Morgunblaðið - 25.02.1997, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 33
MENNTUN
Patreksskóli kom einna verst út í samræmdum prófum
Skólastarfið endurskoð-
að og vörn snúið í sókn
skólar/námskeið
ýmislegt
GRUNNSKÓLINN á Patreksfírði,
kom einna verst út á landinu í sam-
ræmdum prófum sl. vor en þar hafa
menn snúið vörn í sókn m.a. með
stofnun Góðvinafélags Patreksskóla.
Einnig hefur Guðbrandur Stígur
Ágústsson skólastjóri gert sér ferð í
Kennaraháskóla íslans og markaðs-
sett skólann meðal kennaranema.
í síðustu viku var hann mættur
annað árið í röð ásamt Valgarði
Lyngdal Jónssyni kennara, sem lauk
kennaraprófi frá KHÍ síðastliðið vor
og ákvað eftir kynningu að taka að
sér kennslu fyrir vestan.
Guðbrandur tók við starfí skóla-
stjóra haustið 1995 en þá voru 11
leiðbeinendur við skólann en einung-
is tveir kennarar með réttindi fyrir
utan skólastjóra og aðstoðarskóla-
stjóra. „Annar réttindakennarinn var
í hlutastarfi, þannig að ástandið var
ekki gott,“ segir hann og bætir við
að ekki megi setja samasemmerki á
milli leiðbeinenda og slæms starfs-
fólks og kennara og góðs starfsfólks.
Sjö nýir kennarar
Eitt af því fyrsta sem hann taldi
sig þurfa var að sækja metnaðar-
fullt, ungt og kraftmikið fólk. „Við
réðum sjö nýja kennara, þar af fímm
með réttindi og tvo með BA-próf úr
háskólanum. Þeir hafa verið hjá okk-
ur í vetur og ég reikna með að halda
þeim öllum næsta vetur. Nú erum
við því með fimm leiðbeinendur en
átta réttindakennara."
Markmið skólans er að hafa ein-
ungis kennaramenntað fólk og
kveðst Guðbrandur hafa hvatt
nokkra leiðbeinendurna til að sækja
sér réttindi. „Draumur hvers skóla-
stjóra er að geta valið starfsfólk.
Þannig fengu færri vinnu en vildu í
vetur. Þegar vinnuveitandi getur
valið sér starfsfólk ár eftir ár hlýtur
hann að enda með mjög góðu fólki.“
Tóku áskorun
Hann kveðst strax finna breyt-
ingu, sem megi meðal annars rekja
til þess að í skólann hafí valist metn-
aðarfullt fólk, sem vissi að um áskor-
un var að ræða og var tilbúið til að
leggja ýmislegt á sig til að bæta
gæði skólastarfsins. „Vinnubrögðin
eru orðin faglegri og starfið mark-
vissara." Valgarður Lyngdal segir
að sér finnist eins og skólastarfið
■ Barnfóstrunámskeið
fyrir börn fædd 1983,1984 og 1985.
Kennsluefni: Umönnun ungbarna
og skyndihjálp.
1. 5., 6., 10. og 11. mars.
2. 12., 13., 17. og 18. mars.
3. 2., 3., 7. og 8. apríl.
4. 9., 10., 14. og 15. apríl.
5. 21., 22., 28. og 29. aprfl.
6. 26., 27., 28. og 29. maí.
7. 2., 3., 4. og 5. júní.
8. 9., 10., 11. og 12. júní.
■ Yoga-námskeið
Morgunblaðið/Þorkell
GUÐBRANDUR Stígur Ágústsson (t.v.) skólastjóri Patreksskóla og
Valgarður Lyngdal Jónsson kennari markaðssettu skólann.
hafi verið stoppað á ákveðnum
punkti, búið sé að endurskoða starfið
eins og það var og ákveðið að byija
á mörgu að nýju, jafnvel frá grunni.
