Morgunblaðið - 25.02.1997, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 53
Þaö þarf ekki nema EINA
pillu!
I ÞJÓÐFÉLAGSVERK 1 SVAVARS SIGURDSSONAR
AUGLÝSINGIN sem hefur verið sett á strætisvagna.
Þjóðarátak gegn fíkniefnum
Auglýsingar á strætisvagna
Fyrirlestur
um „hag-
fræði mis-
mununar“
TRYGGVI Þór Herbertsson flytur
1 fyrirlestur fimmtudaginn 27. janúar
| sem hann nefnir: Hagfræði mis-
mununar. Eru tengsl milli hagvaxt-
ar og jafnréttis?
Erindi Tryggva Þórs ijallar um
hvernig ólíkir markaðir t.d. einok-
unarmarkaðir eða samkeppnis-
markaðir leiða til mismunandi stigs
mismununar og við hvaða markaðs-
form jafnrétti ríki. Eining verður
j fjallað um hvort til séu þau skilyrði
að launamunur á milli kynjanna sé
réttlætanlegur og hvort tengsl séu
} milli hagvaxtar og jafnréttis.
Tryggvi Þór Herbertsson er for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar
Háskóla íslands og lektor í við-
skipta- og hagfræðideild. Hann er
menntaður iðnrekstrarfræðingur
frá Tækniskóla Íslands og hefur
lokið M.Sc gráðu í hagfræði frá
Háskóla íslands. Hann er nú að
J vinna að doktorsritgerð sinni við
Háskólann í Árósum en ritgerðin
’’ fjallar um rætur hagvaxtar með
sérstakri áherslu á menntun og
nannauð.
Rabbið er á vegum Rannsókna-
stofu í kvennafræðum við Háskóla
íslands, fer fram í stofu 201 í Odda
kl. 12-13 og er öllum opið.
Tölur á
örlagakorti
Fyrirtækið „Allt er Guðs gjöf“ hef-
1 ur gefið út örlagatölukort með
myndum eftir Helgu Sigurðardóttur
* og talnaspeki Hermundar R. Sig-
urðssonar og írisar Jónsdóttur.
Kortin eru níu talsins, en örlaga-
tölurnar eru frá 1 upp í 9. Örlaga-
tala hvers og eins er þversumma
talnanna, sem fást, þegar tölur af-
mælisdags, mánaðar og fæðingar-
árs eru lagðar saman. í hveiju korti
er svo texti og segir í kynningu,
að hann sé tengdur örlagatölunni
og bendi á eiginleika og önnur at-
riði í fari viðkomandi.
Sagnfrædingafélag
íslands
Fundur um
gerð samninga
I FJÓRÐI félagsfundur Sagnfræð-
ingafélags íslands verður í Þjóð-
skjalasafni íslands, Laugavegi 162,
| þriðjudaginn 25. febrúar kl. 20.30.
Umræðuefni fundarins er: Semja
sagnfræðingar af sér?
Þijár framsögur verða haldnar
um atriði varðandi laun og útgáfu-
rétt í gerð samninga við fyrirtæki,
sveitarfélög og aðra sem fá sagn-
fræðinga til að skrifa fyrir sig bæk-
ur.
Framsögumenn verða Margrét
Guðmunsdóttir, Halldór Bjarnason
og Jón Ólafur Isberg.
Að framsögum loknum verða
veitingar.
I
AUGLÝSINGAR gegn E-pillunni
hafa verið settar á strætisvagna
á vegum Þjóðarátaks gegn fíkni-
efnum. Að sögn Svavars Sigurðs-
sonar fengu samtökin að setja
ókeypis auglýsingu á 30 vagna
Fyrirlestur um
meðvirkni
VILHELMÍNA Magnúsdóttir held-
ur fyrirlestur um meðvirkni þriðju-
dagskvöldið 25. febrúar kl. 20 í
Listhúsinu að Engjateigi 17-19 í
Laugardal. Aðgangseyrir er 1.000
kr. og kaffisala er í Listakaffi í
hléinu.
Vilhelmína talar um það hvemig
fólk dregur að sér ólíka reynslu,
stundum til að læra af henni og
stundum af því að það kann ekki
annað. Og um áunnin hegðunar-
SVR og 24 vagna Hagvagna.
