Morgunblaðið - 25.02.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 17
VIÐSKIPTI
Endurskipulagning á verðbréfaútgáfu ríkissjóðs hefst með endurfjármögnunarútboði á morgun, miðvikudag
Ríkissjóður innkall-
ar 5,8 milljarða kr.
Rauðir flokkar spariskírteina
Uppsagnarf lokkar til
endurf jármögnunar í markf lokka
Flokkur Nafnvextir Lokagjalddagi
Utistand.
fjárhæð,
millj. kr.
FYRSTI liðurinn í endurskipulagn-
ingu á verðbréfaútgáfu ríkissjóðs
með fækkun flokka spariskírteina
og gerð svonefndra markflokka
verður á miðvikudag er fram fer
endurfjármögnunarútboð á spari-
skírteinum vegna innköllunar níu
flokka spariskírteina frá árunum
1984-87. Flokkarnir eru með
gagnkvæmum uppsagnarákvæð-
um og hefur ríkissjóður nýtt sér
rétt sinn til að segja þeim upp nú
og koma þau því til innlausnar á
lokagjalddaga á næstu mánuðum.
Um er að ræða tæplega 5,8
milljarða króna sem verða innkall-
aðir nú og boðið upp á endurfjár-
mögnun þeirra í skiptikjaraútboð-
inu á morgun, miðvikudag. Flokk-
amir níu eru mjög misstórir eða
allt frá því að vera í kringum 20
milljónir króna og uppi það að vera
rúmir 2 milljarðar króna. Flokk-
arnir eru einnig með misháa vexti
eða frá því að vera 6,50% og upp
í það að bera 8% vexti umfram
verðtryggingu.
3,8 milljarðar 10. mars
Elstu flokkarnir eru frá árinu
1984. Þeir eru tveir frá því ári og
eru með hæstu vextina 8%. Annar
þessara flokka 1984 II er stærstur
spariskírteinaflokanna sem nú eru
innkallaðir 2.043 milljónir króna að
innlausnarverði. Lokagjalddagi á
honum er 10. mars næstkomandi
og þá er einnig á lokagjalddaga
næststærsti flokkurinn, sem er að
innlausnarverði 1.705 milljónir
króna. Þessi flokkur er frá árinu
1985, er sérgreindur ILA og ber
7% nafnvexti umfram verðtrygg-
ingu.
Samanlagt eru það tæpir 3,8
milljarðar króna af 5,8 milljarða
króna heildarinnlausn, sem er með
lokagjalddaga 10. mars næstkom-
andi. Hinir flokkamir koma síðan
einn af öðrum á næstu mánuðum.
Annar flokkur frá árinu 1984 er á
lokagjalddaga 12. maí. Hann heitir
1984 III, ber 8% vexti og er að
innlausnarverði 591 milljón króna.
Flokkur 1986 II4A er á lokagjald-
daga 1. júlí. Hann ber 7,50% vexti
og er 125 milljónir króna að inn-
lausnarverði.
Þeir fimm flokkar sem eru eftir
eru allir með lokagjalddaga 10. júlí
næstkomandi. Þessir flokkar eru frá
árunum 1985 til 1987 og bera
6,50-7% vexti. Þeir era mjög mis-
munandi að stærð eða allt frá því
að vera 20 milljónir króna og upp
í 836 milljónir króna sá stærsti.
Ávaxtast ekki eftir
lokagjalddaga
Þar sem þessum spariskírteina-
flokkum hefur verið sagt upp sam-
kvæmt ákvæðum í skírteinunum
bera þeir ekki vexti og verðtrygg-
ingu eftir að lokagjalddaga er náð.
í upplýsingum frá Lánasýslu ríkis-
ins kemur fram að í endurfjár-
mögnunarútboðinu á morgun mið-
vikudag er eigendum þessara
spariskírteina boðið að tryggja sér
spariskírteini í þeim markflokkum
sem í ráði er að bjóða upp á í fram-
tíðinni á markaðskjöram. Þeir
flokkar sem í boði eru verða 5 og
8 ára spariskírteini, auk árs-
greiðsluskírteina. Eftir útboðið
verður svo þeim sem ekki tóku
þátt í útboðinu boðið að skipta á
skírteinum sínum á sérstöku skipti-
verði. Er eigendum skírteina í þess-
um flokkum bent á að gera viðeig-
andi ráðstafanir í tíma áður en að
lokainnlausn kemur svo þeir missi
ekki af vöxtum og verðbótum eftir
gjalddaga. Fram kemur að ekki sé
nauðsynlegt að bíða fram á loka-
innlausnardag því við skiptin muni
eldri skírteini bera nafnvexti til
gjalddaga og þau nýju bera vexti
frá þeim tíma.
Annar áfangí í apríl
í öðram áfanga í apríl næstkom-
andi verður eigendum 22 flokka
spariskírteina, sem era of litlir til
að verða markaðsflokkar, boðið að
skipta yfir í ríkisverðbréf í endurfj-
ármögnunarútboði sem fyrirhugað
er 23. apríl næstkomandi. Þessir
flokkar era samanlagt að verðgildi
um 7,8 milljarðar króna og era með
lokagjalddaga frá og með 10. sept-
ember í haust og fram til hausts
ársins 2003. Þeir era allt frá árinu
1977 og bera margir hveijir lága
vexti eða allt frá 3,50%.