„Það er að sjálfsögðu mjög spenn-
andi fyrir nýútskrifaðan kennara að
taka þátt í öflugu uppbyggingar-
starfi og að móta skólastarfið í stað
þess að ganga beint inn í fyrirfram
ákveðið kerfi.“
Þegar Guðbrandur er spurður hvort
hann hafi skýringu á því hvers vegna
nemendur á Vestfjörðum almennt
hafi komið ágætlega út í samræmdum
prófum í 4. bekk, aðeins hafí hallað
undan fæti í 7. bekk og botnsætum
víða verið náð í 10. bekk, kveðst hann
ekki hafa skýringu. Sér detti þó í hug
að eftir því sem nemendur séu lengur
í skóla, þar sem hlutimir séu ekki f
lagi meðal ananrs vegna tíðra kenn-
ara- eða leiðbeinendaskipta, komi bre-
stimir skýrar í ljós. „Það er ekki at-
vinnulífíð sem dregur en það er greini-
lega eitthvað að.“
Gíróseðill sendur
Heimamenn eru jákvæðir í garð
skólans og menn vildu breytingar.
Var tekið upp á því að stofna góð-
vinafélag, sem tengdist ekki einung-
is skólanefnd eða foreldrum heldur
áhugasömu fólki almennt. Var send-
ur út gíróseðlill að upphæð 1.000
kr. til allra íbúa bæjarins 16 ára og
eldri. „Margir voru efins um að þetta
væri rétt aðferð,“ segir Guðbrandur
en ber saman fjáröflun félagasam-
taka sem nota féð til að kaupa tæki
Um 2.000 manns vinna við matvælafram-
leiðslu á Eyjafjarðarsvæðinu
Starfsnám í undir-
búningi 1VM A
VERKMENNTASKÓLINN á Akur-
eyri (VMA) í samvinnu við Háskól-
ann á Akureyri og Útgerðarfélag
Akureyringa er að kanna möguleika
á eins árs starfsnámi í matvælagrein-
um fyrir ófaglært starfsfólk. Stefnt
er að því að námið hefjist í haust,
fáist heimild til þess hjá menntamála-
ráðuneyti.
Að sögn Hauks Jónssonar aðstoð-
arskólameistara VMA vinna um
2.000 manns við matvælaframleiðsiu
á Eyjafjarðarsvæðinu, m.a. við
mjólkuriðnað, sælgætisgerð, kaffí-
brennslu, kjötvinnslu, ölgerð o.fl.
„Matvælaframleiðsla er stóriðja í
þessum landshluta og henni hefur
lítið verið sinnt í skólakerfínu. Veltan
í greininni hér á svæðinu er 15-16
milljarðar króna.“
Stutt starfsnámsbraut
Undirbúningsnefndin hefur leitað
til verkalýðsfélaga og atvinnurek-
enda um það hvers konar menntun
nýtist fyrirtækjunum. „Við erum að
byija að móta hugmyndir um heild-
stæða braut, þar sem sambland verð-
til dæmis fyrir sjúkrahús. Menn voru
greinilega sammála þegar á reyndi,
því heimtur voru góðar og eru um
250 fyrirtæki, stofnanir og einstakl-
ingar nú góðvinir Patreksskóla.
Fyrsta átaksverkefni góðvinafé-
lagsins er að tölvuvæða skólann.
„Bæjarfélagið kemur á móti og kaup-
ir tölvur fyrir kennara og skóla-
stjóra, því þær eru ekki til,“ segir
Guðbrandur. Hann telur jafnframt
að það hafi verið skólakerfínu til
góðs að sveitarfélögin hafi tekið við
rekstri grunnskólans, því góður skóli
sé sveitarfélögum aðhald. Ætli menn
að halda uppi búsetu verði skólinn
að vera í lagi.
Acarya Ashiishananda Avadhuta,
sérþjálfaður yogakennari, heldur reglu-
lega 6 vikna yoga-námskeið. Hópkennsla
og einkatímar.
Lærðu að hugleiða á árangursríkan hátt
með persónulegri leiðsögn.
Lærðu yoga-líkamsæfingar, einstaklings-
bundna kennslu, sem tekur mið af líkam-
legu ástandi hvers og eins.
