Morgunblaðið - 25.02.1997, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Keimlíkar
sprengjur
Atlanta. Reuter.
BANDARÍSKA alríkislögreglan
(FBI) sagði í gær að margt væri líkt
með sprengjum sem notaðar hefðu
verið í nýlegum tilræðum í Atlanta.
Fimm manns slösuðust í spreng-
ingu á næturklúbbi um síðustu helgi
og í síðasta mánuði varð talsvert tjón
er sprengja sprakk við læknamiðstöð
þar sem fóstureyðingar eru fram-
kvæmdar. Að sögn lögreglu er of
snemmt að fullyrða að sömu aðilar
hafi verið að verki í báðum tilvikum.
Á mánudag lýstu samtök, sem
kalla sig „Her Krists“ yfir ábyrð á
tveimur sprengjutilræðanna, í
læknastöðinni og næturklúbbnum,
sem er aðallega sóttur af samkyn-
hneigðum. Lögregla segist ekki vita
hvort um gabb sé að ræða eða hvort
að samtökin stæðu að tilræðunum.
Sé sú raunin, kunna þau einnig
að hafa staðið að sprengjutilræðinu
sem var í skemmtigarði í Atlanta
meðan á Ólympíuleikunum stóð í
fyrrasumar en heimiidir innan FBI
herma að margt hafi verið líkt með
henni og framangreindum sprengju.
-----» ♦ ♦
Bæjaraland
Tekizt á um
sögusýningu
MUnchen. Reuter.
UMDEILD sögusýning, sem hefur
þann boðskap að venjulegir þýzkir
hermenn hafi átt meiri þátt í
grimmdarverkum nazista á dögum
síðari heimsstyijaldar en almennt
hefur verið talið, var opnuð í Munch-
en i gær. Borgarstjórinn, jafnaðar-
maðurinn Christian Ude, beindi við
opnunarathöfnina harðri gagnrýni
gegn andstæðingum sýningarinnar
úr röðum íhaldsmanna í Bæjara-
landi, sem hann sagði að stæðu á
bak við áróðursherferð gegn sýning-
unni. Sagði hann þá vilja loka
augunum fyrir sögulegum stað-
reyndum um glæpi sem þýzki herinn
hefði borið ábyrgð á.
Nokkrir forystumanna CSU, syst-
urflokks flokks kristilegra demó-
krata í Bæjaralandi, efndu til mót-
mæla fyrir utan ráðhús borgarinnar,
þar sem sýningin er til húsa, en
þeir segja hana rægja orðstír þýzku
þjóðarinnar.
Allt frá því sýningin var fyrst
sett upp í Hamborg fyrir um án
hefur deilum um hana ekki linnt. Á
bak við hana stendur stofnun, sem
kostuð er af tóbaks-auðkýfingnum
Jan Philip Reemtsma, en forsvars-
menn hennar hafa verið sakaðir um
að tengjast vinstri-öfgahópum.
Palestínumaður banar einum og særir sex í Empire State-byggingunni
200 hindúar brenna til bana
Baripada. Reuter.
LÆKNAR reyndu í gær að bjarga
lífi tuga manna er fengu alvarleg
brunasár í eldi sem blossaði upp í
strákofaþyrpingu hindúa, sem voru
á ráðstefnu í bænum Baripada í
austurhluta Indlands á sunnudag.
Að minnsta kosti 200 hindúar
brunnu til bana í eldsvoðanum.
„Rúmlega hundrað læknar eru
að hlynna að sjúklingunum,“ sagði
læknir á sjúkrahúsi Baripada. Flest-
ir hindúanna höfðu fengið sér blund
eftir hádegisverð þegar eldurinn
blossaði upp og 168 illa brunnin lík
lágu á víð og dreif um svæðið. Yfir-
völd sögðu að aðeins hefði verið
hægt að bera kennsl á 49 líkanna
á staðnum og hin yrðu öll brennd
saman. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær bálförin verður.
187 á sjúkrahús
Hindúamir voru á árlegri ráð-
stefnu, sem er tileinkuð kenniföð-
umum Nigamananda. 187 vom
fluttir á sjúkrahús með bmnasár
og þar af höfðu 32 dáið í gær.
Tugir manna vom með bmnasár á
yfír 70-80% líkamans á sjúkrahús-
inu í Baripada og 24 til viðbótar
vom illa haldnir á sjúkrahúsi í borg-
inni Cuttack, um 175 km suðvestur
af bænum. Öll fórnarlömbin munu
hafa verið karlar.
Blaðamaður, sem kom á staðinn
14 klukkustundum eftir eldsvoð-
ann, sagði að kofar mannanna
hefðu allir brunnið til ösku. „Ætt-
ingjar grétu sáran og biðu upplýs-
inga frá lögreglunni."
