Morgunblaðið - 25.02.1997, Síða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Ástkær dóttir okkar og systir,
BRANDÍS KRISTBERGSDÓTTIR,
Hjallavegi 23,
Reykjavík,
sem lést á Barnaspítala Hringsins 17.
febrúar sl., verður jarðsungin frá Ás-
kirkju miðvikudaginn 26. febrúar kl.
15.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna.
Kristberg Óskarsson, Ingiríður B. Þórhallsdóttir,
Harpa Stefánsdóttir,
Bergþóra Kristbergsdóttir.
t
MARGRÉT TRYGGVADÓTTIR,
Fornhaga 13,
Reykjavík,
sem lést í Landakotsspítala
18. febrúar, verður jarðsungin miðviku-
daginn 26. febrúar frá Neskirkju og
hefst athöfnin kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim,
er vildu minnast hennar er bent á
líknarstofnanir.
Tryggvi P. Friðriksson, Elfnbjört Jónsdóttir,
Hallfrfður Bjarnadóttir, Einar Þorvarðarson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Elskuleg móöir okkar, tengdamóðir og
amma,
ÞORBJÖRG SIGRÍÐUR JÓIMSDÓTTIR
frá Kleifarstekk
i Breiðdal,
Laugateigi 5,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju
miðvikudaginn 26. febrúar kl. 15.00.
Nanna Emilsdóttir,
Daniel Emilsson, Erna H. Þórarinsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móð-
ur, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ELÍNAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Norðurbyggð 16,
Akureyri.
Steinþór Jensen,
Guðjón B. Steinþórsson, Svava Ásta Jónsdóttir,
Þórey Steinþórsdóttir, Jóhannes Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför bróður okkar, mágs og frænda,
HAFSTEINS ÞORSTEINSSONAR,
Kirkjuvogi,
Höfnum.
Guð blessi ykkur öll.
Magnús Þorsteinsson,
Svavar Þorsteinsson,
Margrét Þorsteinsdóttir,
Kristinn Þorsteinsson,
og systkinabörn.
Vordis Inga Gestsdóttir,
Sigurlaug Kristjánsdóttir,
Magnús Bjarni Guðmundsson,
Eygló Björg Óladóttir
t
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður og afa,
GÚSTAVS ADOLFS BERGMANN
aðalvarðstjóra,
Mávabraut 8d,
Keflavík.
Gunnar Gústavsson,
Sigurbjörn S. Gústavsson, Laufey Auður Kristjánsdóttir,
Hjalti Gústavsson, Margrét Þóra Einarsdóttir,
Ásdi's Gústavsdóttir, Helgi Bragason
og barnabörn.
LILJA
HRAFNHILDUR
JÓNSDÓTTIR
+ Lilja Hrafnhild-
ur Jónsdóttir
fæddist á Seyðis-
firði 16. maí 1922.
Hún lést á Land-
spítalanum 17.
febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Jón
Vigfússon frá
Brúnum undir
Eyjafjöllum, organ-
isti á Seyðisfirði, f.
1890, d. 1976, og
Sigurlín Sigurðar-
dóttir frá Seyðis-
firði, f. 1900, d.
1966. Lilja átti fimm systkini.
Þau eru: 1) Valgerður, f. 1920,
maki Guðmundur Hjartarson.
2) Lára, f. 1923, d. 1989, maki
Valur Hinriksson. 3) Hörður,
f. 1925, d. 1983, maki Rós Níels-
dóttir. 4) Kristján, f. 1928, maki
Guðbjörg Óskarsdóttir. 5) Guð-
jón, f. 1929, maki Elísabet
Þórðardóttir. Fyrri maður Lilju
var Geir Ásmundsson, bóndi og
trésmiður frá Víðum í Reykjad-
al, f. 28.4. 1906, d. 24.11. 1972.
Börn þeirra eru: 1) Haukur
Óttarr, f. 8.1. 1942, maki Hulda
Ósk Jónsdóttir. Börn þeirra,
Guðjón Haukur, maki Bryndís
Jóhannesdóttir og Tinna Ósk.
Bamaböm, Gunnhildur og
Sveinn. 2) Þórhall-
ur, f. 6.8. 1945,
maki Hjördís Geirs-
dóttir. Börn þeirra
Þórdís Lóa, sambýl-
ismaður Ingimar
Örn Ingimarsson,
Hera Björk, Geir og
Gissur. Bamabarn,
Davíð Örn. 3) Erna
Sigurlín, f. 19.11.