Næstu námskeið byrja þriðjudagskvöldið
4. mars og miðvikudagskvöldið 5. mars
kl. 17-19.
Uppi. og skráning í sima 551 2970
kl. 9-12 og eftir kl. 21 á kvöldin.
Verð kr. 5.000, afsláttur fyrir skóla-
fólk.
Ananda Marga
Yogahreyfing
á íslandi,
Lindargötu 14, Rvík.
tómstundir
■ Keramiknámskeið
Keramiknámskeið verður haldið í Gall-
erú Kerinu, Laugavegi 32 í lok febrúar.
Upplýsingar í síma 551 5997 og á kvöld-
in 564 2642.
Rannveig Tryggvadóttir.
myndmennt
■ Tréskurðarnámskeið. Fáein pláss
laus í mars-aprfl.
Hannes Flosason,
sími 554 0123.
tölvur
■ Námskeið
- starfsmenntun
64 klst. tölvunám.
84 klst. bókhaldstækni.
■ Stutt námskeið:
Windows 95.
PC grunnnámskeið.
Word grunnur og framhald.
Excel grunnur og framhald.
Access grunnur.
PowerPoint.
PageMaker.
Bamanám.
Unglinganám í Windows.
Unglinganám í forritun.
Internet námskeið.
Hagstætt verð og afar veglegar kennslu-
bækur fylgja með námskeiðum.
Skráning í síma 561 6699,
netfang tolskrvik@treknet.is,
veffang www.treknet.is/tr
Tölvuskóli Reykiavíkur
Borfíartúni 28. simi 561 6699.
ur af verklegu og bóklegu námi. Við
erum enn að reyna að skilgreina
þarfir matvælafyrirtækjanna, en
hugmyndin er að nemendur fái til
að bytja með að kynnast framleiðslu-
ferli í öllum matvælagreinunum. Síð-
an geti þeir valið ákveðinn vinnustað
og sérhæft sig þar.“
Haukur tekur fram að braut sem
þessari eigi eftir að afla viðurkenn-
ingar, réttinda og stöðu í framleiðslu-
fyrirtækjunum og hjá verkalýðsfé-
lögunum. „Ef vel tekst til vonar
maður að af verði og við getum talað
um „hálffaglært" starfsfólk.“
í bóklega hlutanum sjá menn fyr-
ir sér að meginuppistaðan verði ör-
verufræði, næringarfræði, efnis-
fræði, fræðsla um gæðaferli, þvotta-
efni o.fl. Verklega námið verði tekið
úti í atvinnulífinu og nemendur læri
undir handleiðslu reyndra starfs-
manna. „Eins og staðan er í dag
viljum við láta hefðbundnar náms-
greinar eins og ensku, dönsku og
slíkt bíða en vilji fólk framhaldsnám
þá verði þessar námsgreinar teknar
upp þar,“ sagði Haukur Jónsson.
MÓSAMBÍK
Fátækt land með framtíð
Mósambík er eitt fátækasta land heims og illa leikið eftir langvinnar styrjaldir og alræðisstjórn.
En þetta stóra Afríkuríki er engu að síður land möguleikanna. Ýmsar líknar- og hjálparstofnanir
hafa verið að leggja landsmönnum lið við að bæta lífskjörin. Á meðal þeirra eru Hjálparstofnun
kirkjunnar og Þróunarsamvinnustofnun íslands.
Þorkell Þorkelsson, Ijósmyndari Morgunblaðsins, ferðaðist nýverið um Mósambík og fylgdist
meðal annars með brunnagerð ogjarðsprengjuhreinsun, auk þess sem hann beindi linsum sínum
að litskrúðugu mannlífinu. í anddyri Morgunblaðshússins, Kringlunni 1, hefur verið komið upp
yfirlitssýningu á völdum myndum sem teknar voru í ferðinni.
Sýningin stendur til föstudagsins 7. mars og er opin á afgreiðslutíma blaðsins kl. 8-18 alla virka daga
og laugardaga kl. 8-12.
Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu.
MYNDASAFN