Talið er að skammhlaup hafi
valdið eldsvoðanum. Allmikill vind-
ur var og þurrkur þegar eldurinn
kviknaði og hann breyddist því mjög
hratt út. Flest fómarlambanna
sváfu í átta bambus- og hampkof-
um, sem fuðruðu upp á þremur
mínútum, og hampi hafði verið
dreift um kofana til að sofa á. Mik-
ill troðningur skapaðist við einu
útgönguleiðina frá kofaþyrping-
unni, sem var á knattspyrnuvelli.
Konur og börn, sem sóttu ráð-
stefnuna, voru í tíu kofum á öðmm
stað á vellinum .og eldurinn náði
ekki þangað.
H.D. Deve Gowda, forsætisráð-
herra Indlands, fór á staðinn og
sagði að stjómin myndi ræða við
leiðtoga hindúa um ráðstafanir til
að koma í veg fýrir slíka eldsvoða.
Embættismenn sögðu eldsvoðann
sýna að eldvörnum væri mjög
ábótavant á Indlandi.
Reuter
LÖGREGLUMENN á varðbergi við Empire State-bygginguna í New
York eftir skotárás Palestínumanns á ferðamenn.
Skotárás á
ferðamenn
New York. Reuter.
DANSKUR ferðamaður beið bana
og sex særðust alvarlega þegar 69
ára Palestínumaður hóf skothríð á
ferðamenn í Empire State-bygging-
unni í New York á sunnudag.
Maðurinn hét Ali Abu Kamal og
lést án þess að ná meðvitund eftir
að hafa skotið sig með skammbyssu.
Rudolph Giuliani, borgarstjóri New
York, sagði að maðurinn hefði skot-
ið að minnsta kosti átta skotum á
86. hæð byggingarinnar þar sem
ferðamenn geta notið útsýnisins ut-
andyra.
Giuliani sagði að maðurinn hefði
verið með skilríki frá palestínsku
sjálfstjórnarsvæðunum sem sýndu
að hann hefði búið í Ramallah á
Vesturbakkanum og fæðst í Jaffa.
Hann kom til New York á aðfanga-
dag jóla og keypti byssuna í Flórída
í lok janúar.
Mikið öngþveiti meðal
ferðafólksins
„Skothríðin olli miklu öngþveiti,"
sagði Giuliani. „Þama var mjög
margt fólk eins og venjulega síðdeg-
is á sunnudögum."
Maðurinn sem lét lífið var 27 ára
danskur tónlistarmaður og vinur
hans, tónlistarmaður frá Connect-
icut, særðist lítillega. Sex manns
særðust alvarlega, 52 ára Argent-
ínumaður, 30 ára Svisslendingur,
tveir New York-búar og hjón frá
Verdun í Frakklandi. Fimm mánaða
drengur og 18 mánaða systir hans
meiddust lítillega
þegar þau féllu í
gólfið í öngþveit-
inu.
Sameiginleg
sveit manna úr
bandarísku alrík-
islögreglunni
FBI og borgar-
lögreglunni í
Ali Abu New York annast
Kamal rannsókn máls-
ins. Ekki var vitað hvort árásin hefði
verið gerð af stjómmálaástæðum og
ekki hefur verið staðfest hvað mað-
urinn sagði þegar hann hóf skothríð-
ina.
Atburðurinn átti sér stað um
klukkan fimm e.h. að staðartíma,
klukkan tíu á sunnudagskvöld að
íslenskum tíma. Hundruð ferða-
manna vom á staðnum og hlupu í
skjól eða köstuðu sér niður þegar
skothríðin hófst.
Engin málmleitartæki eru fyrir
gesti byggingarinnar. Lögreglan
hefur skoðað myndbandsupptöku
þar sem tilræðismaðurinn sést fara
upp á 86. hæð, klæddur síðum
frakka. „Byssan sást ekki og að öll-
um líkindum var hún falin undir
frakkanum," sagði talsmaður eig-
enda byggingarinnar.
Empire State-byggingin var vígð
árið 1931, er 380 m há og með 102
hæðir. Hún var hæsta bygging
heims þar til World Trade Center
var reist á Manhattan árið 1971.
• •
Oflug mótmæli listafólks og fræðimanna gegn hertn löggjöf um útlendinga í Frakklandi
Upprisa frönsku
menníngarvítanna
reglu, sem skrifuðu undir mótmæli
París. Morgunblaðið.
