýir ijárfestar
hefðu ákveðið að koma inn í félag-
ið, að því gefnu að fjárhagsleg
endurskipulagning næðist. Stjóm-
arformaðurinn sagði, að kröfuhöf-
um yrði boðið að fá 35% af kröfum
sínum greiddar, en þeir sem greitt
hefðu áskrift fengju annaðhvort
afslátt af áskrift í framtíðinni eða
fría mánuði.
Hálfum mánuði síðar var til-
kynnt, að íslensk margmiðlun hf.
hefði tekið að sér rekstur Stöðvar
3. Helstu hluthafar í íslenskri
margmiðlun vora flestir sömu hlut-
hafar og í íslenska sjónvarpinu
nema að auki komu til sögunnar
öflugir fjárfestar svo sem Burðar-
ás, sem hlutabréfasjóður Eimskips,
Festing, sem er fjárfestingarfélag
í tengslum við Sjóvá-Almennar,
Eignarhaldsfélagið Alþýðubank-
inn, Þróunarfélag íslands, Vá-
tryggingafélag Islands, íslensk
endurtrygging og Skeljungur.
Hlutafé félagsins var 160 milljónir
og tekið fram að hlutafé fyrir
næsta áfanga hlutafjáraukningar
væri þegar tryggt, enda var hlut-
afé aukið í 300 milljónir í des-
ember. Þá væri stefnt að því að
gera íslenska margmiðlun hf. að
opnu almenningshlutafélagi.
í myndlykiamálum kom nú
fram, að nýjum lyklum yrði dreift
í desember. Auk dagskrár Stöðvar
3 og sérstakra valrása hefðu
áskrifendur Stöðvar 3 áfram að-
gang að útsendingum erlendu sjón-
varpsrásanna CNN, Eurosport,
MTV, Discovery Channel og Car-
toon Network.
Svo virtist sem skriður væri að
komast á málin í janúar sl., þegar
Stöð 3 réð fimm starfsmenn Stöðv-
ar 2 til starfa, þar á meðal Magnús
E. Kristjánsson^ framkvæmdastjóra
markaðssviðs Islenska útvarpsfé-
lagsins, sem nú varð sjónvarpsstjóri
Stöðvar 3. Heimir Karlsson var þá
horfinn á braut.
Stöð 2 brást hart við og kærði
fjóra af þessum fimm fyrrverandi
starfsmönnum sínum til Rannsókn-
arlögreglu ríkisins og óskaði eftir
að kannað yrði hvort þeir hefðu
verið valdir að hvarfi trúnað-
argagna úr fyrirtækinu. Eftir
nokkrar deilur og ásakanir á víxl
var það mál hins vegar látið niður
falla.
Myndlyklarnir voru nú tilbúnir
hjá framleiðandanum í Sviss og
þeir komu til landsins fyrir
skömmu. Þá var sagt, að dreifing
þeirra til áskrifenda hæfist mjög
fljótlega. Áður en af því varð bár-
ust hins vegar nýjustu fréttirnar
af málefnum Stöðvar 3, með því
að íslenska útvarpsfélagið keypti
öll hlutabréf Islenskrar margmiðl-
unar og sameinaði Stöð 2 og Sýn.
SKÓGRÆKTARFÉLAG íslands og
Búnaðarbanki íslands hafa gert með
sér samstarfssamning um fræðslu-
og leiðbeiningarstarf á vegum skóg-
ræktarfélagsins á árinu 1997. Fyrsti
fræðslufundurinn verður haldinn í
kvöld í húsnæði Landgræðslusjóðs í
Fossvogi, þar sem Sigurður Blöndal
fyrrverandi skógræktarstjóri mun
flalla um skógrækt á Héraði.
Eitt af megin markmiðum skóg-
ræktarhreyfingarinnar er að koma á
framfæri fræðslu og leiðbeiningum
til almennings. Hafa einstök skóg-
ræktarfélög gegnt lykilhlutverki með
öflugu félags- og leiðbeiningarstarfi
á sínum starfssvæðum, en því miður
hefur fjármagn til framkvæmda verið
af skomum skammti. Með stuðningi
Búnaðarbankans er félaginu gert
kleift að hleypa af stokkunum þáttum,
sem lengi hafa verið á óskalista og
er þar bryddað upp á íjölmörgum
nýjungum, segir í fétt frá félaginu.