í þriðja áfanga í október næst-
komandi verður fitjað upp á þeirri
nýjung að boðið verður upp á end-
Gulir flokkar ríkisverðbréfa
Til endurf jármögnunar í nýja markflokka spariskírteina og ríkisbréfa Flokkur Nafnvextir Lokagjalddagi
1. áfangi: SP1977 II 3,50% 10/9 1997
SP1978 I 3,50% 25/3 1998
SP1978 II 3,50% 10/9 1998
SP1979 I 3,50% 25/2 1999
SP1979 II 3,50% 15/9 1999
SP1980 I 3,50% 15/4 2000
SP1980 II 3,50% 25/10 2000
SP1981 I 3,20% 25/1 2003
SP1981 II 3,20% 25/10 2003
SP1982I 3,53% 1/3 2002
SP1982 II 3,53% 1/10 2002
SP1983I 3,53% 1/3 2003
SP1983 II 4,16% 1/11 2000
SP1984 IA 5,08% 1/2 1998
SP1985 IIB 6,71% 10/9 2000
SP1986 IB 8.16% 10/1 2000
SP1987 II6A 7.20% 10/10 1997
SP1988 I6A 7.20% 1/2 1998
SP1989 I21/2A 5.50% 10/1 2003
SP1989 II8D 6.00% 10/7 1997
SP1993 II5D 6.00% 10/10 1998
SP1993 IIXD 6.00% 10/10 2003
2. áfangl: SP1993 I5A 6,00% 10/4 1998
RBRÍK 1004/98 0,00% 10/4 1998
3. áfangl: SP1989 IIXA 5,00% 15/1 2010
uríjármögnun tveggja verðbréfa-
flokka, spariskírteinaflokks og rík-
isbréfaflokks, þegar innan við ár
er til gjalddaga þeirra. Loks verður
í upphafi næsta árs eigendum spari-
skírteina sem út vora gefin árið
1989 boðið að skipta bréfum sínum
fyrir ný markaðsbréf. Með þessu
móti er eigendum flokkanna gefinn
kostur á að minnka íjárfestingar-
áhættu sína og ríkissjóður minnkar
sveiflur í útgreiðslum og dregur úr
spennu á markaðnum þegar end:
uríjármagna þarf háar Qárhæðir. í
upplýsingum frá Lánasýslunni segir
ennfremur að í öllum tilvikum verði
fyrirkomulag endurfl ármögnunar
með svipuðum hætti. Eldri skírteini
séu tekin fýrir ný og geti eigendur
valið um lánstíma.
Þegar upp er staðið hefur spari-
skírteinaflokkum ríkissjóðs fækk-
að úr 45 í 9. Eftir verða svonefnd-
ir markflokkar, þar sem boðið er
upp á spariskírteini til mismunandi
langs tíma og ríkisbréf til styttri
tíma en þau era óverðtryggð. Til-
gangurinn með einföldun kerfisins
er að gera spariskírteinin markaðs-
hæfari og viðskipti með þau auð-
veldari, enda er gert ráð fyrir að
tekin verði upp öflug viðskiptavakt
með flokka þessara ríkisverðbréfa.
1984 II 8,00% 10/3 1997 2.041
1985 IIA 7,00% 10/3 1997 1.705
1984 III 8,00% 12/5 1997 591
1986 II4A 7,50% 1/7 1997 125
19851A 7,00% 10/7 1997 836
1985 I B 6,71% 10/7 1997 30
1986 I3A 7,00% 10/7 1997 293
1987 I2A 6,50% 10/7 1997 143
1987 I4A 6,50% 10/7 1997 20
SAMTALS 5.784
Grænir flokkar ríkisverðbréfa
Markflokkar ríkisverðbréfa
Flokkur Nafnvextir Lokagjalddagi
1994 I5D 4,50% 10/2 1999
1995 I5D 4,50% 10/2 2000
RBRÍK1010/00 0,00% 10/10 2000 * '§ e C* 5J ’S'S.
1990IIXD 6,00% 1/2 2001
1992 IXD 6,00% 1/4 2002 * Js .S*
1993 IXD 6,00% 10/2 2003 jS g!
1994 IXD 4,50% 10/4 2004
1995 IXD 4,50% 10/4 2005 * £!|
1995I20D 0,00% 1/10 2005 1 §■
.o—
XE199415D 8,00% 5/11 1999 Js
XE199515D 8,00% 10/2 2000
1995 11OB 0,00% 2/5 2006 *
Dregið verður úr næsta Safnkortspotti föstudaginn 28. febrúar
og eru vinningar glæsilegir sem fyrrum.
V I N N I N G U R
Sólarferð fyrir tvo með Samvillllllleriir-Laildsýll
Samvinnuferðum-Landsýn
að verðmæti 120.000 kr.
2, VINNINGUR
Panasonic 5652 örbylgjuofn
frá Japis að verðmæti 30.000 kr.
Karrimor flísjakki frá Skátabúðinni
að verðmæti 7.880 kr.
5H4, V I N N I N G U R
Geisladiskur að eigin vali
á bensínstöðvum ESSO.
Með því að framvísa Safnkorti í hvert skipti sem þú greiðir fyrir
vöru eða þjónustu á ESSO-stöðvunum, og á mörgum veitingastöðum
þeim tengdum, getur þú margfaldað líkumar
á vinningi úr Safnkortspottinum.
Þú færð SAFNK0RT á næstu ESSO-stöð
SAFNKORT ESSO - enginn kostnaður, aðeins ávinningur!
Oliufélagið hf