Morgunblaðið - 25.02.1997, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 19
VIÐSKIPTI
Fjárfestingar-
tryggingar í boði
SVONEFNDAR fjárfestingar-
tryggingar sem svissneska
tryggingafélagið Winterthur er
með eru nýjung hér á landi sem
nú er boðið upp á. Miðað er við
að trygging sé keypt með ein-
greiðslu sem er að lágmarki
tvær miiyónir króna, en ekki
er um reglulegan sparnað að
ræða eins og reglan er í mörg-
um öðrum lífeyristryggingum
sem hér hafa verið á boðstólum.
íslenska vátryggingamiðlunin
ehf. miðlar fyrir Winterthur, en
fyrirtækið fékk starfsleyfi í
nóvember síðastliðnum og hef-
ur einnig miðlað til bresku fé-
laganna Sun Life og Friends
Provident.
Karl Jónsson er fram-
kvæmdastjóri íslenskrar vá-
tryggingamiðlunar. Hann sagði
að með aðild að Evrópska efna-
hagssvæðinu hefði íslendingum
opnast aðgangur að erlendum
tryggingafélögum innan
svæðisins og jafnframt ný leið
til lífeyrissparnaðar. Fyrir tíma
aðildar hefðu erlend trygginga-
félög orðið að hafa starfsstöð
eða útibú hér á landi, sem ekki
hefði verið fýsilegt vegna mik-
ils kostnaðar ojg smæðar
markaðarins. I dag gætu er-
lendu félögin boðið þjónustu
sína fyrir milligöngu vátrygg-
ingamiðlara,sem væri ný
starfsstétt á íslandi, en gegndi
víða erlendis lykilhlutverki milli
tryggingataka og tryggingafé-
laga. Þeir störfuðu samkvæmt
lögum um vátryggingastarf-
semi nr. 60/1994 og til starfsem-
innar þyrfti leyfi viðskiptaráð-
herra. Vátryggingamiðlarar
störfuðu sjáifstætt og væru
óháðir einstökum tryggingafé-
lögum.
Starfsábyrgðartrygging
Karl sagði að vátrygginga-
miðlari þyrfti að uppfylla
ákveðin skilyrði til að fá starfs-
leyfi hér. Til dæmis bæri honum
að hafa 25 miiyóna króna
starfsábyrgðartryggingu, sem
bætti hugsanlegt tjón, sem hann
af gáleysi ylli tryggingataka.
Vátryggingaeftirlitið hefði eft-
irlit með starfsemi miðlara og
ræki neytendamáladeild, sem
væri ráðgefandi varðandi hugs-
anleg ágreiningsefni. „Við erum
óháðir einstökum tryggingafé-
lögum og okkur ber að veita
neytandanum hlutlausa ráð-
gjöf,“ sagði Karl.
Hann sagðist sjá fram á mjög
aukna samkeppni á trygginga-
sviðinu hér á landi. Hérlend
tryggingafélög hefðu ekki sinnt
svokölluðum söfnunartrygging-
um, þar sem færi saman líf-
trygging og sparnaður, og á því
sviði kæmu erlendu trygginga-
féiögin mjög sterk inn á mark-
aðinn hér. Auk miðlunar fyrir
Sun Life og Friends Provident,
sem hefðu verið hér á markaði
um nokkurn tíma, myndu þeir
einnig miðla fyrir Winterthur í
Lúxemborg, sem sérhæfði sig í
fjárfestingartryggingum. Það
TILBOÐ:
Kjúklingabiti
99 kr
væri í eigu Winterthur í Sviss,
stofnað 1875 og væri fjórða
stærsta tryggingafélag í Evr-
ópu. Að mati óháðs aðila, Stand-
ard & Poor, væri það eitt örugg-
asta fjármálafyrirtæki Evrópu.
Fastir starfsmenn þess væru
yfir 26 þúsund og sjóðir þess
losuðu 60 miljjarða Bandaríkja-
dala.
Karl sagði að þarna byðist
fjárfestum tækifæri til þess að
kaupa sér tryggingu sem jafn-
Morgunblaðið/Ásdís
AÐSTANDENDUR íslenskrar vátryggingamiðlunar ehf. Frá vinstri
Karl Jónsson, Sigurður Þ. Sigurðsson, Kristinn R. Sigurðsson, Hall-
dór B. Baldursson, Trausti Sigurðsson og Jón Kristinn Snæhólm.
framt væri fjárfesting. Kaup á
iíftryggingu fæli jafnframt í
sér sjóðsaðild. Ekki væri um
reglubundinn sparnað að ræða
en hægt væri hvenær sem væri
á tímabilinu að borga til við-
bótar inn á trygginguna ef
upphæð væri yfir ákveðnu lág-
marki.
Karl sagði að auk lífeyris-
trygginga stefndi fslenska vá-
tryggingamiðlunin að því að
vera einnig með aðrar tegundir
trygginga eins og skaðatrygg-
ingar. f næstu viku væri
væntanlegur hingað tii lands
fulitrúi frá Lloyds í Bretlandi
sem myndi vinna náið með
þeim. Ætlunin væri að útvíkka
starfsemina og starfa almennt
á tryggingasviðinu.
TÆ K M I VÆ D D
MTÍÐ
M I
L U M □ G
SSEITMIMGjU
Námstefna um margmiðlun og framtíðina
í markaðssetningu og miðlun upplýsinga
á íslenska markaðsdeginum í Háskólabíói,
föstudaginn 28. febrúar kl. 09:15.
Scott Woelfel. CNN Interactive.
Stefán Kjartansson. CNN Interactive.
Kolbeinn Arinbjarnarson. Baráttan um viðskiptavininn: Tækni leysir
tilfinningar af hólmi.
Geir Borg, Gagarín, Einar Guðmundsson og Viðar Jóhannsson,
Sjóvá-Almennum. Gerð margmiðlunarkennsluefnis.
Eyþór Arnalds: OZ er meira en grafík!
Ásgeir Friðgeirsson. Veraldarvefurinn: Þjóðbraut viðskipta og þjónustu.
Þ A1 I rÓKUGJALD DC3 SKRANING
Þátttökugjald fyrir félaga í ÍMARK er 6.900 kr. og 9.900 kr. fyrir aðra. Innifalið er léttur
hádegisverður og kaffiveitingar. Þátttökugjaldið má greiða með VISA og EURO.
Skilyrði fyrir því að fá aðgöngumiða á félagsverði ÍMARK er að viðkomandi hafi greitt
félagsgjöld. Hægt er að greiða félagsgjöld við skráningu eða við innganginn.
Skráning fer fram á skrifstofu ÍMARK í síma 568 9988. Einnig má tilkynna þátttöku með
því að senda fax í sama númer eða í gegnum tölvupóst: imark@mmedia.is. Tilkynnið þátt-
töku sem fyrst þar sem sætafjöldi er takmarkaður og búast má við mikilli aðsókn.
Munið verðlaunaafhendinguna fyrir Athyglisverðustu auglýsingar ársins (AAÁ)
í Háskólabíói, föstudaginn 28. febrúar kl.15:30.
STUÐN I NGSAÐILAR
ÍMARK:
HVSARK-
Margt smátt
AUClfSINCAVORUR
m
SVANSPRENT ehf
OPIN KERFIHF
Whpl nevvueT
PACKAMi
1
PÓSTUR OG SlMI HF
ojpwsallt