Morgunblaðið - 25.02.1997, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 49
ÁSGERÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Ásgerður Guðmundsdóttir
fæddist í Vindási í Eyrar-
sveit 8. október 1909. Hún lést
á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi
28. janúar síðastliðinn og fór
útför hennar fram frá Grund-
arfjarðarkirkju 8. febrúar.
Okkur langar að minnast ömmu
okkar með nokkrum orðum. Frá því
að við munum eftir okkur er amma
alltaf einhver staðar inni í okkar
minningum. Hún var ein af þessum
yndislegu persónum sem gaf lit í
allt sem hún kom nálægt, og brosið
hennar og hlátur gat brætt hvaða
hjarta sem var.
Amma tók þátt í öllum okkar
uppátækjum með jafnaðargeði, og
hafði gaman af, hvort sem við vor-
um að bræða kerti inni í skúr, gera
snjóhús, sauma öskupoka, fá að
baka inni í eldhúsi eða stofna lítið
heimili inni í hjalli, þá var jú ýmis-
legt sem vantaði þegar þessir hlutir
voru gerðir og lánaði amma okkar
alltaf það sem vantaði, og hjálpaði
til ef um það var beðið.
Á sumrin þegar þurfti að laga til
í garðinum hennar eða ná í rabar-
bara, vorum við aldrei langt undan
til að hjálpa og fengum við alltaf
að vera með. Ofáar voru ferðirnar
sem við hlupum niður í Kaupfélagið
til að ná í hitt og þetta fyrir ömmu
og voru þessar ferðir stundum
nokkrar yfír daginn.
Á sumrin var það orðið að góðri
venju, að þegar ísinn loksins kom
var jafnt og þétt farið, allt sumar-
ið, út í sjoppu til að redda ömmu ís
í brauðformi, því að það var eitt
af því besta sem hún vissi. Stundum
í miðjum leik ákváðum við að nú
þyrfti amma að fá ís og var hlaup-
ið af stað. Var gleði ömmu alltaf
jafn mikil þegar við birtumst með
ísinn, enda sá hún okkur alltaf út
um eldhúsgluggann, þar sem hún
sat yfirleitt á kvöldin og fyldist með
mannlífinu.
Á sunnudögum fékkst oft leyfi
til að fá að borða hjá ömmu og
afa, og hafa ófáir reynt að líkja
eftir sósunni hennar ömmu en eng-
um tekist það fullkomlega. Eitt af
því skemmtilegasta var þegar við
fengum að gista hjá ömmu, afa og
Valda, því þá var oft mikið fjör hjá
okkur.
Aldrei þurftum við að hafa
áhyggjur af því að vera kalt á fótun-
um á veturna vegna þess að amma
sá okkur alltaf fyrir öllum þeim
ullarsokkum sem við þurftum á að
halda, og þegar við komum til henn-
ar og var orðið ansi kalt eftir útiver-
una, sá amma um að hlýja okkur
með því að blása í olnbogabótina.
Á hveijum degi var komið við hjá
ömmu og oft mörgum sinnum á dag
og var hún alltaf búin að baka eitt-
hvert góðgæti hvort sem það voru
kökur, bollur á bolludaginn, vöfflur,
jólakökur eða annað, og alltaf var
nóg til.
Ein mesta hátíð í okkar hugum
var á aðfangadagskvöld þegar allir
voru búnir að taka upp pakkana
hver á sínu heimili. Þá var alltaf
rölt yfir til ömmu og afa og hittust
þá öll börnin þeirra og barnabörn
og var alltaf glatt á hjalla. Reyndar
ræddum við það nokkrum sinnum
að það gæti hvergi verið eins
skemmtilegt hjá neinum yfir jólin
og okkur, og var ekki laust við að
við vorkenndum hinum krökkunum
sem höfðu það ekki eins skemmti-
legt og við. Amma var yndisleg í
alla staði, bæði hjartahlý, glaðvær
og hjálpsöm.
Elsku amma, þig kveðjum við
með miklum söknuði og munum
geyma minningu þína í hjarta okkar.
Ragnheiður og Valdís.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
séra GUÐMUNDUR SVEINSSON
fyrrverandi skólameistari,
Flúðaseli 30,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 26. febrúar kl. 13.30.
Guðlaug Einarsdóttir
og dætur.
t
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
er sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR JÓNSSONAR,
Eystra-Seljalandi,
Vestur-Eyjafjallahreppi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
deildar 6A á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Marta Kristjánsdóttir,
Örn Þór Einarsson, Barbára Jónsdóttir,
Auður Jóna Sigurðardóttir, Óli Kristinn Ottósson,
Björgvin Valur Sigurðsson, Jóhanna Gyða Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
ATVINNUA UGL YSINGAR
Vélavörð
vantar á Melavík SF 34, 170 tonna bát gerð-
an út á línu með beitningavél, aðalvél 690
hp, frá Hornafirði.