HERTUM reglum um útlendinga í
Frakklandi verður mótmælt í annað
sinn slðan um helgina framan við
þinghúsið í París í dag. Jafnframt
verða andspymufundir í öðrum
stærri borgum. Nálægt 100.000
manns fylktu liði í höfuðborginni á
laugardaginn og kröfðust frávísun-
ar laga kenndra við innanríkisráð-
herrann, Jean-Louis Debré, um dvöl
þeirra erlendu gesta sem þarfnast
vegabréfsáritunar. Fjölmennar
mótmælagöngur voru víðar.
Tíðindum þykir sæta að „intellíg-
ensían", listafólk og fræðimenn,
hafi loks rankað við sér og hvatt
til mótmælanna. Bent er á í fjölmiðl-
um að þetta fólk hafi lítið látið á
sér kræla þegar vargöld var sem
mest I Bosníu og þegar verkföll
vegna efnahagsaðgerða mótuðu til-
veru Frakka í fyrravetur.
Kvikmyndagerðarmenn áttu nú
frumkvæðið og fjölmargir aðrir
hópar fylgdu eftir: myndlistarmenn
og rithöfundar, blaðamenn og heim-
spekingar, lögfræðingar og læknar.
Undirskriftum var safnað og hvatt
til þess að óhlýðnast reglunum.
Reglurnar eru enn til umfjöllunar
í þinginu og verða teknar til annarr-
ar umræðu af fjórum í dag og á
morgun. Evrópuþingið í Strassborg
skoraði á fímmtudaginn á frönsku
ríkisstjómina að falla frá lagasetn-
ingunni.
Tilkynningarskylda gestgjafa
Fmmvarp Debrés sagði, þar til
í síðustu viku, að áritunarskyldir
útlendingar þyrftu bréf gestgjafa
til að fá landvistarleyfi og seinna
tilkynningu hans um brottför við-
komandi. Það síðarnefnda hefur
sérstaklega valdið úlfúð. Þannig er
skylda lögð á einstaklinga og síðan
bæjaryfirvöld, um samþykki eða
synjun og svo eftirlit með brottför,
almennt I lok þriggja mánaða leyfí-
legs tímabils.
Debré vill herða lög kennd við
fyrirrennarann Pasqua, um tilkynn-
ingaskyldu þeirra sem hýstu útlend-
ing, við komu hans til landsins. Það
var Debré áfall að Alain Juppé for-
sætisráðherra féllst á að gera breyt-
ingartillögu við frumvarpið á
fímmtudaginn var. Hún afnemur
ákvæðið um tilkynningu við brottför
og flytur eftirlit til ríkis og lög-
reglu. Þess má geta að allmargir
bæjarstjórar hafa sniðgengið
Pasqua-reglurnar og kveðjast fúlsa
við hugmyndum Debrés. Á sömu
sveif em þó nokkrir yfírmenn lög-
gegn hertri löggjöf. Juppé neitar
að tjá sig um þróun mála fyrr en
eftir umræður þingsins í vikunni.
Meirihluti Frakka, 67%, styður
lög Debrés með breytingunum,
samkvæmt könnun sem hægrablað-
ið Figaro sagði frá á sunnudag. En
þar kom einnig fram að annar hvor
Frakki styddi mótmælin gegn laga-
setningunni.
Tvö andlit Frakklands
Dagblaðið Le Monde sagði í gær
að Frakkland hefði tvö andlit. Af
öðru lýsti samvinna og sveigjan-
leiki, hitt væri markað gæslu eigin
hagsmuna. Hætta væri á að hið
síðamefnda skyggði á þá ásjónu
vinarþels sem Frakkar hefðu kapp-
kostað að sýna. í leiðara blaðsins
er svipuðum áhyggjum lýst:
„Frakkar hafa kynnt sig sem
örláta menningarþjóð, fúsa til að
veita þeim hæli sem þurfa. En þeir
sem horfa að utan tengja kynþátta-
fordóma og óheilbrigða stífni æ
meira við Frakkland."
Lækkandi tölur um innflytjendur
birtust í dagblaðinu Liberation um
helgina. Tæp 70.000 fluttust til
Frakklands 1995, 18% færri en
árið áður. Fjölskylduástæður voru
algengastar og Afríkufólk fjöl-
mennast.
Lögregla hafði gert ráð fyrir
20.000 manns I mótmælunum og
forsprakkar spáðu 50.000 ef allt
gengi að óskum. Reyndin varð 80-
100.000 manns ef marka má sam-
dóma álit fjölmiðla. Eftir á gaf lög-
reglan upp töluna 33.000 og skipu-
leggjendur 150.000. Sannleikurinn-
er þarna á milli.
Fyrir íslending var ánægjulegt
að sjá hóp innflytjenda marsera
undir slagorðinu „121 erfítt nafn“.