Þá hefur vefdeild Islandia sett
upp heimasíðu með upplýsingum
um skaðsemi E-pillunnar eða
fikniefnisins Ecstasy, eins og það
heitir á ensku.
mynstur sem skapast í æsku, af-
neitun á þeim og leiðir til frelsis,
segir í fréttatilkynningu.
Aukasýning á í
hvítu myrkri
SÍÐASTA sýning á leikriti Karls
Ágústs Úlfssonar, I hvítu myrkri,
er um næstu helgi, 2. mars, og er
uppselt á þá sýningu. Aukasýning
hefur verið ákveðin á miðvikudags-
kvöld, 26. febrúar.
í hvítu myrkri var frumsýnt á
Litla sviðinu á liðnu hausti og eru
sýningar orðnar hátt í fjörutíu tals-
ins.
Leikendur eru Kristbjörg Kjeld,
Ragnheiður Steindórsdóttir, Þröst-
ur Leó Gunnarsson, Magnús Ragn-
arsson, Sigurður Skúlason og Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir.
Málstofa Sam-
vinnuháskólans
MÁLSTOFA á vegum Samvinnuhá-
skólans fer fram miðvikudaginn 26.
febrúar kl. 15.30 í hátíðarsal skól-
ans. Málstofugestur er Finnur Ing-
ólfsson, iðnaðarráðherra og mun
hann fjalla um hvort stóriðja sé
besti valkosturinn í atvinnumálum
íslendinga.
Samvinnuháskólinn efnir til
nokkurra málstofa á hverju misseri
um málefni sem eru ofarlega á
baugi og tengjast námsefni skól-
ans, rekstrarfræði, á einhvern hátt.
Málstofugestir á þessu misseri eru
auk Finns: Magnús Stefánsson,
Guðmundur Ragnar Guðmundsson,
Lára Jóhannsdóttir, Jónína Bene-
diktsdóttir, Jónas Kristjánsson og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Mál-
stofurnar eru öllum opnar.
■ UMSÓKNARFRESTUR um
styrki í Nýsköpunarsjóð náms-
manna er til 10. mars nk. Mark-
mið sjóðsins er að veita háskólum,
rannsóknarstofnunum, fyrirtækjum
og/eða einstaklingum sem teljast
búa yfir sérþekkingu á ákveðnu
sviði styrki til að ráða til sín náms-
menn í háskólanámi til að vinna að
verkefnum yfir sumartímann. í
verkefninu þarf að felast nýsköpun
fyrir atvinnulíf eða á fræðasviði.
Um styrki geta sótt einstaklilngar,
stofnanir og/eða fyrirtæki og skulu
umsóknir vera á þar til gerðum
eyðublöðum sem fást á skrifstofu
Stúdentaráðs Háskóla íslands. All-
ar nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu Stúdentaráðs.
Heimahlynning
með opið hús
HEIMAHLYNNING verður með
samverustund fyrir aðstandendur í
kvöld, þriðjudaginn 25. febrúar, kl.
20-22 í húsi Krabbameinsfélags
íslands, Skógarhlíð 8.
Gestir kvöldsins verða nokkrar
ungar konur sem misst hafa maka
sína og segja þær frá reynslu sinni.
Kaffi og meðlæti verða á boðstólum.
LEIÐRÉTT
Nafnabrengl
ÞAU mistök urðu við birtingu grein-
arinnar „Líkamsárásir og landhelg-
issbrot“ sl. laugardag, að höfundur
var nefndur Ógmundur, en hans
rétta nafn er Onundur. Hann og
aðrir hlutaðeigendur eru beðnir vel-
virðingar á þessu nafnabrengli.
Þura í Garði þakkaði
símskeyti
Verslunarskólanema
SIGRÚN Guðbrandsdóttir fyrrver-
andi kennari hringdi vegna vísu
eftir Þuru í Garði sem birtist á bls.
6 í Daglegu lífi á föstudaginn. Hún
heyrði vísuna af vörum Þuru og
sagan í kringum hana er eftirfar-
andi: Verslunarskólanemendur
höfðu heimsótt hana og tveir þeirra
sent henni vísu í símskeyti eftir
heimkomu.