Upplýsingar gefur Guðjón í símum 478 1544
- 892 0664 og skipstjóri í síma 852 7052.
Vífilfell ehf.
óskar eftir að ráða ábyrgan starfskraft til
ræstinga fyrir hádegi.
Áhugasamir hafi samband við Guðbjörgu í
síma 525 2575 eigi síðar en fimmtudaginn
27. febrúar.
Hf. Eimskipafélag íslands annast þjónustu og ráðgjöf á sviði al-
hliða flutninga- og vöruþjónustu
Vélstjóri
EIMSKIP óskar eftir að ráða vélstjóra með
full réttindi, til starfa á skipum sínum.
Fyrir réttan starfsmann er í boði fjölbreytt
og krefjandi starf með margvíslegum tæki-
færum til faglegs og persónulegs þroska.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagþór
Haraldsson, ráðningarstjóri skipverja, í síma
525 7612 frá kl. 10.00 til kl. 12.00 á daginn.
Umsóknum skal skilað til Hjördísar Ásberg,
starfsmannastjóra EIMSKIPS, Pósthús-
stræti 2, 101 Reykjavík, fyrir 1. mars nk.
EIMSKIP
r
RAFEINDAVIRKI
Vegna aukinna verkefna óskum við eftir að
ráða rafeindarvirkja til starfa í tæknideild okkar
sem fyrst.
Starfið felst í þjónustu á rafeindatækjum skipa.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í
rafeindavirkjun og vinnu við tölvur.
Starfið krefst þjónustulundar, góðra
samstarfseiginleika og að geta unnið sjálfstætt.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 5. mars í
pósthólf 828,121 Reykjavík. Nánari upplýsingar
veitir Trausti í síma 562 2675. Með allar
umsóknir verður farið sem trúnaðarmál.
o
R.SIGMUNDSSONehf.
TRYGGVAGÖTU 16101 R. SÍMI: 562 2666, FAX: 562 2140
Rafvirki
Óska eftir að ráða rafvirkja og rafvirkjanema.
Upplýsingar í síma 896 3312 (Sveinn).
Garðabær
Fræðslu- og menningarsvið
Skóladeild
Garðaskóli
- dönskukennari -
Vegna forfalla vantar dönskukennara við
Garðaskóla frá 9. apríl til loka skólaársins.
Upplýsingar veita skólastjóri, Gunnlaugur
Sigurðsson, eða aðstoðarskólastjóri, Þröstur
V. Guðmundsson, í síma 565 8666.
Grunnskólafulltrúi.
ingar!
Gæti verið að varan þín fengi meiri athygli
með betri útstillingu?
Sérmenntaður útstillingarhönnuður
með 1. einkunn
getur bætt á sig verkefnum.
Sérsvið: Gluggaútstillingar og
söluhvetjandi framsetning vöru
í verslunum.
Upplýsingar í síma 565 4125
Sigurlaug Albertsdóttir
Bóksala
, , Bóksala stúdenta óskar eftir að ráða
bOk/UAAUCUIuA starfskraft i verslun fyrirtækisins.
Bóksala stúdenta er eina
bókaverslun sinnar teg-
undar á landinu. Megin-
hlutverk hennar er útveg-
un námsbóka, fræóirita
og handbóka á háskóla-
stigi, ásamt margþættri
þjónustu við háskólasam-
félagið. Bóksaian sinnir
ennfremur þörfum flestra
sérfræöibókasa fna
landsins. Bóksaian var á
sinum tíma brauttyðjandi
á Islandi iþjónustu á
Internetinu, og nýtirsér
nýjustu framfarir tölvu-
tækninnar i rekstri sinum.
I starfinu felst m.a. afgreiösla og
ráðgjöf til viðskiptavina.
Krafist eralmennrar menntunar,
þekkingar og áhuga á bókum, auk góðrar
tungumálakunnáttu. Starfskraftur þarf
að vera dugmikill og fróðleiksfús, reiðu-
búinn að kynna sér háskólasamfélagið
og þarfir þess, viljugur að leggja sig fram
við að þjóna kröfuhörðum viðskipta-
vinum.
Uppiýsingar veitir Gylfi Dalmann
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir
til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
fyrir 4. mars n.k. merktar „Bóksala"
Hagvangur hf
Skeifan 19
108 Reykjavik
Sími: 581 3666
Bréfsími: 568 8618
Netfang:
hagvang@tir.skyrr.is \ q.
Veffang: y
httpV/www.apple.is 0
/hagvangur
HAGVANGUR RAÐNINGARÞJONUSTA
Rétt þekking á róttum tíma
-fyrír rétt fyrírtæki
EIMSKIP leggur áherslu á að auka hlut kvenna í ábyrgðarstöðum
hjá félaginu og þar með stuðla að því að jafna stöðu kynjanna á
vinnumarkaði.