Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 15
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
JÓHANNES G. Sigurgeirsson spurðist fyrir um möguleika á þvi
að fyrsta flug dagsins yrði frá Akureyri þannig að Norðlendingar
kæmust sem fyrst suður á daginn. Páll Halldórsson hjá Flugleiðum
og Ómar Benediktsson hjá Islandsflugi eru til vinstri á myndinni.
Flugfélag íslands
Fyrsta ferð dagsins
frá Akureyri
FLUGFÉLAG íslands hyggst fljúga Páll sagði fyrirhugað að gera slíka
beint frá Akureyri fyrstu ferð að
morgni eftir að það hefur starfsemi.
Þetta kom fram í svari Páls Halldórs-
sonar framkvæmdastjóra Flugleiða
innanlands á fundi um framtíð inn-
anlandsflugs sem haldinn var á Ak-
ureyri í gær.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
spurði á fundinum hvort ætlunin
væri að hefja áætlunarfiug dagsins
frá Akureyri. Ef svo yrði væri sam-
runi Flugleiða innanlands og Flugfé-
lags Norðurlands að skila Norðlend-
ingum einhverjum ávinningi. Það
skipti fjölda fólks miklu máli að kom-
ast sem fyrst suður að morgninum
til að geta notað daginn, fleiri norð-
anmenn sæktu hluta af sinni vinnu
suður en öfugt. Jóhannes Geir sagði
Flugfélag íslands með nýtt heimilis-
fang á Akureyri ekki standa undir
nafni nema sú breyting yrði gerð að
fyrsta ferð dagsins yrði frá Akureyri.
breytingu, það væri mun auðveldara
nú þar sem aðstaða væri fyrir hendi
og hluti fiugmannahóps félagsins
væri búsettur á Akureyri.
Ómar Benediktsson framkvæmda-
stjóri íslandsflugs sagði á fundinum
að félagið hefði prófað að fljúga
fyrsta flug dagsins frá ísafirði og
það gefist ágætlega, en hvað yrði
annars staðar gæti hann ekki fullyrt.
Þeir Páll og Ómar áttu von á að
mest samkeppni yrði á leiðinni milli
Reykjavíkur og Akureyrar, til Vest-
mannaeyja, Egilsstaða og Isafjarðar.
„Við efumst ekki um að íslandsflug
ætli sér að fljúga milli Akureyrar og
Reykjavíkur og miðum okkar áætlan-
ir við það að verja það sem við höf-
um,“ sagði Páll.
í máli hans kom einnig fram að
það væru tvímælalaust hagsmunir
Flugfélags íslands ef beint flug til
Akureyrar frá útlöndum ykist.
Tollgæslan og lögreglan leituðu í rússneskum togara
TOLLGÆSLAN á Akureyri gerði
leit í rússneska togaranum Opon
um hádegi á sunnudag í samvinnu
við lögreglu, en um borð fundust
23 flöskur af vodka auk þess sem
hald var lagt á ýmsan annan vam-
ing sem grunur lék á að væri illa
fenginn.
Sigurður Pálsson yfirtollvörður
sagði að fylgst hefði verið með tog-
aranum undanfarna daga, en hann
hefur legið við festar í höfninni.
Talsverður straumur hefur verið að
togaranum, einkum af yngra fólki
sem staðið hefur í viðskiptum við
rússnesku sjómennina. Virtist sem
vodkinn hefði notið einna mestra
vinsælda, en straumurinn um borð
var slíkur að ekki þótti annað fært
en að setja lögregluvörð um skipið.
Lögregla gerði tollgæslu viðvart og
var í framhaldinu gerð leit í skipinu.
Að sögn Sigurðar virðist sem
rússnesku sjómennirnir hafi einkum
látið hinar eftirsóttu veigar í skipt-
um fyrir gamlar tölvur og mynd-
bandstæki. Að sögn Sigurðar verð-
ur áfram fylgst með skipinu.