Þura í Garði þraukar hér
þöpl á vatnsins bakka.
Ef hún kynntist meira mér,
myndi hún eiga krakka.
Hún svaraði að bragði með öðru
símskeyti á þessa Ieið:
Ekki þarftu að efa það;
að eg þakka skeytið.
Nefndu, drenpr! stund og stað
og stattu við fyrirheitið.
Ur dagbók lögreglunnar
Níutíu ökutæki
skemmdust
21. til 24. febrúar.
UM HELGINA var tilkynnt um
45 umferðaróhöpp til lögreglunn-
ar í Reykjavík. í þessum óhöppum
skemmdust u.þ.b. 90 ökutæki
meira og minna auk þess sem 12
manns hlutu meiðsli.
Lögreglumenn þurftu að sekta
eigendur 34 bifreiða fyrir að
leggja ólöglega um helgina, 21
ökumaður var kærður fyrir að aka
yfir leyfilegum hámarkshraða-
mörkum og 5 ökumenn voru grun-
aðir um ölvunarakstur. Þrír þeirra
höfðu lent í óhöppum áður en til
þeirra náðist.
Líkamsmeiðingar og innbrot
Sex ökumenn voru kærðir fyrir
að virða ekki stöðvunarskyldu og
4 ökumenn voru kærðir fyrir að
aka gegn rauðu ljósi, auk þeirra
sem staðnir voru að verki með
löggæslumyndavélum.
Þá voru skráningarnúmer tekin
af 27 ökutækjum vegna van-
rækslu á að færa þau til aðalskoð-
unar eða greiðslu ábyrgðartrygg-
ingargjalda, 4 ökumenn, sem af-
skipti var haft af, reyndust ekki
hafa ökuskírteini meðferðis, einn
ökumaður var kærður fyrir að
nota ekki bílbelti og í einu tilviki
þurfti að vísa umframfarþega út
úr bifreið, sem hann var í.
Tilkynnt var um 7 líkamsmeið-
ingar, 11 innbrot, 5 þjófnaði, 13
eignarspjöll og afskipti þurfti að
hafa af 34 vegna ölvunar á al-
mannafæri. Vista þurfti 30 manns
í fangageymslunum vegna ýmissa
mála, þ.a. tvo vegna meðferðar
fíkniefna. Kvartað var 23 sinnum
vegna hávaða og ónæðis innan
dyra. í þeim tilvikum var aðallega
um að ræða ölvað fólk, sem ekki
kunni sér hóf við „skemmtan"
sína.
Á föstudagsmorgun var brotist
inn í bifreið í Hjálmholti og stolið
úr henni GPS staðsetningartæki
af Garmin gerð. Stolið var
greiðslukortum úr tveimur bif-
reiðum við Tunguháls.
Um hádegisbilið þurftu tveir
ökumenn að leita á slysadeild eft-
ir harðan árekstur þriggja bifreiða
á Hringbraut gegn Landspítalan-
um. Skömmu síðar þurfti ökumað-
ur að leita á slysadeild vegna
áreksturs tveggja bifreiða á sama
stað.
Drengur höfuðkúpubrotnaði
Síðdegis þurfti að færa öku-
mann og tvo farþega á slysadeild
eftir harðan árekstur tveggja bif-
reiða á gatnamótum Reykjanes-
brautar og Stekkjarbakka. Talið
var að annar farþeginn, 10 ára
drengur, hefði höfuðkúpubrotnað.
Slökkviliðsmenn þurftu að beita
vatnssugu í húsi í vesturbænum
eftir að maður í baði gleymdi að
skrúfa þar fyrir vatnið. Flæddi
vatnið á milli hæða.
Farþegi var fluttur á slysadeild
eftir harðan árekstur á Vestur-
landsvegi við Úlfarsfellsveg og
skömmu síðar var bifreið ekið
útaf og á hitaveitustokk á Vestur-
landsvegi við Lágafell. Ökumað-
urinn var fluttur á slysadeild, en
meiðsli hans voru ekki talin alvar-
leg.