1953, sambýlismað-
ur Hreggviður
Jónsson. 4) Hrafn-
hildur, f. 5.6. 1963,
sambýlismaður Jón
Ingi Hinriksson.
Börn þeirra, Hinrik Geir, Þór-
hallur Ingi og Björg Lilja.
Seinni maður Lilju var Ólafur
Stefánsson, skipstjóri frá
Kvíum í Grunnavíkurhreppi, f.
16.3. 1908, d. 27.11. 1986.
Lilja dvaldist í föðurhúsum
þar til hún gerðist ráðskona á
Hjalla í Reykjadal. Þar kynntist
hún fyrri manni sínum og flyst
með honum til Húsavíkur og
síðan að Víðum í Reykjadal.
Þau bjuggu einnig á Selfossi
og í Kópavogi. Með seinni
manni sínum bjó Lilja í Reykja-
vík;
Útför Lilju fer fram frá Ás-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Mig langar að minnast Lilju
Hrafnhildar Jónsdóttur, elskulegrar
tengdamóður minnar, með nokkr-
um orðum. Kynni okkar hófust er
hún hóf störf í „Hafnarsjoppunni"
á Selfossi fyrir nokkrum áratugum,
þá nýflutt norðan úr landi ásamt
eiginmanni sínum, Geir Ásmunds-
syni trésmið, og börnum þeirra.
Þetta var á þeim árum, þegar
„Randaflugan" og „Hafnarsjoppan"
gegndu hlutverki félagsmiðstöðva
unglinga á Selfossi. Lilja vann sér
fljótt hylli og traust allra sem hún
umgekkst, og kynslóðabil varð að
engu í hennar návist. Það var svo
um ári seinna að ég kom inn á
heimili þeirra Geirs sem tilvonandi
eiginkona Þórhalls sonar þeirra, og
er óhætt að segja að mér hafi verið
tekið þar opnum örmum, og met
ég mikils að hafa átt vináttu þeirra
beggja til hinstu stundar.
Geir og Lilja fluttu síðan með
fjölskylduna „suður“ fyrst til Hafn-
arfjarðar og síðan í Kópavoginn, á
Kársnesbraut 63, þar sem þau
bjuggu lengst hér „sunnan heiða“.
Geir var ættaður úr Þingeyjar-
sýslu en Lilja frá Seyðisfirði og
báru þau bæði með sér einkenni
sinna landshluta hvort á sinn hátt.
Það var því eilítið framandi fyrir
sveitastelpuna sem var svo rækilega
ættuð úr „Flóanum" að finna hvað
átthagarnir sem voru svo óralangt
í burtu, áttu sterk ítök í þeim báð-
um. Tónlist var í hávegum höfð á
heimili þeirra og var það ósjaldan
að Geir tók fiðluna og spilaði ís-
lensk og erlend alþýðulög. Lilja,
sem hafði þýða og fallega sópran-
rödd, söng þá gjarnan með, enda
starfaði hún á þessum árum með
Pólýfonkórnum og síðan Árnes-
ingakórnum í Reykjavík, þar sem
við vorum samtíða í nokkur ár. Það
var Lilju mikill missir er Geir féll
frá á besta aldri eftir erfitt veikinda-
stríð árið 1972.
Lilja starfaði alla tíð utan heimil-
is við ýmis störf, lengst af sem
Jiiiniiiii
■
M
Erfidrykkjur
*
PERLAN
Simi 562 0200
Erfidrykkjur
HÓTEL
REYKJAVÍK
Sigtúni 38
Upplýsingar í símum 568 9000 og 588 3550
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar eigin-
konu minnar, dóttur, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
SIGURBJARGAR EIRÍKSDÓTTUR,
Stuðlaseli 22,
Reykjavik.
matráðskona og við þrif hjá hinum
ýmsu stofnunum. Það var alveg
sama hvar Lilja fór, alls staðar var
hún vinsæl og virt meðal starfs-
manna og fyrsta manneskja að
veita liðsinni ef með þurfti.