Hald lagt á vodkaflöskur
Ákæra á hendur manni fyrir kynferðisbrot þingfest
Gæsluvarðhald framlengt
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið
út ákæm á hendur Akureyringi á
sextugsaldri fyrir kynferðisbrot
gagnvart ungum stúlkum og dreif-
ingu á klámefni. Málið var þingfest
í Héraðsdómi Norðurlands eystra í
gær en frekari málsmeðferð frestað
fram í næstu viku að ósk ákæm-
valdsins, sem hyggst leggja fram
frekari gögn í málinu.
Jafnframt verður væntanlega
ákveðið nk. þriðjudag hvenær aðal-
meðferð málsins fer fram. Dómþing
verður haldið fyrir luktum dymm
og er það gert til að hlífa vitnum
í málinu. Þá var gæsluvarðhaldsúr-
skurður mannsins framlengdur í
gær til 21. apríl nk. að ósk ríkissak-
sóknara.
Kynferðisbrot
gagnvart sex stúlkum
Ákæra ríkissaksóknara á hendur
manninum er í fjórum liðum. í
fyrsta lagi er manninum gefið að
sök að hafa haustið 1991 framið
kynferðisbrot gagnvart þremur
stúlkum á aldrinum 6-9 ára. í
öðm lagi að hafa frá því í byijun
árs 1996 og fram á mitt ár, fram-
ið kynferðisbrot gagnvart þremur
öðrum stúlkum á sama aldri.
í þriðja lagi að hafa á eins árs
tímabili, frá nóvember 1995, dreift
klámljósmyndum á spjallrás al-
netsins. í fjórða lagi er þess kraf-
ist að m.a. tölvubúnaður ýmiss
konar svo og ljósmyndir sem hald
var lagt á við rannsókn málsins,
verði gert upptækt.
Þá eru hafðar uppi miskabóta-
kröfur vegna þeirra sex stúlkna
sem tengjast málinu, samtals að
upphæð 8 milljónir króna auk
kostnaðar.
Vél búin:
1.6 lítra rúmmáli
16 ventlum
tölvustýröri innspýtingu
116 hestöflum
Rafknúnar rúöur
Rafknúnir hliðarspeglar
Samlæsing í hurðum
Vökva- og veltistýri
Tveir styrktarbitar í huröum
Útvarp/kassettutæki
meö 4 hátölurum
Litað gler
Statíf fyrir drykkjarmál
Hólf milli framsæta
Stafræn klukka
Snúningshraöamælir
Barnalæsingar
o.m.fl.
Það er mikils virði að eignast vel búinn
bíl með ríkulegum staðalbúnaði, sem
auk þess fylgir verðmætur aukapakki.
Að aka svo í burtu á glæsilegum bílnum,
sannfærð um að hann er meira virði
en hann kostaði.
t.
D
3
Ð
<
<
O
<
uo
cc
n.
i—
<
Elantra
vekur athygli
í umferðinni
fyrir straumlínu-
lagað og
fallegt útlitið.
En kostirnir eru
ekki bara á
yfirborðinu.
Mikil áhersla
er lögð á öryggis-
atriði, vélin er
kraftmikil,
hljóðeinangrun
góð og innanrými
er þaulhugsað
og þægilegt.
Öll þessi atriði
koma vel í Ijós
við reynsluakstur.
pakkar
- veldu þér einn
7 Álfelgur
,/|> Vetrardekkj mottur,
jt*F hliðarlistar, bónpakki.
Vindskeið
vetrardekk, mottur,
hliðarlistar, bónpakki.
‘—y
GSM sími
vetrardekk, mottur,
hliðarlistar, bónpakki.
Geislaspilari
vetrardekk, mottur,
hliöarlistar, bónpakki.
Meöalverömæti pakkanna er um 80.000 kr.
en þeir fást fyrir aöeins 25.000 kr. á
PAKKADÖGUM viö kaup á Hyundai bifreiö.
Verð frá
1.395.000
HYunoni
tilframtíðar
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200 - BEINN SÍMI: 553 1236