Aðfaranótt laugardags var
brotist inn í bifreið í Geirsgötu
og úr henni stolið veski með pen-
ingum. Á laugardag var brotin
rúða í skóla í Breiðholti og farið
þar inn í kennarastofu, en engu
virðist hafa verið stolið. Þá voru
sjö rúður brotnar við innganga
skóla á Seltjarnarnesi. Kassa með
peningum og greiðslunótum var
stolið úr fyrirtæki við Dugguvog.
Tveir ungir drengir fundu kassann
síðar um daginn við Gyðufell og
fóru með hann á Iögreglustöðina
í Breiðholti.
Um kvöldið varð 16 ára stúlka
fyrir bifreið í Rofabæ. Hún hand-
leggsbrotnaði og var flutt á slysa-
deild með sjúkrabifreið.
Inn um glugga á eftir þjófi
Á laugardagskvöld var um 70
unglingum vísað út úr húsi við
Þverás. Á sunnudagsmorgun voru
rúður brotnar í hurð skóla í Aust-
urborginni. Þá var tilkynnt um
að maður hefði skriðið inn um
glugga veitingahúss við Rauðar-
árstíg. Lögreglumenn fóru inn um
gluggann á eftir manninum og
handtóku hann á staðnum. Geisla-
spilara var stolið úr bifreið við
Vagnhöfða.
Um morguninn gekk maður inn
um ólæstar dyr söluturns við
Skúlagötu. Þegar hann kom inn
læstust dymar og maðurinn
komst ekki út. Um leið fór inn-
brotsvarnarkerfi verslunarinnar
fór í gang. Eigandinn mætti á
staðinn og bjargaði „viðskiptavin-
inum“ úr prísundinni.
Tveir ökumenn fóm sjálfir á
slysadeild eftir harðan árekstur
fjögurra bifreiða á Skúlagötu við
Klöpp. Brotist var inn í hús á
Kjalarnesi og þaðan stolið hljóm-
flutningstækjum, sjónvarpi,
myndbandstæki o.fl. Síðdegis
varð gangandi vegfarandi fyrir
bifreið í Hafnarstræti. Hann hlaut
minniháttar meiðsli.
Reyndi að svíkja út mat
Um kvöldið var ölvaður maður
handtekinn eftir að hafa reynt að
svíkja út mat á veitingastað í
miðborginni. Áður hafði honum
ásamt félaga sínum tekist að
svíkja út drykki á öðrum veitinga-
stað í miðborginni.
Um 1.500 manns voru í mið-
borginni þegar flest var aðfara-
nótt laugardags. Handtaka þurfti
7 vegna ölvunarháttsemi. Lög-
reglumenn fóru um Garfarvog og
Breiðholt um miðnætti. Þeir
þurftu að hafa afskipti af þremur
börnum undir 16 ára aldri. Þau
voru færð á lögreglustöðina í
Breiðholti og sótt þangað af for-
eldrum sínum. Aðfaranótt sunnu-
dags voru um 2.500 manns í mið-
borginni. Afskipti þurfti að hafa
af 5 manns vegna ölvunarhátt-
semi.
Fulltúar lögreglunnar á Suð-
vesturlandi_hittust á Selfossi í síð-
ustu viku. Á þeim fundi var ákveð-
ið að næsta sameiginlega við-
fangsefni lögregluembættanna í
umferðarmálum verði eftirlit með
ástandi og búnaði eftirvagna, s.s.
vélsleðakerra, hestakerra o.fl.,
jafnframt því sem hugað verður
að búnaði, s.s. speglabúnaði
dráttarökutækjanna. Þá verði
hugað að akstri vélsleða í þétt-
býli svo og ökuréttindum stjórn-
enda þeirra, en nýlega var kveðinn
upp dómur í Héraðsdómi Austur-
lands yfir manni, sem ók hjálm-
laus vélsleða á svæði þar sem slík-
ur akstur er bannaður. Viðurlög
urðu 18 þúsund kr. sekt.
Eftirlit með fíkniefnafólki
Þá var einnig rædd hugmynd
um samstarf lögregluembættanna
í virkara eftirliti með fólki sem
tengist fíkniefnum, en mikill
áhugi hefur verið hjá yfirmönnum
um þetta efni. Ákveðið var að
leggja til við sýslumennina/lög-
reglustjóra tillögu að hugsanlegri
framkvæmd slíks eftirlits.