Árið 1974 giftist Lilja seinni
manni sínum Ólafi Stefánssyni
skipstjóra og flytur til hans á Loka-
stíg 13 með yngstu dóttur. sína
Hrafnhildi, sem þá var 11 ára. Ólaf-
ur leysti það erfiða hlutverk með
glæsibrag að ganga 11 ára barni í
föðurstað og voru alla tíð miklir
kærleikar með honum og Hrafn-
hildi, svo og öllum afkomendum
Lilju sem hann reyndist eins og
sannur fóstri og afi. Nú hófst nýtt
tímabil í lífi Lilju er hún sigldi um
heimsins höf með Ólafi sínum skip-
stjóra á „Svaninum“ og skoðaði
hinar ýmsu hafnarborgir í Evrópu
og fékk tækifæri til að heimsækja
Ernu dóttur sína, sem þá bjó á eyj-
unni Sylt við Þýskaland. Sjó-
mennskan átti vel við hana og í
einni ferðinni tók hún að sér að
vera kokkur um borð við mikinn
fögnuð skipveija.
Árið 1980 verður Lilja fyrir því
áfalli að missa heilsuna og liggja á
sjúkrahúsi milli heims og helju í
marga mánuði. En hún var ákveðin
í því að komast á fætur og með
óbilandi þrautseigju og hjálp góðra
lækna og hjúkrunarliðs komst hún
til nokkurrar heilsu á ný. Er Ólafur
lét af störfum árið 1984 fluttust
þau á Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna á Hrafnistu í Reykjavík.
Ólafur lést þar árið 1986 eftir stutt
veikindi. Á Hrafnistu leið Lilju afar
vel, þar komu best í ljós eiginleikar
hennar til að aðlagast öðru fólki
og breyttum aðstæðum. Hún tók
virkan þátt í öllu félagslífi og fönd-
urvinnu er í boði var og heilsa henn-
ar leyfði.
Að lokum vil ég koma á fram-
færi þakklæti til alls starfs- og vist-
fólks á Hrafnistu sem lögðu henni
lið, sérstaklega Bjarna Alexanders-
syni, sem reyndist henni sannur
vinur síðustu árin. Tengdamóður
minni þakka ég samfylgdina . Hvíl
hún í friði.
Hjördís Geirsdóttir.
Elsku amma mín. Það er mjög
erfitt að vita að þú sért ekki lengur
hjá okkur. Ég er mjög þakklát fyr-
ir að hafa átt þig fyrir ömmu og
aldrei kvartaðirðu yfir neinu, þú
varst alltaf svo lífsglöð og ánægð
með allt og hafðir alltaf áhuga á
hvað ég ætla að gera í framtíðinni.
Nú hringir þú ekki í mig og segir
mér alls kyns sögur af hvað þú
varst að gera um daginn og frá
öllu sem er að gerast í kringum
þig, þú hafðir alltaf nóg fyrir stafni.
Nú munum við ekki lengur hjálpast
að og skemmta okkur við að pakka
inn jólagjöfunum saman eins og við
erum búnar að gera síðustu árin
eða síðan ég gat byijað að hjálpa
þér. Þetta er svo sárt og ég sakna
þín mjög mikið, þú varst alltaf svo
glöð og ánægð, þrátt fyrir allt ann-
að. Mig langaði að kveðja þig með
því að segja þér að mér þykir mjög
vænt um þig en við munum hittast
seinna. Þangað til ætla ég að hugsa
um allar góðu stundirnar okkar
saman. Ég veit að nú ert þú í góð-
um höndum og nú líður þér vel.
Góði Jesús, læknir lýða,
líkna mér, sem flý til þín,
þjáning ber ég þunga’ og striða,
þreytt er líf og sálin mín.
Sjá, mitt tekur þol að þverra,
þú mér hjálpa, góði Herra,
mín svo dvíni meinin vönd,
milda þína rétt mér hönd.
(Brandur Ögm.)
Nú kveð ég þig, amma mín, í
hinsta sinn.
Þitt ömmubarn,
Tinna Ósk.
Svavar Sigurjónsson,
Sigríður Þórmundsdóttir,
Áslaug Svavarsdóttir, Geir Magnússon,
Margrét Svavarsdóttir, Ingólfur Gissurarson,
Eirikur Svavarsson
og barnabörn.
Crfisdrykkjur
Veitlngohú/id
Gftpi-inn
Sími 555-4477