Námskeið og kynningafundir
Gerð hefur verið áætlun um nám-
skeiðahald og kynningafundi víðs-
vegar um land. Eitt þriðjudagskvöld
í hveijum mánuði verður fræðsla og
myndasýning í húsnæði Land-
græðslusjóðs í Fossvogi og standa
skógræktarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu og Skógræktarfélag íslands
sameiginlega að fundunum. Verða
fjórir fundir haldnir fram í maí en
síðan verður þráðurinn tekinn upp á
ný í september með fundum fram í
desember.
Skipulagðar hafa verið skógar-
göngur á vegum skógræktarfélag-
anna og eru fyrirhugaðar göngur á
vegum Skógræktarfélags Eyfirðinga
á Eyjafjarðarsvæðinu. Útivistar-
svæðið Kjarnaskógur verður kynnt
sérstaklega, en í ár verður haldið upp
á 50_ára afmæli skógræktar á svæð-
inu. í samstarfi við Ferðafélag Akur-
eyrar verða einnig skipulagðar göng-
ur í Vaðlaskóg.
í vor og sumar munu skógræktar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu standa
fyrir skógargöngum um athafna-
svæði sín og verður Græni trefillinn
kynntur en það er samheiti yfir rækt-
unar- og útivistarsvæði á útmörkum
höfuðborgarsvæðisins. Verða stað- |
kunnugir leiðsögumenn með í ferðum ,
og fræða göngumenn um það sem
fyrir augu ber. Gengið verður úr |
Hafnarfirði og að Mógilsá í 12 áföng-
um á fimmtudagskvöldum frá 22.
maí til 7. ágúst.
Námskeið
skógræktarfélaganna
Skógræktarfélögin víðs vegar á
landinu munu í vor og sumar standa
að námskeiðum í skóg- og tijárækt. |
Námskeiðin taka einn dag eða tvö
kvöld og eru ætluð félagsmönnum
skógræktarfélaganna og öðru (
áhugasömu fólki. Lögð verður 1
áhersla á gróðursetningu, tijáteg-
undaval og umhirðu tijágróðurs og
að námskeiðið sé hagnýtt og fræð-
andi. Fyrri hluti námskeiðsins er
bóklegur og fer fram innanhúss, en
seinni hlutinn er verklegur. Leiðbein-
endur verða Arnór Snorrason, Brynj-
ólfur Jónsson og Jón Geir Pétursson .
skógfræðingar hjá Skógræktarfélagi
íslands. *
Sumarbústaðaeigendur (
í vor verða einnig haldin tvö nám-
skeið í skóg- og tijárækt, fyrir sum-
arbústaðaeigendur og þá sem ráða
yfir landi til ræktunar. Námskeiðin
skiptast í bóklegan og verklegan
hluta og verða þau haldin í apríl og
maí í húsnæði Landgræðslusjóðs í
Fossvogi. Fjallað verður sérstaklega
um landlestur, tijátegundaval, þarfir
einstakra tijátegunda, gróðursetn-
ingu, skýlingu, áburðargjöf, upp- (
græðslu ógróinna svæða, fræsöfnun ■
og sáningu og almenna umhirðu tijá-
gróðurs. Leiðbeinendur verða stað-
kunnugir skógfræðingar.
Andlát
NINNA NIELSEN
NINNA Nielsen, hús-
móðir, lést á sjúkra-
húsi í Kaupmanna-
höfn 20. febrúar sl.,
87 ára að aldri.
Ninna fæddist í
Reykjavík 28. sept-
ember 1909. Foreldr-
ar hennar voru Sigur-
björn Þorkelsson,
kaupmaður í Vísi og
síðar forstjóri Kirkju-
garða Reykjavíkur,
og kona hans Gróa
Bjarnadóttir sem lést |
í spönsku veikinni
1918.
Ninna starfaði á
ljósmyndastofu Lofts
Guðmundssonar. Hún
giftist 1930 Holger
W. Nielsen, tann-
lækni, og hefur heim-
ili þeirra verið í Kaup- (
mannahöfn. Eignuð-
ust þau fjóra syni sem
búsettir eru í Dan- j ’
mörku.